Dagblaðið - 22.12.1978, Blaðsíða 32

Dagblaðið - 22.12.1978, Blaðsíða 32
gamanmyndir, synaarsaman AXLIÐ BYSSURNAR ■ / PILAGRÍMURINN ^ BRAUÐ OG ÁLEGGSSNEIÐARI sneiðír allt án erfiðis, þykkt eða næfurþunnt: brauð, grænmeti, beikon og hvers konar álegg. Hann er fyrirferðarlítill og handhægur, hefur hallandi borð, augljósa þykktarstillingu, útdreginn fráleggsbakka, innbyggða snúrugeymslu og siðast en ekki sizt barna-öryggislás. /ranix SÍMI 24420 HATUNI 6A Sölufólk Vanlar sölufólk til að selja happdræuisniiöa. Gc')ð sölulaun. Duglcgi söhifólk faer góða jólagjöf. Miðarafhendasi i Sundlaug Veslurbæjar frá kl. 1—7 í dag og næstu daga eða hringið í síma 44904 og miðarnir vcrða sendir hcim. Sundsamband ísiands »u-a.uat--■ •fivutuvnMMiootnni Laugardal Reykjavik Jóbmvnd 1978 Chaplin Revuc Ib* m. Frábær skemmtun. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978. "ÍÍSÍWH kei5i revöHHl ÞEGAR MAMMA VAR UNG - Egill og Diddú Útgofandi: Stoinar hf. (Steinar-028) Upptökustjóm: Valgoir Guðjónsson Upptökumaður. Sigurður Bjóla Sérlegir róðgofendur Pétur Pétursson Auróra Halldórsdóttir Hljóðrítun: Hljóðríti REVÍUVÍSUR Atf reð Andrésson Brynjólfur Jóhannesson Lárus Ingólfsson Nina S veinsdóttir Útgefandi: SG-hljómplötur (SG-116) Hljóðrítun: Útvarpið Blómaskeið íslenzku reviunnar á fjórða og fimmta áratugnum hefur að mörgu leyti verið góður tími. Krepp- unni illræmdu var óðum að linna. Sú félagslega eymd sem fátæktinni fylgdi var í rénun og svo kom blessað stríðið með aukna atvinnu, fé, sæta soldáta •og ástandið fræga sem þeim fylgdi. Síðast en ekki sízt virðist skopskyn þjóðarinnar hafa verið i bezta lagi. Alla vega benda reviuplöturnar tvær, sem nýlega voru gefnar út, til þess. „Af revíunum i Reykjavík væri mikil saga ef hún yrði skráð," segir Brynjólfur heitinn Jóhannesson leikari í ævisögu sinni Karlar eins og ég. „Þær komu og fóru eins og vindurinn, stóðu með blóma eilt árið og lögðust svo niður það næsta. Þá fengust margir hnyttnir og hagorðir menn við revíusmíð, Páll Skúlason, Morten Ottesen, Tómas Guðmundsson. Emil Thoroddsen! Haraldur Á. Sigurðsson. Bjarni Guðmundsson og raunar enn fleiri.” Og Brynjólfur heldur áfram: „Síðasta blómaskeið revíunnar hófst með Fjalakettinum sem þeir stofnuðu Emil, Haraldur og Indriði Waage, en Alfreð Andrésson gekk siðan í lið með þeim. ... En nú hafa revíur lengi legið í láginni þó allt ann- að leikhúslíf taki framförum. það er eins og skopgáfan hafi brugðizt í allri velgengninni.” Plöturnar tvaer, sem hér um ræðir, Þegar mamma var ung og Reviuvisur, flytja hlustendum sýnishorn af reviu- tónlistinni frá árunum 1938—46 eða þar um bil. Hversu gott þetta sýnis- horn er get ég ekki tjáð mig um. Til þess er ég allt of ókunnugur þessu líf- lega timabili. En hvað sem því liður eru plöturnar báðar bráðskemmtileg- ar, hvorá sinn hátt. Þó að plöturnar flytji báðar revíu- tónlist eða gamanvísur öðru nafni, eru þær á margan hátt ósambærilegar. Á plötunni Þegar mamma var ung eru nýjar upptökur með ungum söngvur- um. Rcviuvísur flytja okkur raddir fjögurra kunnustu gamanvisnasöngv- ara fyrri ára, þeirra Alfreðs Andrés- sonar, Brynjólfs Jóhannessonar, Nínu Sveinsdóttur og Lárusar Ingólfssonar. Sú plata hefur sem sagt auk skemmt- unarinnar sem hún flytur mikið söfn- unargildi. Upptökur plötunnar eru fengnar úr hljóðritanasafni útvarpsins og eru þær sumar hverjar orðnar anzi þreyttar. Það kemur þó tæpast að sök. Þaðer andinn, sem skiptir máli. Ekki er mér kunnugt um, hvort út- gefendurnir Steinar Berg og Svavar Gests vissu hvor af fyrirætlunum hins er þeir ákváðu að gefa út plötur með revíutónlist. En hvað um það, þeir hafa verið furðanlega heppnir að sneiða fram hjá því að gefa út plötur með sömu lögum. Aðeins tvö lög eru á plötuni beggja. Kerlingavisurnar margfrægu og lag. sem á plötu SG nefnist Syrpa Óla í Fitjakoti. en heitir Syrpuþula á Steinaplötunni. Úrvalið á plötum beggja sýnir raunar að um auðugan garð er að gresja í gaman- visnasafninu. Það er lán i óláni að tvö lög skyldu liafa slysazt inn á báðar revíuplöturn- ar. Þá gefst samanburður. Að mínum smekk hafa gömlu útsetningamar vinninginn. Þó að Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir standi sig prýði- lega i túlkun sinni, þá eru gömlu útgáf- urnar líflegri ásamt því að vera meira gamaldags. Þær hæfa þvi gamaldags músík betur. En hvað sem samanburð- inum líður þá eru plöturnar báðar prýðisupprifjun fyrir fullorðna á þeim tima þegar reviurnar riðu húsum og mamma var ung. Fyrir þá yngri eru plöturnar lykill að liðnum tíma, sem við eigum sennilega aldrei eftir að upp- lifa aftur frekar en hernám, ástand og heimskreppu. -ÁT- Ævintýri Emils: Emil #Kattholti er bráöfyndinn sem ÆVINTÝRI EMILS Útgefandi Steinar hf. (SMÁ-202) Tónlistarstjóm og útsotningar: Sigurður R. Jónsson Leikstjóm: Helga E. Jónsdóttir Upptökumaður Tony Cook Hljóðrítun: Hljóðríti Fáir sjónvarpsþættir hafa notið nteiri hylli barna og unglinga — já, og fullorðinna en ævintýrin um Emil í Kattholti. Fyrir nokkrum árum kom einnig út bók um prakkarann og fyrir jólin í fyrra plata með nokkrum af ævintýrum hans og prakkarastrikum. Önnur plata hefur nú litið dagsins ljós. Ævintýri Emils heitir hún. Mér er til efs að ég hafi nokkurn tima hlegið jafn dátt að nokkurri plötu og Ævintýrum Emils. Jú, platan Látum sem ekkert c mcð Halla. Ladda og Gísla Rúnari var fyndnari, en Ævintýri Emils skipa áreiðanlega ann- aö sætið. Þar greinir frá uppboði i Bakkakoti, þar sem Emil kaupir meðal annars halta hænu, Höltu-Lottu, og hefur kú af pabba sínum. Han fer á markað og eignast þar hest á óvæntan hátt. Um veturinn bjargar hann lífi Alfreðs vinnuntanns i Kattholti ogsíð- ast en ekki sízt lendir hann á dúndr- andi fyllirii með hananum á bænum oggrísnum Grislingi. Fyllsta ástæða cr til að mæla með Ævintýrum Emils sem bráðsmellinni plötu fyrir börn. Og mér er ekki grun- laust urn að einhverjir foreldrar eigi eftir að laumast til að setja plötuna á fóninn öðru hvoru, sér til óblandinnar ánægju. Góða skemmtun. -ÁT- BJARTER YFIR BETLEHEM— SÍDASTA PLATA ÁR8INS Síðasta hljómplata ársins kom á markaðinn i gær. Sú nefnist Bjart er yfir Betlehem. Á henni syngur Stúlknakór Hliðaskóla fjórtán jóla- lög og -sálma, flesta vel kunna. Jón Stcfánsson orgelleikari í Lang- . holtskirkju annast undirleik. Það kentur ekki til af góðu að þessi plata er seint á ferðinni. Sendingin týndist nefnilega a leið- inni frá Bandarikjununt. Að sögn annars útgefanda plötunnar var ekki um annað að ræða en að senda plötuna á nrarkað þó að að eins þrír dagar væru til jóla. Það kaupir jú enginn jólaplötu ellefu mánuðum fyrir jól og stórt fjár hagslegt tap hefði verið á þvi að láta Bjart er yfir Betlehem liggja til næstu jóla. Útgefandi jólaplötu Stúlknakórs Hlíðaskóla er fyrirtækið isalög. Dreifingu annast Fálkinn. -ÁT-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.