Dagblaðið - 22.12.1978, Blaðsíða 18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUÐAGUR 22. DESEMBER 1978.
18
I
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþrótti
Rono beztur hjá sovézkum
Stórhlauparinn frá Kenýa, Henry
Rono, varð „iþróttamaður ársins” 1
skoðanakönnun, sem sovézka frétta-
stofan Tass gekkst fyrir. Úrslit voru
tilkynnt 1 gær. t öðru sæti varð sovézki
hástökkvarinn Yaschcnko, sem setti
hcimsmet i hástökki, og jafnar i þríðja sæti
komu Marita Koch, Austur-Þýzkalandi,
Tracy Caulkins, Bandaríkjunum og
Vilma Bardauskene, Sovétr. Koch
náði frábærum árangri I spretthlaupum i
ár — Caulkins i sundi og Bardauskene
varð fyrst kvenna til að stökkva yfir sjö
metra I langstökki.
Tass-fréttastofan gengst árlega fyrir
slikri
Tass-fréttastofan gengst árjega fyrir
slikri skoðanakönnun og það eru iþrótta-
fréttamenn frá 25 fréttastofum, sem
velja íþróttafólkið á lista Tass.
Henry Rono varð í efsta sæti hjá þeim
flestum enda árangur hans á hlaupa-
brautinni stórkostlegur siðastliðið
sumar. Hann setti fjögur heimsmet í
3000, 5000, 10000 metrum og 3000
meira hindrunarlilaupi og stórbætti
árangurinn á öllum þessum vega-
lengdum.
LOKÚM 16. AL.DAH
.Utst’f. víit*«
FRÁ ÓLJÓSUM
HUGMYNDUM
AÐ RÉTTRIYFIRSÝN
UMlSIAND
SEINNA BINDI KORIASÖGU ÍSIANDS
EFTIR HARALD SIGURÐSSON ER KOMIÐ ÚT
Þetta er gullfalleg og vönduð bók, eitt af afrekum
íslenskrar prentlistar og stórmerkur þáttur
landfræðisögunnar. Seinna bindi hennar, sem nú er
komið út, nær frá lokum 16. aldar til 1848, þegar
Björn Gunnlaugsson lýkur mælingu íslands og kort
hans eru gefin út. Hefur bókin að geyma, auk.
textans, 165 myndir af landakortum og kortahlutum,
og eru 146 myndanna svart-hvítar en 19 litmyndir.
Er í bókinni rakin af mikilli nákvæmni saga
íslands á kortum frá dögum Guðbrands biskups
Þorlákssonar til miðrar 19. aldar og rækileg grein
gerð fyrir þróun kortagerðar af norðvestanverðri
kringlu heims á því tímabili.
Fyrra bindi Kortasögu íslands kom út 1971 og nær
frá öndverðu til loka 16. aldar.
Rit þetta er stórviðburður í sögu íslenskrar
bókaútgáfu.
BÓKAÚTGÁFA
MENNINGARSJÓÐS
OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS
Skálholtsstíg 7 Sími 13652
Ingemar Stenmark með rásnúmer eitt I stórsvigskeppninni i Arosa i vetur. Fyrsta keppni heii
yfirburðum.
30. sigur Ster
heimsbikarkei
—og hann íhugar nú að taka einnig þál
„Keppnin I dag var mjög erfið. Það var
útilokað að skiða fallega, aðeins tíminn skipti
máli. Það var ekki þjðingarmikið fyrir mig að
sigra, en ég er samt mjög ánægður með
sigurinn eftir að hafaorðið aðeins i 14. sæti i
fyrstu svigkeppni heimsbikarsins i Madonna
di Campiglio I siðustu viku,” sagði sænski
heimsmeistarinn í alpagreinum, Ingemar
Stenmark, eftir að hann sigraði I svigi I
Kranjska Gora i Júgóslavíu I gær. í dag
verður keppt þar I stórsvigi.
Þetta var 18. sigur Stenmark í svigkcppni i
heimsbikarnum — og 30.sigur hans í þessari
miklu keppni — 12 sinnum í stórsvigi. —
Hann hefur sigrað þar mun oftar en nokkur
annar skiðamaður gegnum árin.
Ingemar Stenmark hafði örugga forustu
eftir fyrri umferðina í gær i Gora og tók litla
áhættu í þeirri siðari. Timi hans samanlagt
var 1:46.57 mín. Annar varð Paul Frommelt
frá Lichtenstein á 1:46.77 mín. Hann var i
fimmta sæti eftir fyrri umferðina. en náði
beztum tíma i þeirri síðari. Þetta er í þriðja
sinn. sem Frommelt verður i öðru sæti á eftir
Stenmark í svigkeppni heimsbikarsins. Hann
var 43 sekúndubrotum á eftir Stennark eftir
fyrri umferðina.
„Ég er ánægður með að hafa verið meðal
þriggja beztu. Fyrri umfcrðin var ekki nógu
góð og ef ég hefði þá gert aðeins betur hefði
mér getað auðnast að vinna minn fyrsta sigur
í svigi í heimsbikarnum,” sagði Frommclt eftir
keppnina.
í þriðja sæti var nýja stjarnan frá Ítalíu.
Leonardo David. á 1:48.00 mín. og fjórði varð
Bojan Krizaj, Júgóslaviu, en mistök í siðari
umferðinni kostuðu hann verðlaunasæti. í
finmta sæti varð mjög óvænt Philip Hardy,
Frakklandi.
Martial Donnet, Sviss, sem sigraði i
Madonna varð nú aðeins i tíunda sæti og með-
al þeirra, sem ekki luku keppni voru Christian
Neureuther, V-Þýzkalandi. Peter Lúscher,
Sviss, sem er efstur i stigakeppninni mcð 65
stig. Stenmark er i öðru sæti með 50 stig. Þá
Gerd Miiller
hættir í vor
Gerhard Múller, mesti markaskorari Vest-
ur-Þjóðverja gegnum árin, tilkynnti i gær aó
hann mundi hætta i knattspyrnunni eftir leik-
Nýir þjálfarar A-Þjóðverja
Austur-Þjóöverjar, sem undanfarin ár hafa
verið snjallasta sundþjóð heims ásamt Banda-
ríkjamönnum, náði aðeins fimmta sæti á sið-
ustu heimsmeistarakeppni i Vcstur-Berlín í
sumar. Það hlaut að hafa byltingu I för mcð sér
og i gær tilkynnti sundsamband A-Þýzkalands
að þjáifarar sundfólksins hefðu látið af störfum
og tveir nýir ráðnir. Það eru Dieter Schulze
sem yfirþjálfari og Lothar Ölman, sem verður
þjálfari karlmannanna. Fyrrum yfirþjálfarinn,
Rudolf Schramme, prófessor, hefur gerzt þjálf-
ari hjá litlu félagi í Austur-Berlín. Á HM í
Berlín hlaut Austur-Þýzkaland aðeins ein gull-.
verðlaun.
timabilið, sem nú stendur yfir — eða i vor.
Miiller „Der Bomber” hefur um langt árabil
leikið með Bayern Múnchen og er enn aðal-
markaskorari liðsins. Þrívegis í röð sigraði fé-
lagið í Evrópubikarnum — keppni meistara-
liða — og Múller lagði grunninn að þeim sigr-
um með mörkum sinum.
Hann varð heimsmeistari 1974, þegar Vest-
ur-Þjóðverjar sigruðu Holland 2—1 og skor-
aði sigurmark þýzka liðsins í þeim leik. Eftir
HM tilkynnti hinn þéttvaxni, litli miðherji að
hann myndi ekki oftar leika með vestur-þýzka
landsliðinu.
Hann lék 62 landsleiki og skoraði i þeim 68
mörk — eða meira en mark í leik að meðaltali.
Það þykir frábært. 1 heimsmeistarakeppninni i
Mexikó 1970 var Múller markahæstur leik-
manna. Hann hóf að leika með Bayern 1964
og komst fljótt í landsliðið ásamt félögum;