Dagblaðið - 22.12.1978, Qupperneq 5

Dagblaðið - 22.12.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978. r. - ---------------------- HEIMILISLÆKNIR SVARAR S----------------- ■— GETA BORN FENGIÐ RAUÐA HUNDA OFTAR EN EINU SINNI? Steinunn Þórisdóttir hringdi: Ef börn á aldrinum 1—4 ára fá mislinga, hettusótt eða rauða hunda. geta þau þá fengið þessa sjúkdóma aftur? Hvað líður langur timi frá þvi að börnin taka smit og þar til þau veikjast? Hvað bera þau lengi smit? Hvernig gera þcssir sjúkdómar vart við sig, þ.e. hver eru byrjunarein- kenni? K.G. spyr: Er hægt að fá rauða hunda oftar cn einu sinni? Ég á 3 börn, sem eftir öllum sólar merkjum að dærna hafa fengið rauöa hunda oftar en einu sinni. Tvö þeirra tvisvar, cn það þriðja þrisvar. Þetta var i öllum tilfellum nenia einu staðfest af lækni. Læknir stað festi þetta þrisvar með eitt barnið. Fólk virðist ckki vilja trúa þcssu. Börnin voru i engu tilfellinu mjög ung og faraldur gekk i öll skiptin, cn börnin voru á leikskóla þar sern far aldurinngekk. Mig langar til að fá svar við þessu. þar sem ég er farin að efast um að ég fari með rétt mál. SVAR: Mótefnamyndun er mjög ein staklingsbundin og einnig mismikil við hinar ýmsu sóttir. Mislingasýking veldur l.d. langoftast góðri mótefna- myndun, þannig að viðkomandi er ónæmur fyrir sóttinni til æviloka. Hettusótt og rauðir hundar valda oft ekki eins mikilli mótefnasvörun og þvi eru meiri likur á endursýkingu. Algengt er þó að sýking valdi langvar andi (ævilöngu) ónæmi. Meðgöngutimi (þ.e. frá sntiti þar til einkenni koma í Ijós) er 2—3 vikur fyrir rauða hunda og hettusótt en unt 10 dagar fyrir mislinga. Smitburður mislinga óg rauðra hunda er þar til útbrot eru horfin. hettusóttar þar til hiti og bólga eru horfin. Algeng byrjunareinkenni mis linga eru nefkvef, þurr hósti, rauð augu. ljósfælni, hár hiti. siðar upphleyptar útbrotaskellur. Rauðir hundar byrja oftast með bólgnum eitlum neðan eyrna og aftan á hnakka. ásamt nteð fíngerðum, rauðleitum út brotum, sem byrja oftast á höfði eða hálsi. Hettusótt einkennist af bólgnum munnvatnskirtlum, þ.e. framan og neðan við eyru. og hita. Sjaldan leikur vafi á greiningu mislinga og hettusóttar, en einkenni rauðra hunda geta verið óljós og eina áreiðanlega greiningin fæst ntcð mótefnamælingum. V ENDURSKINS- MERKI ERU NAUÐSYNLEC FYRIR ALLA umferdarrAð BANKASTR/ETI 11. SIMI 14275. LAUGAVEGI 48. SIMI 21599.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.