Dagblaðið - 28.12.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1978
3
„ALLT ORKAR TVÍ-
MÆUS ÞA GJÖRT ER”
Allmikil blaðaskrif hafa verið að
undanförnu um úrskurð Kjaradóms i
kjaradeilu hjúkrunarfræðinga með
próffrá Háskóla íslands.
Kjör félaga og aukafélaga Hjúkr
unarfélags Íslands. HFÍ. hafa talsvcrl
verið tekin til umfjöllunar i skrit'um
þessum og hefur þvi kjararáð HFÍ
ákveðið að konta á framfæri fácinum
atriðum er varða þau.
Úrskurður Kjaranefndar i kjara-
dcilu HFÍ var kveðinn upp i feb. sl.
Samkvæmt úrskurðinum er byrjun'ar
launaflokkur hjúkrunarfræðinga II.
Ifl. BSRB. Við samanburð á mánaðar-
launum hjúkrunarfræðinga HFÍ og
BS hjúkrunarfræðinga kemur i Ijós. að
siðarnefndi hópurinn hefur verið úr-
skurðaður i launaflokk. sent er sarn-
bærilegur við 13. Ifl. BSRB. þ.e.a.s.
eftir níu mánaða starfsreynslu.
Launamunur
hjúkrunarfræðinga
Þann I. des. sl. eru byrjunarlaun
hjúkrunarfræðinga HFI kr.
231.931.00. Byrjunarlaun BS hjúkr
unarfræðinga eru fyrstu niu mánuð
ina eftir lokapróf kr. 232.470.00. cn
siðan kr. 249.026.00. Þegar öllum
launahækkunum vegna starfsaldurs
hcfur verið náð eru laun hjúkrunar
l'ræðinganna þessi: HFÍ hjúkrunar
fræðingar kr. 259.128.00. BS hjúkr
unarfræðingar kr. 276.101.00.
Tölur þessar sýna. að launamunur
er nokkur ntilli hjúkrunarfræðinganna
eða sem svarar a.m.k. tveim launa
flokkum i launakcrfi BSRB. Það cr
ckki ætlun kjararáðs að verja gerðir
Kjaradóms. enda hefur hann nteð nýj
asta dómi sínunt dæntt hærri laun til
hjúkrunarfræðinga en félagar HFÍ
hafa. Hins vegar má vera. að vandi
dómsins hafi verið nokkur að þcssu
sinni. þar sem hann varð að gera upp
við sig. hvort vægi meira námsmat
BHM eða það réttlætissjónarmið. að
sömu laun skuli greiða fyrir sömu
vinnu.
Það er mikil einföldun máls að telja
það alfarið misrétti og það herfilcgt
misrétti. þegar Kjaradómur virðist að
einhverju leyti hafa valið síðari kost-
inn. Ef Kjaradómur hefði farið eftir
námsmati BHM hefði dómurinn
sennilega verið misrétti og það herfi
legt misrétti gagnvart félögum HFÍ.
cn innan þess félagseru um 1050 starf-
andi hjúkrunarfræðingar.
Starfsmat
Hjá þvt verður ekki komist, að um
leið og verið er að leggja mat á störf
háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
til launa. er verið að leggja mat á störf
félaga HFÍ. Hjúkrunarfræðingarnir
geta sjálfsagt verið sammála uni, að
þetta mat er mjög lágt.
Af þvi sem hér hefur verið rakið er
það furðulegt, svo ekki sé meira sagt.
að þrír félagar HFÍ hafa ritað i dag-
blöðin og lýst mikilli hneykslan á
margnefndum kjaradómi.
Grein lngibjargar R. Magnúsdóttur
námsbrautarstjóra hjúkrunarnáms-
brautar Háskóla íslands i Morgun-
blaðinu 5. des. sl. nefnist Kjaradóntur
— Mistök eða hvað? Meginefni þeirr-
ar greinar fjallar um þann dóm Kjara
dóms, að „hjúkrunarfræðingar braut-
skráðir frá Háskóla íslands skuli Ijúka
niu mánaða starfsreynslu áður en þeir
taki laun samkvæmt þeim launaflokki
er þeini er siðan skipað í." eins og segir
i greininni.
Kjararáð HFÍ tekur undir það hjá
námsbrautarstjóranum. að það eru
einkennileg -vinnubrögð að nefna ekki
i dómnum byrjunarlaunaflokk hjúkr-
unarfræðinganna. Samkvæmt upplýs-
ingum fjármálaráðuneytisins fá þessir
hjúkrunarfræðingar grcidd laun eftir
launaflokki 102 BHM fyrstu niu mán-
uðina eftir lokapróf. en sá launaflokk-
urgefur svipuð laun og 12. Ifl. BSRB. í
grein Ingibjargar og öðrum blaðaskrif
um um þetta málefni er margtekið
fram. að nemendur námsbrautar Há
skóla íslands njóti aldrei námslauna
Hjúkrunarfræðingar við störf.
og er þvi erfitt að skilja. hvers vegna
námsbrautarstjórinn kallar þennan
byrjunarlaunaflokk nemalaun.
Nemendur Hjúkrunarskóla íslands fá
visst hlutfall af launum í 11. Ifl. BSR B
oger þetta hlutfall nákvæmlega tiltek-
ið i grein námsbrautarstjórans. Náms-
brautarstjórinn heldur þvi fram. að
laun nemenda HSÍ á þriðja ári séu hin
sörnu og laun BS hjúkrunarfræðinga
og það sýni, að „þekking nemenda við
Hjúkrunarskóla Íslands að loknu
tveggja ára námi sé lögð að jöfnu við
þekkingu hjúkrunarfræðinga með
fjögurra ára nám við Háskóla íslands
og niu mánaða starfsreynslu.” Þetta
endurtekur námsbrautarstjórinn i við
tali i Visi þ. 7. des. sl.
Námslán í stað
lélegra námslauna
Námsmat er oft haft til hliðsjónar
við ákvörðun launa. en það. að laun
ákvarði þekkingu eins og nánts-
brautarstjórinn heldur fram. eru ný
sannindi i herbúðum þeirra sem um
kjaramál fjalla.
Það er alls ekki rétt með farið. að
nemendur HSÍ hafi sömu laun og BS
hjúkrunarfræðingur með níu mánaða
starfsreynslu. Laun nemenda á þriðja
námsári eru 57.80% af 11. Ifl. 2. þrepi.
Mánaðarlaun þeirra eru því nú kr.
134.056.00. en laun BS hjúkrunar-
fræðinganna eru aftur á móti kr.
249.026.00. Mismunur er kr.
114.970.00. í yfirvinnu eða á auka
vöktum hafa þessir nemendur full
byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga
HFÍ. Hjúkrunarfélag Íslands hefur
vitað um þetta samningsákvæði og
ekki talið ástæðu til að gera athuga-
semd við það. enda öilum sem þckkja
til náms og starfs hjúkrunarnemenda
Ijóst. hvað að baki þess býr. Benda má
á. að nemendur námsbrauta hafa
sömu möguleika á að taka aukavaktir
og fá þá væntanlega greitt fyrir þær.
Nemcndur HSÍ berjast nú fyrir þvi. að
námslaun þeirra verði afnumin og þeir
fái rétt til lánstöku úr Lánasjóði
islenskra námsmanna. Bctra nám og
bætt aðstaða til nánts er þessurn nem-
cndum meira virði en léleg námslaun.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir hefur
haft samband við ýmsa aðila, sent hún
taldi geta gefið upplýsingar um upp
runa þeirrar „kröfu" að BS hjúkrunar-
fræðingar skuli Ijúka níu mánaða
starfsreynslu áður en þeir fái laun skv.
Ifl. 103. Kjararáð HFÍ tclur þvi rétt að
taka frani. að það hefur engin afskipti
hafl af kjarasamningum háskóla-
mcnntaðra hjúkrunarfræðinga.
Tveir aðrir félagar HFÍ hafa skrifað
i blöðin um þennan kjaradóm. Þeir eru
Maria Pétursdóttir, i Morgunblaðinu
23. nóv. sl„ og Elin Eggerz-Stefáns-
son. í dagskrárgrein i Þjóðviljanum
14. des. sl.
Báðar komasl þær að þcirri niður
stöðu. að laun þau sem BS hjúkrunar-
fræðingum er úthlutað séu langt fyrir
neðan það sem þeim beri. Elínu
Eggerzt-Stefánssyni finnst dómurinn
vera „herfilegt misrétti” og að hann
„beri vott um djúpstætt vanmat á
þjóðfélagslegu gildi hjúkrunar innan
heilbrigðisþjónustunnar og talsverðri
tilætlunarsemi gagnvart starfsframlagi
hjúkrunarfræðinga og kvenna al
mennt".
Rangt að mótmæla
ekki úrskurðinum
Úrskurður Kjaranefndar varðandi
flokkaröðun félaga HFÍ kom i febr. sl.
og eins og fy.rr er frá grcint eru laun
þeirra nokkru lægri en þeirra sent
Kjaradómur fjallaði um. Hjúkrunar-
félag íslands mótmælti ekki þessum
úrskurði af ástæðum sem ekki verða
raktar hér. Það er skylt að viðurkenna.
að sú ákvörðun að mótmæla ekki úr
skurðinum hefur verið röng. þegar
álit félaganna er það, að nokkru betri
úrskurður sýni djúpstælt vanniat á
þjóðfélagslegu gildi hjúkrunar og tals
verða tilætlunarsemi við starfsframlag
hjúkrunarfræðinga.
María Pétursdóttir er þeirrar skoð
unar, að kjaradónturinn sýni launa
mismunun karla og kvenna. Kjararáð
HFÍ telur hins vegar. að dómurinn sé
kennslubókardæmi um ranglátt launa
kerfi. þar sem hann sýni launamis-
munun milli stétta með söniu stöðu-
ábyrgð.
BHM hefur sent frá sér mótmæla
yfirlýsingu vegna niðurstöðu Kjara-
dóms. 1 henni segir m.a.: „Verði starfs-
svið BS hjúkrunarfræðinga ckki
skýrar markað og launakjör þeirra
santræmd kjörum annarra háskóla-
manna má búast við að háskólanám í
hjúkrun leggist niður. þar sem völ cr á
mun styttra nánii með launum á
námstima. sem gefur söniu réttindi."
Svo virðist sem BHM fallist á það
sjónarmið HFÍ, að söniu laun beri að
greiða fyrir sömu vinnu. En til þess að
hópnum. sem Kjaradómur var að
dæma. auðnist að fá hærri laun.
virðist BHM vera þeirrar skoðunar að
slarfssvið hans verði að vcra eitlhvað
annað en honum er ætlaö skv. hjúkr
unarlögum. Öllunt breytingum á
starfssviði hjúkrunarfræðinga verður
ntótmælt og mætt ntcð hörku af félög-
um HFÍ. Tilgangurinn rneð þeim
vcröur a.ni.k. að vera háleitari en svo.
að beinhörð peningasjónarmið ráði
þar ferðinni.
Kjararáð Hjúkrunarfélags
Íslands
Valgerður Jónsdóttir
Sigurveig Sigurðardóttir
Þuriður Baekman
y
Spurning
dagsins
Hvernig fannst þér
Silfurtúngl Sjón-
varpsins?
Suntarliði Mariusson verkamaður: Ég sá
það ekki alniennilega. Ég gct þvi ekkcrt
sagt unt það.
i.ovisa Jónsdóttir hárgreiðsludama:
Mjög gott. Þetta var cinhver sú albezta
uppfærsla sem ég hef séð i sjónvarpinu
hingað til.
Andrea Guðmundsdóttir húsmóðir: Mér
fannst það allsæmilcgt. Eins gott og ivað
gat verið miðað við Kiljan
llelga Flíasdóttir , þjónar ellinni: Eg skil
nú ckki þessi visindi. Ég horfði aðeins á
þetta leikrit af þvi að ég var að bíða eftir
þvi scni á eftir fór.
Jóhannes Þórðarson nemi: Mér fannst
þaö mjög gott. Eitthvað það bezta sent
sjónvarpið hefur sýnt.
Sveinn B. Þórðarson styrkþegi: Eg sá
það ckki. Hins vegar sá ég Silfurtúnglið
l'yrir mörgum árum þegar það var sýnt í
Þjóðleikhúsinu.