Dagblaðið - 28.12.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1978
5
Hvað fannst þeim um Silf urtúnglið?
MEins ogað rennaí
gegnum eitt númer”
— segir Egill Ólafsson, alias Feilan Ó. Feilan
„Lengst af hékk ég í þeirri afstöðu
að þessi atriði — flest ntjög stutt —
væru eins og rokklögin sem ég hef
sungið áður. Þetta væri svona eins og
að renna i gegnuni eitt númer nteð
öllu tilheyrandi,” sagði Egill Ólafsson,
Feilan Ó. Feilan i spjalli við DB um
sjónvarpsgerð Silfurtúngls Halldórs
Laxness.
Egill var inntur eftir þvi hvernig
honum hefði líkað við endanlega gerð
leikritsins. „Suntt gerði sig. annað
ekki, eins og gengur," sagði hann.
„Sum atriðin voru kannski dálitið
teygð og texti á stöku stað of bókstaf-
lega niðursettur. Það hefði getað verið
frjálsari meðferð, þvi þetta er fyrir-
ferðarmikill texti. Annars er ég liklega
of flæklur í málið til að geta verið að
tala svona um það. Manni var alltaf
efst i huga og mest i mun að koma
þessu frá sér. Sumt tókst, bæði hjá mér
ogöðrum.”
En hvað var skemmtilegast við allt
saman?
„Það var náttúrlega margt
skemmtilegt en i fljótu bragði dettur
mér i hug mótleikur við Peacock
(Erling Gislason) á skrifstofunni. Mér
fannst lika mjög skemmtilegt að kynn
ast forvinnunni og allri sköpun.
Maður beið alltaf spenntur eftir að sjá
hvernig þetta kæmi út á endanum.
Annars var þetta sviti og tár i stúdiói i
tuttugu daga, en auðvitað var þctta
mjög skemmtilegur tími — með stærri
mómentum sem ég hef lifað.”
Fannst þér Silfurtúnglið virka öðru
vísi á þig i sjónvarpinu heima en þegar
þú sást það prufusýnt fullbúið?
,„Já, það gerði það — ég veit ekki
hvað veldur. kannski hefur skoðun
manns þarna heima i stofu nteð fjöl-
skyldunni verið hlutlausari. Það var
a.m.k. meiri fjarlægð, sem maður sá
það úr. Mér fannst ég skilja gallana og
sjá betur hvað tókst og hvað tókst
ekki. Áður lagðist ég i þunglyndi þegar
mér fannst útkoman skökk. En svona
var þetta þegar það var gert i ágúst. ég
gatekkigertbeturþá."
Egill Ólafsson hefur einu sinni leikið
fyrr — i Grænjöxlunt Þjóðlcikhússins.
Hann segir að sér hafi þótt gaman að
leika, þótt það likist ekki lcikhúsi að
leika fyrir sjónvarp. Það geri augað.
sem alltaf fylgi leikaranum. grand
skoði hann og geti jafnvel verið mcð
mynd af kverkinni fyrir neðan nefið.
En vill hann leika meira?
„Ef ég fæ stóra samninginn!" svar
aði Fcilan Ó. Feilan.
Og verður þú Feilan Ó. Fcilan
iiæstu árin?
„Ja, Diddú upplifði það eftir að
hafa leikið ungfrú Gúðntundsen í
Brekkukotsannál hérna um árið, að
fólk kallaði hana Gúðmundsen lengi á
eftir. Sjónvarpið er geysilega sterkur
miðill. alveg ótrúlega stcrkur. Maður
verður þá að taka þvi með karl
mennsku — allt á sér sin takmörk og
tekurenda.”
ÓV.
Egill Olafsson meii snninn Olaf Egil.
Hann lék barniii i leikritinu og var
aðeins níu mán iða gamali þegar
upptakan var gerð — en sagði meira
að segja „mantrna” á réttum stað.
DB-mynd Hörðar.
„Ánægðastur með ytra útlitið”
— segir stjómandi upptökunnar, Egill Eðvarðsson
„Þegar ég skoðaði þetta í rólegheit-
unum heima hjá mér og eftir alla vinn
una sem lögð var i verkið þá var ég
ánægðastur með allt ytra útlit Silfur
túnglsins, umbúðirnar. Þær voru verk
Björns Björnssonar.” sagði Egill Eð
varðsson stjómandi sjónvarpsupptöku
Silfurtúnglsins i samtali við DB eftir
frumsýningu á Silfurtúnglinu á annan
í jóluni.
Af ummælum ntanna hefur mátt
ráða að það væri einmitt ekki sizt um
gjörðin sem vakið hefur mikla athygli
sjónvarpsáhorfenda.
„Þetta var framleiðsla fyrir litsjón
varp og mér sýnist það hafa tekizt.
Það er stór kostur að geta unnið svona
í lit,” sagði Egill Eðvarðsson. „Mér
fannst útkoman á þessari ytri umgjörð
styðja á allan hátt efnisþráðinn,
þannig að hún stal hvergi frá sjálfu
efninu. Björn Björnsson leysti þetta
vandamál til fyrirmyndar. Ef ég á að
segja hvað ég var næstánægðastur
með. þá var það sjálf hugmyndin að
handritsgerðinni, sem var hugarfóstur
Hrafns Gunnlaugssonar. Ég á ekki
beint við handritið sjálft, heldur hug-
myndina að útfærslunni. í handritinu
er ýmislegt. sem mér finnst núna að
hefði mátt vera öðruvisi og sjálfsagt
Hrafni lika. En þetta er búið og gert og
maður notar sér þessa reynslu og þjálf-
un væntanlega í næsta sinn sem
maður fær svona tækifæri.”
Egill sagðist hafa horft á leikritiö
heima hjá sér I faðmi fjölskyldunnar.
„Þá upplifir maður þetta dálitið öðru-
visi en við vinnuna. Maður er kominn
inn i hinn eiginlega áhorfendahóp
sjónvarps, heimilið, en er ekki lengur i
þögn vinnuherbergisins," sagði hann.
H
Egill Eðvarðsson við vinnu sina i sjón-
varpinu i gær: „Framleitt fyrir litsjón-
varp.”
DB-mynd Hörður.
— segir Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú)
„Þetta var bæði gott og vont,” sagði
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) í viðtali
við Dagblaðið um leik sinn í Silfur-
túnglinu. „Sum atriðin voru ákaflega
erfið leiklega séð. Fólkið mitt sagði
meira að segja að ég hefði breytzt á
meðan á öllu þessu stóð og ég er ekki
frá því. Ég hef sennilega verið orðin
töluverð Lóa í mér.
Því bjargaði ég við með þvi að
hlaupa til útlanda, þar sem ég legg
stund á söngnám,” sagði Sigrún enn-
fremur. „Það er alltaf hætta á þvi að
leikarar „festist” i svona átakarullum
en ég held að sú hafi ekki orðið raunin
meðmig.”
Var lokaatriðið ekki erfitt?
„Jú. það voru teknar þrjár mismun-
andi útgáfur af því," sagði Sigrún.
„Þessi. sem fyrir valinu varð, þótti
átakamest en á hinum höfðu orðið
vankantar, textinn komst ekki til skila
og þar fram eftir götunum.”
Nú þekkir þú sjálf til i „bransanum”
svonefnda. Er ástandið orðið svona
slæmt?
„Þetta leikrit er á margan hátt að-
vörun. Ég held aðallt i kringum okkur
stefni i þessa átt. Allt er orðið svo
ópersónulegt, það kemst ekkert að
nema peningarnir."
HP.
Sigrún i hlutverki Lóu i Silfurtúnglinu. Með henni er Þórhallur Sigurðsson og i
fanginu er Ólafur Egill Egilsson (Ólafssonar), kallaður Jaffi.
„Það verður þá kannski frekar það
sem er ekki alveg eins vel heppnað.
sem maður tekur fyrst eftir. Svo eru
önnur atriði. sem maður hefur lagt
mikla vinnu og fyrirhöfn í. sem detta
upp fyrir vegna þess að sýningin fer
fram á lifandi heimili. þar sem ýniis-
legt truflar. En i heildina var ég
nokkuð ánægður með útkomuna og
þykir gaman að svo margir skuli vera
ánægðir lika."
ÓV.
B/aðbera vantar / eftirta/in
hverfi / Hafnarfirði:
Lindarhvamm,
Birkihvamm
og nágrenni
Uppi. í síma 54176.
imBiAna
„VAR ORÐIN
TÖLUVERD
LÓA í MÉR...”