Dagblaðið - 28.12.1978, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1978
Brennurómantíkin er dauð
Borgarkrani mokar borgardrasli af borgarbfl á borgarbrennu
„Farðu,” sagði Atli, „ og spjallaðu við
krakka sem eru að hlaða bálkesti og svo
leiðis.” „Já,” sagði ég.
Við Hörður rennum um bæinn þver-
an og endilangan. Og ekki vantaðu
brennurnar. En það voru engir krakkar
nálægir. Við Fellaskólann í Breiðholti
komu þó tveir snáðar með föður sínum í
appelsínugulum fólksvagni með gamlan
svefnbekk á toppnum. Hörður smellti af
þó þetta samrýmdist ekki hugmyndum
okkar um krakka að vinna í brennum.
Þegar við vorum í æsku (fyrir ekki svo
mjög löngu að okkur fannstl gengum við
i hús ásamt heilu stóði af krökkum og
sniktum dót á brennur. Vikan milli jóla
og nýárs var hrein pina fyrir foreldra
sem skyndilega uppgötvuðu að húsgögn
in voru liðónýt og brennumatur einn. Er
brennurómantíkin virkilega búin?
Við Bjamleifur gerðum aðra tilraun
<1
Siðdegismynd frá bálkestinum við
Fcllaskóla. „Við erum bara að passa
að enginn kveiki I,” sögðu strákarnir.
DB-mynd Bjarnleifur.
eftir hádegið. Brenndum beint upp í Fell
aftur. Kösturinn við Fellaskóla hafði
hækkað verulega frá þvi um morguninn.
Og viti menn. Við köstinn stóðu einir 10
strákar. En höfðust ekkert að. Stór krani
frá borginni mokaði rusli frá borginni af
vörubíl frá borginni. „Við erum bara að
passa að enginn kveikti í brennunni,”
sögðu strákarnir. „Við eruni að reyna að
hjálpa til.”
Þeir voru spurðir hvort ekkert væri
um það lengur að farið væri i hús og
sníkt i brennur. Forviða hristu þeir
höfuð. Fannst greinilega langt siðan ég
var í æsku.
í bakaleiðinni í Siðumúlann renndum
við fram hjá einum þrent brennum í
viðbót. Ekki sála. Rannsóknarblaða
mennskan hefur þvi sýnt að brennu-
rómantikin er dauð. a.m.k. í Reykjavik.
DS.
0
Morgunmynd frá bálkestinum við
Fellaskóla. Svefnbekkurinn gamli og
góði fer sína síðustu ferð.
DB-mynd Hörður.
Gripið simann
gcriðgóð
kaup
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Innbrot íapótek —
talsverðu magni af
vímugjöfum stolið
Innbrot var framið í lngólfsapótek að
faranótt jóladags og töluverðu magni
stolið af lyfjum. Ekki hafði i morgun
tekizt að hafa upp á innbrotsþjófnum
eða þjófunum, að sögn Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Viss atriði benda til þess að hér hafi
„vanir menn verið að verki. meðal
annars virðast lyf þau sem stolið var
hafa verið valin með það i huga að vímu-
ástand yrði af notkun þeirra. Bæði voru
það sterk svefnlyf svo sem mebumal
natri og eins vægt örvandi lyf eins og
mirapront.
Að sögn kunnáttumanna getur notkun
mebumal natri samtimis áfengisdrykkju
verið hættuleg og beinlínis banvæn.
BS.
Gott jóiaveðurá Eskifirði
Fjölmennt íkirkjur
ogjólaboð
Gott veður var á Eskifirði um jólin.
logn og frostlaust en snjór yfir öllu.
Gátu menn farið urn á blankskóm í öll
þau jólaboð sem haldin voru og til
kirkju. Á jóladag messaði séra Davið
Baldursson. Áminnti hann Eskfirðinga
um að gefa sér tíma til að ræða við börn-
in. Var þetta vel til fundið þar sern i
messunni voru skírð 6 börn. þar af einir
tvíburar. Eskjukórinn og kirkjukórinn
sungu við messuna og gerðu mikla
lukku. Eskjukórinn stóð uppi við altarið
sem er nýlunda s'em mæltist vel fyrir.
Kórinn hefur i vetur fengið nýja Stjórn
endur. Eru það ensk hjón. Stuart
Crahan og Susan Hynt sem einnig leikur
undir með kórnum. Létt er yfir þeini
hjónum og söngur kórsins allur léttari
en var undir stjórn fyrrverandi stjórn-
anda.
Regína/DS.
Sverja af sér þátt í upp-
sprengdu verði rjúpna
Sveinn Sæmundsson blaöafulltrúi Flug-
leiöa hringdi:
I DB birtist fyrir nokkru frétt um upp-
sprengt verð á rjúpu. Þar kom fram að
verðið hefði m.a. verið sprengt upp af
Hótel Loftleiðum. Sveinn sagði:
„Starfsmenn innkaupadeildar eru
heldur óhressir vegna þessarar frásagn-
ar. Aldrei hefur komið til greina að hót-
elið keypti rjúpur á svo uppsprengdu
verði. Ekki er tekinn þáttur i slikri upp-
sprengingu verðs. Engin rjúpa hefur
verið keypt til hótelsins fyrir þessi jól.”
BJÖRNINN
Smurbrauðstofan
Njálsgötu 49 — Sími 15105