Dagblaðið - 03.01.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 03.01.1979, Blaðsíða 2
Enn umFélagaJesúm: HERFERÐ BISKUPS HEFUR EKKI BORK) ÁRANGUR — segirbréfritari Jóhanncs Ágústsson skrifan Nú í haust var útgefin ein ágæt og merkileg bók. Bók þessi er hin umtalaða Félagi Jcsús. Gegn barna- bók þessari risu allir helztu kristsmenn og krossmenn meðal íslendinga með biskup hinnar evangelísku lúthersku „þjóðkirkju” í broddi fylkingar. Töldu þeir barnabók þessa einhverja þá’ mestu ógnun er að hefði steðjað sannkristilegri uppfóstran hérlendis frá því er menn hættu að tigna hin fornu goð en hófu þess I stað að blóta Hvita-Krist. Herferð hófu nú biskup og aðrir „kóngsins” prelátar gegn bók þessari, með undirskriftum og jafnvel hótunum um lögsókn á hendur út- gefendum og þýðanda. Var hún fram færð með engu minni sannfæringu en finna má I skrifum Jóns Magnússonar, „píslarvotts” fyrrum klerks á Eyri við Skutulsfjörð. Voru fyrir hans orð tveir ef ekki fleiri menn færðir á bálið guði til dýrðar en fjandanum til skapraunar. En herferð biskups og félaga hefur sem betur fer ekki borið þann árangur sem skrif kollega þeirra i guði, Jóns Magnússonar. Sem betur fer hafa ferskir vindar upplýsingar feykt á braut að mestu þvi miðaldamyrkri er áður sveipaði land sem lýð. Varð herferð þeirra biskups og fylgi- sveina hans í raun auglýsingaherferð fyrir bók þá er þeir hugðust forða frá augum ungra islenzkra les- enda. Bókin seldist upp og fengu færri en vildu. Aðgerðir biskups hafa því komið honum og fylgismönnum hans rækilega í koll og má segja sem svo að þar hafi skrattinn hitt fyrir ömmu sína. Forvitni, fróðleiksþorsti, sem og guðlýsi islenzku þjóðarinnar varð guðsótta og sannfæringarkrafti biskupsorða yfirsterkari. Jafnframt því sem fólk varð fulllt andúðar í garð sjálfskipaðra sáluhirða er vildu segja þvi til verka hvað bóklestur varðaði. Um aldaraðir hefur bókin verið horn- steinn islenzkrar menningar, Íslendinga vilja ekki láta rífa hana úr höndum sér til þess að henni sé síðan kastaö á bálið. Nú er biskupi hefur tekizt svo hrapa'llega til i hlutverki sinu sem yfir- sálnahirðir hinnar evangelísku lútersku „þjóðkirkju” með þvi að auglýsa upp hina „forkastanlegu” barnabók Félagi Jesús og er það vafa- laust einhver bezta auglýsing sem nokkur bók hefur fengið nú fyrir þessi jól, held ég margir vildu benda honum á að rétta fram hina kinnina eftir þann kinnhest er íslenzka þjóðin hefur nú lostið hann með því að hafa orð hans aðengu og ganga i berhögg við vilja hans. Með þvi að rétta fram vinstri vanga eftir að hafaverið lostinn af þjóðinni á þann hægri á ég að sjálfsögðu við að hann segi af sér embætti og sýni með þvi iðrun og yfirbót. íslendingar I landsleik gegn erkióvininum Danskinum. íslendingar máttu nýlcga þola tvö stór töp gegn Dönum og hefur það orðið tilefni nokkurra blaðaskrifa. Handboltinn í deiglunni: Gamall iþróttamaður skrifar: Sú var tíðin að það þótti heiöur að vera valinn í islenzka landsliðið í hand- knattleik. Nú er það hins vegar orðið þannig a.m.k. í sumum tilfellum að menn vilja ekki leika með liðinu nema til komi alls konar fjárhagslegur stuðn- ingur. Mér dettur þetta I hug nú vegna lesendabréfs er ég sá i DB nýlega, þar sem bréfritari gerir það að tillögu sinni að hér verði tekin upp hálfatvinnu- mennska í handknattleik svo við getum haldið í við aðrar þjóðir í hand- knr .t'ciknum. paö ei auðvitað rétt að það væri esK.iegf að slíkt væri hægt. Hins veg- lar lC I að aíveg Ijóst að til þess höfum við íslendingar ekki minnstu mögu- leika sökum fámennis okkar. Það er því tómt mál að tala um slikt á næstu árum. Hitt er annað mál að það er gremjulegt til þess að vita hve tregir þeir íslendingar sem gerzt hafa at- vinnumenn erlendis eru til að koma heim og leika með landsliðinu. Bréfritari minnist á að það væru ekki mörg ár síðan við íslendingar hrepptum sjötta sætið í úrslitum heimsmeistarakeppninnar. Það er rétt. Það var árið 1961. í þá daga fengu handknattleiksmenn okkar engar greiðslur fyrir þátttöku sina. Þeir lögðu þvert á móti oft á sig fjárhags- legar skuldbindingar til að geta verið með og lögðu fram mikla sjálfboða- vinnu við fjáröflun. Þessum mönnum var það heiður að fá að leika með ís- lenzka landsliðinu og vera fulltrúar þjóðarinnar á erlendri grundu. Ég er ekki að mæla gegn því sem unnizt hefur í þessum fjárhagsmálum en ég held að þeir handknattleiksmenn sem nú eru tregir til að leika með landsliðinu vegna ónógrar fyrir- greiðslu mættu gjarna minnast þcss hvernig ástandið var þegar ís- lenzkir handknattleiksmenn unnu sín stærstu afrek. Framkoma sumra þeirra I seinni tið jaðrar við að vera óþjóðhollusta. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979. Mikið er um það að fólk farí i kirkjugarðana um jólin og hugi þar að leiðum látinna ástvina. Oft kemur fólk Ijósum fyrir við lciðin og treystir þvi að þau fái að vera i friði. Þjófar í kirkjugörðunum: STELA JÓLALUKT- UM AF LEIÐUNUM Alfons Guðmtindsson hringdi og sagðist hafa farið að eins og margir aðrir og keypt olíuluktir til að setja á leiði ættingja sinna í Fossvogskirkju- garðinum. Keypti hann tvær luktir og setti á tvö leiði. Siðan hafði hann farið á Þorláksmessu og ætlað að bæta oliu á luktirnar en þá hafi brugðið svo við að önnur luktin var horfin. Þar sem öllum verzlunum hafði verið lokað gat hann ekkert gert i málinu, en strax og verzlanir opnuðu eftir jólin fór hann og keypti nýja lukt. Þegar hann kom með hana i kirkjugarðinn þá sá hann sér til mikillar undrunar að hin luktin var líka horfin. Alfons sagði að hann hefði heyrt fleiri tala um þetta, þ.e. að luktum hefði verið stolið af leiðum frá þeim. Þótti honum þetta hámark lág- kúrunnar og full ástæða til að vara fólk við þessu. Tvöfeldni ríkisvaldsins í áfengismálinu: Afengisútsölur opnar á Þorláksmessu Sigurður Guðmundsson skrifar: Tvöfeldni ríkisvaldsins i áfengis málinu kom vel fram nú fyrir jólin. Ráðamenn hafa yfirleitt þótzt allir al vilja gerðir við að sporna gegn áfengis- bölinu, en ásóknin I fé borgaranna verður þó alltaf sterkari þessum góða vilja. Eins og kunnugt er þá eru út- sölur Áfengisverzlananna lokaðar á laugardögum. En núna fyrir jólin tók fjármálaráðherra þá ákvörðun að brjóta þessa reglu á Þorláksmessu og hafa opið í þeirri von að salan yrði meiri fyrir jólin. „ Flestir eru þeirrar skoðunar að jólahald og áfengisneyzla eigi ekki saman. Jólin eru hátíð bamanna og því er það of langt gengið af ríkis- valdinu að gera sérstaka undanþágu á venjulegum opnunartíma áfengis verzlana til að auka þannig áfengis- söluna. Þarna gekk peningagræðgi ríkisvaldsins einum of langt. Raddir lesenda Heimilis læknir Ttaddir lesenda taka vio skilaboðum til umsjónar- manns þðttarins „Heim- ilislœknir svarar" f sima 27022, kl. 13-15 alla virka daga. Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.