Dagblaðið - 03.01.1979, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979.
DB á ne vtendamarkaði
Ung hjón, bæði við nám, hrepptu vinninginn fyrir nóvember
GETA UFAÐ í NÆSTUM TVO
MÁNUÐIFYRIR MÁNAÐAR-
ÚTTEKTINA SEM ÞAU FENGU
„Hvað segirðu? Unnum við? Það
var svei mér gott,” sagði unga konan
sem hreppti vinning DB og Vikunnar,
þegar dregið var úr innsendum upplýs-
ingaseölum. Hún 'heitir Hafdis Finn-
bogadóttir, 22ja ára gömul. Maður
hennar er Steinar Sigurðsson, 23 ára
gamall. Þau eru bæði við nám, hann I
verkfræðideild Háskólans og hún í
Kennaraháskólanum. — Þarna hefur
vinningurinn okkar, mánaðarúttekt,
þvi reglulega komið sér vel! -Vinnings-
upphæðin er mánaðarúttekt fyrir
tveggja manna fjölskyldu, sem
reyndist vera 42.978 kr.
Ungu hjónin voru I jólafríi vestur á
Patreksfirði, en þaðan er Hafdís ætt-
uð. Þau koma ekki til borgarinnar fyrr
en 5. janúar, þannig að einhver bið
verður á að við förum saman að verzla
fyrir upphæðina góðu.
Ungu vinningshafarnir okkar voru
nokkuð langt fyrir neðan meðaltals-
kostnað tveggja manna fjölskyldunn-
ar, með 12.415 kr. I meðaltalskostnað
eða alls 24.829 kr. Þau geta því næst-
um því lifað i tvo mánuði fyrir vinn-
ingsupphæðina sína!
— Ertu svona sparsöm húsmóðir,
að þér nægi svona lítið á mánuði?
„Það hlýtur að vera,” svaraði Haf-
dís, glöð í bragði. „Annars elda ég
alltaf tvær máltíðir handa okkur á
dag. Hins vegar er kannske svolítið
svindl I þessu, því við fáum allan fisk
frian utan af landi og það munar
mikiðumslíka búbót.”
Við óskum ungu hjónunum til ham-
ingju með vinninginn.
- A.Bj.'
„Alveg óhræddur
við Breiðholtið og
Mosfellssveitina”
— segir Ragnar Ijósmyndari eftir að hann fékk
sérskafiajám
„Ég keypti mér skaflajárn eins og
skrifað var um og mælt með á Neyt-
endasíðunni á dögunum og ég sé
hreint ekki eftir því,” sagði Ragnar
Th. Sigurðsson Ijósmyndari DB. „Þau
fengust I Fjöðrinni I Skeifunni og kost
uðu 16.200 kr. Ég var fastur á planinu
hjá þeim, skellti járnunum á og allt
gekk eins og I sögu,” sagði Ragnar.
„Ég var alltaf að festa mig, en fékk
mér tvo sandpoka í skottið, svona
51 -60 kg þunga samtals. Þá gekk mér
beiur t úfærðinni en siðan ég fékk
skaflajárnin hef égaldrei fest mig. Það
verður aðeins að athuga að herða járn-
in vel á dekkin. Ég er alveg óhræddur
við að fara I Breiðholtið og Mosfells-
sveitina, nú veit ég að ég kemst alltaf
þaðan aftur. En að öllu jöfnu munar
stnnilega mest um sandinn. Billinn
minn er nefnilega mjög létturen ákaf-
lega kraftmikill og átti til að spóla illi-
lega,” sagði Ragnar, sem ekur á BMW
bíl, eins og mörgum mun sennilega
kunnugt. En með sandpokana í skott-
inu og skaflajárnin í sköflunum kemst
hann nú allra sinna ferða.
A.Bj.
Þetta eru skaflajárnin, sem duga til að ná sér upp úr hvaða skafli sem er. Það
verður aðeins að gæta þess að herða þau vel á dekkinu. DB-mynd Ragnar Th.
..
Allir bileigendur ættu að eiga keðjur. Þær kosta á bilinu frá 15—20 þúsund hjá
Kristni Guðnasyni á Suðurlandsbraut. DB-mynd Bjarnleifur.
I ófærðinni:
Keðjur nær
ófáanlegar
í snjóhrotunni sem kom í höfuð-
borginni og nágrenni fyrr í vetur seld-
ust keðjur grimmt. Þær seldust upp á
þeim bensínstöðvum sem vanalega
hafa slíka gripi til sölu. Hjá smávöru-
deild Shell upplýsti Valdimar Valdi-
marsson áð von hefði verið á keðjum
frá Bandaríkjunum, en pöntunin hefði
hins vegar farið á innanlandsmarkað
þar i landi, þegar snjó kyngdi þar
niður I desember. Þannig er ekki hægt
að fá keðjur á Shellstöðvunum. Þær
voru heldur ekki til á þeim Essóstöðv-
um sem við hringdum I.
Hjá Kristni Guðnasyni, Suður-
■landsbraut, voru til allar stærðir af
fólksbílakeðjum I gær og kosta þær á
bilinu frá 15—20 þúsund kr. — Við
hringdum I fleiri staði, — en i gær var
víðast hvar lokað vegna vörutaln-
ingar. — Hjá Bilanausti seldust keðju-
Uppskrift
dagsins
Gulrótar-
salat með
ýsunni
Sennilega eru flestir landsmenn
orðnir fullsaddir á stórsteikum og fín-
erii í bili eftir allan jóla- og nýársmat-
inn. Flestir verða því sennilega fegnir
að fá ýsuna sína á nýjan leik. Til þess
að bregða henni í ofurlítinn hátiða-
búning er gott að hafa hrásalat með
henni. Hérna er upþskrift úr nýju mat-
reiðslubókinni eftir Sigrúnu Daviðs-
dóttur, Matreiðslubók handa ungu
fólki á öllum aldri, Gulrótarsalat. í
bókinni segir:
„Þetta salat er mikið uppáhald hjá
öllum krökkum, sem ég veit til að hafi
komizt i tæri við það. Reyndar er
einnig gott að borða það með súr-
mjólk, og þá er þetta heil máltíð:
6—8 vænar gulrætur
1 appelsína
1 epli
1—1 1/2 dl rúsínur.
Hreinsið gulræturnar og skafið ef
nauðsynlegt er. Rífið þær á miðlungs
grófu rifjárni. Afhýðið ávextina.
skerið þá í bita og setjið saman við gul-
ræturnar ásamt rúsínunum. Skerið
appelsinurnar, helzt yfir gulrótarskál-
inni svo að safinn úr þeim fari ekki til
spillis. Blandið öllu vel saman og berið
fram.”
Verð: Nú eru til fínar, nýuppteknar
gulrætur og kostar kg í kringum 400
kr. Það eru einmitt 6—8 vænar gul-
rætur i einu kg. Þannig kostar hráefn-
ið í salatið i kringum 675 kr. eða rétt
innan við 170 kr. á mann, þvi upp-
skriftinerætluðfyrirfjóra. A.Bj.
Potta-
burstinn á
gulræt-
urnar
Það er gott að hreinsa gulrætur með
því að bursta þær með stífum plast-
bursta, sem annars er aðallega ætlaður
til þess að hreinsa pottana. Langbezt
er að gera það undir rennandi vatni.
Þá þarf alls ekki að skafa gulræturnar,
— sérlega ekki þessar sem nú fást,
enda eru þær nýuppteknar.
A.Bj.
— fástþóhjá
Kristni
Guðnasyni
birgðimar upp í gær en þeir eiga von á
keðjum I vikulokin.
t Fjöðrinni í Skeifunni fékkst upp-
lýst að þeir hefðu aldrei verzlað með
keðjur. Þar var aðeins til eitt
skaflajám, — eða snjógrip, eins og
þeir kalla járnið. Það kostar um 17
þúsund.kr. Ekki var von á fleiri skafla-
járnum, — en þau seldust mjög vel í
fyrri ófærðarkaflanum I vetur.
- A.Bj.