Dagblaðið - 03.01.1979, Side 8

Dagblaðið - 03.01.1979, Side 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979. áttáára HEIMS UM BOL —freistarnú söngfrægðar U % Ul Ul u gamall Á SVÖLUM KEA úti íhinum stóra heimi Kristján Jóhannsson er þritugur. gladur og hress, ekkert óánægður nteð sjálfan sig. enda bæði af skagfirzkum og þingeyskum ættum. bjartsýnn og dreymir um að verða óperusöngvari. En hann er útlærður ketil- og plötu- srniður „svo ef söngurinn klikkar fer ég bara aftur í járnsmiðina". Akureyringar eru mjög stoltir af honum enda er leitun að góðum söngvurum hér á landi og mikill fengur að fá nýjan mann i hópinn. Ekki sist núna, þegar alþingi hefur ákveðið að veita nokkurn fjár stuðning til óperuflutnings. „Ég bind miklar vonir við þá byrjun og hef trú á, að í framtiðinni verði rekin hér ópera árið um kring," segir Kristján. Næstu árin vcrður hann þó að frcista þess að komjtst að við óperur á Ítaliu. og hefur góðar vonir unt. að þaðmuni takast. Hann hefur stundað nánt þar í landi undanfarið. fyrst i Aosta og siðan hjá Gianni Poggi, frægum tenór i Piacenza. En þessa dagana er hann í jólafrii heima á Akureyri og ætlar að s\ngja þar i Borgarbíói á laugardaginn kentur. Og seinna i vctur gefst öllunt landslýð kostur á að heyra hann og sjá i sjónvarpinu. Mikið söngfólk í ættinni Hann byrjaði ungur að syngja og mætti bæði meðlæti og mótlæti — átta ára stóð hann á svölunum á KEA og söng þar með föður sínum — það er árviss viðburður, að syngjandi jóla sveinar koma þar fram flóðlýstir — og þarna voru þeir hylltir feðgarnir. En i skólanum rak kennslukonan honum löðrung fyrir að syngja of hátt. svo það dró niður i honum um skeið. Tiu ára gamall fór hann þó i kór hjá Birgi Hclgasyni söngkennara. „Aðaláhugamálið næstu árin voru samt skellinöðrurnar." segir Kristján. „þangað til ég um tvitugt gerði það fyrir pabba að ganga í Karlakórinn Geysi." „Pabbi" er Jóhann Konráðsson söngvari. sem flestir kannast við. Og yfirleitt er mikið söngfólk i ætt Kristjáns. Móðir hans. Fanney Odd geirsdóttir. hefur til skamms tinia ver ið formaður i kvennakór bæjarins, Söngfélaginu Gigjunni. Og bróðir hennar. Hákon Oddgeirsson, er kunnur einsöngvari, sem oft hefur komið fram með Karlakórnum Fóst bræðrum og viðar. Enn má geta þess. að þcir Magnús Jónsson tenór og Kristján Jóhannsson eru systrasynir. „Við erum sjö systkinin." segir Kristján. „og fjölskyldan sísyngjandi. önnur systir min, Anna María, söng lengi með Ragga Bjama og öðrum danshljómsveitum í Rcykjavík og hin spilar mikið á orgql og pianó. Við bræðurnir fimm áttum helzt allir að koma i Geysi, en tveir þeirra hafa verið algjörlega ófáanlegir til þess. þótt þeir taki gjarna lagið í heimahúsum.” Hjá Geysi varð Kristján brátt einsöngvari og raddþjálfun fékk hann hjá Sigurði Demtz, en lengi vel tók hann sönginn ekki sérlega alvarlega. Þó notaði hann tækifærið aðskreppa í tima hjá Guðmundi Jónssyni. þegar hann var á dísil-stillingar námskeiði suður í Reykjavik. Heldur söngpallinn en dísilstillingarnar En nú var farið að kvisast, að i Kristjáni væri mikið og gott söngvara efni. Eyfirðingar vildu ekki láta hann koðna niður I fásinninu og tuttugu og átta ára gamall hélt hann til Ítalíu nteð konu og tvö börn og nokkurn farar r 1 styrk frá Menningarsjóði KEA og öðrum styrktarmönnum upp á vas- ann. Síðan eru tvö og hálft ár og honum hefur gengið svo vel, að fyrir skömmu seldi hann disilstillinga- og jámsmiðaverkstæði sitt og veðjar öllu á sönglistina. „Auðvitað geri ég mér grein fyrir því, að söngvarabrautin getur verið grýtt,” segir hann. „Og þess vegna er ég lika feginn að hafa ekki farið of ungur utan. Eg hef með eigin augum séð margt. sem gerðist í Silfurtunglinu — þar voru frábærir punktar — og ég veit, að margir söngvarar eru algjör lega á valdi umboðsmanna sinna. En ég læt nú ekkert plata mig og reyni að láta ekki gera mig vitlausan. Svo má maður ekki reykja og ekki drekka, nema i hæsta lagi „un’ biciere di vino". eitt og eitt glas með matnum." Loks segir hann. að söngnámið hafi talsvert bitnaðá fjölskyldunni. þvi þau hafi ekki alltaf getað verið með honum á Ítalíu, og Áslaug, konan hans. stundum verið ein með þau heima á Akureyri. „Hún hefur veitt mér ómetanlegan stuðning,” segir hann. Og börnin, Ingvar Jóhann, niu ára og Barbara Kristín. fjögra og hálfs. eru hress. Barbara syngur fyrir okkur Uppi á stól stendur mín kanna. með bylmingsrödd, greinilega ákveðin i að láta ekki sitt eftir liggja við að halda sönghefðinni í fjölskyldunni við lýði. DB óskar honum norðlenzka söngvara alls hins bezta i óperuhúsum Suðurlanda — þó öll vonum við að fá að heyra rödd hans hljóma hér uppi á íslandi i framtiðinni. IHH. „bað er fyrst og fremst óperan, sem freistar mín,” segir raddmikli tenórinn frá Akureyri. DB-mynd: Friðgeir Axfjörð. „betta er stundum erfitt fyrir fjölskylduna,” segir Kristján Jóhannsson söngvari og brosir til konu sinnar, Áslaugar Kristjánsdóttur. DB-mynd: Friðgeir Axfjörð. Til hjálp- arí startinu Fram eftir degi á gamlársdag voru jeppar nánast einu ökutækin, sem sáust á götum Reykjavikurborgar. Smátt og smátt tindust minni bilarnir af stað, enda margir búnir að setja undir keðjur. Jcpparnir voru auðvitað ekki algildir, eins og sést á þessari mynd. DB- mynd: Ragnar. „Þegar Aðalsteinn Jónsson býður — þá býður hann” sagði einn Eskfirðingurinn. sem kom inn í sömu andrá: Þegar Aðalsteinn Jónsson býður. þá býður hann. Reykjavikurkonan sagðist þá aldrei hafa vitað til þess að ekki væri borgað inn á jólatrésskemmtanir. Það væru miklir peningar. sem foreldrar í Reykjavik yrðu að borga fyrir jólatrés- skemmtanir, og það í manns eigin félögum. eins og konan orðaði það. Eskfirðingar eru mjög þakklátir for stjórum hraðfrystihússins og konum þeirra fyrir þá velvild, sem þeir hafa sýnt með þessum rausnarlega jólatrés- fagnaði. Regína Tbor, Eskifirði. Hraðfrystihús Eskifjarðar bauð i fyrsta skipti öllum bömum staðarins á jólatrésfagnað á milli jóla og nýárs. Að sögn Kristjáns Guðmundssonar, sem undirbjó skemmtunina. ásamt for stjórafrúm hraðfrystihússins. taldi hann að um fjögur hundruð manns hefðu sótt skemmtunina, sem öll fór vel fram. Forstjórafrúrnar veittu vel af mikilli rausn og myndarskap. Jólasveinar komu tveir frá Nes kaupstað og tveir litlir hér úr bænum. Léku allir sín hlutvcrk mjög vcl. Jóla sveinarnir gáfu hvcrju barni í salnurn stóran sælgætispoka. Vakti það ntikla ánægju og mörg litlu börnin sögðust aldrei hafa fengið svona' mikið sælgæti. Samkomusalurinn i félagsheimilinu var mikið skreyttur og einnig kaffi stofan. Þar stóðu tvö lítil jólatré. sem juku mjög á gleðskap og hátíðarblæ. Ánægja var yfir öllum. Varla þarf að geta þess að i salnum var stórt tré. sem náðialveguppí loft. Eg skraþp smástund á jólatrés skemmtunina. Þar var ung og falleg stúlka. sem lét alla hafa niiða er inn fóru. Kona úr Reykjavik, sem kom hingað unt jólin til að hitta ættingja sina, fékk miða um leið og ég. Hún spurði strax hvar ætti að borga. Þá Alþjéðaár barnsins 1979: FRAMKVÆMDA- NEFND SKIPUÐ — viðamikið starf framundan Menntamálaráðuneytið hefur skipað sjö manna framkvæmdanefnd til að vinna að þvi að sem beztur árangur náist í starfi á ári barnsins, sem nú er nýhafið. Alþjóðaár barnsins 1979 var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, en á þessu ári eru tuttugu ár liðin frá sam þykkt um yfirlýsingu um réttindi barnsins. Hlutverk islenzku framkvæntda nefndarinnar er að örva scm flesta til starfs í þágu barnaársins og santræma aðgerðir þeirra. en hið raunverulega starf hvilir á félagasamtökum. sveitar félögum, stofnunum og einstaklingunt. Til þess að ná viðtæku santstarfi efndu mcnntamálaráðuneytið og frant kvæmdanefndin til tveggja ráðstefna i haust til að undirbúa starfið og sóttu unt 100 fulltrúar hvora ráðstefnu. Á nýbyrjuðu ári verður unnið að verkefnunt með ýmsu móti. haldnar verða ráðstefnur. fræðslufundir. skemnttanir. gefin verða út fræðslurit. Gerð verður athugun og úttekt á ein stökunt málum, scm varða börn. tillögur samdar og þær kynntar viðkomandi .aðilunt. Meðál þeirra verkefna scm unnið verður að eru: endurskoðun laga er varða réttarstöðu barna og foreldra ungra barna. barnið. fjölskyldan. og at vinnulifið og hvernig má samræma betur þarfir fjölskyldna mcð börn og 1979 International Year of the Child yfííceí kröfur atvirinulifsins. Trúarlegt uppeldi barna. öryggi barna i umferðinni og á heimilum. Aðstæður fatlaðra og þroska heftra bama. Lcikaðstaða barna. Skól inn og vinnutínti barna og Áhrif skipulags bæjar á lífshætti og leikmögu- leika barna. Auk þessa sem hefur verið nefnt verður fjölmargt tekið til meðferð ar. Skipulagsstarf og samræming verður unnin af sex vinnuhópum. sem hver um sig sinnir ákveðnum verkcfnum. Fyrir hvem starfshóp hefur verið skipaður for- svarsmaður eða tengill. Starfshóparnir eru eftirfarandi: I. Barnið og þjóðfélagið. 2. Börn i þróunarlöndum. 3. Skólar, dagvistarhcimili og æskulýðs miðstöðvar. 4. Félagslif og börn. 5. Barnið. fjölmiðlar og listir. 6. Þroskahcft börn. .111.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.