Dagblaðið - 03.01.1979, Side 15

Dagblaðið - 03.01.1979, Side 15
íf 1*'-« If Er ég sá sem kemur eða hinn sem fer? Rubcn Jimincz i Dallas situr ufan á „tveggja-átta” bílnum sínum. Þessi Ford frá 1949 vekur skelfingu hjá öllum sem keyra eftir honum, gerir stöðumælaverði snarruglaða og fær vegfarcndur til að flýja sem óðast. Jiminez keypti bílinn með bróður sinum fyrir tvö þúsund og fimm hundruð dollara og gaf honum þennan tvíræða svip. Einn auðséður kostur: Þeir sem sitja i aftursætinu geta ekkcrt slett sér fram i ákvarðanir bílstjórans. TÓLF ÁRA BJÓÐA BLÍÐU SÍNA í VERZLANAMIDSTÖD Tólf til þrettán ára stúlkur hafa valdið verulegum vanda i Ishöj einni útborg Kaupmannahöfn. Hefur nokkur hópur þeirra stundað vændi og haft aðalstöðv- ar sinar á einni hæð mikillar verzlunar miðstöðvar einnar. Á hæðinni erusnyrti herbergi og fleiri þjónustustöðvar en vegna aðgangs stúlknanna og „við skiptavina" þeirra er nú í athugun að loka hæðinni og flytja snyrtiherbergin upp nær verzlununum og kvikmynda- húsi sem þar er. Hefur málið bæði komið til kasta stjórnar fyrirtækisins. sem rekur verzlunarmiðstöðina og bæj- arstjórnarinnar. Hefur bliðusalan valdið svo ntikilli röskun og erfiðleikum, að í það ntinnsta ein verzlun hefur sagt upp leigusamn- ingi sínum, sem átti að gilda tveim árum lengur. Mun eigandi hennar ætla að flýja annað. Segist hann ekki skilja hvers vegna slikt háttalag sem þarna er á ferð- inni sé liðið til lengdar. Hafi í það minnsta tveir þriðju hlutar af viðskipta- vinum hans hrakizt frá vegna þessa. Sagt er að stúlkubörnin virðist hafa komið sér upp föstum viðskiptavinum. Sé þar aðallega um að ræða erlenda far- andverkamenn. Munu kvennadeildir snyrtiherbergjanna vera notaðar til upp- fyllingar viðskiptanna. Að sögn eru við- skiptin blómleg og jaðrar stundum við að biðröð sé. Er það meðal annars skýrt með að þjónustan er ódýr allt niður i tiu krónur danskar. Þegar siðast til frétlist hafði engin kæra borizt til lögregluyfir valda. Þá er leyndarmálið upplýst. Eins og marga hefur raunar grunað lengi er það tómt svindl, þegar töframenn saga í sundur aðstoðarstúlkur sinar. Myndin skýrir sig sjálf en Simon Lovell töframaður segir þó að sögunarkúnstin sé alls ekki hættulaus. Illa geti farið ef ekki sé farið að með gát. MNGHÚSTRÖPPUR SEM SKÍÐABREKKA Kathy Hallion stanzar á skiðunum eftir að hafa rennt sér niður tröppurnar á þinghús- inu i Albany, höfuðborg New York fylkis. Hún var látin renna sér niður þessa hvitu ábreiðu, sem liktist gervisnjó, til að sýna að timi vetrariþróttanna væri að hefjast.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.