Dagblaðið - 03.01.1979, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JANUAR 1979.
S>
Sjónvarp
i
Útvarp
Ég held að margar þeirra sem hafa
séð mig í sjónvarpinu haldi að ég sé
eitthvað öðruvísi en ég er. En ég er
bara venjulegur ungur maður sem hef
verið ótrúlega heppinn.”
Rætur
bezta byrjunin
Siðan Rætur urðu vinsæll mynda-
flokkur hefur LeVar getað valið um
hlutverk og þaðgerir hann lika. Hann
tekur þau tilboð sem hann og ráð-
gjafar hans sjá að hæfa honum.
Hann hefur nú leikið í nokkrum
sjónvarpsmyndum og hann hefur
leikið i myndaflokk sem gerður er fyrir
börn.
„Ég er 21 árs og ég á allt lífið fram-
undan. Leikurinn i Rótum var bezta
byrjun sem ég gat óskað mér en nú er
það í mínu valdi hvernig ég get not-
fært mér tækifærin sem ég fæ.
Ég get tekið hlutverk sem færa mér
mikla peninga en ég vil heldur hlut-
verk þar sem ég geri eiíthvað gott og
get lært eitthvað af.
Ég er byrjaður að læra aftur því það
er alltaf eitthvað sem maður getur
lært.” LeVar hefur fengið sér hús á
leigu i Malibu rétt utan við Los Angel-
es. Húsið er á mjög dýrum stað og ná-
granni hans er engin önnur en söng-
konan Linda Ronstadt og margir af
þekktustu leikurum i Hollywood búa
við þessa sömu götu.
Elska að vera
aleinn og lesa
„Ég tók ekki þetta hús á leigu hér af
því að það er fint að búa hér, heldur
vegna þess að þetta er fallegur staður,
þar sem ég get slappað af og verið al-
einn, þegarégerekki að vinna.
Frá þvi ég var barn, hef ég elskað að
vera aleinn. Þegar aðrir drengir spil-
uðufótbolta satéginnioglasbækur.
Mér finnst það gaman og eins að
hlaupa eftir ströndinni eða synda.”
LeVar Burton hefur aldrei orðið
fyrir því að komast í erfiða aðstöðu
vegna þess að hann er negri, og eftir
að hann lék Kúnta Kínte ber hann
meiri virðingu fyrir þjóðflokk sinum.
„Það var ekki erfitt fyrir mig að
læra hlutverkið Kúnta Kínte, vegna
þess að hann hefur alltaf búið i mér.
Ég lét hann bara koma fram þegar ég
lék hann.
Það var yndislegt að leika í mynda-
flokk sem gat sýnt bæði svörtum og
hvítum að við negrarnir eigum líka
ok1' \r sögu, sem er þess verð að minn-
a^vjegir LeVar Burton — glaður og
ungur maður sem við komum til með
að sjá miklu oftar en í þessum eina
myndaflokk sem við sjáum i kvöld og
næstu miðvikudaga.
ELA
LeVar Burton eins og hann litur út I dag, ungur, gladur og þakklátur fyrir lífið og til-
veruna.
kaþólsku kirkjunni. Það var reynt að
tala mig til, en ég sá svo margar hliðar
á því að verða kaþólskur prestur sem
ekki er kannski glæsilegt fyrir unga
menn, t.d. skirlífi.
Það hugsar maður kannski ekki
mikið um þegar maður er 13 ára en
það kemur fljótt og þegar ég var 16 ára
hætti ég í prestaskólanum.
Ákvað að
verða leikari
Alveg frá þeim tíma ákvað ég að
verða leikari, því það starf gefur fólki
líka eitthvað, t.d. skemmtilega upplif-
un sem getur gert líf þess innihaldsrik-
ara.
Og svo er annað í þessu, leikarar
mega gefa kvenfólki hýrt auga og það
líkar mér,”segir LeVar ogbrosir.
LeVar Burton er nú umsetjnn af
kvenfólki. Hann vonar að þessi frægð
geri hann ekki hégómlegan.
„Flestar af stúlkunum mínum eru
svo sætar en þær eru líka mjög feimn-
ar. Þegar þær hringja í mig vita þær
oft ekkert hvað þær eiga að segja. Þá
reyni ég að segja eitthvað þeim til upp-
örvunar.
Miðvikudagur
3. janúar
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón-
lcikar.
13.20 Lltli bamatíminn. Finnborg Scheving
stjórnar.
13.40 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Á norðurslóðum
Kanada” eftir Farley Mowat. Ragnar Lárus-
son les þýðingu sina (5).
15.00 Miðdegistónleikan íslenzk tónlist. a.
„Sjöstrengjaljóð” eftir Jón Ásgeirsson. Sin-
fóníuhljómsveit íslands leikur; Karsten Ander-
sen stj. b. „Þrir Maríusöngvar”, þjóðlög i út-
setningu Þorkels Sigurbjömssonar. Guð-
mundur Jónsson og strengjasveit Sinfóniu-
hljómsveitar íslands flytja; Þorkell Sigur-
bjömsson stj. c. „Gullna hliðið”, leikhústónlist
eftir Pál ísólfsson. Sinfóníuhljómsveit íslands
leikur; Páll P. Pálsson stj.
15.40 „Sporin í mjöllinni”, smásaga eftir Hall-
dór Stefánsson. Arnhildur Jónsdóttir leikkona
les.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popphorn: Halldór Gunnarsson kynnir.
17.20 Ctvarpssaga barnanna: „Dóra og Kári”
eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Sigrún Guöjóns-
dóttir byrjar lesturinn.
17.40 Á hvftum reitum og svörtum. Guðmundur
Arnlaugsson flyturskákþátt.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Einsöngur i útvarpssal: Ingveldur Hjalte-
sted syngur lög eftir Pál Isólfsson, Edvard
Grieg, Jean Sibelius og Giacomo Puccini.
Jónina Gísladóttir leikur á pianó.
20.00 Úr skólalifinu. Kristján E. Guðmundsson
stjórnar þættinum.
20.30 (Jtvarpssagan: „Innansvcitarkronika”
eftir Halldór Laxness. Höfundur les (2).
21.00 Djassþáttur i umsjá Jóns Múla Áma-
sonar.
21.45 íþróttir. Hermann Gunnarsson segir frá.
22.05 Norðan heiða. Magnús Ólafsson á Sveins-
stööum i Þingi fer á fund nokkurra hún-
vetnskra hagyrðinga og leitar eftir vísum.
22.30 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.50 Cr tónlistarlifinu. Knútur R. Magnússon
sér um þáttinn.
23.05 Draumljóð um vetur. Gylfi Gröndal les úr
nýrri ljóðabók sinni.
23.20 Hljómskálamúsik. Guðmundur Gilsson
kynnir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
4. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
7.10 LeikfimL 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Knútur R.
Magnússon endar lestur sögunnar um
„Næturferö Kalla” eftir Valdisi Óskarsdóttur
(3).
9.20 LeikSmL
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðuifregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög; frh.
11.00 Verzlun og viðskipti. Umsjónarmaður:
Ingvi Hrafn Jónsson.
11.15 Morguntónleikar: Han de Vries og Fílhar-
moníusveitin i Amsterdam leika litinn konsert
l F-dúr fyrir óbó og hljómsveit op. 110 eftir
Johannes Kalliwoda; Anton Kersjes stj. /
Hljómsveit franska útvarpsins leikur Sinfóniu
í C-dúr eftir Georges Bizet; Sir Thomas
Beecham stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
Sjónvarp
s>
Miðvikudagur
3. janúar
18.00 Kvakk-kvakk. ttölsk klippimynd.
18.05 Gullgrafararnir. Nýsjálenskur mynda-
flokkur. Þriðji þáttur. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.30 Könnun Miðjarðarhafsins. Fimmti þáttur.
Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Viðtal við Alex Haley. Haley er höfundur
skáldsögunnar „Roots”, en eftir henni hefur
verið gerður sjónvarpsmyndaflokkur, sem
sýndur hefur verið viða um lönd og vakið
mikla athygli. I bókinni rekur Haley ættir
sinar til miðrar átjándu aldar er forfeður hans
bjuggu i Afrlku. Þýðandi Jón O. Edwald.
(Nordvision — Danska sjónvarpið).
20.55 Rætur. Bandarlskur myndaflokkur í tólf
þáttum, gerður eftir heimildaskáldsögu Alex
Haleys um ætt hans I sjö liði. Aðalhlutverk Le-
Var Burton, John Amos, Cicely Tyson,
Edward Asner, O.J. Simpson, Leslie Uggams
og Moses Gunn. Fyrsti þáttur. öll eigum við
rætur. Árið 1750 fæðist í Gambíu i Afriku
drengur, sem hlýtur nafnið Kúnta Kínte.
Þrælakaupmenn ná honum, þegar hann er
sautján ára, og hann er sendur til Vesturheims
ásamt fjölmörgum öðrum ánauöugum Afríku-
búum. Þýðandi Jón O. Edwald.
21.45 Þættír úr sögu Jussi Björlings. Hin siðari
tveggja sænskra mynda, þar sem rifjaðar eru
upp minningar um óperusöngvarann Jussi
Björling. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision — Sænska sjónvarpið).
22.40 Dagskrárlok.
Tónskóli
Sigursveins
Innritað verður í vorönn í Hellusundi 7, mið-
vikudaginn 3. janúar og fimmtudaginn 4.
janúar kl. 16—19 báða dagana í húsakynnum
tónskólans, og í Fellaskóla sunnudaginn 7.
janúarkl. 14—16.
í undirbúningsdeild og kórsöng er enn hægt að
innrita nokkra nemendur, að öðru leyti er
skólinn fullskipaður.
Umsóknir þarf að staðfesta með greiðslu
námsgjalda áður en kennsla byrjar. Kennsla
hefst mánudaginn 8. janúar samkv. stunda-
skrá.
Skólastjóri
Tilkynning frá
Fiskveiðasjóði íslands
Samkvæmt reglugerð frá 5. september 1978, um ráðstöfun gengis-
hagnaðar til að greiða fyrir hagræðingu í fiskiðnaði, hefur verið
ákveðið að veita lán til fiskvinnslufyrirtækja.
Við veitingu lánanna skal við það miðað, að þau stuðli að betri nýt-
ingu hráefnis m.a. með endurnýjun á vélum og vinnslurásum, hag-
kvæmni í rekstri, stjórnunarlegum umbótum og samræmi milli veiða
og vinnslu, þ.á m. einnig að greiða fyrir því að fyrirtæki geti lagt
niður óhagkvæmar rekstrareiningar.
Umsóknir um lán þessi sendist Fiskveiðasjóði íslands fyrir 25. janúar
1979 og fylgi þeim eftirtalin gögn:
1. Rekstrarreikningur fyrir árið 1977 og fyrir 3 fyrstu ársfjórðunga
ársins 1978.
2. Efnahagsreikningur pr. 31. desember 1977 og 30. september 1978.
3. Skýrslur á eyðublöðum þeim, sem send voru til frystihúsa frá Þjóð-
hagsstofnun í nóvember sl. merkt fskj. L—6. um framlegðarút-
1 reikning, greiðslubyrði vaxta og afborgana, veltufjárstöðu, fram-
leiðsluskýrslu, tæknibúnað og hráefnisöflun. Þessi eyðublöð eru
einnig fáanleg á skrifstofu Fiskveiðasjóðs.
Við veitingu lánanna verður metinn rekstrarárangur fyrirtækjanna
. og þar sem fram kemur, að nýting er léleg og framlegð lág getur sjóðs-
stjórnin skipt hagræðingarláni i tvo hluta og bundið afgreiðslu seinni
hlutans skilyrði um regluleg skil á gögnum, m.a. varðandi nýtingu,
framlegðo.fl.