Dagblaðið - 08.01.1979, Síða 4

Dagblaðið - 08.01.1979, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979. DB á ne ytendamarkaði Upplýsingaseðlar f rá tuttugu og sex stöðum: Dýrast að búa á Selfossi en ódýrast á Blönduósi og f Hveragerði? Að þessu sinni bárust okkur upplýs- ingaseðlar um heimilisbókhald frá tuttugu og sex stöðum á landinu. Til gamans höfum við reiknað út meðal- talskostnað á hinum ýmsu stöðum. Að visu eru þetta ekki tölur til þess að byggja mikið á því frá mörgum stöðum barst ekki nema einn seðill. Þar er þvi ekki um neinn meðaltalsút- reikning að ræða,- nema þeirrar fjöl- skyldu sem sendi inn seðilinn. Efst á blaði er Selfoss með 28.386 kr. í meðaltal. Næst á eftir er Sand- gerði með 27.424 kr. og þriðji í röðinni er Höfn í Hornafirði með 26.277 kr. Síðan koma eftirtaldir staðir: Grundarfjörður 23.259.- Mosfellssveit 23.234.- Keflavík 23.074,- Patreksfjörður 22.867, Reykjavík 22.337, Vogar 22.032, Kópavogur 21.062, Þorlákshöfn 20.728, Akranes 20.691, Hafnarfjörður 19.589, Akureyri 18.198, Eskifjörður 18.168, Hvolsvöllur 17.510, Stykkishólmur 17.497, Vestmannaeyjar 17.484, Garðabær 17.027, Bíldudalur 16.954, Egilsstaðir 16.863, Stöðvarfjörður 16.218, Húsavík 15.689, Ólafsvík 14.691, Blönduós 13.118, Hveragerði 9.237, Nú geta menn borið sinn eigin bú- reikning saman við annarra á sömu stöðum og séð hvort þeir eru nálægt meðaltalinu á hverjum stað. Þetta meðaltal er reiknað út án tillits til fjöl- skyldustærðar. Allir seðlar frá sömu stöðum lagðir saman og siðan deilt í með fjölda seðlanna. Einn af verkstjórum höfuðborgarinnar er þarna að stjórna framkvæmdum. Eins og glöggt má sjá, er ekki heiglum hent að vera fótgangandi f ófærðinni. Hins vegar vita kannske færri að húseigendur eru skyldugir að moka snjóinn af gangstéttunum framan við hús sin. DB-myndir Bjarnleifur. Ofnbakaðar kartöflur Margir þekkja ekki kartöflur mat- reiddar nema á þrjá vegu. Soðnar, sykurbrúnaðar og „franskar”. Það er hins vegar hægt að matreiða kartöflur á ótal mismunandi vegu. 1 sumum til- fellum getur kartöfluréttur verið mið- degisverðurinn. Einnig er hentugt að nota soðnar og marðar kartöflur í ýmsa matargerð, eins og t.d. í hakka- buff, sem verður bæði drýgra og mjög mjúkt ef mörðum kartöflum er bætt út í kjötdeigið. í vetur kom út sérstök matreiðslu bók um kartöflur í bókaflokknum Litla matreiðslubókin, (frá Erni og ör- lygi). Við höfum áður birt uppskriftir Kartöfluréttir eru hreinastallostcti.en þi verða kar- töflurnar lika að vera góðar. Undanfarið höfum við fengi'* óvenjniega góðar kartöflur í verzlunum, enda var f.í. ár alvtþ, sérlega gott kartöfluir. — TU voru þ: ir sei'i tóku siðustu kartöflurnar ekki upp fyrr en icii fyrír jól* m.a. blm. Neytendasiðunnar. Það reyndust inhverjar beztu kartöflur sem framreidd- ar; aia .eriö i „tilraunaeldh'si” DB! úr þessari bók, sem er sérlega skemmtileg og falleg. Bókin er mjög fallega myndskreytt þannig að maður fær vatn í munninn vjð að skoða myndirnar. Þar er m.a. uppskrift af ofnbökuðum kartöflum með sýrðum rjóma. 3/4 kg kartöflur 1 hvítlauksgeiri 2 dl syrður rjomi 1 — 2 dl kjötsoð salt, I tsk. paprika ca 25 g smjör. Flysjið kartöflurnar og skerið þær í þunnar sneiðar. Núið ofnfast fat að innan með hvítlauksgeiranum og smyrjið það. Blandið sýrða rjómanum og soðinu saman. Raðið kartöflusneiðunum í lögum í fatið og hellið rjómablöndunni milli laga. Stráið salti og papriku milli laga. Hellið svo afganginum af sýrða rjómanum yfir og látið nokkrar litlar smjörklípur ofan á. Lok er látið yfir fatið eða því lokað með álþynnu. Bakað í ofni við 200° hita í 45 min. Lokið eða álþynnan fjarlægð um 15 mín. áður en kartöflurnar eru full tciktar Berið þessar kartöflur fram með steiktum kjöt- eða fiskréttum. Gott er að strá söxuðum kryddjurtum yfir kar- töflurnar, t.d. steinselju, estragon eða dilli. Verð: Margir rækta sjálfir eigin kartöflur og þvi eru alls kyns kartöfluréttir ekki dýrir i framleiðslu á slíkum heimilum. En í verðútreikningi verðum við að gera ráð fyrir að kaupa þurfi kartöfl- urnar. Hráefnið í réttinn kostar því handa fjórum mjög nálægt 350 kr. eða um 87 kr. á mann. A.Bj. Húseigendur eru skyldugir að moka snjó af gangstéttum —þeir eru skaðabótaskyldir ef einhver hlýtur mein af ógreiðf ærri gangstéttinni Ætli fólki sé almennt kunnugt um að ef einhver dettur og slasast á ógreiðfærri gangstétt framan við íbúð- arhús ber húseigandinn ábyrgð á slys- inu? — Þannig eru húseigendur raunveru- lega skyldugir að sjá um að ryðja snjó og öðrum farartálmum af gangstéttum fyrir framan hús sín. Víða er pottur brotinn í þessum efnum og gangandi vegfarendur komast varla leiðar sinnar fyrir snjóruðningum. Húseigendum er einnig skylt að sjá til þess að snjóhengjur og grýlukerti detti ekki ofan á höfuð vegfarenda, enda getur hlotizt mikill skaði af slíku. A.Bj. tíl samanburðar á heimiliskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Sími Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlegast sendið okkur þennan svarseðil. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Kostnaöur í des. mánuöi 1978 Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Alls kr. YIKiX Fjöldi heimilisfólks )

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.