Dagblaðið - 08.01.1979, Side 8

Dagblaðið - 08.01.1979, Side 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979. Höfuðborg Kambódíu i höndum Vietnama Kínverjar og Sovétmenn styðja hvor sinn aðilann og deila hart Svo virðist sem uppreisnarmenn, studdir ötullega af Vietnam og jafnvel Sovétmönnum, hafi steypt stjórn Pol Pot forseta Kambódíu af sióli. I út- varpsfregnum frá Haroj i Vietnam sagði i gær að uppreisnarmenn hefðu lagt undir sig höfuðborg landsins Phnom Penh og rúmlega helming Kambódíu. Sagði að stjórn Pol Pot væri fallin og uppreisnir hefðu brotizt út viða um landið. Sihanouk prins fyrrum helzti ráða- maður í Kambódiu, sem undanfarin ár hefur dvalið í Peking í Kína sagði I gær að Kambódíumenn mundu berj- ast gegn árásarmönnunum. Telur hann herliðið, sem Vietnam kallar uppreisnarmenn ekki vera annað en dulbúna hermenn Vietnamshers. Prinsinn er á leið til New York þar sem hann mun biðja Sameinuðu þjóð- irnar að grípa í taumana. Pekingstjórnin styður stjórn Pol Pot en Sovétmenn aftur á móti Vietnam og hina svokölluðu uppreisnarmenn í Kambódíu. Fögnuðu hinir síðar- nefndu mjög falli Phnom Penh og kölluðu stjórn Pol Pot einræðissinn- aða endurskoðunarklíku. Bandarikin hafa lýst áhyggjum sinum yfir gangi mála í Suðaustur- Asíu og hafa sakað Vietnama um að ógna friði í þessum heimshluta með hegðun sinni. Erlendar fréttir REUTER Ástralir og Nýsjálendingar urðu óvenjumikið varir við fljúgandi diska nú i upphafi janúarmánaðar. M.a náði nýsjálenzkur sjónvarpsmaður kvikmynd af fljúgandi diski, sem einnig náðist á radar flugvéla. Er fregnir bárust af þessum ókennilega hlut var orrustuþota nýsjálenzka hersins sett í viðbragðsstöðu, ef gripa þyrfti tilrót- tækra ráðstafana. Myndin hér að ofan er af hinum torkennilega hlut, sem sjónvarpsmaðurinn tók mynd af. Ekki hafa fengizt frekari skýringar á fyrirbærinu. Nýja-Sjáland: FUÚGANDIDISKUR KVIKMYNDAÐUR það hefur snjóað viðar en á Islandi undanfarið. Veður hefur verið með kaldasta móti víða í Evrópu og bitnað það á háum sem lágum. Margrét Danadrottning er heldur kuldaleg þar sem hún stigur út úr hinni konunglegu þyrlu sinni á Kastrup. En hún var vel búin drottningin nema til höfuðsins og kom sér fljótlega i hús. Drottn ingin kulda- leg Newsweek: SHEVCHENKO SEMFLÚÐI GIFTUR Á LAUN Arkady Shevchenko sovézki sendi- maðurinn hjá Sameinuðu þjóðunum, sem hvarf úr starfi sínu á sl. ári og neitaði að snúa til föðurlands sins aftur, hefur nú kvongazt bandarískri konu á laun, að þvi er timaritið News- week greinir frá i dag. Newsweek segir að Shevchenko hafi gengið í það heilaga fyrir hálfum mán- uði og konuna hafi hann hitt i gegnum lögfræðing sinn í Washington. Eins og kom fram í fréttum á síðasta ári var Shevchenko æðsti sendimaður Sovét- ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum og einn af aðstoðarframkvæmdastjórum samtakanna. Shevchenko lenti í vandræðamáli skömmu eftir að hann yfirgaf stöðu sína. Ung stúlka, Judy Chavez, sagði að hann hefði greitt sér 40 þúsund dollara fyrir félagsskáp i hálft ár. Hún hélt því fram að hann hefði fenglð peningana hjá bandarísku leyniþjón- ustunni CIA. Shevchenko staöfesti síðar að hann hefði verið í nánum tengslum við stúlkuna, en sagði sovézka njósnara og bandaríska fjölmiðla hafa rangtúlk- að staðreyndir. Fyrri kona Shevchenkos í Sovétríkj- unum mun hafa framið sjálfsmorð skömmu eftir að hún sneri aftur til Moskvu, eftir að maður hennar hafði tilkynnt ákvörðun sína. AFMÆLI ÖLDUNGSINS Massa, elzti górilluapi sem vitað er um í dýragörðum, hélt upp á 48 ára afmæli sitt I Philadelphia dýragarðinum á dögunum. Afmæliskakan sem Massa fékk var gerð úr grænmeti og kjöti og skreytt bönunum, eplum og gulrótum og þótti smakkast vel.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.