Dagblaðið - 08.01.1979, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979.
Verzlunarmenn hafa vísað kjaradeilum
til ríkissáttasemjara:
„Allt að 50% verr
launaðir en opin-
berir starfsmenn f
sams konar vinnu”
—fyrsti samningafundurinn
ínæstu viku
Verzlunarmenn hafa nú einhliða
visað ágreiningsmálum sínum við vinnu-
veitendur til sáttasemjara rikisins og
hcfur hann boðað til fyrsta samninga-
fundar strax um miðja næstu viku.
Björn Þórhallsson, formaður Lands-
sambands islenzkra verzlunarmanna.
sagði i viðtali við DB að kröfur verzl-
unarmanna væru að þeim yrðu greidd
laun i samræmi við það sem hið opin-
bera greiðir fyrir sambærileg eða sömu
störf.
Sagði hann að skv. athugun sem gerð
var eftir samninga við opinbera starfs-
menn haustið 1977 hafi komið í ljós að
laun verzlunarmanna væru frá 9% og
upp i 50% lægri en laun opinberra
starfsmanna fyrir sömu störf.
Við þetta bættist að vinna við lægst
launuðu störfin væri yfirleitt greidd skv.
launatöxtum, en fjöldi fyrirtækja hefði
lagfært launagreiðslur sínar til starfs-
fólks í hærra launuðu störfunum til sam-
ræmis við greiðslur hins opinbera fyrir
slík störf.
Væri hér þvi um mikið hagsmunamál
lægst launuðu verzlunarmannanna að
ræða. Taldi hann að þótt gengið yrði að
þessum kröfum verzlunarmanna mundi
það ekki kosta atvinnuveitendur umtals-
verðar auknar launagreiðslur vegna þess
hve mörg fyrirtæki hafa þegar rétt hlut
hinna hærra launuðu, sem fyrr segir. Til
að auðvelda framkvæmdina hefur verið
unnið að endurskoðun flokkaskiptingar
kjarasamnings verzlunarmanna. - GS
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáisgötu 49 - Sími 15105
Engin ákveðin
metsölubók 78
—gott „bókaár”, jöf n og góð sala en ekki áberandi toppar
Bóksala virðist hafa verið góð á ný-
liðinni jólavertíð og er gott hljóð í út-
gefendum og bóksölum. Svo er að sjá
sem salan hafi verið jöfn og margar
bækur selzt vel, en engin ein hafi haft
áberandi yfirburði. Dagblaðið ræddi
við nokkur stærri bókaforlaganna og
tvær stórar bókaverzlanir. Tölur um
sölu einstakra bóka liggja ekki fyrir
nema að litlu leyti, en greint var frá
þeim bókum sem bezt gengu.
Hjá Iðunni seldist Öldin okkar
1961—70 mjög vel og Disneyrímur
eftir Þórarin Eldjárn seldust upp, en
rímurnar voru gefnar út í þrjú þúsund
eintökum. Ég um mig frá mér til mín
eftir Pétur Gunnarsson var gefin út í
fimm þúsund eintökum og seldist upp.
Þá seldust Vetrarbörn upp í tveimur
prentunum, alls sex þúsund eintök.
Svartagull eftir Alistair McLean, Gull-
díki eftir Hammond Innes og Tvífar-
inn eftir Mary Stuart seldust og mjög
vel.
Hjá Almenna bókafélaginu seldist
minningabók Rögnvaldar Sigurjóns-
sonar píanóleikara, Spilað og spaugað,
bezt.
Hjá Máli og menningu seldust upp
tvö upplög af Eldhúsmellum eftir
Guðlaug Arason og langt í þriðja upp-
lagið. Þá seldist vel bók Ólafs Hauks
Símonarsonar, Vatn á myllu kölska.
Emil i Kattholti seldist upp.
Hjá Skuggsjá og Oliver Steini
fengust þær upplýsingar að Einars
saga Guðfinnssonar hefði selzt upp.
Sömu sögu væri að segja af Lækninga-
máttur þinn, eftir Harold Sherman og
Ein á hesti. Þá seldist Móðir mín hús-
freyjan vel og einnig Skálatúnsstrákur-
inn.
Hjá Erni og Örlygi var jöfn sala og
seldust vel Ástir i aftursæti eftir Guð-
laug Guðmundsson. Þar sem bænd-
urnir brugga eftir Guðmund Halldórs-
son, 1 veiðihug, æviminningar
Tryggva bónda i Miðdal, Guðrún
Guðlaugsdóttir skráði og Áfram með
smérið piltar, Dagur Þorleifsson skráði
eftir Ólafi á Oddhóli.
Hjá bókabúð tsafoldar var gott
bókaár að sögn Sigríðar Sigurðar-
dóttur verzlunarstjóra. Þó sagði hún
að meira hefði mátt vera af verulega
góðum bókum, „klassik”. Laxness
selst alltaf drjúgt og Ég um mig frá
mér til min eftir Pétur Gunnarsson
seldist upp. Einars saga Guðfinns-
sonar rann út og Vetrarbörn seldust
upp og Eldhúsmellur seldust vel.
Hjá Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar var Laxness sölu-
hæstur en ekki uppseldur, enda gefinn
út í stóru upplagi. Pétur Gunnarsson
seldist vel og einnig Einars saga Guð-
finnssonar. öldin okkar seldist nær
upp og Vetrarbörn seldist upp. Ein á
hesti seldist upp og góð sala var í
Spilað og spaugað, Kallað i Kremlar-
múr, Hobbit og Alistair McLean.
- JH
Jóhann varð sjötti
á HM sveina
— fær annað tækifæri til að ná
heimsmeistaratitlinum íhaust
Heimsmeistaramóti sveina, hinu
öðru i röðinni, lauk i Sas van Gent í
Hollandi á laugardag. Heimsmeistari
varð Paul Motwani frá Skotlandi. 1 ell-
eftu og síðustu umferð gerði Motwani
jafntefli við Kaiser frá V-Þýzkalandi
og dugði það honum til sigurs í mót-
inu. Hlaut hann alls 9 vinninga en
næstir komu Englendingurinn Nigel
Short, sem lengi hefur verið álitinn
undrabarn i skák, og Jose Huergo frá
Kúbu með 8 vinninga. Þá komu
Korzubov frá Sovétríkjunum og
Morovic frá Chile með 7 1/2 vinning.
Jóhann Hjartarson, sem hafði það
erfiða hlutverk i þessu móti að verja
heimsmeistaratitil Jóns L. Árnasonar,
tapaði í síðustu umferð fyrir Greenfeld
frá Israel. Hann hlaut því alls 7 vinn-
inga og hafnaði i 6.—8. sæti ásamt
Greenfeld og Kaiser.
HM sveina verður aftur haldið í
september á þessu ári og verður
Jóhann þá aftur gjaldgengur en flestir
af keppinautum hans verða þá komnir
yfir aldursmörkin. -GAJ
JMýbóIa
sem leysir gamlan vanda
Vandinn er þungt loft -eöalykt. Innilokað
loft eða reykmettað. Matarlykt, allskonar
lykt sem angrar.
Hér er góð lausn. Lítil kúla, kölluð Airbal.
Inni í henni er lítil plata.unnin úr ferskum
náttúruefnum, sem hreinsa andrúmsloftið.
Virkni kúlunnar er hægt að stjórna með
þvi að færa til hettu ofan á henni. Þegar
lyktarefnin eru þrotin er ný plata sett
í kúluna.
Einn kostur í viðbót - kúlan er ódýr.
Fæst á bensínstöðvum Shell og í fjölda
verslana.
Olíufélagið Skeljungur hf
Heildsölubirgöir:
Olíufélagið Skeljungur.
Smávörudeild
ohell Sími 81722
EM unglinga ískák:
Margeir tapaði í
síðustu umferð og
haf naði í 4.-5. sæti
Margeir Pétursson tapaði fyrir
Júgóslavanum Nikolic í siðustu um-
ferð Evrópumeistarmóts unglinga í
Gröningen í Hollandi á föstudags-
kvöld. Hafnaði Margeir i 4.-5. sæti
ásamt Nikolic með 8 vinninga.
Evrópumeistari varð Hollendingurinn
Van der Wiel með 11 vinninga.
Hlýtur hann um leið alþjóðlegan
meistaratitil. I öðru sæti varð Rússinn
Dolmatov með 10 1/2 vinning og
þriðji varð Englendingurinn Plaskett
með 9*vinninga. 1 6.—7. sæti urðu
Gazik frá Tékkóslóvakíu og Vaelke-
salmi frá Finnlandi með 7 1/2 vinning.
- GAJ
Vaxtalækkun á afurðalánum
Fiskvinnslumenn eru nokkuö efins
um kosti þess, að vextir af afurðalánum
verða nú mikið lækkaðir en lánin jafn-
framt gengistryggð. Þannig getur tals-
vert hratt gengissig fljótlega eytt hag-
stæðum áhrifum lægri vaxta fyrir fisk-
vinnsluna.
Þeir gera sér vonir um, að gengissigið
yrði þá bætt með breytingum á viðmið-
unarverði, svo að fiskvinnslan nyti kosta
vaxtalækkunarinnar til fulls. Ef það er
gefið, getur vaxtalækkunin á afurðalán-
um, sem nú stendur fyrir dyrum, þýtt
2% bata á afkomu fiskvinnslufyrir-
tækja,
Vextir af afurðalánum eiga að verða
8,5% en hafa verið 18%.
-HH