Dagblaðið - 08.01.1979, Síða 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANUAR 1979.
------------- ---------------------------
Kristur krossfestur á ný?
Kjallarinn
túlkaöur og spurningin er vegna þess
aö málgögn þessa flokks hefi ég keypt í
60 ár. Skoðanir borgaraflokkanna með
öllum þeirra dyn skipta mig litlu máli,
þeim málblendingi er ekki svarandi.
Aftur vildi ég enn visa til Þjóðviljans
fyrst hann hampar þarna mannrétt-
Jndum. Þau mega sizt gleymast en ég
spyr samjhvort við eigum ekki annan
vettvang seiíl>fcaltar þyrfti styrktar
við.
Ég lít svo á að allt sem við vitum um
Krist og kenningu hans bendi til
mannréttinda. Hann umgekkst alla
sem bræður án allrar stéttaskiptingar.
Þó skorti hann ekki einurð þegar
heimskan og ranglætið keyrði úr hófi.
Þá mundaði hann sverð andans og
reiddi til höggs, ekki þó til að drepa
eins og nú tíðkast. Hann líkti andans
mönnum gyðinga við kalkaðar grafir
sem litu fagurlega út að utan, en
innanfullar af dauðra manna beinum.
t musterinu steyptlhann peningahrúg-
unum af stalli og spurði: Hví gerið þiö
heimili föður míns að verzlunarbúð?
rak þá síðan út með svipu. Þarna sýndi
hann okkur að þrátt fyrir allt frelsis-
gum er ekki hægt að liða alla hluti.
Þetta munum við finna þegar við
förum að gera upp sakir okkar á
öðrum hnöttum.
Öll kenning Krists, sem við þekkj-
hér er ekkert yfirnáttúrulegt, en það
finnst okkur alltaf meðan lykilinn
vantar.
Við skiljum ekki enn hvað manns-
hugurinn megnar, nema þá helzt til
ills, og mætti nefna mörg dæmi þar
um. Að þetta komi heim við kenning-
ar dr. Helga Pjeturss kemur skýrt
fram. Skrifað stendur að Kristur gat
engin kraftaverk gert í sínu uppvaxtar-
þorpi vegna þess að þar var engin sam-
staða. Fólkið bara hrópaði: „Er þetta
ekki sonur hans Jóseps trésmiðs og
hennar Mariu?” Það þótti ekki trúlegt
að hann gerði nein stórvirki. Þetta er
hin sigilda saga allra tima um menn
sem eru á undan sinni samtíð.
„Hverjum þykir sinn fugl fagur, þótt
lúsugur sé og magur.” Dr. Helgi Pjet-
urss var líka dæmdur vitskertur.
Margur mundi þó nú vilja fá þann
stimpil gæti hann skrifað jafndjúpa
heimspeki á hans fleyga máli. Mundi
nokkur vilja þýða rit hans á erlenda
tungu, varla peninga von? Betra að
snúa sér að einhverjum Félaga Jesú.
Kenningar og
trúarsetningar
Þegar Jesús sá að hann gat ekki
komið sínum málum fram sem skyldi
sló hann á það ráð sem margir beztu
menn á þessari jörð hafa tekið. Hann
innsiglaði kenningar sínar með blóði,
ekki annarra heldur síns eigins.
Nú verður manni á að spyrja, hver
er tilgangur bókarskytju þessarar? Á
þessu sviði eru ekki lengur til neinar
nýjar/heimildir eða rök. Gætu þeir
klesst á Krist eða kenningar einhverju
siðspillandi með rökum, væri um aðra
hlið að ræða? Nei, hér er aðeins
pungavit peningagræðginnar á hrað-
ferð, ekkert sem höfðar til okkar tima
um meira siðgæði. Hér geta hvorki rit-
leikni né róttækni varið klámhöggiö.
Hvað mundi verða gert við Krist ef
hann birtist nú ljóslifandi á götum
Reykjavíkur og færi að rjála við
skraut kaupsýslunnar og segja dæmi-
sögur?
Er það kannski tilgangur bókarinn-
ar að krossfesta Krist á ný — kenn-
ingu hans? Til þess eru allir hennar
hjálparkjaftar of seint á ferð, til að
hrópa Barrabas lausan. Ekki þar fyrir
að við vitum neitt um sekt hans.
Hvort Kristur hafi sofið hjá konum,
verið eingetinn ásamt því að vera bylt-
ingamaður, geta sviar komið dómum
yfir. Mér kemur slikt ekki við eða fæst-
um sósíalistum sem ég þekki, þeir eru
ekki síður trúaðir en aðrir. Einstaka
rísa eins og hanar á haug og þykjast
vera trúlausir, en flestir þræltrúaðir,
hvar í flokki sem er, enda trúlausir
menn ekki til.
Það er aðeins kenning Krists sem ég
virði og læt aðra um að rífast um trú-
arsetningar. Hún mun líka standa af
sér öll áhlaup allra peningabesefa.
Sumri spá þvi aö þessi heimur riði nú
til falls og kann svo að vera. Mér
finnst mannkynssagan gefa til kynna
að þjóðir og þjóðflokkar, sem virðast
hafa týnt allri mennsku, hverfi
stundum hljóðlaust af sviðinu. Okkur
á að vera gefið frjálsræði, en ekki til
alls. Þá sé tekið í tauminn af þeim al-
heimskrafti sem ræður tilverunni. Mér
skilst að við eigum að vera þátttakend-
ur í sköpuninni sem virðist engan endi
hafa, en ekki eitursnákar.
Við ættum að fara hægt i því að
gleyma öllum skyldum við lífið. Öll
hverfum við héðan kannski á aðra
betri hnetti; en treystum samt ekki
því, að þeir taki víxla upp í skuldir
okkar. Hitt er trúlegra að þeir heimti
fulla greiðslu á einhverju gengi.
Halldór Pjetursson,
rithöfundur.
Eíns
árs
ábyrgð
Pólar h.f.
EINHOLTI 6
Mig undrar stórum öll þau skrif um
bókina Félagi Jesús. Ekki ætla ég að
fara að blanda mér beint í trúardeilur,
þar getur hver étið sinn skammt. En
þegar heimskan þeysir við einteyming
á peningagræðginni detta manni allar
lýs úr höfði, ekki sízt á þessum menn-
ingartímum þegar hver maður, nauð-
ugur viljugur, verður að lesa sig í
spreng, hvað sem eftir situr. Þjóðvilj-
inn segir meðal annars: „Mörgum
finnst þetta Utilsvert”. „Ef þetta hefði
skapast af öðru og stærra tilefni.”
Hann um það hvað er lítilsvert eður ei.
Svo heldur hann áfram: „Foreldrar og
forvitnir unglingar eiga rétt á að eiga
slíkra bóka kost”. „Þetta eru mann-
réttindi.” Aldrei skyldi gengið fram
hjá þeim á prenti. Mig svimar nú ekki
við svona upphlaup sem hafa fylgt
sósíalistum frá þvi aö sú stefna nam
hér land, utan þess að gleypa ekki allt
sem ég hefi ekki skilið og iðrazt þess
litt.
Annars skil ég ekki hvaða erindi
Þjóðviljinn átti inn í þessa grafarþró
og nafnið er sýnilega sett sósíalisma til
háðungar. Út af afstöðu Þjóðviljans
datt mér í hug: „Heggur sá er hlifa
skyldi”. Og nú vildi ég spyrja hann
utan allra trúarbragða hvað það sé í
kenningu Krists, sem stangast á við
sósialisma eins og hann er rétt
Halldór Pjetursson
um, er sú fegursta og göfugasta sem
við eigum völ á.
Sjálfsagt höfum við ekki allt þar frá
fyrstu hendi, sumt bendir til að sé úr
fornum spekiritum fyrir hans daga og
einnig eftir dauða hans. Slíkt kemur
ekki mál við mig, sé það göfugt og
sígilt. öllum vildi hann hjálpa og
lækna ef hægt var. Kraftaverk hafa
gerzt á öllum timum og gerast enn. Þar
mun vera sterkur samhugur fjöldans
sem ræður og sá dagur mun koma að
Síðan skiptir þú á mörkum þínum og verðlaunagripum
úr sýningarskápum í afgreiðslu blaðanna að Þverholti
11. Allar nánari upplýsingar færð þú í afgreiðslunni.
MMBUBIB
Afgreiðslan Þverholti 11 sími 27022
17K1V
Góöur árangur í starfinu viðurkennist þannig að þú
„skorar mark" í nýrri dreifingarkeppni.
Þú skorar t.d. 1 mark seljir þú 20 blöð á einum degi, en
4 mörk seljir þú 50 blöð. 20 mörk skorar þú berist
engin kvörtun úr þínu útburðarhverfi í einn mánuð.
f Dreifingarklúbbi Dagblaðsins
og Vikunnarskorar þú
mörk
og vinnur til verðlauna
Seljir þú Dagblaðið eða Vikuna á höfuðborgarsvæó-
inu, eða berir þú blaðið áskrifendum þar, þá ertu þar
með félagi í Dreifingarklúbbi Dagblaðsins og Vikunn-
ar
Meðal verðlaunagripa má nefna: íþróttaáhöld og
búninga, þ.á.m. skíði og skíðabúnað, hljómtæki, seg-
ulbandstæki, útvarpstæki og hljómplötur.
Að sjálfsögðu færð þú full laun fyrir'vinnu þína eftir
sem áður.