Dagblaðið - 08.01.1979, Side 18
1S
DAGBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979.
Ci
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
NÆR OLLU FRESTAÐ
Aðeins tókst að Ijúka fimm leikjum —
þremur í bikarkeppninni og tveimur I
þriðju deild — í ensku knattspyrnunni á
laugardag. Nær öllum leikjum var frest-
að vegna vonzkuveðurs — frosts og
snjóa á völlum — og laugardagurinn er
einn hinn versti, sem um getur .i sögu
ensku knattspyrnunnar. Englendingar
eru nú farnir að ræða um að framlengja
keppnistímabilið jafnvel fram I júní.
Vetrarrikið nú er eitt hið versta, sem um
getur.
Urslit i leikjunum á laugardag urðu
þessi:
Bikarkeppnin
Leicester—Norwich 3—0
Sheff. Wed.—Arsenal 1 — 1
Shrewsbury—Cambridge 3—1
3. deild
Walsall—HullCity 1—2
Watford—Lincoln 2—0
Leik Stoke og Oldham i bikarkeppn-
inni var hætt í hálfleik. Þá var staðan
2—0 fyrir Stoke.
2. deildarlið Leicester átti ekki í erfið-
leikum með Norwich úr 1. deild. Völlur-
inn var allgóður — hafði veri varinn
með plastik-ábreiðum. Indverjinn í
marki Norwich, Kevin Keelan, sem varð
38 ára á laugardag, hafði litlu að fagna.
Á 15. min. skoraði hinn 19 ára Larry
May hjá honum og Keith Weller, sem
átti stórleik með Leicester, skoraði ann-
að mark Leicester fyrir hlé. í síðari hálf-
leik splundraði Weller, þessi fyrrum
enski landsliðsmaður, vörn Norwich og
hinn 16 ára Martin Henderson skoraði
þriðja mark Leicester. Það var á 76. min.
Arsenal tókst óvænt ekki að ná nema
jafntefli gegn 3. deildarliði Sheffield
Wednesday — en Arsenal lék til úrslita i
bikarkeppninni í fyrravor. Tapaði þá
fyrir Ipswich. Alan Sunderland náði for-
ustu fyrir Arsenal á 10. min. og Lund-
únaliðið hafði yfirburði i fyrri hálfleikn-
um. Turner, markvörður Sheff. Wed.
varði þá tvivegis vel frá Frank Staple-
ton. En á fyrstu mín. síðari hálfleiks
jafnaði Jeff Johnson fyrir Sheffield-liðið
og það hélt vel sinum hlut í hálfleiknum.
Sem kunnugt er stjórnar Jackie Charl-
ton hjá Sheff. Wed.
Shrewsbury náði forustu gegn
Cambridge eftir aðeins fjörutíu sekúnd-
ur — Paul McQuire skoraði — og komst
i 3—0 áður en Cambridge skoraði sitt
eina mark.
í 3. deild vann Watford Lincoln 2—0.
Svertinginn Luther Blissett skoraði bæði
mörk Watford, og liðið hefur nú fimm
stiga forustu á toppi 3. deildar.
Heimsmet hjá
Johnny Walker
— í1500 m hlaupi innanhúss
„Ég fór ekki i hlaupið I kvöld með það
i huga að setja nýtt heimsmet. Ég ætlaði
mér að sigra og ná góðu hlaupi. Heims-
metið féll vegna þess hve hraðinn allan
timann var góður,” sagði Johnny Walk-
er, NVja-Sjálandi, eftir að hann hafði sett
nýtt heimsmet innanhúss i 1500 metra
hlaupi á Long Beach i Kaliforniu á laug-
ardag. Timi hans var frábær 3:37.4 mín.
en eldra heimsmetið átti Harald Nor-
poth, Vestur-Þýzkalandi, 3:37.8 min.
sett 1971.
Johnny Walker, ólympiumeistarinn í
Það er margt
sem þér llkar vel
íþeim
nýju amerísku
Aflmikil 5.7 lítra 8 cyl.vél
Sjálfskipting
Vokva- og veltistýri
Styrkt gormafjöðrun að aftan og framan
Sportfelgur
Aflhemlctr
Urval lita, innanogutan
Og fleira og fleira
Chevrolet Blazer kr. 7.900.000.
Þetta er það sem þeir nýju
frá General Motors snúast adlir um
Til afgreiðslu strax!
by General Motors
Véladeild
Sambandsins
Ármula 3 Reyk/avik Simi 38900
1500 m, keppti i fyrsta sinn í næstum
ár. Hefur átt við meiðsli að stríða og var
í fyrra tvivegis skorinn vegna meiðsla i
legg. Hann hljóp mjög vel á laugardag-
inn—hélt sig við þá fremstu þar til 30
metra frá marki að hann geystist
framúr. Sigraði .pandaríkjamanninn
Paul Cummings, sem einnig náði betri
tíma en eldra heimsmetið. Hljóp á 3:37.6
min. Eftir hlaupið sagði Walker frétta-
mönnum að hann hefði ekki fundið til í
fætinum — en fyrir nokkrum dögum
hafði hann sagt að sig langaði til að fara
heim með nýtt heimsmet. „Ef ég hef
sagt eitthvað síðustu fimm árin þá hef ég
venjulega staðið við það,” sagði hlaupar-
inn heimsfrægi.
Afrek hans skyggði nær alveg á nýtt
heimsmet, sem Herman Frazier, Banda-
rikjunum, setti í 500 m. hlaupi innan-
húss á mótinu. Frazier hljóp á 1:01.2
mín. en eldra metið á vegalengdinni átti
hann sjálfur 1:01.3 mín. sett fyrir ári.
1 60 m hlaupi sigraði Harway Glance
og vann heimsmethafann Houston
McTear auðveldlega. Timi hans var 6.62
sek. og McTear varð aðeins fimmti.
Steve Riddick annar og Steve Williams
þriðji. Nick Rose, Englandi, sigraði i
3000 m á 7:58.8 mín. og Mark Belgar,
USA, sigraði í 800 m á 1:48.1 min. Dave
Laut, USA, varpaði kúlu 19,63 m.
ísland
á Baltic-Cup
— mætirþar V-Þjóð-
verjum, Dönum og
Póiverjum
tslenzka landsliðið hélt utan I tnorgun
til Danmerkur til þátttöku 1 Baltic-Cup,
„litlu heimsmeistarakeppninni” eins og
sú keppni hefur oft verið kölluð, vegna
þess hve sterkar þjóðir taka þátt i
mótinu.
ísland mætir Dönum, á þriðjudags-
morgun, en þeir hrepptu fjórða sætið á
HM i vor. Síðan mæta íslendingar
sjálfum heimsmeisturum V-Þjóðverja og
i siðasta ieik tslands i riðlakeppninni
Pólverjum. Erfitt prógramm framund-
an — þrjár af sterkustu þjóðum heims
og nánast ómanneskjulegt að fara fram
á stig til Íslands, hvað þá sigur. Ísland
leikur i A-riðli en i B-riðli leika B-iið
Dana, Sovétmenn, silfurliðið frá HM,
A-Þjóðverjar — bronsliðið frá HM og
Svíar.
Tólf leikmenn héldu utan til iands-
leiksins i morgun. Þeir eru:
Markverðir:
Ólafur Benediktsson, Val
Jens Einarsson, ÍR.
Aðrir leikmenn:
Árni Indriðason, Viking
Páll Björgvinsson, Víking
Viggó Sigurðsson, Víking
Ólafur Jónsson, Viking
Ólafur Einarsson, Víking
Ólafur H. Jónsson, Dankersen
SteindórGunnarsson, Val
Bjarni Guðmundsson, Val
Þorbjörn Guðmundsson, Val
Jón Pétur Jónsson, Val.
Ástæða þess að aðeins 12 fara út er að
þrátt fyrir að flugfar hafi verið pantað
fyrir rúmum mánuði komust ekki fleiri
vegna þess að allt var upppantað. Þeir
Þorbjörn Jensson, Stefán Gunnarsson
og Brynjar Kvaran, allir Val, halda utan
á morgun ásamt Axel Axelssyni en hann
á við meiðsli að striða.
Staðan í úr-
valsdeildinni
KR
UMFN
Valur
ÍR
is
Þór
II
11
9
10
9
10
1008—868
1083-1016
946—780
866—850
748—826
789-932
16
14
12
10
4
4