Dagblaðið - 08.01.1979, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANUAR 1979.
Breytingar á greiðslum vegna landbúnaðarins:
Möguleg 90% útborgun til bænda
af haustgrundvallarverði — hagsbætur fyrir bændur og söluf élög án mikillar
útgjaldaaukningar ríkissjóðs
í samstarfsyfirlýsingu rikisstjórnar-
innar er tekið fram að rikisstjórnin muni
beita sér fyrii aðgerðum til að „bændur
fái laun sín greidd og óhjákvæmilegan
rekstrarkostnað svipað og aðrir aðilar fá
nú”.
Nefnd undir forsæti Vilhjálms
Hjálmarssonar alþingismanns var
skipuð til að gera tillögur um afurða- og
rekstrarlán landbúnaðarins. Nefndin
skilaði áliti síðla í nóvember og á grund-
velli þeirra hugmynda sem þar koma
fram lagði landbúnaðarráðherra fram í
ríkisstjórninni eftirfarandi tillögur um
breytt fyrirkomulag á greiðslum vegna
landbúnaðarins:
1. Fullgildir verðábyrgðarreikningar til
rikissjóðs vegna útflutnings á land-
búnaðarafurðum verði greiddir mán-
aðarlega óháð verðlagsári landbún-
aðarafurða, þótt heildarupphæð sé
gerð upp i lok hvers verðlagsárs. Sam-
kvæmt þvi verði á fjárlögum gert ráð
fyrir upphæð til greiðslu útflutnings-
bóta vegna útflutnings á síðustu 8
mánuðum fyrra verðlagsárs og
fjórum fyrstu mánuðum nýs verðlags-
árs.
2. Ríkissjóður greiði af niðurgreiðslu-
og uppbótafé vaxta- og geymslugiald
á kindakjöti i lok hvers mánaðar sam-
kvæmt þeim birgðum sem staðfest er
að hafi verið í upphafi mánaðarins
samkvæmt birgðaskýrslum slátur-
leyfishafa.
3. Ríkisstjórnin beinir þeim tilmælum
til Seðlabanka Íslands að hraðað verði
afgreiðslu á uppgjörslánum til slátur-
leyfishafa, þannig að unnt reynist að
hækka útborgunarhlutfall til bænda i
90% af haustgrundvallarverði.
Ríkisstjórnin hefur falið landbúnaðar-
ráðherra að vinna að framkvæmd þess-
ara tillagna í samvinnu við fjármálaráð-
herra og Seðlabanka íslands.
Dráttur á greiðslu útflutningsbóta-
reikninga hefur oft tafið fyrir því að
sölufélögin gætu staðið bændum skil á
andvirði innlagðra afurða. En með nýja
fyrirkomulaginu er gert ráð fyrir að
ríkissjóður greiði að fullu útflutnings-
bætur mánaðarlega, óháð verðlagsári,
en heildarupphæð verði gerð upp í lok
hvers verðlagsárs. Þessi ráðstöfun hefur
ekki í för með sér aukningu útflutnings-
bóta.
Breytingar á greiðslum vegna land-
búnaðarins hafa ekki í för með sér um-
Rafvirkjar-Atvinna
óskum eftir að ráða nú þegar eða eftir nánara
samkomulagi tvo rafvirkja til starfa i verk-
smiðju vorri.
Viðkomandi þurfa að geta unnið sjálfstætt og
hafa áhuga á framleiðslu tengdri faginu. Góð
vinnuaðstaða, mötuneyti á staðnum. Uppl.
hjá tæknideild (ekki í síma) Hf. Raftækjaverk-
smiðjan, Hafnarfirði.
Hf. Raftækjaverksmiðjan,
Hafnarfirði.
11
MiSi í happdrætti SÍBS
gefur góða von um vinning.
Áhersla er lögð á marga vinninga
sem koma sér vel.
Þó eru hæstu vinningar
2 milljónir
og dregið er um milljón mánaðarlega.
Hver seldur miði gefur
endurhæfingarstarfinu sem unnið er
á vegum SÍBS aukinn styrk.
Sá sem á miða í happdrætti SÍBS
á sjálfur vinningsvon og gefur einnig
öðrum vonir um bjartari framtíð.
Það kostar aðeins 800 kr. á mánuði
að gera eitthvað í því að auka slíkar
vonir.
Vinningsvon og vissa um
að verða að liði.
Happdrætti SÍBS
talsveröan kostnaðarauka fyrir rikissjóð.
Þær eru hins vegar til mikilla hagsbóta
fyrir bændur og sölufélög þeirra og ættu
að gera mögulega um 90% útborgun af
haustgrundvallarverði afurða til bænda.
-JH
Sjálfsbjörg
með ferða-
þjónustu
fyrir fatlaða
Á morgun byrjar á vegum Sjálfsbjarg-
ar og Reykjavíkurborgar ferðaþjónusta
fyrir fatlaðfólk í hjólastólum.
Fyrst um sinn verður notuð bifreið
sú, sem Kiwanisklúbbar í Reykjavik og
nágrenni gáfu Sjálfsbjörg, en Reykja-
víkurborg hefur ákveðið að kaupa tvær
sérhannaðar bifreiðir til þessara nota og
eru þær væntanlegar næsta sumar.
Bifreiðin verður starfrækt alla virka
daga kl. 8—17 og reynt verður eftir
föngum að sinna beiðnum um ferðir
milli kl. 17 og 24 á fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöldum og um
helgar. Greiðsla verður sú sama og far-
gjald með SVR. Beiénir um akstur verða
að berast til skrifstofu Sjálfsbjargar
landssambands fatlaðra s. 29133 fyrir kl.
16 daginn áður en viðkomandi þarf á
akstri að halda. Akstur verður eingöngu
um Stór-Reykjavíkursvæðið nema í
undantekningartilfellum.
- GAJ
Vaxandi skuld
ríkissjóðs við
Seðlabankann
Greiðsluhalli rikissjóðs á síðasta ári
var óhagstæður um tæpa fjóra milljarða
og að auki jukust skuldir ríkissjóðs við
Seðlabankann um 7.5 milljarða „vegna
gengisbreytinga lána i erlendri mynt",
að því er segir í fréttatilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu. „Skuld ríkissjóðs
við bankann i árslok 1978 nam þvi 26.4
milljörðum króna. Greiðslur afborgana
af skuldabréfum við Seðlabankann
tiámu 5.5 milljörðum króna,” segir þar
einnig.
Ráðuneytið vekur athygli á þvi, að
fjármálaráðherra hafi í september gert
grein fyrir því, „að verulegs greiðslu-
halla væri að vænta hjá ríkissjóði á
árinu ... Hins vegar væri að þvi stefnt
að jafnvægi yrði i fjármálum ríkissjóðs á
timabilinu frá september 1978 til ársloka
1979.”
ÓV