Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 30

Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 30
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979. 30 pÍÉÍhi'Öí tmw (HHB TREE TUE CHRISTMAS ÁSWILLIAM holden BOURVIL _VIMA LISI Hugljúf og skemmtileg ný frönsk-banda- rísk fjölskyldumynd. Leikstjóri: Terence Young. Islenzkur texti. Sýudkl. 3,10,5.10, 7.10.9.l0og 11.10. Baxter solur Skemmtileg ný erisk fjölskyldumynd í iiltim. um lítinn dreng með stór vanda- mál. Britt Ekland Jean Pierre Cassel Leikstjóri Lionel Jeffrics Sýnd kl. 3.15,5.15.7.15.9.15 og 11.15. Jólamynd 1978 ■ solur JÓLAMYND 1978 Dauðinn á Níl AGATHA CtiRISTItS ETWI®Ba vH£ Frábaer ný ensk stórmynd, byggð á sögu eftir Agatha Christie. Sýnd við metað- sókn víða um heim núna. Leikstjóri: John Guiilermin íslenzkur texti. Bönnuð börnum. Sýndkl. 3,6og9. Hækkað verð. salur Convoy Lukkubíllinn í Monte Carlo (Herbie Goes to Monte Carlo) Skemmtilegasta og nýjasta gamanmynd Disney-félagsins um brellubílinn Herbie. Aðalhlutverk: Dean Jones og Don Knotts. Islenzkur texti Sýndkl.5,7 og9. MJGGHSMIIH- UCXWUHXN lunuoBin DUfflONHHHIU Spennandi og skemmtileg ný ensk bandarísk Panavision-litmynd, með Kris Kristofferson, Ali MacGraw — Leik- stjóri: Sam Peckinpah. Íslenzkurtexti. Sýndkl. 3.05,5.40,8.30 og 10.50. -salur C Tvær af hinum frábæru stuttu myndum meistara Chaplins sýndar saman: AXLIÐ BYSSURNAR og PÍLAGRÍMURINN Höfundur, leikstjóri og aðalleikari: Charlie Chaplin Góða skemmtun. Sýndkl. 5,7,9og 11. Kvikmyvtdir AUSTURBÆJARBÍÓ: I kúlnaregni (The Gauntlet). aöalhlutverk; Clint Eastwood kl. 5, 7.10 og 9.15 Ðönnuð innan 16 ára. íslenzkur texti. Hækkað verð. GAMLA Bló: Lukkubíllinn I Monte Carlo kl. 3,5,7 og9. HAFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu. HÁSKÓLABlÓ: Himnariki má biða (Heaven Can Wait), aöalhlutverk: Warren Beatty, James Mason og Julie Christie kl. 5,7 og 9. Hækkað verð. Islenzkur texti. LAUGARÁSBÍÓ: Likklæði Krists kl. 3. ókindin II (Jaws II) kl. 5, 7.30 og 10. Bönnuð innan 16 ára. Islenzkur texti. Hækkað verð. BÆJARBÍÓ: Verstu ^ illinga. jestursins kl. 5. Billy Joe kl. 9. NÝJA BÍÓ: Silent Movie kl. 3,5,7, og 9. REGNBOGINN: Sjá auglýsingu STJÖRNUBÍÓ: Morö um miðnætti (Murder by Death), leikstjóri: Robert Moore, aðalhlutverk: Peter Falke, Truman Capote og Peter Sellers. kl. 5. 7, 9 og 11. islenzkur texti. Hækkað verð. TÓNABÍÓ: Bleiki pardusinn leggur til atlögu iThe Pink Panther Strikes Again), kl. 5,7.10og9.15. ALÞÝÐU- LEIKHCSIÐ Við borgum ekki! Við borgum ekki! Eftir Dario Fo í Lindarbæ. 2. sýning mánudag kl. 20.30. 3. sýning fimmtudag kl. 20.30. Miðasala í Lindarbæ kl. 17.00- 19.00 alla daga og kl. 17.00- 20.30 sýningardaga. GAMLA BIO SWnl 1J47S Útvarp Sjónvarp D LEIKLISTARÞÁTTUR - útvarp í kvöld kl. 22.50 íslenzkt leikhús skoð- að ferskum augum Sigrún Valbergsdóttir tekur nú við hálfsmánaðarlegum þætti útvarpsins um leikhús. Sigrún er kennari við Leiklistar- skóla ríkisins og aðstoðarmaður leik- stjórans Stefáns Baldurssonar við næstu sýningu Þjóðleikhússins, Stundarhlé eftir Guðmund Steinsson. Hún er nýkomin frá Vestur-Þýzka- landi eftir átta ára dvöl. „Fyrst vann ég fyrir fjölskyldunni, meðan maðurinn minn, Gisli Már Gíslason var að ljúka námi i rafmagnsverkfræði. Siðan fór ég i leikhús-, kvikmynda- og sjónvarpsfræði í háskólanum í Köln og vann einnig nokkuö í þessum greinum. Meðal annars aðstoðaði ég Rolf Hádrich við gerð sjónvarpsþátta um íslenzkar bókmennt- ir.” Af því hún er svo nýlega komin heim eru augu hennar galopin fyrir sérstöðu islenzks leikhúss, og um það efni langar hana til að fjalla í fyrstu þáttunum. Þátt- urinn í kvöld verður eins konar yfirlitser- indi, en seinna hyggst hún taka fyrir ein- staka liði, svo sem islenzka leikritun i dag, verkefnaval leikhúsanna, þýðingu þess að setja upp sígild verk o.s.frv. Verða þeir þættir kryddaðir með við- tölum við ýmsa leikhúsmenn. Þegar Bjarnleifur kom niður 1 leiklistarskóla til aö taka mynd af Sigrúnu Val- bergsdóttur urðu með þeim fagnaðarfundir. Þau höfðu hitzt áður 1 Liege i Belgiu. Sigrún var að villast þar fyrir þremur árum og sneri sér að þeim manni á göt- unni, sem henni fannst franskastur i útiiti og skellti á hann sinni flnustu Parísar- frönsku. En hvaö sem hún vandaði sig gerði maðurinn ekkert nema hrista haus- inn, svo hún gafst upp við að gera sig skiljanlega. Rétt á eftir mætti hún honum öðru sinni, nú i fylgd með tveimur siðhærðum vik- ingum. Þegar þeir gengu fram hjá heyröi hún annan þeirra segja: „Jæja, strákar, hvernig Uzt ykkur á kvöldið?” Og þá kom i Ijðs, að „Frakkinn” var enginn annar en hann Bjarnleifur okkar sem þarna var sem oftar i fyigd með fslenzku landsliði. YFIRHEYRSLAN - sjónvarp i kvöld kl. 21.00 í kvðld ANDRÚMSLOFTIÐ í LÖGREGLURÍKI Myndin, sem sjónvarpið hefur á dag- skrá í kvöld, fjallar um lögreglufulltrúa og óbreyttan borgara í lögregluríki. Þetta er saga, sem viða gæti gerzt, en er staðsett i Argentínu. Lögreglufulltrúi sýnir konu, sem hann er að yfirheyra, megna fyrirlitningu og reynir að brjóta hana niður andlega. Og hann hefur miklu rpeiri áhuga fyrir beinni útsendingu frá heimsmeistara- keppninni í fótbolta, sem stendur yfir á sama tima, heldur en vandræðum þess- arar móður, sem leitar dóttur sinnar. Einhvers staðar í lögreglufulltrúanum eru leifar af manneskju — en myndin lýsir, hvernig andrúmsloftið i lögreglu- ríki þjakar fólkið, sem í því þýr, og þreyt- ir opinberum starfsmönnum í ómenni. Leikur þeirra Lars Ambler sem lög- reglufulltrúinn og Ingu Landgré sem móðirin er sérstaklega áhrifamikill. Inga Landgré hóf leikferil sinn sextán ára gömul í léttum gamanmyndum, m.a. með Nils Poppe, en hefur siðan leikið í alls konar myndum, þ.á m. hjá Ingmar Bergman i Sjöunda innsiglinu. Lars Ambler er fastráðinn hjá Dramaten, en er einnig vinsæll sjónvarpsleikari i Svi- þjóð. Höfundur Yfirheyrslunnar, Jacobo Langsner, hefur siðustu misseri búið á Spáni. Þótt hann telji sig ekki sérlega pólitískan rithöfund varð honum ekki vært í heimalandi sínu, Argentinu, vegna skoðana sinna og verk hans eru bönnuð þar. 1 marz síðastliðnum var hann á ferð i Stokkhólmi og fékk þá til- mæli frá sjónvarpinu þar um að semja þetta sjónvarpsleikrit. Var það siðan frumsýnt í Svíþjóð 7. júní, á sama tíma og heimsmeistaramótið í fótbolta var haldið í Argentinu. Fléttast það inn í myndina eins og áður er sagt. IHH Á TÍUNDA TÍMANUM — útvarp íkvöld kl. 21.10 NÝR GALDRAMEISTARI KEMUR í HEIMSÓKN „Við ætlum að taka fyrir hvers konar hjátrú, galriratrú, draugatrú, trú á stjörnuspádóma og aðra hjátrú,” sagði Hjálmar Árnason um þáttinn á Tíunda tímanum i kvöld. „Við ræðum við fólk sem starfar á þessu sviði eða þekkir til þess á annan hátt. Einnig ræðum við við fólk á göt- unni. Að öllum líkindum kemur einnig í heimsókn nýr galdrameistari sem aldrei hefur komið fyrr fram opinberlega. Þessi galdrameistari getur galdrað svo að segja alla hluti. En hann er mjög hlédrægur svo við gefum ekki upp hvað hann heitir. Þá verða fastir liðir eins og venjulega. Topp fimm og leynigestir. Og er ekki bezt að hafa föstu klisjuna með, ef tími vinnst til verður einnig lesið úr bréfum frá hlustendum,” sagði Hjálmar. DS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.