Dagblaðið - 08.01.1979, Qupperneq 32
frfálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 8. JAN. 1979.
Loðnuverðið:
Verður um
16.40 íbyrjun
vertíðar
— fulltrúar loðnu-
bræðslnanna töldu
verðiðof hátt
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins ákvað loðnuverð sem gilda á í
vetur á fundi sínum á laugardaginn.
Er grunnverðið 12 kr. miðað við 8%
fitu og 16% fitufrítt þurrefni. Er þá
taliö að verðið verði 16,40 krónur í
byrjun vertiðar miðað við að loðnan
verði í svipuðu ástandi og í fyrra um
sama leyti.
Verðið var ákveðið með atkvæðum
oddamanns nefndarinnar og fulltrúa
seljenda — sjómanna og útgerðar-
manna. Fulltrúar kaupenda — loðnu-
bræðslnanna — töldu verðið of hátt.
ÓG.
Fiskveiðisamningar:
Færeyingar
veðurtepptir
Færeyska nefndin, sem væntanleg
var til Reykjavíkur í gær til viðræðna
um endurnýjun á samningi milli land-
anna um gagnkvæma fiskveiðiheim-
ildir komst ekki til landsins vegna veð-
urs. Vonast er eftir henni í dag og
munu viðræður þá hefjast samstundis.
ÓG.
Fiskveiði-
stefna
næsta árs
mótuð innan
skamms
— ísamráði við
fiskifræðinga og
hagsmunaaðila
Kjartan Jóhannsson, sjávarútvegs-
ráðherra, hyggst nú í mánuðinum
hefja viðræður við fiskifræðinga og
hagsmunaaðila aðra í sjávarútvegi i
þeim tilgangi að freista þess að móta
fiskveiðistefnu hér við land á þessu ári
á mun víðari grundvelli en áður hefur
verið gert.
Unnið er að gagnasöfnun fyrir þess-
ar viðræður og má búast við að út úr
viðræðunum komi nýjar hugmyndir
svo sem meiri samvinna um landanir,
þ.e. að skip frá einu byggðarlagi landi
t.d. i öðru, sé hráefnisskortur þar,
o.s.frv. Einnig flutningur ýmissa teg-
unda hráefnis til þeirra staða þar sem
hagstæðast er að vinna úr þvi.
-G.S.
Engin von á hláku
— en snjókoman minnkar sunnanlands
Það bættist talsvert við snjóinn í
Reykjavík og nágrenni í nótt, en sam-
kvæmt upplýsingum Markúsar Á. Ein-
arssonar veðurfræðings í morgun virðist
endi bundinn á snjókomuna í bili sunn-
anlands. Áttin snýst í norð-austur og
léttir til með frosti. Það er því ekki von á
hláku, a.m.k. ekki tvo næstu sólar-
hringa.
Á Norður- og Austurlandi er nú góð-
viðri með töluverðu frosti. Er áttin
breytist má búast við éljum þar. Snjó-
koma var í morgun á Suðurlandi en þar
léttir til, en éljagangur var á Vest-
fjörðum.
-JH.
Ákveðið hefur verið, að Jónína
Guðnadóttir leirkerasmiður hanni
verðlaunagripi þá sem veittir verða
sem Menningarverðlaun Dagblaðsins í
febrúar.
Jónina er talin með okkar hæfustu
listamönnum á þessu sviði og nam
m.a. i Svíþjóð, þar sem hún iðkaði
einnig glerblástur og glermunagerð
fyrst islenzkra listamanna. Hún hefur
síðan haldið einkasýningar og tekið
þátt i samsýningum hönnuða og ann-
ars listafólks. Nú á næstunni tekur
hún þátt í samsýningu leirkerasmiða í
Gallerí FÍM við Laugarnesveg.
Verðlaunagripir hennar fyrir DB
verða líkast til skreyttir leirskildir,
hver með sínu lagi, og inn í þá verða
koparskildir felldir og munu þeir bera
nöfn verðlaunahafanna. Mun DB
birta af þeim myndir um leið og lista-
konan hefur lokið við þá.
Að Stjörnumessu DB og Vikunnar
lokinni munu svo atkvæðaseðlar
vegna þessara menningarverðlauna
birtir, en i millitíðinni munu dóm-
nefndir taka til starfa. Verða þær
kynntar næstu daga. -A.I.
Farþegar f innanlandsflugi voru fluttir með rútum frá Reykjavfk til Keflavikur, eins og um millilandaflug væri að ræða.
DB-mynd Hörður.
Aðeins rætist úr fluginu
Innanlandsflug frá Keflavík
Heldur rættist úr erfiðleikum innan-
landsflugsins í gær, samkvæmt upplýs-
ingum Sveins Sæmundssonar blaðafull-
trúa Flugleiða. Bremsuskilyrði á Reykja-
víkurflugvelli voru ekki nógu góð í gær
fyrir Fokker vélar Flugleiða og því voru
3 vélar sendar til Keflavikurflugvallar og
innanlandsflugi haldið uppi þaðan. Rúta
flutti farþegana síðan til Keflavíkur og
til baka.
Tvær vélar urðu eftir i Reykjavík og
gátu þær síðan flogið i gærkvöldi, er
frostið jókst og bremsuskilyrði vallarins
bötnuðu. Flognar voru átta ferðir til
Akureyrar, fjórar frá Keflavík og fjórar
með Twin Otter vélum Flugfélags Norð-
urlands, en þær vélar gátu notað
Reykjavíkurflugvöll. Þá voru einnig
farnar ferðir til Egilsstaða, Sauðárkróks
og Hornafjarðar frá Keflavik.
í dag eru þrjár vélar í Keflavík og
verður flogið til Vestmannaeyja, Húsa-
vikur og Akureyrar. Búið er að hreinsa
Keflavíkurflugvöll og verið er að hreinsa
Reykjavíkurflugvöll. Helztu vandræðin
nú eru, að ekki hefur verið hægt að
fljúga til Isafjarðar, þar sem völlurinn
þar hefur verið lokaður. Þangað verða
sendar 4—5 vélar, strax og færi gefst.
Vængir gátu haldið uppi áætlun, þar
sem vélar þeirra gátu notað Reykjavík-
urflugvöll. -JH.
Jónina Guðnadóttir, leirkerasmiður.
Jónína
hannar
menningar-
verðlaun
DB
LagmetitilSovét:
Tugmilljóna kröfur
vegna skemmdra
sendinga
— viðræður hefjast í
Moskvu í þessari viku
„Ég geri ráð fyrir því, að við förum
til samningagerðar við Sovétmenn i
næstu viku,” sagði Gylfi Þór Magnús-
son, framkvæmdastjóri Sölustofnunar
lagmetisins, í viðtali við DB.
Samningaviðræðurnar fara fram i
Moskvu Þangað fara með Gylfa þeir
Egill Thorarensen, framkvstj. Siglósild
hf. og Mikael Jónsson, framkvstj. K.
Jónsson & Co. h/f, Akureyri.
Heildarútflutningsverðmæti lag-
metis á síðasta ári var 1,8 milljarðar
króna. Til Sovétríkjanna var selt fyrir
1,2 milljarða króna eða 68% af heild-
arútflutningi Sölustofnunar lagmetis-
Jafnframt því, sem samningamenn
ræða væntanleg viðskipti, nota þeir
tækifærið til þess að setja niður á-
greining, sem upp kann að hafa komið
á siðasta samningatimabili hverju
sinni.
DB hefur heimildir fyrir því, að
tvær meiri háttar kvartanir hafi komið
frá sovézkum viöskiptavinum okkar á
síðasta ári vegna gaffalbita, sem ekki
stóðust gæðakröfur samkvæmt samn-
ingum að mati kaupenda.
Samkvæmt heimildum DB var
krafizt bóta fyrir um 3.400 kassa úr
sendingu, sem var alls 11.200 kassar.
Sömu heimildir segja, að samkomulag
hafi orðið um að bæta kaupendum
a.m.k. verulegan hluta jiessa magns.
Er hér um að ræða verulegar fjár-
hæðir eða ekki undir 40 milljónum
króna.
Þá er talið að gæðum hafi þótt á-
batavant i nærri helmingi annarrar
sendingar, sem var alls rúmlega 21
þúsund kassar af gaffalbitum. Um það
hefur ekki verið samið enda ekki við-
urkennt að krafa kaupenda sé rétt-
mæt.
Rétt er að taka það fram, að fram-.
kvæmdastjóri Sölustofnunarinnar
vildi ekki kannast við ofangreindar
kvartanir eða bætur vegna þeirra. -BS.
RAFORKUKERFIÐ
AÐ KOMAST í
SAMT LAG AFTUR
— rafmagn komstá að mestu íDölunum ígær
Segja má að raforkukerfi landsins sé uppsveitum Borgarfjarðar og berja is-
að mestu komið í samt lag eftir ingu af linum og staurum, en rafmagn
áhlaupið fyrir helgina. Að sögn Bald- komst á þar á laugardag.
urs H'elgasonar hjá Rafmagnsveitum , Truflanir á veitukerfinu í áhlaupinu
ríkisins var rafmagni hleypt á Dalina í fyrir helgina urðu einkum á Vestur-
gær, en ekki hafði tekizt að gera við landi og Suðurlandi en fyrir norðan og
fyrr en þá. í morgun kl. 5 var lokið við austan gætti þeirra lítt eða ekki vegna
siðustu útlínur heim að bæjum. þess að hitastigið var hagstæðara.
f gær var verið að yfirfara linur i -JR.
/y Kaupio
,5 TÖLVUR
I* OG T.ÖLVl
BANKASTRÆTI8