Dagblaðið - 27.02.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBROAR 1979.
12
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Spánverjar sterk-
ari þegar á réyndi
— sagði Jóhann Ingi
Hallur Símonarson i Barcelona:
„Upphaf siðari hálfleiks varð okkur að falli. Það
er ekki bara óheppni þegar leikmenn skora ekki í
dauðafærum. Það fór ekki á milli mála að Spánverj-
ar voru sterkari þegar á reyndi,” sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson þjálfari islenzka liðsips eftir ósigurinn.
„Ólafur Benediktsson varði vel í íslenzka markinu
en sá spánski var frábær. Sóknarnýting okkar var
afleit og þegar svo er þá er beinlínis ekki hægt að
sigra. Jón Pétur var meiddur og gat ekki leikið gegn
Spánverjum en vonandi nær hann sér fyrir leikinn
gegn Hollandi. Þá meiddist Bjami Guðmundsson,
varð að sauma nokkur spor, en hann mun væntan-
lega ná sér fyrir viðureignina við Holland," sagði
Jóhann Ingi að lokum.
Upplögð tækifæri
fóru forgörðum
— sagði Júlíus Hafstein
Hallur Símonarson í Barcelona:
„Ég er ekki ánægður með tapið, sem stafaði af
því að upplögð tækifæri voru ekki nýtt og þegar svo
er þá auðvitað er ekki hægt að sigra;” sagði Júlíus
Hafstcin, formaður HSÍ eftir ósigur íslendinga á
Spáni í gærkvöld.
„Upphaf síðari hálfleiks var ákaflega slæmur
kafli, 8—2, og það er alvcg Ijóst að betra liðið sigr-
aði á þessum degi. En við eigum að geta gert miklu
betur. Sóknarleikur íslenzka liðsins var sérstaklega
slakur, fannst mér, og þegar svo er þá er ekki hægt
að sigra jafnsterkt lið og Spán.
Hallur Símonarson
á Spáni.
Erf itt að sigra
Spánverja á Spáni
— sagði Árni Indriðason
Hullur Símonarson í Barcelona:
„Þetta var erfiður leikur og okkur tókst ekki það
sem við ætluðum okkur — að sigra. En það ber að
hafa í huga að mjög erfitt er að sigra Spánverja hér á
Spáni,” sagði Arni Indriðason, fyrirliði íslenzka
liðsinseftir ósigurinn í Barcelona, og hann bætti við,
„ég held við þurfum góðan leik til að sigra Hol-
land”.
Hissa á hve íslenzka
liðið er misgott
— sagði Ivan Kasta,
fararstjóri Tékka
Hallur Símonarson í Barcelona:
„Það er engin spurning, ísland á að sigra Holland
á sæmilegum degi en ég er ákaflega hissa hvað ís-
lenzka liðið er misgott,” sagði Ivan Kasta, farar-
stjóri tékkneska liðsins eftir viðureign íslands og
Tékkóslóvakíu.
„ísland lék síðari hálfleik gegn Spánverjum eins
og gegn ísraelsmönnum í Sevilla. Þetta er ekkert í
líkingu við leik íslendinga og Tékka. Þá var íslenzka
liðið stórkostlegt. Ég tel að tékkneska liðið eigi að
sigra Spánverja,” sagði Ivan Kasta að lokum.
Þurfum toppleik
til að sigra ísland
— sagði Bo Ender,
fararstjóri Hollands
Hallur Símonarson í Barcelona:
„íslenzku leikmennirnir eru miklu sterkari en
mínir menn,” sagði Bo Ender, fararstjóri hollenzka
liðsins eftir ósigur íslands i Barcelona í gærkvöld.
„Við þurfum algjöran toppleik til að eiga mögu-
leika á að sigra ísland,” sagði Bo Ender ennfremur.
Hollenzka liðið er mun veikara en önnur lið er
komust í milliriðla. Hollenzka liðið átti aldrei mögu-
leika gegn Tékkum, sem komust i 10—4 og sigruðu
23—14. Tékkar gátu gert nánast allt sem þeir vildu
— og sigruðu 23—14 en hollenzka liðið er engan
veginn i sama klassa og Tékkar, Spánverjar og ís-
lendingar.
Frá viðureign Spánverja og íslendinga i Austurríki fyrir tveimur árum. Þá sigruðu íslendingar örugglega. En Spánverjar hafa sigrað tslendinga tvívegis síðan
Islenzka liðiö féll enn á
plan meðalmennskunnar
— ósigur gegn Spánver jum í Barcelona, 19-15
Hallur Símonarson í Barcelona:
Það skiptast á skin og skúrir hjá
íslenzka landsliðinu hér á Spáni. Eftir
stórgóðan leik við Tékka á laugardag
sem gerði að verkum að bjartsýni ríkti
meðal íslenzku leikmannanna datt
íslenzka liðið aftur niður á plan meðal-
mennskunnar og ósigur gegn
Spánverjum varð staðreynd hér í
Barcelona. Það var 14. mínútna kafli í
byrjun síðari hálfleiks sem varð
íslenzka liðinu að falli — afleitur kafli
er staðan breyttist úr 12—12 í 17—12
Spánverjum i vil. Rétt eins og vonleysi
a losiuaogum.
Hægt er að velja um 1, 2 og 3 vikna
feröir.
Brottfarardagar: 16.,- 23. feb. - 9.,-
16.,- 30. mars - 6.,- 20.,- 27. aprll -
18. maí - 13. júnl - 4.,- 25. júlí - 15.
ágúst - 5.,- 26. sept.
Hótel og Ibúöir I sórflokki.
Þjónustuskrifstofur með islensku
starfsfólki.
Skoöiö nýja Kanaríeyjabæklinginn, •
sem þú færð á skrifstofum Sunnu.
gripi um sig meðal íslenzku leik-
mannanna og tap varð ekki umflúið,
19—15. Draumurinn um Moskvu varð
að engu í Barceolona en ef til vill hefur
verið til of mikils ætlazt að íslenzka
landsliðið gerði þann draum að
veruleika. Það er í raun aðeins
sanngirni að krefjast eins—að ísland
haldi stöðu sinni í B-riðli. Að ekki fari
eins fyrir okkur og gegn
Norðmönnum.
íslenzka landsliðið náði aldrei
svipuðum leik og gegn Tékkum.
Vörnin aldrei eins þétt og of mikið
Italskir
bamaskór
Uturblár.
Leóursóli með gúmmí-
hæl, sem nær undir ilina
og stömum fieti á fram-
sóla.
Skórnir eru úr mjúku
skinni og eru bólstraðir
bæði undir iljarnar og við
ökklana.
Stærðir 18—23.
Verðkr. 3.500.-
Stærðir 18—23.
Verðkr. 3.500.-
PÓSTSENDUM.
Domus Medica
Egilsgötu3
Sími 18519
skotið í sókninni. ísland hafði yfir í
leikhléi, 10—9, eftir mjög þokkalegan
fyrri háifleik. En íslenzka liðið féil
saman fyrri hluta síðari hálfleiks. Og
ekki vantaði tækifærin, . hvað eftir
annað opin tækifæri en íslenzku leik-
mennirnir beinlínis skutu spánska
markvörðinn í stuð. Hann varði hreint
stórkostlega en ef til vill var ekki
einleikið hve íslenzku leikmennirnir
gáfu honum færi á að verja. Ólafur
Benediktsson varði allvel, 8 skot, en
hann féll alveg í skugga Paco Aga,
spánska kollega síns.
íslenzka liðið byrjaði vel i
Barcelona, í hinni glæsilégu íþróttahöl!
spænska stórliðsins FC Barcelona.
Axel Axelsson skoraði fyrsta mark
leiksins og Þorbjörn Jensson bætti við
öðru marki. Spánverjar jöfnuðu 2—2,
en Axel kom íslandi í 3—2. Spánverjar
svöruðu með þremur mörkum og
sóknarlotur Islands gengu ekki sem
skyldi. En ísland náði að jafna, 5—5.
Um miðjan fyrri hálfleik kom Viggó
Sigurðsson inn á og hann átti eftir að
koma við sögu. Axel Axelsson mis-
notaði viti fyrir íslnnd á 16 mínútu og
Spánverjar komust í 7—5. Þá var
kömið að þætti Viggós Sigurðssonar,
sem sýndi stórleik. Með krafti sínum og
snerpu þá dreif hann íslenzka liðið á-
fram, minnkaði muninn i 7—6, jafnaði
sjálfur, 7—7. Spánverjar svöruðu, 8—
7, Viggó jafnaði, 8—8. Og hann bætti
við tveimur mörkum, báðum úr vitum,
10—8 fyrir ísland. Sannarlega farið að
fara um hina þrjú þúsund áhorfendur
hér í Barcelona og greinilegt að spánski
markvörðurinn átti ekki svar við snilld
Viggós.
1 hálfleik var staðan 10—9 og þegar
í upphafi síðari hálfleiks komust
Spánverjar yfir, 11—10. Viggó jafnaði
11 — 11, Spánverjar komust enn yfir,
12—11, en Viggó Sigurðsson, jafnaði
enn, 12—12.
í 36 mínútur hafði enginn skorað i
íslenzka liðinu utan Viggó Sigurðsson.
Og slíkt kunni ekki góðri lukku að
stýra. Á næstu mínútum einkenndi
skotgleði íslenzka liðið, Viggó sjálfur
varð svolítið villtur i skotum sínum og
Spánvetjar gengu á lagið, skoruðu hvert
markið á fætur öðru, komust í 17—12.
Kafli eins og íslenzkir áhorfendur hafa
séð svo oft í vetur — er íslenzka lands-
liðið féll alveg saman.
Ólafur Jónsson minnkaði muninn í
17—13, en aftur tvö mörk frá
Spánverjum, 19—13. Hvert skotið
brást á fætur öðru, spánski markvörð-
urinn varði allt. En íslenzka liðið bjarg-
aði andlitinu, náði að minnka muninn í
fjögur mörk, 19—15, með mörkum
Þorbjörns Guðmundssonar og Páls
Björgvinssonar. Lokatölur 19—15 —
og ég held að í raun hafi verið til of
mikils mælzt að íslenzka liðið sigraði
hið spánska. Spánverjar eru mjög
sterkir á heimavelli. Um það er engum
blöðum að fletta —ísland hefði þurft
algjöran toppleik til sigurs. Annan
Tékkaleik, stórleik. En því miður vant-
ar alla festu í íslenzka landsliðið. Við
getum einn daginn leikið eins og heims-
meistarar, staðið í þeim beztu — það
gerðum við því Tékkar eru með
geysisterkt landslið. Það var of mikið
skotið, sóknarleikurinn fyrst og fremst
brást. En einnig vörnin — ef tekið er
mið af leiknum við Tékka. í hverju
liggur þessi mikli munur á liðinu frá
degi til dags — það er erfitt að segja
um. ísland lék við Spán í síðari hálfleik
eins og við ísrael í síðustu viku.
íslenzka liðið náði aldrei upp sama leik
og gegn Tékkum — þess vegna hvarf
vonin um OL í Moskvu. Lykilleikmenn
hafa alveg brugðizt hér á Spáni. Axel
Axelsson hefur ekki náð sér á strik,
hefur verið í flensu. Þá hefur það mun-
að miklu að Páll Björgvinsson er aðeins
skugginn af sjálfum sér.
En gegn Spánverjum var það sóknin
sem brást. Ekki einleikið hvað íslenzku
leikmönnunum voru mislagðar hendur
í upplögðum færum. Bjarni
Guðmundsson til að mynda komst
tvívegis upp, aleinn upp í
hraðaupphlaupi, en í bæði skiptin
varði Paca Aga frá honum. Svona
mætti fara í gegn um islenzka liðið —
leikmenn nýttu ekki færin.
Viggó Sigurðsson varð markhæstur
íslenzku leikmannanna og hann hefur
vakið mikla athygli hér á Spáni fyrir
snjalla leiki, skoraði 7 mörk, 3 viti.
Axel Axelsson 2, Þorbjörn Guðmunds-
son, nafni hans Jensson, Steindór
Gunnarsson, Bjarni Guðmundsson,
Páll Björgvinsson og Ölafur Jónsson 1
mark hver.
Dómarar voru danskir, Bodil og
Hjule og þeir dæmdu mikið, ráku 5 úr
hvoru liði af velli. En dómgæzla þeirra
bitnaði á hvorugu liði þó áhorfendur
létu óspart í lós óánægju sína þegar
dæmt var á spánska liðið.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1979.
13
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Gæfan er hverful i knattspyrnu. Það
fengu leikmenn Nottingham Forest að
reyna í gærkvöld á City Ground í Nott-
ingham er þeir mættu Arsenal í FA-
bikarnum á Englandi. Forest sótti og
sótti, hafði hreint ótrúlega yfirburði og
yfirspilaði Arsenal langtímum saman.
En inn vildi knötturinn ekki, frábær
leikur Pat Jennings í mark Arscnal sá
um það og heppnin. Gary Birtles skaut
í þverslá af 3 metra færi, þegar auð-
veldara hefði verið að skora. Leikmenn
Forest áttu skot í stöng, þeir gerðu allt
nema að skora og 12 mínútum fyrir
leikslok gerðist svo hið óvænta.
Arsenal fékk aukaspyrnu skammt
fyrir utan vítateig Forest, vafasöm
aukaspyrna. Liam Brady tók spyrnuna,
sendi beint á kollinn á Frank Stapelton,
sem skallaði knöttinn í netið fram hjá
Peter Shilton, markverði Forest, 0—1,
og áhangendur Forest trúðu vart sínum
eigin augum. Forest hafði haft slíka
yfirburði. Og sóknir Forest urðu ör-
væntingarfullar siðustu minúturnar og'
ekki tókst að finna leiðina framhjá Pat
Jennings. Fyrsti ósigur í City Ground í
Nottingham síðan í spríl 1977, tæp tvö,
ár og þá lék Forest i 2. deild! Slíkt var
afrek Arsenal að leggja meistara Forest
að velli í Nottingham.
En áður en við höldum lengra
skulum við líta á úrslit leikja í bikar-
keppninni:
Leeds — WBA 3—3
Oldham — Leicester 3—1
Sunderland — Burnley 0—3
ÓlafurH.
Jónsson nú
leikjahæstur
— hefur leikið 119
landsleiki
Ólafur H. Jónsson lék sinn 119.
iandsleik fyrir ísland i gærkvöld í
Barcelona gegn Spánverjum. Þar með
hefur Ólafur H. Jónsson leikið flesta
landsleiki fyrir ísland — einum leik
meir en Geir Hallsteinsson er leikið
hefur 118 landsleiki.
Svíar í
neðsta sæti
Hallur Símonarson í Barcelona:
Tékkar sigruðu Hollendinga örugg-
lega í milliriðli hér á Spáni í gærkvöld,
23—14. Öruggur sigur Tékka er höfðu
öll ráð Hollendinga í hendi sér og gátu
nánast leyft sér allt.
Staðan í milliriðlinum hér í Barce-
lona er nú:
Spánn 2 2 0 0 38—29 4
Tékkóslóvakía 2 1 1 0 35—26 3
ísland 2 0 1 1 27—31 1
Holland 2 0 0 2 28—43 0
Þá urðu úrslit í hinum milliriðlinum
þau að Ungverjar sigruðu Svia örugg-
lega, 28—23 eftir að hafa haft yfir í
leikhléi, 13—11. Búlgarir komu á óvart
með að vinna öruggan sigur á Sviss,
19—15. Öll iiðin hafa nú 2 stig og er
baráttan gífurlega hörð. Staðan er nú:
Ungverjaland 2 1 0 1 45—42 2
Búlgaría 2 10 1 34—31 2
Sviss 2 1 0 1 34—36 2
Svíþjóð 2 1 0 1 39—43 2
Ipswich — Bristol Rovers 6—1
Nottm. Forest — Arsenal 0—1
Crystal Palace— Wolves 0—1
Shrewsbury — Aldershot 3—1
2. deild.
Luton — West Ham 1—4
4. deild.
Reading — Hartlepool 3—1
Stockport — Scunthorpe 0—2
Bikarmeistarar Ipswich sýndu stór-
leik á Portman Road í Ipswich gegn 2.
deildarliði Bristol Rovers, yfirspiluðu
Bristol liðið. Alan Brazil skoraði tví-
vegis og Mick Mills bætti við þriðja
markinu fyrir leikhlé. Arnold Muhren,
Hollendingurinn í liði Ipswich, bætti
við fjórða marki Ipswich, stórglæsilegt
mark en Muhren lék á fimm varnar-
menn áður en hann sendi knöttinn t
netið. Fimmta mark Ipswich skoraði
David Geddis og Paul Mariner skoraði
sjötta mark Ipswich. Skömmu fyrir
leikslok svaráði Steve White fyrir
Rovers, 6—1. Þessi leikur, ásamt
viðureign Arsenal og Forést, var í 5.
umferð.
WBA og Leeds mættust í 4. umferð á
The Hawthorns í West Bromwich, út-
borg Birmingham. Á laugardag sigraði
Leeds 2—1 í deildinni, en í gærkvöld
skildu liðin jöfn, 3—3. Hörkuleikur,
geysilegur hraði og það var ekki fyrr en
á síðustu mínútunum að Leeds tryggði
sér jafnteflið — skoraði tvö mörk á síð-
ustu sjö mínútunum. Laurie Cunning-
ham náði forustu fyrir WBA á 30. mín-
útu en Frankie Gray jafpaði fyrir Leeds
á 50. mínútu. WBA skoraði síðan tvö
mörk á tveimur mínútum og virtist
stefna í sigur. Ally Brown og síðan Cyr-
ille Regis með stórglæsilegum skalla,
3—1 og tæpur hálftími til leiksloka. Og
mínúturnar tifuðu hver af annarri.
WBA virtist stefna í öruggan sigur, en á
83. mínútu minnkaði Arthuer Graham
muninn í 3—2 og tveimur minútum
fyrir leikslok jafnaði Carl Harris, út-
herji Leeds, 3—3 — og Iiðin verða að
mætast aftur á The Hawthorns þar sem
Leeds er í banni í Bikarnum á heima-
velli vegna óláta er urðu á síðasta
keppnistímabili. Þessi viðureign var í 4.
umferð.
Einnig í 4. umferð var viðureign
Sunderland og Burnley. Burnley fékk
óskastart, komst strax í 2—0 með
mörkum Fletcher og Ingham. Steve
Kindon tryggði Burnléy síðan öruggan
sigur með marki í síðari hálfleik. Old-
ham vann öruggan sigur á Leicester í 4.
umferð i Oldham, 3—1. Alan Young
skoraði þrennu fyrir Oldham en eina
mark Leicester skoraði Henderson.
í 5.umferð sigraði Shrewsbury lið
Aldershot 3—1 eftir framlengdan leik
og í Lundúnum mættu Úlfarnir liði
Crystal Palace og Úlfarnir unnu, 1—0,
Patching skoraði þegar í upphafi.
Þriðja 2. deildarliðið, sem Úlfarnir
sigra og í öllum tilvikum hafa Úlfarnir
leikið fyrst á útivelli. Brighton, New-
castle og í gærkvöld Crystal Palace.
í gærkvöld var síðan dregið í 6. um-
ferð.
Leeds/WBA—Arsenal
Wolves—Shrewsbury
Oldham/Tottenham—Manch. Utd.
Ipswich—Liverpool/Burnley
Frank Stapelton — mark hans á City Ground kom Arscnal í 8-liða úrslit.
CELTIC SIGRAÐI
BERWICH 3-0
— og mætir Aberdeen í næstu umferd
Celtic lék sinn annan leik i tvo mán-
uði í gærkvöld er Glasgowrisinn mætti
Berwich Rangers í Glasgow. Öruggur
sigur Celtic, 3—0 í 4. umferð skozka
bikarsins og í næstu umferö — 8 liða
úrslitum mætir Celtic Aberdeen á úti-
velli.
Rangers sigraði Kilmarnock 1—0
eftir að liðin skildu jöfn, 1 — 1 á Ibrox í
síðustu viku. Rangers mætir annað
hvort Dundee eða St. Mirren -
liðinu í úrvalsdeildinni skozku.
efsta
St. Mirren sigraði Dundee United
2—0 í Dundee í gærkvöld og mætir ná-
grönnum United, Dundee er lengst af
hefur verið frægara og sterkara lið en
United — féll hins vegar í 1. deild fyrir
þremur árum og hefur ekki tekizt að
endurheimta sæti sitt i úrvalsdeildinni.
Þá sigraði Morton St. Johnstone 4—
2 á Skotlandi.
Gagnl<v0emt
fíaust
Sparilánakerfi Lands-
bankans hefurfrá byrjun
árið 1972, byggst á gagn-
kvæmu trausti bankans
og viðskiptavinarins.
Ef þú temur þér reglu-
semi í viðskiptum, sýnir
Landsbankinn þér traust.
Landsbankinn biður
hvorki um ábyrgðarmenn
né fasteignarveð.
Einu skilyrðin eru reglu-
jundinn sparnaður,
eglusemi í viðskiptum,
— og undirskrift þín og
naka þíns.
iiðjið Landsbankann
im bæklinginn
im sparilánakerfið.
Sparifjársöfhun tengd réttí til lár
Sparnaður
þinn eftir
12 mánuði
18 mánuði
24 mánuði
Mánaðarleg
innborgun
hámarksupphæö
25.000
25.000
25.000
Sparnaður í
lok tímabils
300.000
450.000
600.000
Landsbankinn
lánar þér
300.000
675.000
1.200.000
Ráðstöfunarfé
þitt 1)
627.876
1.188.871
1.912.618
Mánaöarleg
endurgreiðsla
28.368
32.598
39.122
Þú endurgreiðir
Landsbankanum
á 12mánuðum
á 27 mánuðum
á 48 mánuðum
1) í tölum þessum er reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta
breytzt miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum tíma.
LANDSBANKINN
Sparilán-trygging í jramtíð
Forest sótti og sótti
en Arsenal skoraði!
— Arsenal sigraði Nottingham Forest á City Ground, 1-0
— Bikarmeistarar Ipswich skoruðu sex og WBA og Leeds
deildu sex á The Hawthorns