Dagblaðið - 27.02.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1979.
7
Erlendar
fréttir
REUTER
Þáði tebolla
eftir ránið
Ysamu Yamaguchi réðst inn í
pósthús í Hiroshima i Japan i gær
vopnaður hnifi. Hann rændi þar 1.2
milljónum jena, eða um tveimur
milljónum íslenzkra króna. Áður en
hann yfirgaf póststofuna, þáði hann
boð póstmeistarans um að fá sér í fljót-
heitum tebolla, áður en haldið væri út í
kuldann.
En, lögreglan handtók Osamu
Yamaguchi á póststofunni þar sem
hannvarað sötra i sig heitt teið.
Kínverjar hvöttu Vietnama í gær
til þess að setjast að samningaborði
og enda þannig landamærastrið
þjóðanna. Dagblað alþýðunnar í
Peking sagði í leiðara að vonazt væri
til að víetnömsk yfirvöld gerðu sér
grein fyrir ástandinu og væru reiðu-
búin til sanngjarnra viðræðna eins
fljótt og unnt væri.
Engin svör hafa borizt frá Hanoi
vegna þessarar málaleitunar. Hanoi
útvarpið greindi frá því að kínverskar
hersveitir væru nú komnar 40 km inn
í Víetnam, en sögðu að Kínverjar
hefðu orðið fyrir miklu mannfalli og
tjóni í hörðum bardögum. Hanoi út-
varpið sagði að nú berðust fleiri
Kinverjar í Vietnam, en Bandaríkja-
menn hefðu nokkru sinni verið,
þegar styrjöld Bandaríkjamanna og
Víetnama stóð sem hæst.
í Washington sögðu bandariskir
sérfræðingar, að svo virtist sem aðal-
orrusta Kínverja og Víetnama væri
við Lang-Son, sem er 85 km norð-
austuraf höfuðborginni Hanoi.
Svo virtist sem Lang-Son væri enn
í höndum Víetnama en talið var að
Kinverjar fyrirhuguðu stórárás til
þess að ná bænum á sitt vald. Við
Lang-Son er aðaljárnbrautarlinan til
Hanoi og þvi mikilvæg aðflutnings-
leið.
Víetnamski bærinn Lang-Son tt
áðuren Kínverjar hertóku hann.
Kínverjar vilja samn
ingaviöræöur
— við Víetnama um
landamæradeilur
þjóðanna
/
Þeir loðnu á bringunni
þola vín betur
Séu menn loðnir á bringunni, þola
þeir vín betur en hinir, sem minna eru
hárprúðir á brjóstkassanum. Þetta
kom fram i máli austurrísks læknis á
læknaráðstefnu, sem nú stendur yfir i
Vín. Læknirinn, dr. Heribert Thaler, er
sérfræðingur í lyflæknisfræði.
Óskýrt er frá læknisfræðilegu
sjónarmiði, af hverju konur geta aðeins
drukkið þriðjung af því sem karlmaður
getur látið í sig af áfengi, án þess að
skaða heilsu sína verulega.
Dr. Thaler sagði að rannsóknir
sýndu, að karlmenn gætu öruggir
drukkið eina flösku af vini daglcga,
þ.e. 0,7 lítra, en konur ættu að hætta er
þær hefðu drukkið fjórðung úr
vínflösku, ef þær vilja komast hjá
alvarlegum lifrarskemmdum.
Chicago:
Árlega deyja
1500 manns
af lof tmengun
Loftmengun drepur u.þ.b. 1500
manns í Chicago árlega en Chicago er
næststærsta borg Bandaríkjanna. Þetta
kom fram er birtar voru niðurstöður
rannsóknar heilsugæzluskólans í
IIHnois.
Rannsóknin leiðir í ljós mjög á-
kveðin tengsl milli loftmengunar og
dauða fólks, sem þjáðst hefur af
hjarta- eða lungnasjúkdómum. En
ekkert í rannsókninni bendir til þess að
loftmengun geti valdið krabbameini.
TengingSoyuz
við Salyut6
tókstágætlega
Sovézku geimfararnir í Soyus 32
geimfarinu tengdu flaug sína við Salyut
6 geimstöðina i gær. Tengingin gekk að
óskum og nú dvelja geimfararnir um
borð i geimstöðinni. Ekki er vitað hve
lengi geimfararnir eiga að vera úti í
geimnum en sérfræðingar telja líkur á
að Sovétmenn ætli sér að setja enn nýtt
met t geimdvöl. Lengst hafa sovézkir
geimfarar dvalið 140 sólarhringa i
geimnum.
Ný legund af hitamælum fyrír sjúka er komin á markað í V-Þýzkalandi. Þella
er rafeindamælir, sem leysir gamla kvikasilfursmæiinn af hólmi. Hann mælir
hita sjúklinga mjög nákvæmlega á 30—45 sekúndum.
Mælirinn er notaður á svipaðan hátt og fyrri gerðir hitamæla, i munn, undir
arm, eða í endaþarm. í mælinum eru rafhlöður og endast þær í sjö stundir,
þannig að ekki ætti að þurfa að skipta oft um þær, þar sem heilsan er í sæmi-
legu lagi.
E
LAN DSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum frá innlend-
um framleiðendum í hönnun, framleiðslu og
afhendingu á tveimdr starfsmannaskálum. Er
annar skálinn um 200 m2 og hinn um 750 m\
Ætlunin er að reisa báða skálana við Hraun-
eyjafossvirkjun sumarið 1979.
Ætlazt er til að skálarnir séu byggðir upp af
sjálfstæðum bíltækum húseiningum. Útboðs-
lýsing verður afhent á skrifstofu Landsvirkj-
unar að Háaleitisbraut 68, Reykjavík, frá og
með þriðjudeginum 27. febrúar 1979. Tilboð
verða opnuð á sama stað kl. 14.00 föstudaginn
,23. marz 1979.
LANDSVIRKJUN
STÓRBINGÓ FRAM
verður haldið í Sigtúni fimmtudaginn l.marz, ðúsið opnar kl. 7.30, bingóið hefst kl. 8.30.
Meðal vinninga:
Kanaríeyjaferð með Flugleiðum, Færeyjaferð með Flugleiðum, glæsileg heimilistæki
f rá Pfaff, Vörumarkaðnum og Gunnari Ásgeirssyni.
Aðgangur ókeypis. Spilaðar verða fimmtán umferðir. . Handknattleiksdeild Fram