Dagblaðið - 27.02.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1979.
9
Stjórn Alþýðubandalagsins í Kópavogi:
, Jillaga um að slíta samstarfinu
hefur aldrei komið f ram á fundum”
„Félagar Alþýðubandalagsins
hafa margoft átt kost á því að tjá
skoðanir sínar í þessu máli en tillaga
um að slíta samstarfinu hefur þó
aldrei komið fram,” segir í ályktun
stjórnar Alþýðubandalagsins í Kópa-
vogi út af afsögn Helgu Sigurjóns-
dóttur úr bæjarstjórn og margra
annarra flokksfélaga úr starfs-
nefndum bæjarins.
Stjórnin segist vona, að félagarnir
komi fljótt aftur til starfa að bæjar-
málum og vinni með því móti að
viðgangi Alþýðubandalagsins.
Stjórnin segir, að skoðanir hafi
frá upphafi verið skiptar um aðild
flokksins að meirihlutanum í bæjar-
stjórn. Þeir, sem vöruðu við að ganga
til samstarfs við Framsóknarflokkinn
og Alþýðuflokkinn, hafi þó tvimæla-
laust verið í minnhluta. Meirihluta-
myndunin hafi verið samþykkt með
meginþorra atkvæða 20. júní á
félagsfundi. Ágreiningur þessi hafi,
verið til umræðu á félagsfundum og
mörgum fundum bæjarmálaráðs,
meðal annars á almennum félags-
fundi 10. janúar, en engar tillögur
um að slita samstarfinu hafi komið
fram.
-HH
Grindvíkingur á Seyðisf irði:
Nýja vogin sýndi 60
tonnum minna en
skipverjar töldu rétt
— „maður frá okkuraustur ídag”, segir
löggildingarstofan
Skipverjar á Grindvíkingi voru ekki
sáttir við vigtunina hjá nýju voginni hjá
Síldarverksmiðjunni á Seyðisfirði á
föstudaginn var. Þeir höfðu tilkynnt
komu sína til Seyðisfjarðar með 1000
tonnaf loðnu.
Þegar löndun var lokið sýndi vogin
um 60 tonnum minna en þeir töldu að
skipið væri með.
Kom til allsnarpra orðaskipta út af
þessu. Skipverjar kvöddu lögregluþjón
á staðinn til þess að taka skýrslu af
þessum ágreiningi. Með honum kom
Örn Sigurðsson, fulltrúi sýslumanns.
,,Ég var nú ekki þarna í embættis-
erindum,” sagði öm í viðtali við DB,
„heldur bað lögregluþjónninn mig að
vera sér til aðstoðar við
skýrslugerðina.”
Örn kvað málinu hafa lokið með
fullu samkomulagi á þann hátt, að þeg-
ar löggilt mæling hefur verið gerð á
vigtinni, verði það látið gilda, sem hún
sýnir.
Þessi vog Sildarverksmiðjunnar er
alveg ný. Kom hún stillt af
framleiðanda og með leiðbeiningum
um notkun. Hins vegar hefur vogin
ekki verið löggilt af löggildingarstofu
mælitækja.
„Það stendur til að maður frá
okkur fari til Seyðisfjarðar i dag, ef
flogið verður,” sagði Steindór Briem,
fulltrúi á löggildingarstofunni i viðtali
við DB i morgun. Lóðin sem mælt er
með eru komin austur og voru send
þangað með skipi.
Hið sanna kemur i Ijós, þegar vogin
hefur verið mæld og löggilt.
-BS.
|I«»« «»
Grindvíkingur kemur með fullfermi af loðnu til Vestmannaeyja i síðustu viku. Á Seyðisfirði voru ekki allir á eitt sáttir
um hversu mikið væri i bátnum. DB-mynd Ragnar Sigurjónsson.
Jarðhitaskóli á ís
landi á vegum Sam-
einuðu þjóðanna
— Nám hef st í einni námsbraut í vor en í
f ramtíðinni verða námsbrautirnar átta
í maímánuði eru væntanlegir
hingað til lands fyrstu styrkþegarnir
sem nám stunda við Háskóla Sam-
einuðu þjóðanna á sviði jarðhitamála.
Hafa Orkustofnun og Háskóli Sam-
einuðu þjóðanna undirritað samning
um að jarðhitaskóli verði rekinn hér á
landi og veiti starfsþjálfun á sviði
rannsókna og nýtingar jarðhita. Jafn-
framt verður Orkustofnun ráðgjafar-
aðili Háskóla Sameinuðu þjóðanna um
jarðhitamálefni.
Orkustofnun hefur samið við Há-
skóla íslands um þátt hans í þjálfun
styrkþeganna. Hugsanlegt er einnig að
leitað verði til verkfræðistofa, hita-
veitna og annarra jarðhitafyrirtækja
um einstaka þætti þjálfunar, og yrði
samið sérstaklega þar um hverju sinni.
Jarðhitaskólinn verður rekinn sem
ein undirdeilda Jarðhitadeildar
Orkustofnunar og kennarar og
leiðbeinendur styrkþeganna verða frá
Orkustofnun og háskólanum. For-
stöðumaður jarðhitaskólans verður dr.
Ingvar Birgir Friðleifsson, jarð-
fræðingur.
Gert er ráð fyrir að I jarðhita-
skólanum hér verði átta námsbrautir
en í vor hefst skólinn aðeins með einni
námsbraut, þ.e. rannsókn á þvi hvað
upp úr borholum kemur. Allar átta
brautirnar verða á námsskránni 1980.
Námsstyrkir við skólann eru
miðaðir við 5—6 mánaða nám. Fyrstu
fjórar vikurnar eru nemendur samferða
i fyrirlestrum um jarðhita almennt.
Siðan starfa þeir með sérfræðingum og
er gert ráð fyrir að þriðjungur af tima
sérfræðinganna fari til náms-
leiðbeininga styrkþeganna. Er námið
að mestu sniðið eftir þeim verkefnum,
sem að er unnið hverju sinni, en sumt
mun þó þurfa að setja á svið.
Nemar skólans hafa hver um sig
lokið háskólaprófum áður en þeir
koma í þennan framhaldsskóla þar sem
megináherzla er lögð á að menn efli
kunnáttu sina með vinnu.
íslenzka ríkið leggur 33.2 milljónir
króna til skólans i ár en Háskóli Sam-
einuðu þjóðanna greiðir ferða- og
uppihaldskostnað styrkþega og að auki
14,4 milljónir króna á þessu ári vegna
stofnkostnaðar og reksturs jarðhita-
skólans.
Guðlaugur Þorvaldsson háskóla-
rektor sagði á blaðamannafundi þar
sem Orkustofnun kynnti þetta nýja
skólahald á íslandi að jarðhitaskólinn
væri mikil styrktarstoð vísinda í þessari
grein og yki á hróður íslands meðal há-
skóla annarra landa.
í jarðhitaskólanum munu íslending-
ar nema jarðhitafræði sem og
nemendur annarra landa og mun þetta
mjög auðvelda íslenzkum fræði-
mönnum framhaldsnám i jarðhita-
fræðum.
-ASt.
BJÖRNINN
Smurbrauðstofan
Njálsgötu 49 — Sími 15105
kappát í kvöld
Nú er kjöriö tœkifœri fyrir matmennina til þess aö kýla
vömbina svo um munar, og fá verölaun fyrir vikiö
Hver getur étiö mest?!
ath; grímuball á unglingadansleik öskudag.
■N
J