Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.03.1979, Qupperneq 1

Dagblaðið - 12.03.1979, Qupperneq 1
N/ dagblað 5. ÁRG. - - MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979 — 60. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUIMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022. Samkomulag stjórnar- flokkanna um helgina Stjórnarflokkarnir náðu um helgina samkomulagi í efnahagsmál- unum. Ólafur Jóhannesson forsætis- ráðherra færði sig í málamiðlun aftur nær sinu upphaflega frumvarpi, og Alþýðubandalagið „bakkaði”. Sam- komulagið fer fyrir fundi i flokknum i dag og á að koma aftur fyrir rikis- stjórnarfund í fyrramálið. Frumvarpið i núverandi mynd felur í sér, að hraði verðbólgunnar verði 33 prósent í haust, að sögn sér- VERÐBOLGAN FER NIDUR í 33% raunvextir—viðskipta- vísitala—binding peningamagns fræðinga, og náist því ekki að koma henni í 30%. Kaupgjaldsvísitala verður sam- kvæmt samkomulaginu sett 100 í febrúar, viðskiptakjaravísitala tekin upp og olíuhækkanir ekki látnar hafa áhrif á kaup. Á umræðustigi hjá Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi er að sett verði nýtt þak á vísitöluna og kjaradómi í máli Bandalags háskóla- manna verði hnekkt með nýjum lögum. Raunvextir, háir vextir, verði teknir upp í samræmi við tillögur for- sætisráðherra. Þó verði afurðalán utan þess kerfis en háð ákvörðunum ríkisstjórnar hverju sinni. Bindingar á ríkisútgjöldum fyrir árið 1980 eru ekki jafn afdráttar- lausar og fyrst var, en talað um að ríkisbáknið skuli vera um 30% af þjóðarframleiðslu. Aukin innláns- binding í Seðlabanka er dottin út, en inni er það stefnumið að peninga- magn í umferð skuli aðeins aukast um 25% á árinu. 3 milljarðar til hagræðingar Afnám sjálfvirkni sjóðakerfisins er inni í frumvarpinu, svo og tak- mörkun fjárfestingar. Nýr kafli er kominn í frumvarpið um hagræðingu i atvinnulífinu, og nýskipan áætlana- gerðar. 3 milljörðum verði varið til hagræðingar til viðbótar því, sem áður var ákveðið. Kommissarakerfið ‘er dottið úr. Greinin um kjaramála- ráð er farin út, en eftir stendur mikil- vægari grein um samráð ríkisvalds og aðila vinnumarkaðarins. Vinnumála- skrifstofan er inni. í verðlagsmálum hefur forsætis- ráðherra komið mjög til móts við Alþýðubandalagið og á að herða verðlagseftirlit frá þvi sem ella hefði verið. -HH MYNDPLÖTUR- meirafyrir augaðeneyrað - sjá bls. 29 Mickie Gee slær heims- metið í dag ^ — sjá bls. 12 Einar Magg er kominn heim — sýning þegar Víkingur sigraði Fram 32—20 og undir tók í Höllinni þegar þrumuskot Einars Magn- ússonar, er lék sinn fyrsta leik með Víking, þandi netmöskvana. — sjá íþróttir bls 14, 15, 16,17,18 og 19. lil I Hann hleypur á vatninu, strákurinn ; Vesturbæjark Hlaupiðvarað visu stutt sekundubroti eftir að myndin var' tekin sökk hann í vatnið með miklum gusugangi. DB-mynd: Ragnar Th. Frumsýning íslenzku óperunnar í gærkvöld: ,,Get ekki hugsað mér betri útkomu” —sagði Þuríður Pálsdóttir leikstjóri í morgun „Þetta gekk alveg afskaplega vel og ég get ekki hugsað mér betri útkomu,” sagði Þuriður Pálsdóttir leikstjóri í morgun um óperuna • Pagliacci sem íslenzka óperan frum- sýndi í gærkvöldi. Sýningin fékk feiknagóðar viðtökur áheyrenda, sem fylltu hvert sæti i Háskólabíó. „Leikararnir stóðu sig mjög vel og leikmyndin kom sérlega skemmti- lega út og eins búningarnir. Það fylgja því ýmsir gallar að sýna óperu i Háskólabíói en við urðum að láta slag standa því i annað hús var ekki að venda. Til dæmis var ekki hægt að draga nein tjöld fyrir og urðum við að gera ráð fyrir því í leik- myndinni. En þetta hafðist sem sagt allt og ég var mjög „impóneruð” af flutningn- um,” sagði Þuriður. -DS. Þuriður Pálsdóttir leikstjóri með Haraldi Adolfssyni förðunar- meistara. íslenzka óperan lyftir ftroflicÍAlcS — gagnrýni Aðalsteins w ClUdUim Ingólfssonar á bls. 21 Guðjón B. Baldvinsson, gjaldkeri NLFR, heldur báðum höndum um hljóðnemann, sem hann hafði örfáum sekúndum áður togazt á um við Marinó L. Stefánsson, formann félagsins, á framhalds- aðalfundi í gær. Talningu at- kvæða í kosningu 32 fulltrúa NLFR á landsþing NLFÍ, lauk seint í gærkvöld. Fengu yngri mennirnir i félaginu þar öruggan meirihluta þótt nokkrir hinna eldri næðu kosningu. -GAJ/DB-mynd: Bj.Bj. Lávið handa- lögmálumá framhalds- aðalfundi NLFR - sjá bls. 12 Maður losnar aldrei við illar tungur — viðtal við einn þeirra sem handteknir voru íKaupmanna- höfn — sjá bls. 6

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.