Dagblaðið - 12.03.1979, Blaðsíða 6
Dagblað
án ríkisstyrks
Það lifi!
SKYNDIMYNDIR
Vandaðar litmyndir
í öll skirteini.
barna&fplskyldu-
Ijðsmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644
FR f élagar — FR félagar
ÁRSHÁTÍÐ
félagsins verður haldin 17. marz í Festi,
Grindavík. Aðgöngumiðar eru seldir á skrif-
stofu félagsins, Síðumúla 22, sími 34100.
Rútuferðir frá Rvk., Kópavogi, Garðabæ og
Hafnarfirði.
FR félagar fjölmennið á árshátíðina og takið
með ykkur gesti.
Hinrik Kastrup-Jensen lögmaður íslendinganna:
„VU engu spá um gang
ramsóknarinnar...”
„Fyrst þeir fóru ekki að yfirheyra
neinn eða taka af þeim skýrslur fyrr,
á ég ekki von á þvi að mikið gerist
með þau sem enn sitja inni,” sagði
Hinrik Kaastrup-Jensen, verjandi ís-
lendinganna í viðtali við Dagblaðið i
Kaupmannahöfn eftir að tveir íslend-
inganna höfðu verið látnir lausir.
„Það eru ennþá margir lausir end-
ar í málinu og mikið eftir að kanna,”
sagði Kaastrup-Jensen. ,,Ég vil ekki
spá neinu um það, hvenær rannsókn
málsins lýkur, né hvenær dómar falla
og því síður hversu þungir þeir
verða.”
Samkvæmt viðtölum blaðamanns
Dagblaðsins við ýmsa aðila innan
lögreglunnar og á dagblöðum, má
fastlega búast við að þau þrjú, sem
grunuð eru um sölu á kókaíni og öðr-
um fíkniefnum, kunni að verða
dæmd í allt að þriggja ára fangelsi ef
þau reynast sek um afbrotin. Þá
verða þau látin afplána dóm sinn í
Danmörku, en verður síðan vísað úr
landi, ef að líkum lætur.
-HP.
Hinrik Kaastrup-Jensen, lögmaður
íslendinganna.
Til sölu:
Renault 12 DL '77
Renault 12 DL '76
Renault 12 DL '75
Renault 12 station '75
Renault 4 sendibíll '76
BMW 2002 automatic '72
BMW 316'77
Toyota Corolla árg. '74
Vantar Renault 4TL og 5TL á söluskrá.
Kristinn Guðnason
Suðurlandsbraut 20 - Sími 86633.
Heitt Jubilee súkkulaði
og súkkulaðivélar
tryggja hámarks gæði.
Einnig
fyrirliggjandi:
Pizzaofnar,
pizzabotnar;
og annaö
til pizzagerðar.
Hálfdán Helgason sf.
Umb. og haildverzkin
Brautarholti 2 — Sími 18493 og 22516
Carsten Christianscn á skrifstofu
útlendingaeftirlitsins í Höfu.
„Nei, það er langt í frá, að íslend-
ingar veki eftirtekt hér fyrir afbrot,”
sagði Carsten Hgeberg Christiansen,
fulltrúi hjá útlendingaef tirlitin u i
Kaupmannahöfn í stuttu viðtali við
blaðamann Dagblaðsins. „Eftir því
sem næst verður komizt eru um 5000
íslendingar á öllum aldri og í öllum
þjóðfélagsþrepum vítt og breitt um
Danmörku og að þeir hafi orðið
áberandi í undirheimunum er ekki
vitað. Þetta kókainmál hefur að vísu
vakið einhverja athygli hér, en ekki
svo mikla að til þess sé tekið,” sagði
Carsten Christiansen ennfremur.
„Það væri helzt að ég ætti að sjá
hvort einhverjum íslendingum hafi
verið visað úr landi hér eftir dóm eða
afplánun dóms,” sagði Christiansen.
„Það verður hins vegar ekki séð. Án
þess að vera að hæla íslendingum
neitt sérstaklega, þá held ég að af Finnar og Norðmenn í meiri erfið-
Norðurlandabúum i Danmörku eigi leikum.” -HP.
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979.
KókaínmáliðíKaupmannahöfn:___
Valtýr Þórðarson, einn þeirra sem látinn var laus:
„Maður losnar aldrei
við illar tungur...”
„Ég hafði setið að snæðingi i
nokkrar mínútur ásamt heimilisfólk-
inu þarna þegar lögreglan ruddist
inn,” sagði Valtýr Þórðarson, annar
íslendinganna sem látinn var laus á
föstudaginn í Kaupmannahöfn, en þá
hafði hann setið í gæzluvarðhaldi í
sex sólarhringa í sambandi við
kókaínmálið mikla. „Ég er búinn að
margsegja við menn að ég hafi ekkert
samband við þetta fólk, annað en
það að við erum sum málkunnug.
Það er því anzi hart að lenda í þessu,
sérstaklega virðist það vera þannig
heima að lendi maður einu sinni í því
að vera handtekinn, losnar maður
aldrei við illar tungur á bak sér.”
Daginn sem Valtýr var látinn laus,
síðdegis á föstudag, var Sigríður
Brynja Pétursdóttir einnig látin laus^
en Franklin Steiner úrskurðaður í 7
daga varðhald til viðbótar þar eða
lögregluyfirvöld töldu sig eiga eitt-
hvað vantalað við hann varðandi
málið, eins og fram hefur komið í
Dagblaðinu.
„Við vorum flutt i Venstre-fang-
elsið og þar var ég læstur inni í klefa.
Fékk ekki að hitta neinn nema prest-
inn, Jóhann Hlíðar, sem er mikill
heiðursmaður, og eins verjanda okk-
ar, Hinrik Kaastrup Jensen,” sagði
Valtýr ennfremur. „Ég fékk einnig
að koma út undir bert loft einu sinni
á dag i hálftíma i hvert sinn. Lögregl-
an hér var samt ekkert að hafa fyrir
því að yfirheyra mann fyrr en í gær,
fimmtudag. Lögreglumenn hér eru
harðir í horn að taka og beita ekki
neinum vettlingatökum. T.d. tóku
þeir fast á okkur við handtökuna
sjálfa, leituðu á okkur hátt og lágt og
við vorum öll handjárnuð. Við
Róbert Glad vorum hlekkjaðir
saman og fluttir þannig í fangelsi. En
varðhaldsúrskurðum er trúlega ekki
beitt eins frjálslega hér og manni
virðist þeir gera heima á íslandi.
Einhver var að segja að ef þetta hefði
verið heima hefðum við umsvifalaust
verið sett i 90 daga gæzluvarðhald og
trúlega geðrannsókn að auki.
Ég vil bara fá að ítreka það, að ég
er ekki tengdur neinni sölu á kókaíni,
hvað þá öðrum fíkniefnum,” sagði
Valtýr ennfremur.
-HP, Kaupmannahöfn.
Fulltrúi útlendingaeftirlitsins íHöfn:
Engum íslendingum
vísað úr landi nýlega