Dagblaðið - 12.03.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979.
................
ELAN SKIÐI
Skíöastafir verð frá 3.670.
Aipina
skíðaskór
Ódýr barnaskíði
Stærðir3S—39Kr. 10.990.
Stærðir40-46Kr. 14.605.
Skóhaldarar
Verðkr. 3.760.
öryggisbönd
Verð frá kr. 1.985.
Verzlið
hagkvæmt
Skíðabúningar Póstsendum
Laugavegi 13 — Sfmi 13508
Evrópsk samvinna f verki:
AIRBUS RENNUR ÚT
—breiðþota Evrópumanna þykir mjög vel heppnuð
Airbus A 300 breiðþota SAS. Fyrsta SAS vélin af þessari gerð var skirð Snorri víkingur.
Hin nýja evrópska breiðþota Airbus|
A 300 virðist ætla að seljast vel. Þotan
er byggð í Frakklandi en er samvinna v-|
þýzkra, franskra, hollenzkra, enskra
og spánskra verksmiðja. Evrópulöndin
sameinuðust um flugvélarsmíðina til
þess að veita bandarisku risunum
Boeing og Douglas samkeppni, en þess-
ar verksmiðjur hafa nánast einokað
flugvélamarkaðinn undanfarin ár.
Þessi nýja breiðþota tekur 240 far-
þega og er tveggja hreyfla. Hún er spar-
neytin og lágvær. Möguleiki er að
innrétta þotuna þannig að hún taki 350
farþega í sæti, en slíkt gæti hentað i
leiguflugi.
Mörg flugfélög hafa pantað þessa
gerð af þotum og m.a. SAS, eins og DB
greindi fráá dögunum. SAS fyrirhugar
að nota þotuna m.a. á flugleiðum|
innan Skandinavíu og verður Airbusi
fyrsta breiðþotan á þeim flugleiðum.
Þá er einnig fyrirhugað að Scanair,
dótturfyrirtæki SAS, noti Airbusþotur
þar sem DC 8 þotur þær sem eru í eigu
félagsins nú eru of háværar miðað við
lög sem ganga í gildi á næsta ári.
Alls hafa verið pantaðar 132 Air-
busþotur og verksmiðjan í Frakklandi
hefur þegar afgreitt 61 vél. Air France
hefur 11 slikar þotur i sinni þjónustu og
Lufthansa 7. SAS hefur pantað fjórar.
Airbus var reynsluflogið fyrst árið
1974.
Ný uppf inning:
Plötuspilari án nálar
Hollenzku Philipsverksmiðjurnar plötuspilurum er notaður örmjór lazer- plötuspilarar komi á almennan markað
tilkynntu nú um helgina að þær hefðu geisli á hinum nýju plötuspilara snemma á næsta ári. Því er haldið
framleitt plötuspilara án nálar. Philips. fram að hljómgæði hins nýja plötu-
í stað hinnar hefðbundnu nálar i Framleiðandinn segir að hinir nýju spilara séu meiri cnmcð„gamlalaginu".
Kanadísku selveiðamar að hefjast:
KÓPARNIR MÁLAÐIR RAUDIR
vemdunarmenn handteknir en aðrir fengu yf ir sig grænan
lit veiðimanna
Átta menn voru settir í fangelsi í
Cap-Aux — Meules í Quebec fylki í
Kanada, en mönnunum var gefið
það að sök að trufla hinar árlegu
selveiðar, sem nú eru að hefjast í
Kanada.
Sjö mannanna eru Bandarikja-
menn, en einn Kanadamaður. Þeir
voru handteknir á ísnum úti fyrir
ströndum Nýfundnalands á
föstudag, eftir að deilur brutust út
meðal þeirra er mótmæla seladrápinu
og lögreglu.
Mennirnir komu fyrir rétt á laugar-
dag en kváðust saklausir af öllum
ákærum. Þeim var gert að greiða
tryggingarfé, ættu þeir að sleppa.
Mönnunum er gefið að sök, auk
mótþróa við lögreglumenn í starfi,
að hafa gert tilraunir til þess að mála
skinn kópanna rauð, til þess að gera
þau verðlaus.en bjarga þannig lífi
þeirra.
Lögreglan sagði að mennirnir.sem
eru á aldrinum 19—47 ára væru nú
að gera ráðstafanir til þess að safna
saman tryggingarfé, en hverjum
manni er gert að greiða tvö til þrjú
þúsund dollara í tryggingu.
Selveiðitíminn undan strönd
Labrador hófst á laugardag, .en
slæmt veður og mikill ís kom í veg
fyrir að veiðarnar gætu hafizt eins og
fyrirhugað hafa verið. Sex kana-
dísk selveiðiskip og fjögur norsk bíða
þess að veðrið lægi, þannig að hægt
sé að hefja veiðarnar. ,
Greenpeacemenn eru einnig
komnir á staðinn, en ekki er vitað til
hvaða aðgerða þeir grípa til þess að
reyna að koma í veg fyrir
selveiðarnar.
Liðsauki lögreglumanna hefur
verið sendur á staðinn til þess að vera
viðbúnir ef í odda skerst milli
verndunarmanna og veiðimanna.
Samkvæmt síðustu fréttum réðst
hópur reiðra veiðimanna á mótmæl-
endur og blaðamenn er þeir komu á
flugvöllinn á Cap-Aux-Melues og
sprautuðu grænni málningu yfir
hópinn, þannig að málning er frjáls-
lega notuð.
veiðimaður drepur hörpuselskóp á I
Lim við strendur Nýfundnalands. |
;sar veiðar valda árlega miklum
imnaliirn #1 vr«vprnHiinnrmqnna