Dagblaðið - 12.03.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979.
Erlendar
fréttir
REUTER
Reyndi aðdrepa
föðursinníárekstri
Ungur ítali á Sikiley gerði tiiraun til
þess að drepa föður sinn í árekstri í
gær. Hann ók bíl sínum inn í sendibíl,
sem faðir hans ók. Lögreglan sagði að
með þessu hefði hann verið að mót-
mæla vinskap föður síns við konu
nokkra, sem var með föðurnum í
bílnum. Öll þrjú voru flutt ásjúkrahús
og var líðan föðursins slæm.
ÍSRAELSMENN TREGIR
TIL SAMNINGSGERÐAR
—■ Carter íþungu skapi í Jerúsalem
Menachem Begin forsætis-
ráðherra ísraels sagði Carter Banda-
rikjaforseta, sem nú er í ísrael, að
alvarieg vandamál væru í vegi fyrir
friði milli Egypta og ísraelsmanna og
ekki yrði undirritaður friðar-
samningur fyrr en þessi vandamál
hefðu verið leyst.
Forsætisráðherrann kallaði til
stjórnarfundar seint í gærkvöldi til
þess að fjalla um hin nýju friðardrög,
sem Bandarikjaforseti færði með sér.
Begin sagði í ræðu að friðar-
samningurinn yrði að endast um
mannsaldra, e.t.v. alla eilífð.
Carter Bandaríkjaforseti sat
þungbúinn en kyrr undir ræðunni,
en leit ekki einu sinni á forsætis-
ráðherrann meðan hann talaði. Það
er mat sérfræðinga að ræða Begins
hafi verið sérlega hörð, er hann
skýrði afstöðu ísraelsmanna.
Carter og Begin áttu langar og
erfiðar viðræður í gær og er engu
hægt að spá um útkomu friðar-
viðræðnanna á þessu stigi. Forsætis-
ráðherrann talaði biturlega um út-
rýmingu sex milljóna gyðinga á
nasistatimanum og sagði að ísrael
gerði allt sem i rikisins valdi stæði til
þess að vernda líf og öryggi
þegnanna.
Bandarikjaforseti var fölur og
virtist þreyttur eftir erfiðar viðræður
við Sadat Egyptalandsforseta og
síðan enn erfiðari við Begin. Hann
virtist vera í þungu skapi er hann
hlýddi á Begin. Hann kom til
Jerúsalem á laugardag með
samningsdrögin og breytingatillögur
Egypta. Carter hafði lagt samnings-
drögin fyrir Begin, meðan hann var i
Washington og ísraelsþing hafði
samþykkt drögin.
Carter svaraði Begin siðan í ræðu,
þar sem hann sagðist ekki telja
vandamálin eins erfið úrlausnar og
Begin. Hann ítrekaði stuðning
Bandarikjastjórnar við ísrael.
Talið er að Cyrus Vance fari til
Kairó ef svar ísraelsstjórnar verður
ekki algerlega neikvætt, en fari svo
mun hann verða kyrr i Jerúsalcm
með fórsetamim
Israelsstjórn heldur annan fund í
dag, til þess að taka endanlega
ákvörðun um afstöðu stjórnarinnar
til samninganna. Carter forseti
verður viðstaddur fundinn. Enn er
óvíst hvenær Bandaríkjaforseti
heldur heim.
Carter og Begin.
9
\
✓
Nígeríustjórn reynir
að koma á sættum
milli Uganda og
Idi Amin Ugandaforseti er hér með cinni eiginkvenna sinna, „Sjálfsmorðs-
Söru", en Sara þessi er nú 23 ára gömul. Amin hefurgert hana að herforingja i
her sínum og stýrir hún liði gegn innrásarher Tanzaníumanna og útlægra
Ugandamanna.
Tanzaníu
frá innihaldi hennar. Idi Amin hefur
sagt að hann semji ekki beint við
Nyerere meðan herliðið fráTanzaniu et
enn innan landamæra Uganda. Talið er
að ef samningaviðræðum verði, fari
þær fram í óháðu landi.
Einingarsamtökum Afríkuríkja mis-
tókst í síðustu viku að koma á
samningaviðræðum milli hinna
stríðandi bióða.
Leiðtogi Nígeríustjórnar Olusegun
Obasanjo hefur sent Idi Amin Uganda-
forseta og Nyerere Tanzaníuforseta
orðsendingu þar sem þeir eru hvattir til
þess að binda enda á stríðið, sem nú
geisar milli Ugandamanna og innrásar-
liðs frá Tanzaníu.
Ugandaútvarpið skýrði frá
orðsendineunni en ereindi ekki nánar
Khomeini dæmigerður
fulltrúi karlaveldis
— mótmæli kvenna í íran halda áfram
Konur í íran halda áfram mót-
mælum sínum gegn fyrirskipunum
Khomeinis trúarleiðtoga um að þær
skuti klæðast hefðbundnum kvenna-
klæðnaði, siðum kufli þar sem andlit er
að mestu hulið.
Farin verður mikil mótmælaganga í
dag og hafa konurnar beðið Bazargan
forsætisráðherra um að yeita sér vernd
meðan á göngunni stendur. Fram að
þessu hafa öfgasinnaðir múhameðs-
trúarmenn hleypt göngunum upp, m.a.
með því að skjóta upp í loftið.
Þessi andstaða kvennanna gegn
kufiunum er einskonar prófsteinn
hinnar nýju trúarstjórnar í íran. Hin
þekkta bandariska kvenrétttindakona
Kate Millett er nú i Teheran. Hún hélt
því fram á blaðamannafundi þar að
lýðræði og lýðræðislegri stjórnarskrá
væri ógnað og lýsti Khomeini sem
dæmigerðum fulltrúa karlaveldisins.
Khomcini trúarleiðtogi á ekki upp á
pallborðið hjá mörgum írönskum kon-
um í dag. Talið er að nú reyni mjög á
styrk hinnar nýju stjórnar í íran, en
margir eru henni andsnúnir vegna
strangra trúarhefða.
nyja línan f ra Alafossi
m ^llafossbúöin
VESTURGOTU 2 - SIM113404