Dagblaðið - 12.03.1979, Side 12
12
Eigum nú fyrirliggjandi ,
25 og 30 hestafla j
Yamaha - snjósleðana j
<
Byggung - Kópavogi
Fundur verður haldinn með 3. bygg-
ingaráfanga mánudaginn 12. marz kl.
20.30 aðHamraborg 1 3. hæð.
Mætið öll stundvíslega.
Stjómin
HEIMILIS-
ELDAVÉLIN
I er landsþekkt islenzk fram-
leiðsla.
Frá stofnun hafa veríð fram-
leiddar um 60 þúsund eldavél-
ar.
Þrjár gerðir eru fáanlegar:
Gerð E, frístandandi, 90 cm
borðhæð.
Gerð HE, fyrir háan sökkul.
Innbyggingarsett, borðhella og
ofn.
Allar fáanlegar með klukku-
baki, grilli og i 6 Rafha-litum.
viðurkennd
varahluta- og viðgerðarþjónusta
sími 84445 og 86035
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979.
Lá við handalögmálum
— milli tveggja stjómarmanna félagsins
Þarna hefur fundarstjórinn Guðjón B. Baldvinsson náð hljóðnemanum af
Marínó L. Stefánssyni formanni félagsins en til nokkurra stimpinga kom milli
þeirra.
Það var heitt í kolunum á fram-
haldsaðalfundi NLFR i Austurbæjar-
bíói í gær, og gekk það svo langt að
til nokkurra stimpinga kom milli
tveggja stjórnarmanna. Atvikið átti
sér stað er stjórnarformaður NLFR
Marinó Stefánsson var að tala í
hljóðnemann, og hafði stungið upp á
Huldu Jensdóttur sem fundarstjóra í
stað Guðjóns B. Baldvinssonar. Reis
Guðjón þá úr sæti sínu og hugðist
taka hljóðnemann af Marinó í þeim
tilgangi að koma á framfæri „áríð-
andi tilkynningu”. Marinó hélt sem
fastast og kom þá til nokkurra stimp-
inga þar til Marinó lét hljóðnemann
af hendi. Var greinilegt að hinum al-
' menna fundarmanni þótti nokkuð
langt gengið með þessu atviki og
mátti heyra hneykslunarraddir viða í
salnum.
Á fundinum voru nálægt 300
manns og skiptist sá flokkur mjög
greinilega í tvo hópa Annars vegar
voru stuðningsmenn Marinós og hins
vegar stuðningsmenn Guðjóns og ný-
liðanna í félaginu.
Aðalefni fundarins var að kjósa 32
fulltrúa á aðalfund Náttúrulækn-
ingafélags íslands. Voru kjörseðlar
afhentir í anddyri Austurbæjarbíós
áður en fundurinn hófst og var nú
meira skipulag á þeim hlutum en á
fundinum i Háskólabíói, enda hafði
sú framkvæmd verið gagnrýnd mjög.
Fundurinn hófst síðan á því að
lesin var upp fundargerð fundarins í
Háskólabíói. Komu strax fram gagn-
rýnisraddir á fundargerðina, bæði
frá Marinó og Huldu Jensdóttur.
Þegar Marinó talaði öðru sinni varð
fyrrgreint atvik milli hans og
Guðjóns. Mátti þá hverjum fundar-
manni ljóst veraað litlir kærleikar
voru með þessum tveim stjórnar-
mönnum félagsins.
Síðan var gengið til kosninga
um fundargerðina og hún samþykkt
með 181 atkvæði gegn 110. Að þess-
ari kosningu lokinni ítrekaði Marinó
tillögu sína um, að Hulda Jensdóttir
yrði kosin fundarstjóri. „Mér finnsl
það ekki nema sanngjarnt að við fá-
um að ráða fundarstjóranum núna
og fundarstjórn Guðjóns var heldur
ekki til neinnar fyrirmyndar.” Kom
nokkurt hik á fundarstjórann við
þetta vantraust en hann tók siðan af
skarið og sagði að óþarfi væri að
bera þetta upp strax. Til þess kom
svo aldrei á fundinum, og gegndi
Guðjón embætti fundarstjóra út
fundinn.
Auglýsti nú Guðjón að gengið
skyldi til kosninga um fulltrúana 32.
Á meðan á kosningu stóð talaði Pét-
ur Pétursson útvarpsþulur og sagði
m.a. ekki þætti gott að efna til
kirkjuþings með því að hrekja burt
lærisveinana og lagði til að nægilegur
fjöldi hinna öldnu forvígismanna
yrði kosinn til að tryggja samhengi i
starfi félagsins. Reis nú upp Hulda
Jensdóttir og gagnrýndi mjög fund-
arstjóra, sagðist ekki hafa heyrt hann
auglýsa eftir kjörgögnum og dyrum á
fundarsalnum hefði ekki verið lokað.
Hafði þessi gagnrýni sín áhrif og
voru kjörgögn afhent fundarstjóra
og dyrunum lokað. Ekki vannst tími
til að telja atkvæði á fundinum og
voru því teknir fyrir aðrir dagskrár-
liðir. Mestar urðu umræður um
reikninga félagsins, og var tillaga
Marinós og Björns L. Jónssonar um
„krítiska endurskoðun reikning-
anna” felld með 161 atkvæði gegn
82. í lok fundarins var gjaldkeri fé-
lagsins, Guðjón Baldvinsson, ítrekað
spurður, hvaðan peningar hefðu
komið til að greiða gjöld 180 nýrra
félaga sem aldrei hefðu gengið í fé-
lagið. Færðist Guðjón undan að
svara því og sleit fundi. Skoðanir
manna að fundi loknum voru að
vonum mjög skiptar. Reynir Ár-
mannsson sagði við blaðamann DB,
að þetta væri framhaldskabarett og
Egill Ferdinandsson endurskoðandi
sagði, að þessi fundur væri ekki síður
löglaus en hinn. Einar Logi Einars-
son, sem náði kosningu í stjórn fé-
lagsins, var hins vegar hinn ánægð-
asti en sagði að eftir ætti að reyna á,
hvort Marinó kallaði saman stjórnar-
fund. Sagði hann að tillagan um að
nýr fundarstjóri yrði kosinn hefði
verið út i hött og því ástæðulaust að
bera hana upp.
Nokkrir fundarmanna samþykkja fundargerð fyrri fundar. i þeim hópi má
m.a. sjá lyftingakappann Skúla Óskarsson og Karl Sighvatsson hljómlistar-
mann en hann var einn þeirra sem stóð fyrir smölun nýrra félagsmanna.
DB-mynd Bjarnleifur.
t
Heitt í kolunum á framhaldsaðalf undi NLFR:
MICKIE GEE SLÆR HQMSMET
í PLÖTUSNÚNINGI í DAG
„Heilsan er ekki svo slæm, en ég
væri að skrökva að þér ef ég segðist
ekki vera svolítið syfjaður,” sagði
Mickie Gee plötusnúður er blaðamaður
og Ijósmyndari litu við hjá honum i
Óðali í gær. í dag kl. 15 mun hann slá
heimsmet í plötusnúningi en hann
hefur verið að síðan 22. janúar sl. Eru
því liðnar 7 vikur í dag frá því hann hóf
snúninginn. Ekki ætlar hann þó að láta
staðar numið alveg strax heldur hyggst
hann halda áfram plötusnúningum um
óákveðinn tíma.
Tilgangurinn með þessu er sá að
safna peningum fyrir gleymd börn og
sagðist hann vonast til að geta safnað
um 6 milljónum. Peningarnir munu
síðan renna til Lyngáss, en það er heim-
ili fyrir vangefin börn. Verður þeim
varið m.a. til húsgagnakaupa fyrir
staðinn og annarra endurbóta.
Hann kvaðst mjög ánægður með
undirtektir fólks og hefði t.d. starfs-
fólk Landsbankans safnað hálfri millj-
ón króna. Þó kvaðst hann hafa orðið
fyrir dálitlum vonbrigðum með undir-
tektir hinna stærri fyrirtækja á land-
inu.
„Þau eru einmitt aðilinn sem búast
hefði mátt við mestu af, en sú varð þvi
miður ekki raunin,” sagði hann.
Okkur lék forvitni á að vita hver
færði honum hrein föt og mat.
„Hér uppi er eldhús og þar fæ ég að
borða. Svo sendi ég fötin mín í þvotta-
húsið og þeir koma með þau hingað,”
sagði hann.
Við höfðum frétt að John Lewis sem
vann sem plötusnúður á Óðali um tíma
væri einnig byrjaður að snúa plötum i
gríð og erg og hygðist slá nýtt heims-
met. Við spurðum Mickie álits á þessu
og kvaðst hann ekki vita til þess að
Lewis gerði þetta í neinum öðrum til-
gangi en að hnekkja nýju heimsmeti
sínu. Engin góðgerðarstarfsemi lægi
þar að baki.
Hvers konar tónlist ætli plötusnúður
hafi svo mest gaman af að spila?
„Diskótónlist i vinnunni,” sagði
hann, „en svona fyrir sjálfan mig þá
■hef ég mest gaman af að spila svokallað
light blues.”
Og hvað tekur svo við eftir að heims-
metið er sett?
„Alveg örugglega frí,” sagði Mickie
og brosti. Hann hefur mikinn hug á að
skreppa til Suður-Afríku, en hefur þó
ekki alveg gert það upp við sig ennþá.
En Englendingurinn Mickie segist eiga
íbúð í heimalandi sinu og þangað stefni
hugurinn einnig.
RK.
Þaö er svolítið skjálfhentur plötu-
snúöur sem skiptir hér um plötu á
fóninum. Ljósm. Hörður.