Dagblaðið - 12.03.1979, Síða 18
Barnaog
unglingaskrifboroin
Ódýr, hentug og falleg.
Gott litaúrval
Sendum hvert á land sem er.
STIL-HUSGOGN
AUDBREKKU 63 KOPAVOGI
iiMI 44600
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979.
UVERP00L STEFNIR A SIGUR
í DEILDA- OG BIKARKEPPNI
— Eina liðið, sem tryggt hef ur sér rétt í undanúrslit bikarkeppninnar.
Sló bikarmeistara Ipswich út á laugardag
Evrópumeistarar Liverpool hafa
tekiA stefnuna á sigur bæði í deild og
bikar á Englandi. Á laugardag sigr-
uðu þeir bikarmeistgra Ipswich á
Portman Road í Ipswich með marki
Kenny Dalglish — og í 1. deildinni
Itcfur liðið örugga forustu, forustu
sem hinir leikreyndu leikmcnn Liver-
pool gefa vart frá sér. Eftir sigurinn á
Ipswich er Liverpool eina liðið, sem
tryggt hefur sér rétt í undanúrslit
ensku bikarkeppninnar. — Jafntefli
varð í öðrum leikjum bikarsins á
laugardag og það kemur því ekki í
Ijós fyrr en nú í vikunni hvaða lið
verða ásamt Liverpool í undanúrslit-
um. Engan veginn'er þó vísl að það
skýrist allt saman. WBA og Soulh-
ampton eiga enn eftir að gera út um
hvort liðið leikur gegn Arsenal á
heimavelli í sjöttu umferð.
Við skulum snúa okkur strax að
því að lita á úrslitin í bikarkeppninni
á laugardag — þeir leikir voru mcst i
sviðsljósinu.
5. umferð
WBA—Southampton 1 — 1
6. umferð
lpswich—Liverpool 0—1
Tottenham—Man. Utd. 1 — 1
Wolves—Shrewsbury 1 — 1
Lið Evrópumeistaranna var eins
skipað í Ipswich og i síðustu leikjum
liðsins — Emlyn Hughes vinstri bak-
vörður og fyrirliði vegna meiðsla
Alan Kennedy, David Johnson mið-
herji, en David Fairclough og Steve
Heighway ekki valdir. Hjá lpswich
var skarð fyrir skildi — miðverðirnir
sterku, Kevin Beattie og Alan Hunter
gátu ekki leikið vegna meiðsla og
tveir tvitugir strákar miðverðir,
Butcher og Osman.
Leikurinn var mjög jafn í fyrri
hálfleiknum — Ipswich heldur meira
í sókn án þess verulega reyndi á Ray
Clemence i marki Liverpool. Hann
varði þó snilldarlega frá Hollend-
ingnum Muhren — og vel frá Paul
Mariner og Eric Gates. Hinum megin
varði Paul Cooper mjög vel frá
Kenny Dalglish. Þá átti Jimmy Case
hörkuskot yfir.
í síðari hálfleiknum náði Liverpool
frumkvæðinu og K. Dalglish skor-
aði snilldarlega á 52. mín. Það var
eftir sendingu frá Case og þulir BBC
sögðu, að slíkt mark hefði enginn
getað skorað nema Dalglish. lpswich
lék undan snörpum vindi í síðari hálf-
leiknum en tókst ekki að nýta sér það
i kuldanum á Portman Road. Leik-
nienn Liverpool gáfu ekki þumlung
eftir og Clemence var öryggið sjálft í
markinu. Þó fékk Mariner dágott
færi en spyrnti framhjá — og hinum
megin misnotaði Johnson auðvelt
færi. Sigur Liverpool var þvi stað-
reynd — en segja má að heppnin hafi
ekki beint fylgt Ipswich, einkum í
fyrri hálfleiknum, þegar liðið lék vel.
Emlyn Hughes átti þá í erfiðleikum
með Woods. En þegar á heildina er
litið var l.iverpool sterkara liðið --
og Ipswich cr þvi úr i bikarkeppninni.
I.iðið sigraði i fyrsta skipli i bikar-
keppninni sl. vor.
Vann þá Arsenal i úrslita-
leiknum og hafði mikla yfirburði.
Það kom á óvart i Ipswich á laugar-
dagsmorgun að fimm af leikmönn-
um félagsins voru settir á sölulista.
Þar er eitthvað meira en litið að ske.
Liðin á laugardag voru þannig
skipuð: Ipswich; Cooper, Burley,
Osman, Butcher, Mills, Wark,
Thyssen, Muhren, Woods, Mariner
og Gates (Brazil í síðari hálfleik).
Liverpool; Clemce, Neal, Thompson,
Hanson, Hughes, McDermott, Case,
Ray Kennedy, Souness, Dalglish og
Johnson. Meðal þeirra sem settur var
á sölulista Ipswich, er Roger Os-
borne, leikmaðurinn sem skoraði
sigurmark Ipswich gegn Arsenal i
fyrravor.
Tottenham brást í
síðari hálfleik
Leikmenn Tottenham byrjuðu vel
gegn Manch. Utd. á White Hart Lane
í Lundúnum á laugardag. Voru betra
liðið i fyrri hálfleiknum, ákaft hvattir
af 51.800 áhorfendum. Algjörlega
uppselt á leikinn og þúsundir fyrir
utan. Á 28. mín. náði Tottenham for-
ustu. Steve Perryman tók auka-
spyrnu — gaf inn i vítateig United og
þar tókst minnsta leikmanninum á
vellinum, argentinska heimsmeistar-
anum Osvaldo Ardiles að skalla í
mark. Hann lék nú framar en áður —
eða eftir að hann skoraði tvö mörk
gegn Derby County fyrra laugardag.
Fyrstu mörk hans i ensku knattspyrn-
unni. Auk þess skall hurð nærri
hælum hjá leikmönnum Manch. Utd.
þegar McAllister átti skot í þverslá —
og Chris Jones sendi knöttinn i mark
United. Það var hins vegar dæmt af
vegna rapgstöðu.
i siðari hálfieiknum varð hins veg-
ar algjör breyting á leiknum. Manch.
Utd. náði frumkvæðinu og sótti oft
stíft. Mickey Thomas tókst að jafna á
60. mín. eftir hornspyrnu, sem dæmd
var, þegar Kendall, markvörður
Tottenham, varði hreint snilldarlega
skalla frá Steve Coppell. Það var
fyrsta mark Thomas eftir að hann var
keyptur til United frá Wrexham.
Lokakafla leiksins sótti Manch. Utd.
og þá munaði oft litlu að liðinu tæk-
ist að skora sigurmark. Það varð hins
vegar ekki og liðin leika á ný á Old
Trafford á miðvikudag. Það getur
orðið tvísýnn leikur — Tottenham
leikur oft betur á útivöllum en á
White Hart Lane og Manch. Utd. er
með svipaðan árangur á Old Traf-
ford og á útivöllum í vetur. Þá má
geta þess, að skozki landsliðsmið-
herjinn, Joe Jordan, var varamaður
hjá United á laugardag. Hann hefur
ekki lcikið með liðinu síðan hann
slasaðist i landsleik með Skotum i
haust.
Shrewsbury
hélt sínu
Litla liðið Shrewsbury, sem stefnir
Gordon McQueen, nr. fimm á myndinni að ofan, var mjög sterkur í vörn Manch. Utd. á laugardag — en missti þó1
Osvaldo Ardiles frá sér, þegar Argentínumaðurinn skoraði eina markTottenham. Myndin er úr viðureign United í
Bristol fyrra laugardag, þegar Manch. Utd. vann Bristol City. Nr. 9 er Joe Royle.
að því að verða sjötta liðið úr 3.
deild, sem nær þeim árangri að
komast i undanúrslit ensku bikar-
keppninnar, stóð sig vel á laugardag-
inn og náði jafntefli gegn Úlfunum í
Wolverhampton að viðstöddum 41
þúsund áhorfendum. Leikurinn var
lengi vel slakur og fátt markvert
skeði — en hins vegar varð spenna
mikil síðustu tíu mínútur leiksins.
Loks á 80. mín. tókst Úlfunum að
skora — Bill Rafferty og þá virtist
fokið í flest skjól hjá Shrewsbury,
liðinu, sem sló Manch. City út í
keppninni. En leikmenn liðsins gáf-
ust ekki upp. Hættulegasti framherj-
inn, Paul MaGuire lék inn í vitateig
Úlfanna á 86. mín. Peter Daniel
hafði ekki önnur ráð en brjóta á
honum. Vítaspyrna, sem Ian Atkin
skoraði örugglega úr. Jafntefli og
liðin leika á ný i Shrewsbury á
þriðjudag. Örstutt er á milli borg-
anna i Miðlöndunum.
LeikmennWBA
þreyttir
Leikmenn WBA voru ekki sjálfum
sér líkir i leiknum úr 5. umferð gegn
Dýrlingum Southampton i West
Bromwich á laugardag. Þreyttir eftir
leikinn harða við Rauðu stjörnuna,
Belgrad, í Evrópukeppninni fyrr i
vikunni. Fimm meiddir eða veikir en
léku þó. Dýrlingarnir náðu strax
frumkvæðinu í leiknum ogá2l. min.
skoraði Phil Boyer. Fékk knöttinn
eftir sendingu frá Williams alveg frir.
Mikil mistök fyrirliða WBA, John
Wile.
Leikmenn WBA vöknuðu upp við
vondan draum og fóru að sýna tenn-
urnar. Alister Brown jafnaði á 31.
min. og spenna varð mikil. Fleiri
mörk voru ekki skoruð — og þar
voru markverðirnir i aðalhlutverk-
Kenny Dalglish — skoraði snilldar-
lega fyrir Liverpool á laugardag.
um, einkum þó Gennoe hjá Dýrling-
unum, en Godden i marki WBA
varði einnig vel. Liðin leika aftur á
mánudag í Southampton og það
liðið, sem sigrar, leikur við Arsenal á
heimavelli i sjöttu umferð. Næsta
laugardag leikur Southampton við
Nottingham Forest á Wembley i úr-
slitaleik enska deildabikarsins.
-hsím.
Skozka bikarkeppnin:
CELTIC HEFUR
MÖGULEIKA Á AÐ
K0MAST í
UNDANÚRSLITIN
—St. Mirren og Dundee Utd. halda
sínu striki í 1. deildinni
Glasgow Celtic gerði jafntcfli í
Aberdeen á laugardag í átta-liða úr-
slitum skozku bikarkeppninnar. Fær
því möguleika til að leika á ný við
Aberdeen á heimavelli nú í vikunni.
Þetta var harður og tvísýnn leikur.
Johnny Doyle náði forustu fyrir
Celtic en Joe Harper jafnaði fyrir
Abcrdeen. Bæði mörkin voru skoruð
í fyrri hálfleik.
Rangers, Partick Thistle og
Hibernian tryggðu sér rétt i undanúr-
slit keppninnar á laugardag. Úrslit
urðu þessi:
Aberdeen-Celtic 1 — 1
Dumbarton-Partick 0—1
Hibernian-Hearts 2—1
Rangers-Dundee 6—3
Rangers komst í 4—0 í leiknum
gegn Dundee úr 1. deild . Sandy Jard-
ine skoraði úr vítaspyrnu, síðan Alex
McDonald, Gordon Smith og Tom
Forsyth. Þá tókst Stewart McLaren
að skora tvívegis fyrir Dundee, en
Rangers komst i 6—2 með mörkum
Bobby Russell og Dave Cooper áður
en Jim Shirra skoraði þriðja mark
Dundee.
Tveir leikir voru háðir í úrvals-
deildinni.
Urslit:
Dundee Utd.-Morton 4—1
Molherwell-St. Mirren 0—3
Efstu liðin sigruðu þvi bæði og
hafa því náð þriggja stiga forskoti á
Aberdeen og Rangers. Hins vegar
hafa Dundee Utd. og St. Mirren
tapað 19 stigum — Celtic, sem er i
þriðja neðsta sætinu, hins vegar ekki
nema sautján stigum. McGarvey
skoraði öll þrjú mörk St. Mirren i
Motherwell á laugardaginn.
Staðan í þannig: úrvalsdeildinni er nú
Dundee Utd. 23 10 7 6 34-21 27
St. Mirren 23 li 5 7 30-21 27
Aberdeen 23 7 10 6 35-24 24
Rangers 21 8 8 5 27-21 24
Partick 21 8 7 6 22-20 23
Hibernian 22 6 10 6 25-25 22
Morton 23 7 8 8 28-35 22
Celtic 19 8 5 6 27-21 21
Hearts 21 6 5 10 28-41 17
Motherw. 23 4 5 14 22-44 13