Dagblaðið - 14.03.1979, Síða 6
NÁMSKEIÐ
HEIMILIS-
IÐNAÐARFÉLAGSINS
Hnýtíngar: 24. apríl — 22. maí.
Uppsetning vefja: 28. maí — 6. júní.
Knipl: 17. marz — 26. maí.
Halasnælduspuni: 21. marz — 2. maí
Þjóðbúningasaumur: 21. marz — 16. maí.
Barnavefnaður: 22. marz — 8. maí.
Innritun og uppl. í
ÍSLENZKUM HEIMILISIÐNAÐI
Hafnarstrœti 3. Sími 11785.
Hitaveitusljóri:
Hitaveita Þorlákshafnar óskar eftir að ráða
hitaveitustjóra. Starfsvið: verklegt eftirlit og
umsjón með daglegum rekstri. Umsóknum
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
skal skilað til undirritaðs fyrir 31. marz nk.
Svaitarstjörí ÖHushrapps
Saivogsbraut 2
Þoriikshöfn
HLIÐAR
VETRARINS
Byrjendaskíði, 1.120 cm, verð 7.650.
Skiðasett með öryggisbindingum, 1. 80—90
cm, verð 22.500.
Smelluskíðaskór, verð 12.500.
Skíði, 140—180 cm, öryggisbindingar fyrir
börn og fullorðna, stafir og fl. og fl.
Hjá okkur er alltaf útsala, sendum í póstkröfu.
SPORTMARKAÐURINN
Grensásvegi 50, sími 31290. — Opiö kl. 10—6.
Athugið. Tökum skíðavörur í umboðssölu.
Sjúkrahús
á Akureyri
Tilboð óskast í að ljúka frágangi skurðdeildar
o.fl. í nýbyggingu við Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri.
Verkinu skal að fullu lokið 15. apríl 1981.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri og
skrifstofu bæjarverkfræðings á Akureyri gegn
75.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
þriðjudaginn 24. apríl 1979, kl. 11,00, fyrir-
hádegi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Æ\
í\Sfí
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979.
Kínverjar ásak-
aðir um fjölda-
morð borgara
— íVíetnam af Hanoistjórninni — Kínverjar segjast fara
vel með óbreytta borgara
Vietnamar ásökuðu Kínverja í
morgun um fjöldamorð á óbreyttum
víetnömskum borgurum. í
tilkynningu víetnamska utanrikis-
ráðuneytisins sagði að Kínverjar
murkuðu lífíð úr fólki í víetnömskum
þorpum og hentu handsprengjum í
fylgsni fólksins og kveiktu í kofunv
þess.
Engin staðfesting óhlutdrægra
aðila hefur fengizt á þessum
fregnum. Kinverjar hafa aftur á móti
lýst því yfir að þeir fari vel með
óbreytta víetnamska borgara og hafa
sýnt myndir þar sem hermenn hjálpa
til við lagfæringar og gefa fólki að
borða í víetnömsku þorpi.
Víetnamar segjast hafa fellt meira
en 45 þúsund kínverska hermenn en
hafa engar tölur gefið um eigið
mannfall. Þá saka þeir Kínverja um
að tefja brottflutning herliðs síns af
ásettu ráði.
Þessi litla teiknimynd vls»r til innrásar Kinverja f Víetnam, en I texta með myndinni segir að Kínverjar hafi með
reykmerkjum sótt um að fá að halda Ólympiuleikana 1984.
Fæddi barn sitt
meðvitundarlaus
— er nú látin án þess að sjá barnið
Þrjátíu og níu ára kona sem fæddi hennar hefur ekki verið gefið upp Konan var flutt á sjúkrahús 27.
dóttur í síðustu viku, meðvitundarlaus, vegna óska ættingja. febrúar sl. vegna þess að hún fékk
dó í gær, án þess að komast til Fæðing bamsins við þessar heilablóðfall. Hún var þá þegar
meðvitundar. aðstæður hefur verið kölluð lítið meðvitundarlaus og lézt án þess að lita
Kona þessi var búsett i Jerseyborg í kraftaverk af læknum, en litlu barn sitt augum.
New Jersey í Bandaríkjunum. Nafn stúlkunni heilsast vel.
Idi Amin:
Idi Amin Dada Ugandaforseti
virðist ekki dauður úr öllum æðum,
þótt verulega hafi þrengt að honum að
undanförnu. Forsetinn flutti ræðu í
gær í Kampala, þar sem hann sagði að
barátta herliðs Uganda við innrásar-
liðið frá Tanzaníu væri góð æfing fyrir
framtíðarbaráttu hersins gegn ísrael
við hlið palestínskra skæmliða.
Ugandaforseti sagði það skvldu
Ugandamanna að berjast við hlið
Palestínumanna í því skyni að frelsa
Palestínu.
Það kom fram í Ugandaútvarpinu
áður en Amin flutti ræðu sína að
ræðan táknaði það að palestínskir
skæruliðar berðust nú við hlið Uganda-
manna gegn Tanzaníumönnum í
suðurhluta Uganda. Amin er enn ekki af baki dottinn.
BARÁTTAN GEGN TANZANÍU
GÓÐ ÆFING ÁÐUR EN HALD-
IÐ VERDUR GEGN ÍSRAEL