Dagblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979.
13
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
9
mdu enda
irewsbury
Shrewsbury3-lí
gærkvöldi.
i gerðu jafntef li 1-1
2. deild
Bumley — Luton 2—1
NottsCounty — Sheff. Utd. 4—1
3. deild
Hull — Colchester 1—0
Sheff. Wed. — Brentford 1—0
Walsall — Lincoln 4—1
4. deild
Barnsley — Scunthorpe 4—1
iBradford City — Reading 2—3
|Crewe—Newport 0—1
Hartlepool — Stockport 1—3
Huddersfield — Boumemouth 2—1
Northampton — Port Vale 1—0
Rochdale — Grímsby 2—5
York — Halifax 2—0
Liverpool og Everton skildu jöfn á
Anfield í gærkvöld, 1 — 1. Kenny
Dalglish náði forustu fyrir Liverpool —
17. mark hans í vetur. Þegar langt var
liðið á síðari hálfleik jafnaði Andy
King fyrir Everton.
Og kunnur leikmaður var seldur í
gær — og leið hans lá niður á við.
Duncan McKenzie var seldur frá
Chelsea, næstneösta liðsins i 1. deild
til Blackbum neðsta liðsins í 2. deild
fyrir 120 þúsund pund. McKenzie hóf
feril sinn með Nottingham Forest,
síðan lá leið hans til Leeds, þaöan til
Anderlecht i Belgíu síðan Everton, þá
Chelsea og nú Blackbum. Um hæfi-
leika McKenzie hefur enginn efazt —
en þeir hafa aðeins blómstrað hjá
Forest. Alls staðar annars staðar hefur
McKenzie mistekizt.
70 leikmerai hafa til-
fébgaskipti nú í vetur
gurlás Þorleifsson tilkynnti ígær félagaskipti fVíking.
Aldrei verið meiri hreyf ing á leikmönnum
félagaskipti yfir í ÍA, báðir mjög efnilegir
leikmenn.
En Skagamenn misstu síðastliðið haust
tvo af sínum beztu mönnum, þá Karl
Þóröarson og Pétur Pétursson. En
Víkingar og Skagamenn eru ekki þeir einu
sem hafa fengið leikmenn til liðs við sig.
Valsmenn fengu í vetur Ólaf Danivalsson,
hinn leikna FH-ing og landsUðsmann.
Valsmenn hafa engan mann misst og
verða því áreiðanlega erfiðir viðureignar
fyrir önnur félög í 1. deild í sumar.
Fram hefur og fengið góðan liðsstyrk.
Marteinn Geirsson kom síðastUðið sumar
heim úr atvinnumennsku og hann mun í
sumar leika með Fram. Þá hefur
miðvörðurinn úr FH tilkynnt félagaskipti
yfir í Fram, Gunnar Bjarnason, KR-ingar
hafa fengið til Uðs við sig ísfirðinginn Jón
Oddsson. Þá tilkynnti Guðmundur Ingva-
son sig í KR, en fór síðan í Stjörnuna, á-
samt Þorvaldi Þórðarsyni, er gekk úr FH
Orðrómur er um að Magnús Teitsson, úr
FH hyggi á að leika aftur með Stjörnunni.
Oddur Hermannsson hefur gengið í KR úr
Ármanni.
Keflvíkingar fá til Uðs við sig
markakóng 3. deildar síðastliðið sumar,
Guðmund Jens Kristinsson úr Víði. Þá
hefur Þorsteinn Ólafsson, markvörður
tilkynnt félagaskipti í ÍBK eftir dvöl í
Svíþjóð. Hins vegar missti ÍBK landsUðs-
markvörð sinn í vetur, Þorstein Ólafsson.
Einar Þórhallsson, miðvörðurinn úr
BreiðabUk hefur tilkynnt félagaskipti í KA,
Akureyri. En Sigbjörn Gunnarsson, KA
hefur tekið að sér þjálfun Árroðans — og
|mikUl straumur leikmanna frá KA og
Dagsbrún hefur verið yfir í Árroðann.
NýUðar Hauka hafa fengið tvo leikmenn,
Gunnlaug Gunnlaugsson úr FH og Ásgeir
Sverrisson úr Þór.
Það lið er flesta leikmenn hefur misst er
,(BV. Sigurlás Þorleifsson hefur nútilkynnt
jfélagaskipti, áður hafði Karl Sveins. farið
til Svíþjóðar, og orðrómur er, að Tómas
IPálsson hyggist þjálfa Einherja, Vopna-
firði. Sóknartríó þeirra Eyjamanna hefur
þvi farið frá félaginu eins og það leggur sig.
Eyjamenn hafa endurheimt Viðar Elías-
son úr Víking.
En furðulegustu félagaskiptin áttu sér
vafalítið stað í Eyjum. Valþór Sigþórsson,
hinn sterki tengiliður ÍBV, tilkynnti í vetur
félagaskipti úr Tý í Þór. En Valþóri snerist,,
hugur, því nýverið tilkynnti hann að hann
hefði aftur gengið í Tý — erkifendurnir í
Eyjum hafa greinilega bitizt um Valþór.
H.Halls.
Sigurlás Þorleifsson tilkynnti i gær félaga-
skipti úr ÍBV yfir í Viking.