Dagblaðið - 24.03.1979, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. MARZ 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Upplýsingaseðlarnir bárust frá 30 stöðum:
Mosfellssveit — Blönduós
20 þúsund króna munur!
Við höfum gert okkur það til
skemmtunar meira en að um vísinda-
legar niðurstöður sé að ræða að
stilla upp þeim stöðum sem
Þessi glæsilegi Cadillac ’63 er til sölu. Ekinn aöeins 42
þús. mílur. Tilboð, skipti á ódýrari bíl möguleg. Uppl. í
síma 92—3423 Keflavík.
Háseta
vantar á 70 tonna netabát sem
rær frá Grindavík. — Uppl. í
síma 41412.
•MOTOCROSS
MOTOCROSS - MOTOCROSSmm
Vanti þig frábært hjól—þá lestu þettal
t
Af sérstökum ástœðum er
þetta frábœra SUZUKI
RM 370B árg. 77 keppn-
ishjól tilsölu. Hjólið hefur
43 ha mótor auk ýmiss
sérbúnaðar.
Ujóliö er margfatdur sigurvegari í keppni hériendis m.a. á islenzkt met I sand-
spyrnu 6,14 sek.
Verðkr. 1200 þús (nýtt kostar ca kr. lóOOþús.
Upplýsingar
KARL COOPER, VERZLUN
Hamratúni 1, Mosfellssveit — Simi91—66216 Helgarsimi 91—7S23S.
Peugeot504T
automatíc
árg.
1978
Sandbrúnn,
ekinn 21. þ. km.
Sjálfskiptur, aflstýri, afl-
bremsur, útvarp. Rafdrifnar rúöur, snjódekk og sumar-
dekk.
Mazda 121 sport
Verö: 4,3 millj.
Ekinn aðeins
26 þ.km.
Silfurgrár.
Mjög glæsilegur bíll.
upplýsingaseðlar um kostnað við
heimilishald berast frá i röð eftir
kostnaði.
Höfum við flokkað staðina niður í
febrúarkönnuninni og tökum fram
að frá sumum stöðum barst ekki
nema einn seðill og er því aðeins um
meðaitalskostnað einnar fjölskyldu
að ræða. Alls bárust okkur seðlar frá
30 stöðum víðs vegar að auk fjölda
bréfa og er sérlega ánægjulegt hversu
fólk virðist vilja tjá sig um neytenda-
mál enda mikið í húfi.
Efst á þessum viðmiðunarlista er
Mosfellssveit með 29.988 kr. á mann
í fæði og hreinlætisvörur. Eyrar-
bakki kemur næstur með 25.549 kr.
og þá ísafjörður með 24.058 kr.
Að öðru leyti litur listinn svona
út:
Vestmannaeyjar:
Reykjavik:
Mývatnssveit:
Kópavogur:
Patreksfjörður:
Y-Njarðvík:
Hafnarfjörður:
Bolungarvik:
Djúpivogur:
Akranes:
Vogar:
23.148,-
22.028.-
21.890,-
21.362.-
20.657,-
20.101.-
19.883.-
19.674,-
19.106.-
19.050.-
18.790,-
Egilsstaðir:
Hella:
Garður, Gerðum:
Hvolsvöllur:
Stöðvarfjörður:
Höfn, Hornafirði:
Dalvík:
Bildudalur:
Akureyri:
Borgarnes:
Eskifjörður:
Selfoss:
Hveragerði:
Keflavik:
Húsavik:
Blönduós:
18.441.
18.222.
18.169.
18.134,
18.090,
17.768,
17.301,
17.089,
16.658,
16.520,
16.346,
15.987,
15.822,
15.812,
15.420,
11.815,
Dýrt eða ódýrt
fyrir sunnan?
Raddir
neytenda
B.K. Bolungurvík skrifar:
„Vegna skrifa fyrir skömmu um
hvort ódýrara sé að búa á Stór-
Reykjavikursvæðinu eða úti á landi
langar mig til þess að skrifa nokkur
orð.
Þar sem við höfum búið fyrir
sunnan tel ég mig hafa nokkurn
samanburð á hvorum staðnum sé
dýrara að búa og er það tvímælalaust
úti á landi.
Öll matvara er dýrari þar sem
flutningskostnaður o. fl. leggst ofan
á verð vörunnar.
Ástæðuna fyrir því að heimilis-
hald er dýrara fyrir sunnan hjá sum-
um fjölskyldum ég ég vera þá að
meira vöruval er þar og því fleira sem
freistar fólksins þegar það gerir
innkaup.
Aftur á móti er hér frekar litið
vöruval og keypt er hér eingöngu það
- sem þarf til matargerðar, baksturs og
það sem nauðsynlegt er.
Kjötúrval er hér mjög litið,
eingöngu álegg til i loftþéttum um-
búðum og fleira mætti upp telja.
Maður er oftar í vandræðum með
hvað kaupa eigi í matinn vegna þess
hve úrvalið er lítið.”
STEIKTUR FISKUR
MED APPELSÍNUSÓSU
500 g ýsu- eða rauðsprettufiök
salt og pipar
matarolía eða brætt smjörlíki
SÓSAN:
2 msk. smjör
1 lítill laukur
2 stórar appelsínur
1/2 tsk.edik
timian eða merian
steinselja, söxuð, ný eða þurrkuð.
Efni í réttinn kostarca 900 kr.
1. Hreinsið og þerrið flökin og
látið þau í smurt eldfast mót.
Kryddið flökin og smyrjið með mat-
arolíu eða bræddu smjörlíki.
2. Steikið fiskinn í ofni við 200° C
í 20—30min.
3. Búið til sósuna meðan fiskurinn
er að steikjast. Bræðið smjörlíkið í
potti og hitið laukinn í þar til hann er
byrjaður að brúnast. Bætið út i safa
úr einni appelsínu og rifnu hýði af
hálfri appelsinu. Látið suðuna koma
upp á sósunni og bragðbætið hana
með ediki, kryddi og steinselju.
Hellið sósunni yfir fiskinn í mótinu
og skreytið með appelsínubátum.
G0TT ÞETTA MEÐ
BRAUÐSNEIÐARNAR!
Kæri neytendamarkaður.
Um leið og ég sendi þér útgjalda-
seðilinn fyrir febrúarmánuð vil ég
nota tækifærið og lýsa. yfir ánægju
minni og fjölskyldu minnar með þig.
Ég hef ekki áður sent þér útgjalda-
^ Bílamarkaöurínn
Grettisgötu 12-18 - Sími25252.
seðil, enda nýorðin áskrifandi; ég
vona bara að þátturinn lognist ekki
útaf fyrir aldur fram vegna ónógrar"
þátttöku áskrifenda. Þú verður
endilega að ýta við fólki og segja þvi
að það sé ekkert hættulegt að senda
irtínti
OPID
KL. 9-9
Allar skreytíngar unnar
, mönnum.
af fag-1
Ncag Uloitall a.ao.k. ó kvöldia
IflOMEWIXIIH
HAFNARSTRÆTI Simi 12717
útgjaldaseðilinn en aftur á móti geti
það borgað sig á fleiri en einn hátt.
T.d. grein, sem var í blaðinu um
daginn um brauðsneiðarnar, um að
gera að halda áfram að birta nöfn
þeirra fyrirtækja, verzlana og
veitingastaðá alls konar, er okra á
almenningi bæði ljóst og leynt í skjóli
svokallaðrar frjálsrar álagningar.
Hvernig væri að taka næst fyrir
leikföngin? Það er nú aldeilis vel
smurt á þau og almenningur lætur sér
það vel líka, eða það virðist manni.
Það er hagur okkar allra að fá að vita
um óheiðarlega viðskiptahætti, sem
eru búnir að viðgangast allt of lengi.
Birtið nöfnin á þejm sem slíkt stunda
svo við getum sniðgengið þá. Þeir
verða fljötir að láta sér segjast þegar
enginn verzlar lengur við þá.
Með kærri þökk fyrir mig.
I..S. Kópavogi.