Dagblaðið - 24.03.1979, Side 28

Dagblaðið - 24.03.1979, Side 28
Enn breytist staðan í ríkisstjórninni: Framsókn getur sam þykkt láglaunabætur „Að ýmsu leyti væri sanngjarnt, að lægri launin yrðu skoðuð sérstaklega. Ég get hugsað mér breytingu í þá átt, að verðbætur verði minna skertar á þeim. Hugsanlega veröa fluttar breytingartiilögur í þá átt, og það væri ágætt, ef samstaða næst þá," sagði Steingrímur Hermannsson dómsmálaráðherra í viðtaii við DB gær. ,,Ég bind vonir við fund Verka- mannasambandsins,” sagði Stein- grímur, en sá fundur verður siðdegis í dag. „Þakinu á launum var lyft í trássi við okkur, og fengu hinir hærra laun- uðu þvi kauphækkun. ” ,,Ég bind mig ekki fastan við, að verðbótakaflinn verði alveg óbreytt- ur,” sagði Tómas Árnason fjármála- ráðherra. „Til greina kæmi, að lág- launafólkið fengi meiri bætur en aðrir, þótt það kostaði breytingar á verðbótakaflanum,” sagði Tómas og kvað slikt mundu verða í samræmi við fyrri stefnu Framsóknar gagnvart láglaunafóiki. Aðalatriðið væri, að breytingar heföu ekki mikil áhrif á áhrif frumvarpsins sem heildar. Ekki mætti ór þeim áhrifum draga í viður- eigninni við verðbólguna. Menn skyldu hugsa um kaupmátt launa en ekki krónutölur. -HH. LAUGARDAGUR 24. MARZ 1979. Hinn kunni íslandsvinur Mark Wat- son lézt 12. marz sl. í Englandi. Hann var 72 ára að aldri. ísland var hans stóra áhugamál og lét hann fjölmargt gott af sér leiða hérlendis. M.a. má nefna að hann gaf dýraspítalann hing- að til lands og einnig verðmætt mynda- 'safn Collingwoods, sem ferðaðist hér um land og teiknaði. Þá má nefna það að hann gaf fé til uppbyggingar Glaum- bæjar í Skagafirði. -JH. Nöfn þeirra sem létust Konan sem lézt í bílslysinu á Vestur- landsvegi í gær hét Nanna Egils Björns- son. Hún var 64 ára gömul og lætur eftir sig eiginmann. Pilturinn sem drukknaði í Dalvíkurhöfn i fyrradag hét Jóhannes Helgi Þóroddsson og var hann 18 ára gamall. Pilturinn sem lézt í vinnuslysinu í Hrísey í fyrradag hét Vilhjálmur Guðjónsson. Hann var þrettán ára. -GAJ- Mikill fjöldi árekstra — í góða veðrinu í gær Óhemjumikið var um árekstra í góða veðrinu í Reykjavík í gær. Frá því á hádegiog fram til klukkan 18 urðu alls 30 árekstrar í borginni. Lögreglan kunni engar skýringar á þessari skyndi- legu fjölgun áreksu.a nema þá að góða veðrið hefði dregið úr varfærni manna. í einhverjum tilfellum mætti þó sjálf- sagt kenna því um, að ökumenn hefðu blindazt af sólinni. Þá var um miðjan dag í gær ekið á pilt á skellinöðru í Bankastræti en hann slasaðist lítið. Loks var ekið á barn á móts við Klepps- veg 106 um kl. 18 og var það flutt á slysadeild en virtist ekki alvarlega slas- að að sögn lögreglunnar. -GAJ- ^Kaupió\ ,3 TÖLVUR í I* QG TÖLVUUI B AN K ASTRÆTI8 I27§^ Uppstokkun í Framsókn —Ólafur vill hætta formennsku hálf blaðstjóm Tímans hættir „Ég er alveg óþreyttur,” sagði Ólafur Jóhannesson forsætisráð- herra í byrjun fundar i framkvæmda- stjórp Framsóknarflokksins 1 gær. Hann vildi ekkert segja um áform sín, cn aðrir stjórnarmenn voru á því, að Ólafur mundi nú hætta flokksfor- mennsku og væri Steingrímur Her- mannsson líklegastur eftirmaður. Ólafur yrði áfram forsætisráðherra, meðan stjórnin sæti. Var taliö, að ólafur lýsti þessu yfir á miðstjórnar- fundi eftir nokkra daga. Blaðstjórn Tímáns verður einnig stokkuð upp. Rætt er um, að helm- ingur fulltrúa muni fara úr henni, þeir Erlendur Einarsson, Eysteinn Jónsson, Jón Kjartansson, og senni- lega bæði Einar Ágústsson og Ólafur Jóhannesson. Mundu yngri menn koma í þeirra stað, líklega einhverjir úr flokksbroti Eiríks Tómassonar. -HH. „£g er óþreyttur,” sagði Ólafur. Steingrimur Hermannsson, sem að öllum lfkindum verður næsti formaður Framsóknar. DB-myndir Ragnar Th. frjálst, úháð riaghlað Flugfreyjustarfið vinsælt: Umsóknar- eyðublöðin kláruðust Nýlega auglýstu Flugleiðir eftir flug- freyjum — og þjónum — á DC-10 og DC-8 vélar sínar. Dagblaðinu hefur borizt til eyrna að gífurleg ásókn sé í þessi störf, svo mikil að umsóknar- eyðublöðin hefðu klárazt. Sveinn Sæmundsson, blaðafuUtrúi Flugleiða, sagði í samtali við Dagblaðið að umsóknir væru ekki ennþá farnar að berast þannig að ekki væri hægt að segja hve mikU eftirspurnin væri núna. En eftirspumin hefði aukizt mjög veru- lega í þessi störf og bærust jafnan margfalt fleiri umsóknir en hægt væri að sinna. Sveinn sagði að ekki þyrfd að ráða á Boeing 727 eða Friendship vél- arnar. Þar kemur sumarafleysingafólk sem hefur starfað áður hjá fyrirtækinu. Hann sagði að námskeiðin fyrir þessi störfhæfust fljótlega eftir páska. -GAJ- íslandsvinur inn Mark Wat- látinn „Hafísinn stækkar landið” — Norðlendingar hinir rólegustu með landsins forna f janda inni á sér „Flytja burt? Nei, það gerum við ekki. Þetta bara stækkar landið?” sagði VUborg Sigurðardóttir fréttaritari DB í Grimsey um hafísinn sem þar er allt um kring. „ísinn er heldur utar að sjá í dag en í gær,” sagði Vilborg seint í gærdag. „Sjórinn er hreinni við eyjuna, en aftur samfelldari ísbreiða lengra úti. Inn á höfninni er aðeins jaki og jaki en núna er einmitt flugvél á leiðinni með vir sem á að strengja fyrir höfnina til að koma í veg fyrir myiri ís. Bátarnir eru auðvitað allir þar sem þeir hafa verið undanfarna viku, komast hvorki til né frá en ennþá er vel hægt að fljúga. Við emm núbúin að fá olíu þannig að allt það sem okkur vantar er hægt að fá með flugi meðan veður leyfir. Presturinn ætlar meira að segja að koma á sunnudaginn til að messa,” sagði Vilborg. „Við höfum nú áður séð liafísoghann meiri en núna,” sagði Ari Aðalbjörns- son á Þórshöfn.” Lónafjörðurinn er alveg fullur af ís núna en bryggjurnar okkar eru alveg óhultar. Ég held að ísinn sé hættur að reka inn núna þvi mjög lítillvindurer. Von er á Esjunni í dag með fóður- bæti og fleira, við erum alveg orðin fóðurbætislaus. En ég tel hæpið að hún komist inn vegna íss. Ætli vörunum verði þá ekki landað á Vopnafirði og ekið hingað. Ég veit ekki hvort vegurinn er fær en hann hlýtur að minnsta kosti að verða opnaður. Bátarnir liggja allir inni nema hvað einn slapp út á miðvikudag og ætlar hann að gera út austan af fjörðum þar til ísinn hverfur,” sagði Ari. Lítil breyting hafði orðið á ísnum vestan við land síðla dags í gær. Flug- vél Landhelgisgæzlunnar var þá í ískönnunarflugi. Leið var alls saðar greiðfær í björtú. -DS. Siglingaleið fyrir norðan land er fær i björtu Jf

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.