Dagblaðið - 06.04.1979, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Þrír kaupmenn
gera tillögu um
páskamatseðil
Matarinnkaup fyrir stórhátiðir
eins og páskana vefjast fyrir mörgum
af skUjanlegum ástæðum. Sér-
staklega virðist vera erfitt að gera sér
grein fyrir hvað á að hafa í matinn
hátíðisdagana fjóra, sem í hönd fara
og eins hvað eigi að bjóða gestum, en
venjulega er mikið um alls kyns
gestaboð um páskana.
Svo eru þeir sem nota páskana
meira til ferðalaga og afslöppunar og
margir telja að hátíðarhöld á páskum
séu hvergi næri eins íburðarmikil nú
og var hér áður fyrr.
Neytendasíðan sneri sér til þriggja
kaupmanna í Reykjavík og bað þá að
gera tillögur um matseðil fyrir
helgidagana fjóra og útbúa
innkaupalista og áætlað verð.
Miðað var við að fjölskyldan væri
svona fjögurra til fimm manna og að
einhvern hátíðisdaganna kæmu
jafnmargir gestir í mat.
Við leituðum til Björns í Suður-
veri, Hrafns í Kjötmiðstöðinni og
þeirra Jóns Þórs og Þórðar i
Valgarði.
Tillögur þeirra voru nokkuð mis-
jafnlega útfærðar, eins og við var að
búast, en það er álit okkar að les-
endur DB geti dregið nokkurn lær-
dóm af þessu og haft af tillögum
þeirra kaupmannanna viðmiðun.
Þeir hjá Kjötmiðstöðinni riða á
vaðið í dag með nokkuð fullkominn
matseðil og hvernig útbúa á réttina, á
morgun verða þeir félagar Jón og
Þórður með sinn seðil og nákvæman
innkaupalista fyrir helgidagana fjóra
og á mánudag kemur svo Bjöm í
Suðurveri með einfaldan og léttan
matseðil fyrir þá, sem vilja hafa
minni íburð og léttlagaðan mat yfir
hátíðarnar.
Meginefni þess sem til þarf i matseðill páskahelgarinnar frá Kjötmiðstöðinni. Allt sem til þarf kostar um 15—16000
krónur.
Skírdagur:
Fimmtudagsbollur ca.: 2.200 kr.
Steikingar- og undirbúningstími 30
min.
Nautahakk 1980 kr. kg, kindahakk
1210 kr., saltkjötshakk 1210 kr.,
kálfahakk 1267 kr., folaldahakk
V
1150 kr., svínahakk 2280 kr.,
ærhakk910kr.
1/2 kg hakk (700 kr.)
200 g 20% ostur (300 kr.)
175 g sveppir (700 kr.)
2 egg (143 kr.)
2 teskeiðar rasp
1/2 litill hvítlaukur
salt, pipar
paprika (240 kr.)
1 litið glas gaffalbitar (378 kr.)
2 dl kjötkraftur
1 glas rauðvín
(annað 400 kr.)
Borið fram með soðnum
kartöflum, skreytt með steinselju,
grænu salati eða tómatsalati og sósu.
1. Hnoðið kjötið saman ásamt smá
ostateningum, hreinsuðum sveppum,
hrærðum eggjum, raspi, hvítlauki og
kryddi.
2. Búið til þéttar bollur og steikið
þær brúnar i smjöri, látið í eldfast fat
og gaffalbitana yfir.
3. Setið kjötkraftinn og rauðvínið á
pönnuna og bragðbætið með
kryddinu.
Ath. í staðinn fyrir ost og sveppi
má notabacon og fylltar olívur.
Föstudagurinn langi:
Spánskur
þorskréttur
Ca.: 1500 kr.
Undirbúningstími ca 20 mín.,
ÍDAG: Kjötmiöstööin
ámorguN: Valgarður
ámánudaG: Kjötbúöin Suöurveri
i ..... i
LAUSARSTÖÐUR
Tvær kennarastöður, önnur i stærðfræði en hin í þýsku (2/3 stöðu),
við Menntaskólann við Hamrahlíð eru lausar til umsóknar. Umsækj-
endur skulu taka fram í umsókn hvaða greinar aðrar þeir séu færir
um að kenna við skólann.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf,
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja-
vík,fyrir 1. mai n.k. — Sérstök umsóknareyðublöðfást i ráðuneytinu.
Menntamálaráflunoytiö
29. mara 1979.
Backmann í Kjötmiðstöðinni og John Flemming Jensen kjöt-
iðnaðarmaður.
steikingartími ca 20 mín., ofnhiti 200
gráður.
750 g þorsk- eða ýsuflök (600 kr.)
salt & pipar
safi af 1/2 sítrónu (100 kr.)
2 stórir laukar (40 kr.)
2 matskciðarsmjör
4—5 tómatar (370 kr.)
1 búnt stcinselja (190 kr.)
1/81 rjómi (140 kr.)
Borið fram með brauði og grænu
salati.
1. Stráið salti á flakið, kreistið
sítrónusafann yfir og kælið fiskinn í
isskáp.
2. Skerið laukinn í hringskífur og
steikist í 1 matskeið af smjöri, skerið
tómatana i báta og hakkið steinselju,
salt og pipar, látið grænmetið sjóða í
2 mín.
3. Setjið síðan í eldfast fat með fisk-
inn ofan á og setjið 1 matskeið af
smjöri yfir.
4. Setjið fiskinn í ofninn og látið
hann verða næstum tilbúinn, hellið
rjóma yfir og steikið í 4—5 mín. i
viðbót. .
Páskadagur:
Kaldur
hamborgar-
hryggur
Ca.: 6000 kr.
Undirbúnings- og steikingartími 35
mín.
1 kg kr. 3.990,-
1.2 kg hryggur (4.800 kr.)
50 g smjör (60 kr.)
3—4 blöð matarlim (50 kr.)
2tómatar(185 kr.)
1 búnt steinselja (190 kr.)
750 g kartöfiur (100 kr.)
2 dl sýrður rjómi.
sitrónusafi
salt
pipar
laukur (40 kr.)
(annað 200 kr.)
1. Brúnið kjötið í smjöri í potti,
stráið salti og pipar á kjötið, hellið 2
dl vatni yfir og gefið því smásuðu
við vægan hita..
2. Takið pottinn af og látið kjötið
kólna í pottinum.
3. Sjóðið kartöflurnar á meðan,
takið hýðið af og látið þær kólna.
4. Takið feitina af pottinum og síið
soðið, blandið saman matarlíminu og
látið kólna þar til hlaupið verður
stíft.
5. Setjið hrygginn á fat, skreytið með
söxuðu hlaupinu, tómatbát og
steinselju.
6. Hrærið sýrðum rjóma saman við
sítrónusafann, setjið síðan salt,
pipar, rifinn lauk og saxaða steinselju
og að lokum kartöfiusneiðar í og
berið salatið fram með kjötinu.
Annar í páskum:
Papriku-
kjúklingur
Ca.: 4.700 kr.
Undirbúningstími 15—20 mín.,
steikingartími 30—40 mín. (8 manns,
ath. gestir í mat),
2 kjúklingar
4 msk. matarolia
2 msk. smjör
4 stórir laukar
1 hvítlaukur
1 paprika
salt, pipar
2 bollar kjötkraftur
2 gulrætur
4 dósir tómatpuré
Borið fram með spaghetti eða
makkarónu-kuðungum.
1. Skerið kjúklinginn í 6—8 stk.
2. Saxið laukinn smátt, brúnið í
smjöri og olíu.
3. Nuddið salti og pipar í
kjúklinginn, setjið í pott og látið
taka lit.
4. Lækkið hitann, stráið rifinni
gulrót yfir, kjötkrafti og sterkri
tómatpuré. Snúið kjúklingnum
nokkrum sinnum, meðan hann er að
steikjast.