Dagblaðið - 06.04.1979, Page 6
Laxaeldisstöðin íKollafirði
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR6. APRÍL 1979.
. —..............
6
r
H VITBLETTAVEIKIN HflFÐI
EKKIAHMF A SEIÐAMAGNK)
Hvítblettaveikin, sem upp kom í
hrognum i laxeldisstöðinni í Kolla-
firði í nóvember mun á engan hátt
draga dilk á eftir sér fyrir stöðina
hvað seiðaframleiðslu snertir, að
sögn Áma ísakssonar fiskifræðings
hjá Veiðimálastofnuninni. Nægilegt
magn hrogna var fyrir hendi til þess
að sjá stöðinni fyrir óbreyttu seiða-
magni til sölu og notkunar I stöðinni.
Hvítblettaveikin er ekki smitsjúk-
dómur en getur að sögn dr. Sigurðar
Helgasonar að Keldum orsakazt af
efnum i vatni eða af völdum með-
höndlunar hrognanna.
Dr. Sigurður sagði að hvítbletta-
veikinnar hefði aðeins orðið vart i
hluta hrognanna í haust er leið.
Vegna veikinnar hefðu nokkrir þætt-
ir í samsetningu vatns stöðvarinnar
verið athugaðir. Hins vegar væru
mörg önnur efni í vatninu sem ekki
hefði verið hægt aö mæla. Benti
Sigurður á aö áður en veikinnar varð
vart í Kollafjarðarstöðinni hefði
verið hafin vinna við nýja vatnslögn
til stöðvarinnar og mætti hugsanlega
rekja orsök veikinnar til þeirra fram-
kvæmda.
Dr. Sigurður kvað þau hrogn er
upp komust fullkomlega eöUleg.og
þó haniyvildi ekki gefa upp tölur
kvað hann veikinnar aðeins hafa
orðið vart I hluta hrognanna.
Þessi ummæU staðfesti Árni fsaks-
son og kvað seiðamagn stöðvarinnar
nú meö eðlilegum hætti.
- ASt.
Tillaga nýs þingmanns:
Símtöl tfmamæld
innan svæðanna
og aðstöðumunur sveitanna jaf naður
Umframgjald á fyrirtækjasíma í
notkun er frá 53.390 krónum í Breið-
holti, þar sem það er lægst, upp i
355.013 krónur á Austurlandi, þar sem
kostnaðurinn er mestur. Samsvarandi
kostnaður á einkasíma er 20.323 á móti
100.138 krónum á Vestfjörðum, segir
Jón Kristjánsson (F), sem nú situr á
þingi, og vitnar í greinargerð starfshóps
landshlutasamtakanna um símamál.
Jón telur enn langt í land að viðun-
andi jöfnuður náist. Fólk á lands-
byggðinni greiði margfalt á við fólk á
höfuðborgarsvæðinu fyrir það að hafa
simasamband við sto.nanir sem eiga að
þjóna landinu öllu. Þessi aðstöðu-
munur bætist við aðstöðumun vegna
fjarlægðar. Jón telur, að jöfnuði megi
meðal annars ná með því að tímamæla
símtöl innan svæða og nota tekjur af
því til jöfnunar.
Forsenda fyrir umbótum sé einnig að
örbylgjusamböndum verði komið upp
um land allt, þannig að línum fjölgi og
símakerfið þoli aukið álag.
Sveitir landsins njóti nú ekki lág-
marksþjónustu og mjög skorti á að
síminn sé það öryggistæki sem vera
skyldi í sveitum, eða notkun hans sam-
bærileg við það sem gerist hjá notend-
um sjálfvirkra stöðva. Því leggur Jón
Kristjánsson til í þingsályktunartillögu
að gerð verði 5 ára áætlun um upp-
byggingu sjálfvirkra síma í sveitum
landsins.
Átak verði gert árið 1980, uppbygg-
ingu örbylgjusambands milli lands-
hluta verði hraðað og stefnt að jöfnun
símgjalda milli svæða. -HH
Sinubruni er byrjaður i Reykjavik. Það var ekki langt að fara fyrir slökkviliðið að þessu sinni, því sinubruninn var í
Öskjuhliðinni. Það nægði næstum þvi að tengja slönguna við vatnskranann i Slökkvistöðinni i Öskjuhlíð.
Sjávarútvegsráðuneytið um helmings
niðurskurð loðnuveiða:
„Fiskiverndar-
sjóður”
Þingmenn úr öllum flokkum nema
Alþýöubandalagi báru í gær fram
frumvarp um stofnun fiskivemdar-
sjóðs, sem gangist fyrir umbreytingu í
fiskveiðum. Úr sjóði þessum skuli
greiða tímabundnar verðuppbætur til
að greiða fyrir veiðum á vannýttum
fiskistofnum, þegar aflatakmarkanir
eru á ofnýttum stofnum.
Sjóðurinn skuU aðstoða við breyt-
ingar og endurbætur á vinnsluaðferð-
um og tækjabúnaði fiskvinnslufyrir-
tækja, sem fyrirvaralítið þurfa að
breyta um vinnsluaðferðir eða búnað
eða tileinka sér úrvinnslu úr öðm hrá-
efni en byggt hefur verið á.
Einnig á hann að aðstoða þá sem
verða fyrir verulegum búsifjum af
völdum veiðitakmarkana og annarra
fyrirmæla stjórnvalda um fiskveiði-
stefnu.
Fiskvemdarsjóðsgjald skuU lagt á
sem almennur viðbótarlaunaskattur,
lagður á launagreiöendur. Flutnings-
menn eru: Sighvatur Björgvinsson (A),
Sverrir Hermannsson (S), Páll Péturs-
son (F) og Árni Gunnarsson (A).
- HH
Frumvarp þingmanna úr þremur flokkum
Tökum tölurnar
ekki sem
sannleika
, .Tölurnar eru það nýjar að menn
eru enn að átta sig á þeim og „melta”
þær, en ég tek þær ekki enn sem heilag-
an sannleika frekar en fiskifræðingarn-
ir, sem gefa fyrirvara á þeim,” sagði
dr. Björn Dagbjartsson, aðstoðar-
sjávarútvegsráðherra í viðtali við DB er
hann var inntur áUts á tUlögum
ísleni'kra, norskra og færeyskra fiski-
fræðinga nýlega þess efnis að minnka
lr 'uaflann á haust- og vetrarvertíðun-
um ur 1200 þús. tonnum í 600 þús.
tonn.
Án þess að vera að vefengja þær
bráðabirgðaniðurstöður fiskifræðing-
heilagan
enn
anna um að draga þyrfti úr loðnuveið-
unum sagði Björn svo yfirgripsmiklum
rannsóknum ólokið til að staðfesta
verulegan samdrátt að staðan væri
mjög óljósnú.
Svo sem fram hefur komið hyggjast
norskir og íslenzkir fiskifræðingar
beita sér fyrir viðtækum rannsóknum á
málinusíðaráárinu.
Engu vildi Bjöm að svo stöddu spá
um hvað væri til bjargar loðnuútgerð-
inni, ef tölur fiskifræðinganna hlytu
frekari staðfestingu við rannsóknir.
- GS
liÚDAGRtiNN
f»ICA?:USNfl
StlTJARNARN«
hafnapuÍrd!
Rásnr. 1. ökumaöur 2. ökumaður Bílteg.
1. Hafsteinn Aðalsteinsson Magnús Pálsson BMW 320
2. Ómar Ragnarsson Jón Ragnarsson Simca 1100S
3. Úlfar Hinriksson Sigurður Sigurðsson Escort 1600
4. Sigurður Grétarsson Sigbjörn Björnsson Escort RS
5. Árni Bjarnason Bjarni Haraldsson Lada
Fyrsta rall ársins hjá BÍKR:
ÞEYTAST 370 KÍLÓMETRA
LEIÐ UM SUÐVESTURLAND
Verðlaunaafhending eftir keppn-
ina fer fram í veitingahúsinu Sigtúni,
efri hæð, annað kvöld.
'x-.jh u
Kort af leiöinni sem eldn verður á morgun. Keppendur verða ræstir við Hótel
Loftleiðir. Þaðan verður eldð yfir öskjuhliðina, suður á Álftanes, yfir hjá
Garðaholti, gegnum Hafnarfjörð og suður Keflavíkurveg með tveimur krók-
um um gamla Keflavikurveginn. Við Fitjanesti stanza keppendur smástund
áður en ekið verður um Hafnirnar og til Grindavikur. Síöan aka keppendur um
malbikið allt að Krisuvikurvegamótunum. Krisuvikurvegurinn verður farinn
til Hveragerðis og þaðan sem leið liggur austur með Ingólfsfjalli, upp Torfa-
staðaveg, yfir Sogið við Ljósafoss og siðan upp Búrfellsveg upp að Seyðishól-
,um. Þaðan er ekið að Selfossi þar sem áð verður i hálftíma. Eftir hvíldina er
ekið áfram austur og niður að Stokkseyri og þaðan um Eyrarbakkaveg og
siðan sem leið liggur í átt til Reykjavíkur um Kamba með krók um gamla Kol-
viðarhólsveginn. Að lokum verður farið yfir Rjúpnahæð og svokallaðan
Flóttamannaveg og þaðan til Hótel Loftleiða.
Hátt á þriðja tug bíla keppa í fyrsta
ralli ársins, sem Bifreiðaíþrótta-
klúbbur Reykjavíkur gengst fyrir.
Keppnin verður haldin á morgun og
ekin um 370 kílómetra löng leið um
Suðvesturlandið.
Öryggiskröfur til ökumanns og
farartækja þeirra hafa enn verið
nokkuð hertar frá fyrri röllum. Nú
ber öllum skylda til að hafa veltibúr i
bílum sínum í stað veltigrinda áður.
Þá skulu ökumaður og 2. ökumaður
svokallaður bera á hjálmi eða bún-
ingi upplýsingar um i hvaða
blóðflolcki þeir séu.
Rallið á morgun, sem hefur hlotið
nafnið Finlux-rall, er hið sjötta sem
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur
(BÍKR) gengst fyrir. Það hefst klukk-
an tíu um morguninn við Hótel Loft-
leiðir og lýkur á sama stað upp úr
fimm sama dag, ef allt fer samkvæmt
áætlun. Á meðan keppendur hendast
yfir forarpytti, troðninga og snjó-
skafia í bland við beinar og breiðar
ferjuleiðir verður starfrækt upplýs-
ingamiðstöð í fundarherbergi Hótels
Loftleiða. Þar verður staða keppenda
einnig birt jafnóðum og upplýsingar
berast frá tímavörðum.
ökumenn Finluxrallsins verða
ræstir frá Hótel Loftleiðum þannig,
að sá fer fyrstur af stað, sem stóð sig
bezt í röllum síðasta árs. Þá kemur sá
næstbezti frá fyrra ári, sá þriðji bezti
og þannig koll af kolli. Allir munu
keppendurnir í Finluxrallinu áður
hafa einhverja reynslu í rallakstri.
Fimm þeir fyrstu sem fara frá
Loftleiðum eru þessir: