Dagblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979.
7
Haf ið þrjá vasa-
klúta með á leik-
sýninguna
— segir Regína f ráðleggingum til
Eskf irðinga og nágranna,
því fólk grætur af hlátri
„Eg ráðlegg öllum Eskfirðingum að
sjá sýningar Leikfélags Eskifjarðar á
Karólína snýr sér að leiklistinni eftir
Harald Á. Sigurðsson og hafa með sér
minnst þrjá vasaklúta, því fólk grætur
mikið af hlátri. Ég fór með tvo klúta en
það dugði ekkert,” sagði Regína
Thorarensen, fréttamaður DB, eftir að
hún sá lokaæfingu á leiknum. Regína
helduráfram:
í meðferð Leikfélags Eskifjarðar eru
þættir felldir úr leikritinu en öðrum,
sem fjalla um Eskifjörð og lífið þar
bætt við í staðinn.
Fjórtán taka þátt í sýningunum, 7
leikarar og 7 söngvarar. Sviðsstjóri er
Margrét Sveinsdóttir. Aðalhlutverk
fara þau Sigríður Kristinsdóttir og
Ragnar Lárusson með og þykir leikur
þeirra frábær, einkum Ragnars.
Leikritið hefst á hrífandi söng og
hljóðfæraslætti en lýkur með að Högni
maður Karólínu ætlar að skjóta hana
fyrir framhjáhald — en byssan reynist
þá sem betur fer aðeins vatnsbyssa
enda vel því Karólína er saklaus af
framhjáhaldi en aðeins tekin til við
leiklistina.
Leikfélag Eskifjarðar hefur ekkert
starfað undanfarin ár, en á sl. vori
komu nokkur ungmenni alkomin heim
eftir margra ára skólanám í Reykjavík.
Þeirra á meðal var Gunnlaugur E.
Ragnarsson, núverandi formaður leik-
félagsins.
Andinn kom ekki upp hjá unga fólk-
inu að endurvekj,a leikfélagið fyrr en 3.
desember sl. Það kvöld var lokað fyrir
rafmagn á götum Eskifjarðar og
myrkur mikið. Gerðust þá 173 menn
styrktarfélagar leikfélagsins en stofn-
endur þess eru 60. Mest er þetta ungt
fólk sem margt getur í myrkri. Sagt er
að bæjarstjórinn ungi búist við um 100
manna fjölgun i bæjarfélaginu um
mánaðamótin ágúst september.
Frumsýning á Karólína snýr sér að
leiklistinni var á Eskifirði á fimmtu-
dagskvöld. Aftur verður sýning kl. 9 á
sunnudagskvöld. f næstu viku verða
sýningar á.Reyðarfirði og Norðfirði.
- Regína / ASt.
Skyldum við komast til
DB-mynd KHstján Ingi
Er Lundúnaferðin
komin í vaskinn?
,,Við áttum að fara út í dag en það
var ekki flogið vegna flugmannaverk-
fallsins,” sögðu þau okkur krakk-
arnir í Garðabæ, þegar DB leit þar
við í gær. ,,Það á að sjá til á morgun
en við erum strax búin að frétta af því
að við misstum hótelið í London af
því við gátum ekki farið á réttum
tíma en það er verið að athuga með
annað hótel.” Þau voru heldur
óhress með þetta eins og eðlilegt er.
Búin að safna fyrir ferðinni i tvö ár
og svo ruglast allt vegna þess að ein-
hverjir kallar eru að rifast. Annars
voru þau að reikna eitthvert dæmi
sýndist okkur DB-mönnum þar sem
við gengum fram á fjórmenningana i
anddyri Garðaskóla við Lyngás. Eins
og sjá má hefur tæknin haldið inn-
reið sína á skólastærðfræðina og
vasatölva komin í hvers manns
hendur. Aldeilis munur frá því að
allir útreikningar fóru fram á blaði
og ekki einu sinni öruggt að niður-
staðan væri rétt loksins þegar hún lá
fyrir. Vonandi kemst hópurinn til
London en þar halda þau upp á að
siðasti veturinn i Garðaskóla er senn
á enda. Prófin hefjast fljótlega eftir
páska og síðan dreifist hópurinn í
aðra skóla og víðs vegar um þjóðlíf-
ið. - ÓG
Vcrðum í Hlíðarfjalli um helgina.
Akureyrarferðin:
DB-myndir Krístján Ingi
Ákveðin að komast
Allt í fári. Flugmannaverkfall að
ríða yFir og allt í óvissu með Akur-
eyrarferðina langþráðu. Þau sögðu
okkur krakkarnir i Garðabæ, sem
ætla að bregða sér til Akureyrar á
skíði nú í páskavikunni að þetta væri
nokkurs konar herráðsfundur. Til
Akureyrar ætluðu þau alveg örugg-
lega með einhverju móti. Ferðin er
farin í tilefni af því að þetta er síðasti
veturinn þeirra i Garðaskóla. í gær,
þegar DB leit inn á fundinn, var verið
að ræða stöðuna. Til greina kom að
fara landleiðina. Tilboð lá meira að
segja fyrir og tveir fulltrúar krakk-
anna voru að tygja sig á fund bif-
reiðastjórans til að ræða málið. Ef
vel tekst til þá verður það hress hópur
úr Garðaskóla sem rennir sér í brekk-
um Hlíðarfjalls við Akureyri á næstu
dögum. Auk skíðaferða og útiveru
verða ýmiss konar skoðunarferðir á
söfn og um höfuðstað Norðurlands á
dagskráí ferðinni. -ÓG
Hið hálfbyggða íþróttahús í Kópavogi.
íþróttahús Kópavogs:
DB-mynd Krislján Ingi.
PENINGARNIR UTI
VEÐUR 0G VIND?
Mikillar óánægju gætir nú í Kópa-
vogi vegna þeirrar seinkunar sem
hefur orðið á framkvæmdum við
íþróttahús bæjarins og ekki síður
með hvernig að frestun framkvæmd-
anna var staðið og að þeir peningar
sem áttu að sparast við það hafa
hreinlega horfið út í veður og vind í
uppgjöri við verktakann og í skaða-
bætur honum greiddar fyrir samn-
ingsrof. Samkvæmt heimildum Dag-
blaðsins áttu við frestun fram-
kvæmdanna að sparast 32 milljónir.
Málið hafi hins vegar æxlazt þannig
að verktakinn, Árni Jóhannsson,
hafi í millitíðinni fengið annað verk
við húsið og fengið fyrir það 8 millj-
ónir, hann hafi síðan fengið 15 millj-
ónir í ýmiss konar verðbætur og loks
verið borgaður út úr verkinu fyrir 10
milljónir og sé það í annað sinn sem
Kópavogsbær borgi hann út úr verki.
Þá hafi hann að auki selt Kópavogs-
bæ vinnuskúr fyrir 3,5 milljónir. Ef
rétt reyndist væru þarna farnar 36,5
milljónir eða töluvert hærri en átti að
sparast.
„Nei, málið er ekki svona einfalt,”
sagði Steingrímur Hauksson, eftir-
litsmaður á bæjarskrifstofunum er
DB bar þetta undir hann. „Það er
hægt að segja svo margt með tölum
en málið er ekki svona einfalt,” bætti
hann við og vildi ekki ræða málið
frekar en vísaði á Sigurð Björnsson
bæjarverkfræðing. Sigurður sagðist
ekkert kannast við þær tölur sem
þarna voru nefndar. Hann sagði að
þetta væri pólitískt mál og því ýmis
kjaftavaðall í kringum það. Verkinu
hafi verið frestað seinni partinn í
sumar og fram til 1. apríl. Verktak-
inn hafi af þeim sökum orðið fyrir
ýmiss konar óþægindum og sam-
komulag orðið um að greiða honum
8,5 milljónir fyrir „vafaverk” og í
skaðabætur. Þá hafi ýmislegt, s.s.
vinnupallar, verið keypt af honum
fyrir 4 millj. 750 þús., þar á meðal
tveir vinnuskúrar. Deilt er um verð-
bætur og er það mál í gerðardómi.
Sagði Sigurður að ómögulegt væri að
spá í hvað út úr því gæti komið. Það
gæti orðið alveg frá núlli og upp i
nokkrar milljónir. Varðandi þá
spurningu hvort verktakinn hafi
fengið annað verk á vegum bæjarins í
millitíðinni sagði Sigurður að það
hefði komið upp sem óformleg hug-
mynd en síðan hefði enginn áhugi
reynzt fyrir því. Það hefði svo orðið
að fullyrðingu hjá almenningi eins og
ýmislegt annað i jsessu „pólitiska
máli” sagði Sigurður að lokum.
-GAJ
björgunarbátar
SEAFARER
Stærðir 4—25 manna.
Uppfylla öryggiskröfur
Siglingamálastofnunar
ríkisins.
(”> nTinriuOF
ÖRYGGl
/1USTURBAKKI HFl
Skeifan 3 A - Sfmar 81411 og 38944.