Dagblaðið - 06.04.1979, Síða 8

Dagblaðið - 06.04.1979, Síða 8
8 ÐAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979. Bandaríkin: ÞYNGRISKATTAR A OUUFELOGUM Jimmy Carter Bandaríkjaforseti tilkynnti í gaerkvöldi aö hann mundi leggja fram frumvarp þar sem mjög verða takmarkaðar heimildir alþjóö- legra olíufélaga til að færa hagnað sinn og tap á milli landa eftir aðstæðum á hverjum stað. Núver- andi lög hafa gert þessum fyrir- tækjum kleift að draga tap á einum staðnum frá hagnaði fyrir skatt á öðrum nánast að eigin vild. Ætlun forsetans er að koma í veg fyrir að skattfriðindi þessi verði notuð til að lækka skatta á hagnaöi af olíuhreinsunarstöðvum og olíu- flutningum. Aðeins verður heimilað að færa hagnað og tap vegna olíu og jarðgasleitar og vinnslu á milli ríkja. 1 tUkynningu Bandarikjaforseta sem kom í kjölfar tUkynningar um nýja orkuspamaðarherferð segir að ekki sé eðlilegt að olíufélögin njóti sérstakra skattívUnanna nú þegar aflétta eigi verðtakmörkunum á oUu, sem framleidd er í Bandarjíkjunum sjálfum. Margir hafa fagnaö ákvörðun Carters um að aflétta verö- takmörkunum á olíu þó svo að full- | víst sé taUð að hún muni vaida nokk- urri verðbólguaukningu í Banda- ríkjunum. Er það hald margra, að með þessu megi auka þar olíuvinnslu og þá jafnframt minnka eftirspum eftir olíu á heimsmarkaði í heild. Yrði þá olíuverðhækkun OPEC ríkj- anna væntanlega ekki eins mikil. Annar hver fískur sjúkur Sjórinn i Litltbelti við Dan- mörku er orðinn ein aUsherjar eitursúpa. Stafar það af alls konar eiturefnum, sem þangað renna frá verksmiðjum og öðrum fyrirtækjum. Samtök danskra náttúruverndarmanna hafa nú beitt sér fyrir sér .takri áróðurs- herferð til að reyna að bæta úr þessum vanda. Til dæmis um ástandið er bent á að annar hver fiskur, sem i Litlabelti sé, sé sjúkur og jafnvel eitraður. Kvika- silfur f lifur fiska sé aUt of hátt og krækUngurinn og annar skelfisk- ur orðinn gjörsamlega óhæfur tU manneldls. Spánn: Ný ríkisstjórn Adolfo Suarez forsætisráðherra Spánar tilkynnti nýskipan ríkisstjórnar sinnar í gær. Tiu nýir ráðherrar vom skipaðir en mesta athygli vekur að skipaður er herforingi til að fara með innánríkismál og þar með baráttuna gegn Böskum og öðrum þeim, sem stunda hryðjuverk. Jerúsalem: Þrettán særðir af sprengju Sprengja sprakk í Jerúsalem í gær- kvöldi og særði þrettán manns, engan þó alvarlega að því lögreglan í borginni sagði. Talið er að það hafi verið skæmliöar Palestínuaraba, sem komu sprengjunni fyrir. Að fá eða fá ekki að lifa Solomon Manlangu, 23ja ára gamall svertingi og skæruliði virtíst ekki gera umflúið þau örlög að verða hengdur í Pretóriu, Suður-Afríku, í morgun. John Vorster forseti hefur daufheyrzt við öUum bænum um að náða hann. Það dugði heldur ekki, að Carter Bandarikjaforsetí sendi for- sætísráðherra landsins, Pieter Botha, beiðni um að þyrma lífi hans. Botha kvaðst ekki hafa umboð til að grípa fram fyrir hendur réttvísinnar. öryggisráðið í New York hefur einnig skorað á yfirvöld Suöur-Afríku að þyrma lifi unga svertingjans. Hann var dæmdur tU hengingar fyrir morð á tveimur hvítum. Forsetí öryggisráðsins, Ole Algaard frá Noregi, las frétta- mönnum skeyti, sem aUt ráðið var sam- mála um, þar sem eindregið var óskað eftir náöun. Skeytið var sent til Vorsters forseta, en hann einn hefur vald tU að milda dauðadóminn. í Washington var einnig meiningin aö taka morðingja af lífi, John Evans. En þar myndaöist einkennUega staða. Hæstiréttur bannaði aftökuna. En morðinginn vUdi ekki Ufa og óskaði ákaft eftír því, að dauðadómnum yrði fullnægt. Það var ekki tekið tíl greina og aftökunni, sem vera átti í Alabama næsta föstudagsmorgun var frestaö, um stundarsakir að minnsta kosti. MCRCO Simar 36501 - 36500 Oplð á margtut Gamla Laugardag Kompanííð MERCO Nú býðst einstætt tækifæri, MERKO skrifborð á lækkuðu verði. Þau eru fáanleg úr beyki, tekki og maghoni, en fætur og höldur eru úr svörtu nylonhúð- uðu, eða krómuðu stáli. Vandaður frágangur, stílhrein og sterk skrifstofuborð. MERKO skrifstofuborð er góð fermingargjöf. Komið og skoðið í sýningarsal okkar að Bíldshöfða 18. í HEIMINN í HARRISBURG Margir óttast að slys eins og þaö sem varð við kjamorkuverið nærri Harris- burg i Bandarikjunum i fyrri viku geti valdið skaða á ófæddum böraum. Sue Moses þar i borg þarf þó tæpast að óttast að nýfæddur sonur hennar, sem fæddist skömmu eftir slysið muni bera þess nein merki i framtiðinni. Reyndar er búið að skira hann Joseph Andrew.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.