Dagblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRlL 1979.
9
Erlendar
Uganda:
fréttir
REUTER
Chicago:
Ofsastormur
fóryfirborgina
Tuttugu manns slösuðust af völdum
ofsastorms sem fór yfir Chicagoborg í
Bandaríkjunum í gærkvöldi. Flestir
urðu fyrir brotum úr veggjum, sem
hrundu eða skárust af glerbrotum.
Rafmagnslínur slitnuðu, tré rifnuðu
upp með rótum og ljósastaurar lögðust
á hliöina undan veðurofsanum. Vitað
var að nokkrar marmarahellur féllu
niður af byggingu þeirri sem hýsir Ritz
Carlton hótelið. Ekki munu hellurnar
þó hafa lent á neinum vegfaranda.
UBYUJHENN FARN-
IR FRA KAMPALA
— ekki vitað hvar Idi Amin heldur sig
Svo virðist sem Kampala höfuð-
borg Uganda sé algjörlega vamarlaus
og ekki sé neitt því til fyrirstöðu, að
hermenn Tansaníu og þjóðfrelsis-
samtaka Uganda haldi inn í borgina.
Allir hermenn frá Líbýu sem sagðir
voru verja borgina af hörku munu nú
farnir á brott og þá aðeins eftir
óbreyttir borgarar því hermenn
tryggir Idi Amin eru löngu famir.
I simtali við Kampala frá Narobí i
Kenya sagði einn íbúa Kampala að
hann byggist við innrásarhermönn-
unum á hverri stundu. Ekkert er
vitaö um hvar Idi Amin forseti
Uganda er niðurkominn. Útvarpið í
Kampala tilkynnti í gær að hann værí
í borginni en áður hafði veríð til-
kynnt að hann væri í austurhluta
landsins þar sem hann ætlaði að
verjast þar til yfir lyki.
Haft er eftir útlendingum, sem enn
eru í Kampala, að þeir hafi rætt við
liðsforingja i Ugandaher, sem
kvartað hafi yfir því að þeir hefðu
ekki lengur neina hermenn undir
sinni stjóm. Útvarpið í Kampala
sagði aftur á móti í gær að þar væri
nóg af hermönnum, sem ákveðnir
væru að berjast fyrir Amin forseta
þar til yfir lyki. Talið er að sögn
erlendra sendimanna að her Tansaníu
muni fara inn í Kampala á næstu
klukkustundum en nú þegar er
Entebbe næststærsta borg Uganda í
höndum þeirra.
Bandaríkin:
Vilja banna kjarn-
orkuver í f imm ár
Tuttugu og þrír bandarisktr tulltrua- Þingmennirnir voru allír nema tveir
deildarþingmenn hafa skorað á Jimmy úr Demókrataflokknum. Þeir vilja
Carter Bandaríkjaforseta að banna öll einnig að lög sem takmarka bótaskyldu
ný kjarnorkuver næstu fimm árin. kjarnorkuvera i einkaeign við 560
Vilja þeir nota tímann og fullkomna milljónir dollara, verði felld úr gildi.
allan öryggisbúnað viðkomandi orku- Bendá þeir á í bréfi tU forsetans að
verunum. Er þetta gert í ljósi þeirrar reynslan í Harrisburg sýni.að ekki sé
reynslu, sem fékkst af biluninni í kjarn- enn á neinn hátt treystandi á kjarn-
orkuverinu við Harrisburg i orkuna.
Pennsylvaníu ádögunum.
Pakistan:
Fylgismenn Bhuttos
komnir á kreik
Allar horfur virtust á því að óeirðir
þær sem brutust út í Rawalpindi og
nokkrum öðrum borgum Pakistan
mundu halda áfram í dag. Þar voru
fylgismenn hins aftekna fyrrum forseta
landsins á ferðinni en stjórn landsins
óttast mjög að þeir gríp: til harðra
aðgerða vegna aftöku leiðtoga síns,
sem naut mikils fylgis í landinu.
Herforingjastjórnin tilkynnti í
morgun að her og lögregla mundi
óhikað skjóta á mótmælahópa á götum
úti. Þúsund'.r borgarbúa í Rawal-
pindi virtust þó ákveðnir að láta þessar
hótanir sem vind um eyrun þjóta og
flykktust út á götumar strax að lokn-
um hefðbundnum föstudagsbænum í
moskunum.
Lögreglan beitti táragasi til að reyna
að dreifa mannfjöldanum. Hópur
þúsunda mótmælafólks grýtti lögregl-
una og brenndi niður byggingu þar sem
ritstjóm dagblaðsins Daily Jang, sem
styður herforingjastjómina er til húsa.
Tókst slökkviliði naumlega að bjarga
starfsfólkinu út úr húsinu áður en það
féll.
BJARGAR RAF-
MAGNIÐ MÁLUM?
Þetta farartæki er farið afl sjást á
götum Kaliforníu. Þriggja hjóla
kuggur, sem vegur aðeins 250 kiló-
grömm og getur komizt 170
kilómetra vegalengd á einni hleðslu.
Skipasmiðastöðvar um allan heim eiga nú f miklum erfiðleikum. Bæði Danir og Sviar hafa reyní að styðja við bakið á sinum stöðvum eftir megni en með misjöfnum árangri. I Danmörku er talið vist að einhver hinna
stóru stöðva verði að hætta starfrækslu en ekki er að fullu Ijóst hver það verður. Jafnvel er hugsanlegt að það verði Burmeister & Wein f Kaupmannahöfn og hefði mörgum þótt það ótrúleg tiðindi fyrir nokkrum
árum.
UTASJÖNVÖRPIN
SLÁ í GEGN
Frábœr mynd- og tóngæöi
22" frá kr. 429.000
26" frákr. 498.000
SJÓNVARP
OG
RADÍÓ
Hverfisgötu 82
Sími 23611.