Dagblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 31
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979.
35
Útvarp
Sjónvarp
ÁYZTUNÖF -sjónvarpíkvöldkl. 22.05:
Nasistinn hatar
sálfræðinginn
\ r
— semáað
lækna hann
Það er orðið langt síðan Sidney Poi-
tier hefur borið fyrir augu íslenzkra
sjónvarpsáhorfenda. Enda er þessi
svertingi sem eitt sinn var hæst launaði
leikari í heimi fallin stjarna og hefur
lítið gert sér til frægðar hin síðari ár.
En í kvöld gefst fólki kostur á að sjá
ágætan leik Poitier í myndinni Á yztu
nöf, sem sýnd verður í sjónvarpinu.
Poitier leikur þar sálfræðing sem
starfar við bandarískt fangelsi. Sá
sjúklingur sem hann þarf mest fyrir að
hafa er nasisti sem hatar bæði negra og
gyðinga, og þar af leiðandi sálfræðing-
inn líka. Myndin gerist rétt áður en
seinni heimsstyrjöldin skellur á, þegar
alls kyns fordómar voru sem algeng-
astir.
Auk þess sem myndin lýsir kynnum
þeirra sálfræðingsins og nasistans er
lýst ástæðunni fyrir því að nasistinn
situr inni. Glæpur sá sem hann framdi
var hreint ekkert smáræði.
Eins og við er að búast leikur Poitier
Úr myndinni Á yztu nöf.
sálfræðinginn af hógværð og lipurð.
Bobby Darin leikur nasistann og er
leikur hans aldeilis frábær. Enda fær
myndin í heild þrjár stjömur af fjómm
mögulegum út á leikinn einan. í auka-
hlutverki sjáum við svo Peter Falk, sem
við könnumst betur við sem Colombo.
DS.
KASTUÓS—sjónvarp í kvöld kl. 21.05:
Fóstureyðingar, streita og
Reykjavík og nágrenni
Kastljós kvöldsins er i umsjón
Sigrúnar Stefánsdóttur fréttamanns.
Henni til aðstoðar er Pjetur Maack
guðfræðingur.
Til umræðu verða tekin þrjú mál,
fóstureyðingar, streita og tengsl
Reykjavíkur við nágrannabyggð sína.
í fyrsta hluta Kastljóssins verður
rætt fmmvarp Þorvalds Garðars
Kristjánssonar alþingismanns um
breytingar á lögum um fóstureyðingar.
Ef fmmvarp Þorvalds veröur að
lögum verða félagslegar aðstæður ekki
lengur nægilegar til þess að fá fóstri
eytt. Til umræðu eru kallaöir
Þorvaldur Garðar, Lilja Ólafsdóttir og
Sigurður S. Magnússon, yfirlæknir
fæðingardeildar Landspítalans.
Hvað veldur streitu og hvernig vinna
megi á móti henni er annað málið á
dagskrá. Rætt veröur við Pétur
Guðjónsson sem ferðast víða um heim
í deilunni um fóstureyöingar eru tvö sjónarmið ofarlega i hugum þeirra sem með
erueðaámóti, réttur barnsins til að lifa og réttur móðurinnar yfir eigin likama.
Kastljós i kvöld verður að einum þriðja helgað þessu máli.
til þess að kenna fólki að vinna gegn
streitu um það meðal annars hvaö
fyrirbærið streita er, því þó margir
virðist þjakaðir af henni geta líklega
færri útskýrt hvað hún eiginlega er.
í þriðja lagi verður reynt að finna
svör við því hvort kostir þess að sam-
eina Reykjavík og nágrannasveitar-
félög hennar em fleiri en gallarnir við
það. Sigurjón Pétursson forseti borgar-
stjómar Reykjavíkur og Sigurgeir
Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjarnar-
nesi ræðamálin.
-DS.
M.nllllllJJ.M
Föstudagur
6. apríl
12.00 Dagskráin. Tónlcikar. Tilkynningar.
12.25 Vcöurfregnir. Fréctir. Tilkynningar.
Vid yinnuna: Tónlcikar.
14.30 MWdegissagan: „Fyrir opnum Ijflldum”
eftir Grétu Sigfúsdóttur. Herdís Þorvakisdóu
irlcs(ló).
15.00 Miödegistónlelkar: Hljómsveitin Ffl-
harmonla 1 Lundiinum lcikur ballctttónlist úr
ópcrunni „Lifið fyrir Kcisrarann” cftir Glinka;
Efrcm Kurtz stj. / Suisse Romandc h|jóm-
sveitin leikur „Tamar”, sinfónískt Ijóö eftir
Balakircff; Emcst Anscrmct stj.
15.40 Lesin dagskrá na»tu viku.
16.00 Fráttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.30 Poppbom: Dóra Jónsdóttir kynnir.
17.20 (Jtvarpssaga bamanna: „Leyniskjalifl”
eftir Indrifla Úlfsson. Höfundur lcs (4).
17.40 Tónlcikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.40 Hákarlaveiflar rifl Hánaflóa um 1920.
Ingi Karl Jóhanncsson ræöir við Jóhannes
Jónsson frá Asparvik; — þriöji og slöasti þátt-
ur.
20.05 Tónlist eftir FeHx Mendelssobn-Bart-
holdy. a. Fiðlukonscrt í d-moll. Gustav Schmal
og Kammcrhljómsvcit Berlínar leika. Stjórn
andi: Hclmut Koch. b. Sinfónia nr. 12 Í g-moll.
Kammcrhljómsveit Ríkishljómsvcitarinnar i
Dresden leikur. Stjórnandi: Rudolf Neuhaus.
20.45 nÓ göngum tvfl á grcnan Jaflar sands”.
Magnús Á. Ámason listamaöur scgir frá íerð
sinni til Irans áriö 1973, er hann fór meö
Barböru konu sinni. Guöbjörg Vigfúsdóttir og
Baldur Pálmason lesa fyrri hluta fcröasögunn-
ar.
21.40 Kórsflngun Pólyfónkórinn syngur andleg
Iftg eftir Fjölni Stefánsson, Pál P. Pálsson og
Þorkcl Sigurbjömsson. Söngstjóri: Ingólfur
Guöbrandsson.
22.05 Kvflldsagan: „Heiraur á rifl háift kálf-
skinn” eftir Jón Helgason. Sveinn Skorri
Höskuldsson lcs (13).
22.30 Veðurfrcgnir. Fréttir. Dagskrá morgun
dagsins.
Lestur Passiusálma (45).
22.55 Úr menningarlifínu. Umsjón: Hulda
Valtýsdóttir. Rætt við dr. Finnboga
Guðmundsson landsbókavörð um Landsbóka-
safn Islands.
23.10 Kvöidstund meöSveini Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
6. apríl
20.00 Fréttirog veflur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Próflu leikararnir. Gestur i þessum þætti
er bandaríska söngkonan Pcarl Bailcy.
Þýöandi Þrándur Thoroddsen.
21.05 Kastljós. Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Sigrún Stefánsdóttir.
22.05 A ystu nflf s/h. (Pressure Point). Bandarísk
biómynd frá árinu 1962. Aöalhlutverk Sidney
Poitier, Bobby Darin og Peter Falk. Myndin
gerist á ámnum fyrir siöari heimsstyrjöld og á
striðsárunum. Geðlæknir lýsir kynnum sínum
af fanga, sem haidinn er alls konar kynþátta-
fordómum og er i bandaríska nasistanokkn
um. Þýöandi Kristrún Þóröardóttir.
23.30 Dagskrárlok.
MagnúsÁ. Ámason listamaður er vígur jafntá léreft, leir og pappír.
„d GÖNGUM TVÖ Á GRÆNAN JAÐAR
SANDS” - útvarp í kvöld kl. 20.45:
„íranskeisari
gerði mjög
mikið fyrir
land sitt”
„Mér fannst eftirtektarverðast þarna
í íran hvað keisarinn hafði gert mikið
fyrir þjóð sína og land,” sagði Magnús
A. Ámason listamaður. Magnús og
kona hans Barbara fóru til írans árið
1973 og lesa þau Baldur Pálmason og
Guðbjörg Vigfúsdóttir frásögn af því i
útvarpinu i kvöld.
„Hugsun keisarans vai mjög
einföld. Hann sagði sem svo „Olían
endist okkur ekki alla eilifi’.
meðan hún er skulum við nota ágóð-
ann af henni til hagsbóta fyrir komandi
kynslóðir.” Og það var akkúrat það
sem hann gerði. Féð var notað til að
byggja upp jámbrautarkerfið og vegi,
komið á skólaskyldu og jörðum eigna-
manna skipt á milli kotbænda. Landið
sem tekið var af stórbænunum var
þeim greitt að fullu með hlutabréfum í
fyrirtækjum ríkisins.
En þessir góðu hlutir sem keisar-
inn stóð fyrir eru gleymdir núna eftir
að hann var rekinn frá völdum.”
— Þið hafið ekki orðið vör við að
óánægja ríkti meðstjóm hans?
„Nei, alls ekki. Hann átti þá og á
enn mikið fylgi.”
— En hvað varð til þess að þið fóruð
til íran?
„Synir góðra vina okkar í Frakk-
landi giftust systrum frá íran.
Brúðkaup annars þeirra fór fyrst fram
á kaþólska vísu í Frakklandi en síðan
að hætti múhameðstrúarmanna í
Teheran. Okkur var boðið að koma
og vera viðstödd brúðkaupið en við
gátum það ekki á þeim tíma. Síöar
bauð hann okkur svo að koma og
dvelja hjá sér, sem við gerðum.
Við sáum okkur töluvert um. íran er
stórkostlegt land. Sérstaklega er gaman
að sjá hinar gömlu grafir og rústir sem
eru um 2500áragamlar.”
— Hittuð þið nokkra Kúrda?
„Nei, því miður ekki. Ég hefði
gjarnan viljað tala við þá en þess gafst
ekki kostur.”
— Hvað finnst þér um þá þróun sem
nú er í Iran?
„Hún er hryggileg, sérstaklega fyrir
konur. Þegar við vorum þarna voru
íranskar konur i sömu stöðu og kontir í
Evrópu. En nú á að fara að færa þn i
langt aftur í aldir,” sagði Magnús.
-DS.
rFYRIR FERMINGUNA'
snittur og brauðtertur.
Pantanir í síma 16740.
Brauðbankinn
Laufásvegi 12 — Sími 16740.
SKYNDIMYNDIR
Vandaðar litmyndir
i öll skírteini.
barna&fjölsk/ldu-
Ijósmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SiMI 12644