Dagblaðið - 10.05.1979, Qupperneq 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. MAl 1979.
BÆJARINS
BEZTU
Stutt kynning á því athyglis-
verðasta sem kvikmyndahús
borgarinnar bjóöa upp á
Capricorn One
Leikstjóri: Peter Hyams, gerð í Bandarikjunum 1977.
Sýningarstaður: Regnboginn.
Hugmyndin að baki Capricorn One er nokkuð athyglisverð. Geim-!
far er sent til Mars og tilkynnt að 3 geimfarar séu innanborðs þótt
það sé víðs fjarri sannleikanum. Með tæknibrellum og sjónhverf-
ingum tekst að láta þjóðina trúa þessu þangað til forvitinn blaða-
maður kemst í málið. Upp frá þvi tekur myndin á sig meira yfir-
bragð hasarmyndar. Þótt Capricorn One fari hægt af stað lekst
leikstjóranum að skapa töluverða spennu þegar fer að liða á seinni
hlutar.n. Heildarútkoman verður því þokkaleg afþreyingarmynd
með töluverða alvöru að baki. Leikurinn er ekkert sérstakur en
tæknivinnan mjög góð á köflum.
Flökkustelpan
Boxcar Bertha, gerð í Bandaríkjunum 1972.
Leikstjóri: Martin Scorsese.
Sýningarstaður: Hafnarfoió.
Það er vel til fundið hjá forráðamönnum Hafnarbíós að endursýna
Flökkustelpuna eftir Martin Scorsese. Kvikmyndaunnendum hefur
nú á stuttu tímabili gefist kostur á að sjá fjórar af myndum Scor-
seses. Boxcar Bertha er önnur mynd hans í fullri lengd. Myndin er
gerð eftir ævisögu Boxcar Berth Thompson sem lifði sitt fegursta á
kreppuárunum. Boxcar Berth þessi ásamt þrem öðrum karlmönn-
um leiddist út í gripdeildir fyrir hreina tilviljun. Það leið ekki á
löngu þar til þau voru farin að stunda umfangsmikla glæpastarf-
semi i likingu við Hróa hött. Stela sem sagt aðeins frá þeim ríku og
gefa öreigunum. Þessi mynd sver sig í ætt við Mean Street og Taxi-
driver hvað varðar ofbeldið í lokauppgjöri myndarinnar.
Heyrðu
Höfurtdur: Siguröur Grímsson.
Sýningarstaður: Vinnustofa Ósvaldar Knudsen, Hellusundi 6A kl. 9.
'Það er ekki á hverjum degi sem íslensk kvikmynd er sýnd opinber-
lega. Þessa dagana hefur verið sýnd i vinnustofu Ósvaldar Knudsen
skólaverkefni Sigurðar Grímssonar, kvikmyndin Heyrðu. Myndin
fjallar um ungan pilt sem leitar á náðir móður náttúru til þess að
ilosna undan hversdagsleikanum. Þetta er að hálfu leyti leikin mynd
jog heimiidarmynd. Ungi pilturinn er notaður sem tenging. Þvi
miður er sú tenging meira eða minna misheppnuð meðal annars
vegna þess að sá sem fer með hlutverk hans veldur þvi engan veg-
inn. Kvikmyndataka og klipping er oft mjög góð en hljóðblöndur
er stundum ábótavant. Það er ástæða að hvetja fólk til þess að sjá
þessa kvikmynd þvi það eru margir góðir kaflar sem eru bæði fróð-
llegir og skemmtilegir.
Blue Collar
Leikstjóri: Paul Schrader, gerð t Bandarikjunum 1978.
Sýningarstaður: Laugarásbió.
Þetta er frumraun Paul Schrader sem leikstjóra en hann er þekkt-
astur hér á landi sem handritahöfundurinn að myndinni Taxidriver.
Blue Collar fjallar um 3 félaga sem vinna saman í bílaverksmiðju í
Detroit. Allir eiga þeir við sama vandamálið að glima. Tekjurnar
hrökkva ekki fyrir útgjöldunum. Því grípa þeir til örþrifaráða og
ræna verkalýðsfélag staðarins. En það dregur dilk á eftir sér.
Myndin ræðst harkalega á forystu verkalýðsfélaganna í Bandaríkj-
unum og dregur fram spillinguna bæði þar og meðal vinnufélag-
anna. í Blue Collar hefur Paul Schrader tekist að samræma sterka
þjóðfélagslega ádeilu og gamansaman tón svo að í heild virkar
myndin mjög sterk.
Superman
Leikstjóri: Richard Donnor, gorð I Brotlandi 1978.
Sýningarstaður Háskólabió.
Superman hefur þann vafasama heiður að vera talin ein dýrasta
mynd sem gerð hefur verið enda ber hún greinilega merki þess.
Myndin er ein tæknibrella í gegn og eru sum atriðin ótrúlega vel
unnin. Þar á stóran hlut kvikmyndatökumaðurinn Geoffrey Uns-
worth. Efni myndarinnar er byggt á teiknimyndaseríunni Super-
man, sem sköpuð var 1938 og fjallar um ofurmennið Clark Kent
sem kom til jarðarinnar frá plánetunni Krypton. Þessi Kent hefur
flesta kosti og dyggðir sem fyrirmyndarsonur flestra ætti að hafa.
Þannig má segja að Superman sé draumasonur vísitölufjölskyld-
unnar. Margt frægra leikara kemur fram en Gene Hackman í hlut-
verki þorparans kemur sterkast út. Einnig fer óþekktur leikari,
Christopher Reeve, mjög vel með hlutverk Superman.
Lesendur eru hvattir til að senda kvik-
myndadálki DB línu, hafi þeir áhuga á ein-
hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik-
myndaiðnaðinn. Heimilisfangið er: Kvik-
myndir, Dagblaðið, Síðumúla 12, Rvk.
«
Utvarp
Sjónvarp
DANSKAR SKÁLDKONUR - útvarp í kvðld kl. 20,00:
„í nóttinni brennur
Ijósið”
— þáttur um Tove
Ditlevsen
„Þetta verða fimm þættir sem allir
fjalla um danskar skáldkonur. Fyrsti
þátturinn verður um Tove Ditlevsen en
síðan verður fjallað um Cecil Bógker,
Charlotte Strandgaard, Kirsten Torup
og Vita Andersen,” sagði Nina Björk
Árnadóttir en hún sér um þessa þætti
ásamt Kristínu Bjarnadóttur.
„Það má segja að ferill Tove sé lang-
litríkastur. Hún ólst upp í fátækra- og
melluhverfi i Vesterbro, þar sem hún
fæddist í tveggja herbergja íbúð í bak-
húsi. Hún var gift fjórum sinnum og
skildi jafnoft. Hún skrifaði ákaflega
mikið og sagðist eiga þann rómantíska
draum að deyja í miðri setningu. Við
lesum aðallega úr bók sem heitir
Bernska og var hin fyrsta af fjórum
I
Nína Björk Árnadóttir og Kristfn Bjamadlttir.
endurminningabókum hennar. Þá
hefur Helgi J. Halldórsson þýttýmis
ljóða hennar sem við lesum úr. Einnig
lesum við úr bók þar sem hún segir frá
ínu stprmasama einkalífi og hvernig
pað þáfði áhrif á skáldskap hennar,”
sagði Nína Björk.
-GAJ-
t-------------\
LEIKRITVIKUNNAR
—útvarpíkvöld
lllll CICI/ Mú er sterka ryksugan
* l\IILrlOl\ ennþá sterkari...
kl. 21,05:
Ejnum NILFISK
ofaukið
ÍW
SÚPER
NÝ SOGSTILLING:
Auðvelt að
tempra kraftínn
NYR
SÚPERMÓTOR:
Áður
óþekktur
sogkraftur.
NÝR
PAPPÍRSPOKI
MEÐ
HRAÐFESTINGU,
ennþé staerri og þjálli.
Jill Brooke höfundur leikritsins Einum
ofaukið.
Leikrit vikunnar nefnist Einum of-
aukið og er eftir Jill Brooke Árnason
sem jafnframt er leikstjóri. Þýðinguna
gerði Benedikt Árnason en með hlut-
verkin fara Þóra Friðriksdóttir,
Guðrún Þ. Stephensen og Bessi Bjarna-
son. Flutningur leiksins tekur 37 mín-
útur.
Mavis og James Thompson lifa
hvorki í betra né verra hjónabandi en
gengur og gerist. Þau eiga tvö börn,
búa í þægilegu borgarhverfi og láta
hverjum degi nægja sína þjáningu. En
dag nokkurn kemur kona i heimsókn.
Hún segist heita Rose McNally og það
verður fljótlega ljóst að hún er enginn
venjulegur gestur. Þetta er gamansamt
verk en þó er kannski meiri alvara á
bak við en margur hyggur.
Jill Brooke er borin og bamfædd i
Englandi. Hún stundaði leiklistarnám í
RADA og vann siðar hjá útvarpi, sjón-
varpi og leikhúsum og einnig við kvik-
myndir. Eftir að Jill flutti til íslands
með manni sínum, Benedikt Árnasyni
leikara, hefur hún sett á svið nokkur
leikrit. Einum ofaukið er fyrsta verk
hennar í islenzka útvarpinu en hefur
áður verið flutt í BBC.
-GAJ-
NY
SLÖNGUFESTING:
Samboðin nýju
kraftaukandi
keiluslöngunni
NYR VAGN:
Sterkari,
stöðugri,
liprari,
auðlosaður
istígum.
sogorka í sérflokki
Ofantaldar og floiri nýjungar auka enn hina sígildu verðleika Nilfisk:
efnisgœði, markvisst byggingarlag og afbragðs fylgihluti. Hvart smá-
atriði stuðlar að soggetu i sérflokki, fullkominni orkunýtingu, dæma-
lausri endingu og fyllsta notagildi.
Já, svona er Nilfisk: Vönduð og tæknilega ósvikin, gerð tíl að vinna
sitt verk fljótt og vel, ár aftír ér, með lágmarks truflunum og tilkostn-
aði; varanleg: til lengdar ódýrust.
lyii OCI/ heimsins bezta ryksuga!
I wl X Stór orð, sem reynslan réttlætir.
Afborgunarskilmálar.
Traust þjónusta.
FYRSTAFLOKKSFRÁ
/rQniX
Hátúni — Sími 24420