Dagblaðið - 10.07.1979, Síða 7

Dagblaðið - 10.07.1979, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1979. 7 Skylab til jardará morgun? Ríki á því svæði, sem talið er að Skylab geimstöðin bandaríska muni hugsanlega lenda á hafa tilkynnt um ýmiss konar varúðarráðstafanir næstu daga en búizt er við að brak úr geimstöðinni muni falla til jarðar á um það bil 150 kílómetra breiðu belti, sem er nálægt 6000 kílómetra langt. ísland er ekki innan þessara marka. Talið er að Skylab muni brotna í um það bil fimm hundruð parta, sem lenda munu á jörðinni. Þarna er um að ræða mjög misþunga og veigamikla hluta geimfarsins. Sumt mun bráðna við ofsahita sem myndast við að farið kemur inn í gufuhvolf jarðar. Annað er sérstak- lega varið fyrir hitanum. Má þar til dæmis nefna blýhulstur utan um fiímur sem teknar hafa verið á ferli geimstöðvarinnar. Sumar ríkisstjórnir, sem telja að sérstök hætta sé á að hlutar geim- stöðvarinnar lendi á þeirra löndum, hafa jafnvel i hyggju að banna alla flugumferð á meðan hættan er mest. Síðustu spár gera jafnvel ráð fyrir að Skylab muni lenda á morgun eða í síðasta lagi á fimmtudaginn. Sér- fræðingar geimferðastofnunarinnar segja að líkurnar fyrir því aðeitthvert hinna fimm hundruð stykkja muni lenda á einhverri manneskju séu einn á móti eitt hundrað og fimmtíu. Hin sjötiu og sjö tonna Skylab geim- stöð á þeim dögum sem veldi hennar stóð sem hæst, árið 1974. Nú er ekkert framundan nema að þetta mikla mannvirki hrapi til jarðar og splundrist í ótal mola. Fyrsta Skylab fómardýrið Fyrsta fórnardýr Skylab geim- Simeon Galvez, en svo hét maður- stöðvarinnar hefur látizt. Á Manila á inn, var faðir fjögurra barna. Filippseyjum dreymdi mann einn að Heyrðist hann hrópa upp úr svefnin- brak úr stöðinni væri að falla ofan á um. Skylab — Skylab — en síðan leið hann. Varð honum svo mikið um hann út af og var skömmu siðar liðið að hann lézt úr hjartaslagi, að sögn lík. blaðseinsí Manilla. Washington: Aðstoðarorkurád- herrann hættir John O’Leary, aðstoðarorkuráðherra Jimmy Carters Bandaríkjaforseta, til- kynnti i gærkvöldi að hann hefði hug á Danmörk: Spán- ar- farar hópast heim Svo virðist sem dönskum ferða- mönnum lítist ekki á blikuna og flykkist nú heim á leið eftir ítrek- aðar sprengingar sjeæruliða að- skilnaðarsinna Baska á sólar- ströndum Spánar. í danska blaðinu Berlingske Tidende segir að margir farþegar, til dæmis á vegum ferðaskrifstofu Tjære- borg, hafi óskað eftir því að kom- ast heim. Að sögn eins farþegans þurfti að bíða í margar klukku- stundir eftir þvi að sprengjurnar spryngju en skæruliðarnir höfðu tilkynnt um < þær fvrirfram. Nokkur dráttur varð á því að þær spryngju. Ekki er Ijóst hvort allar sprengjur sem skæruliðamir hafa komið fyrir séu fundar eða sprungnar. H Allt anddyrið á hótel Las Palmeras í Fuengerola á Costa del Sol eyðilagð- ist í einni sprengingu skæruliða aðskilnaðarhreyfingar Baska. Þar hefur fjöldi danskra ferðamanna dvalizt en margir hverjir hafa nú snúið heim af ótta við hryðjuverkin. að hætta í embætti sínu. Gerist þetta þegar viðræður og vangaveltur forset- ans og sérfræðinga hans um orkumál standa sem hæst og hann hefur frestað ræðuflutningi sínum til þjóðarinnar um þau mál tvisvar. Talsmenn forset- ans hafa ekkert viljað segja um þessa fyrirætlan aðstoðarráðherrans. O’Leary hefur vakið athygli fyrir skorinorðar yfirlýsingar í orkumálum og hlotið nokkra gagnrýni fyrir, sér- staklega síðustu daga, t>egar orku- vandaumræðurnar hafa staðið hæst. Orðrómur hefur verið á lofti um að Jimmy Carter forseti sé hvattur til þess af sumum ráðgjöfum sínum að láta bæði O’Leary aðstoðarorkumálaráð- herra og James Schlesinger orkumála- ráðherra segja af sér. Þeir hafa báðir legið undir mikilli gagnrýni, aðallega fyrir að gera of mikið úr orkuvandan- um. Vitað var að O’Leary hafði tilkynnt það æðstu mönnum í starfsliði Carters forseta að hann mundi ekki gegna starfi sínu áfram nema séð væri um að gagnrýni á störf hans frá starfsliði Hvita hússins i Washington mundi linna. Svo virðist sem þvi hafi siður en svo verið fylgt eftir og gagnrýni á störf aðstoðarráðherrans og stefnu verið haldið áfram nú siðustu daga. Að sögn fréttamanna CBS sjón- varpsstöðvarinnar hefur O’Leary til- kynnt að hann vilji helzt láta af störf- um 4. september næstkomandi ef for- setinn óskar ekki eftir öðru. Erlendar fréttir ÓLAFUR GEIRSSON "3 Æ. Bílasala Eggerts auglýsir Þá er hann loksins til sölu sá fallegasti, G.M.C., framdrifinn með sæti fyrir 13, allir mögulegir aukahlutir fylgja. BÍLASALA EGGERTS, B0RGARTÚNI24. - SlMI 28255.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.