Dagblaðið - 10.07.1979, Blaðsíða 13
12
DAGBLÁÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1979.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ1979.
13
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Á föstudag 1 sfðustu viku var boðað til blaðamannafundar 1 tilefni þess að hér á landi voru þá staddir tveir helztu 'ramámenn
golflþróttarinnar í Evrópu. Það voru þeir Wahlström frá Svfþjóð og Spánverjinn Andreau. Wahlström er lurseti Evrópugolf-
sambandsins.
Gol&amband Islands sótti, sem kunnugt er, um að fá að halda Evrópumeistaramót unglinga og var þá ætlunin að halda það f
Grafarholtinu. Ekki leizt þeim félögum nógu vel á völlinn eins og hann er nú en voru báðir sannfærðir um það að lagfæra
mætti hann það mikið fyrir 1981 að halda mætti keppnina hér á landi.
Wahiström hafði orð á þvi hversu mikið og gott starf hefði verið unnið hér siðan 1974, en þá var hér haldið Norðurlandamót
unglinga. Atkvæðagreiðsla um hvar skuli halda Evrópumeistaramótið fer fram f haust og það yrði golfinu hérá landi ómetan-
leg lyftistöng ef tsland fengi þetta stórmót.
Myndina hér að ofan tók Hörður af þeim félögum og er Wahlström til vinstri.
Ameríkanar hafa
alltaf
veríð undarlegir
Handboltagolf
Á morgun kl. 17 fer fram hin árlega golfkeppni
handknattleiksmanna og verður leikið á Nesinu að
vanda. Golfkeppni þessi er árlegur viðburður og
hefur þátttaka jafnan verið mjög góð. Öllum þeim,
sem eru viðriðnir handknattleik á einn eða annan
hátt, cr boðið að vera með og nú er um að gera að
drifa sig út á völl á morgun og baka Bjössa Krist-
Trevor Francis hefur nú skorað í 6 leikjum í röð
fyrir félag sitt i Bandarikjunum, Detroit Express, og
um helgina var hann enn á skotskónum. Hann fellur
þó alveg í skuggann af félaga sínum í liðinu, Keith
Furphy að nafni. Sá skoraði 3 mörk um fyrri helgi I
6-5 sigri Detroit Express yfir Chicago Sting. Annar
kappi sem er kunnur fyrir mörk, Ted MacDougall,
skoraði, á einnig þrennu, en Furphy hefur nú skorað
13 mörk I 20 leikjum fyrir Express og þykir Banda-
ríkjamönnum það hið mesta afrek. Um helgina vann
Detroit Express Tulsa Rougnecks 3-2 og skoraði
Trevor Francis sigurmarkið.
Giorgio Chinaglia, sem leikur með Cosmos,
skoraði sitt 89. mark I 93 leikjum fyrir félagið I 2-1
sigri Cosmos yfir New England Teamen. Þetta var
16. sigur Cosmos I 20 leikjum og þykir það flott I
Ameríku, en hreinasti brandari er að lesa frétta-
skeytin frá Bandaríkjunum um fótbolta. Greinilegt
er að þeir eiga enn anzi margt eftir ólært. T.d. heiðr-
uðu þeir Sammy Chapman, sem áður lék lengst af
með Nottingham Forest, sérstaklega fyrir að missa
ekki eina einustu mínútu, eins og það er orðaö í
skeytinu úr 21 leik hjá Tulsa Rougnecks.
V-Þjóðverjinn Karl-Heinz Granitza hefur skorað
16 mörk fyrir Chicago Sting I 20 leikjum en Alan
Willey, sem lék með Middlesbrough áður en hann
hélt til USA, hefur gert 17 mörk I jafnmörgum leikj-
um.
Að sögn þeirra ,,westan"-manna er Phil Parkes
bezti markvörðurinn. Hann hefur aðeins fengið á sig
20 mörk I 20 leikjum. Ekki þætti það mikið afrek
austanhafs! Greinilegt er að Bandaríkjamenn lita
dálítið öðrum augum á fótboltann en almenningur í
Evrópu og einmitt staðhæfing þeirra að Parkes sé
bezti markvörðurinn þótt hann hafi aðeins fengið
á sig 20 mörk, sýnir það glögglega.
Trevor Francis gerir það gott hjá Detroit Express og
hefur skorað í 6 leikjum i röð.
Diðrik Ólafsson, markvörður Vlkinga, greip oft mjög skemmtilega inn I leikinn I gær og hér gómar hann eina hornspyrnu Skagamanna i síðari hálfleiknum með miklum
tilþrifum. Sigþór Ómarsson náði ekki til knattarins. DB-mynd Sv.Þorm.
Harðfylgi Lárusar færði
Víkingum sigur
—Hann skoraði eina mark leiksins gegn Skagamönnum í gærkvöld
Fjölmargir leikir voru á dagskrá í 3.
deildinni í vikunni og i sumum riðlum
eru línurnar nokkuð farnar að skýrast
en I öðrum er enn allt á huidu, þrátt
fyrir að talsverður fjöldi leikja hafi
farið fram, en hér byrjar hringferðin.
A-riðill
Grindavfk — Ármann 0-0 (0-0). Þessi
leikur var háður í Grindavik sl. mið-
vikudag og voru úrslit í honum ekki svo
ósanngjörn. Heimamenn sóttu ívið
meira, en Ármenningar áttu hættulegri
tækifæri ef eitthvað var. Fyrir
skemmstu unnu Ármenningar Grind-
víkinga 5-1 á Melavellinum, en sá
munur gefur enga hugmynd um styrk-
leika liðanna. Jafntefli var við hæfi.
Hvað um það, þessi lið standa bezt að
vigi í riðlinum ásamt Njarðvíkingum.
Víflir — Grótta 1-1 (1-01. Víðismenn
voru öllu sprækari í byrjun og eftir um
10 mín. fengu þeir fremur ódýra víta-
spyrnu og skoruðu úr henni. Eftir það
átti Grótta meira í leiknum en tókst
ekki að skapa sér nein almennileg færi
utan einu sinni. Fyrstu 20 mín. síðari
hálfleiks var um stórsókn Gróttu að
ræða en mark Víðis slapp alltaf. Grótta
hafði undirtökin lengst af, skyndisókn-
ir Víðis sköpuðu oft hættu, en mark-
vörður Gróttu, Sverrir Hafsteinsson,
varði mjög vel. Það var svo um 10 mín.
fyrir leikslok að Ingólfur Hannesson
jafnaði metin fyrir Gróttu með ágætu
marki eftir að vörn Víðis hafði mistek-
izt að hreinsa frá markinu. Jafntefli
e.t.v. ekki ósanngjarnt en Grótta mun
nærsigri.
Njarðvfk — Grindavfk 1-1 (0-1). Þessi
leikur fór fram á grasinu í Njarðvík og
þarna mættust tvö lið sem þekkja hvort
annað harla vel. Þau skUdu jöfn og
verða það að teljast sanngjörn úrslit
eftir tækifærunum. Grindvíkingar
sóttu gegn golunni í fyrri hálfleik og
voru þá atkvæðameiri. Á 31. mín.
náðu þeir forystu með marki Jónasar
Þórhallssonar eftir aukaspyrnu. Þar
brást úthlaup markvarðar Njarðvík-
inga. Skot Jónasar var laflaust og rétt
lak inn fyrir línuna.
í seinni hálfleik voru það heimamenn
sem höfðu undirtökin og jöfnuðu
þegar um 15 mín. lifðu af leiktimanum.
Þá börðust tveir leikmenn um knöttinn
á vinstri kantinum. Njarðvíkingurinn
hafði betur og sendi síðan þvert yfir
völlinn til Þorra Þorvarðarsonar. Hann
var þar á auðum sjó og skoraði örugg-
íega eftir að hafa leikið á markvörð
Grindvíkinga. Bæði liðin fengu 3—4
upplögð tækifæri hvort, sem ekki tókst
að nýta, en úrslitin voru sanngjörn.
Stjarnan — ÍK frestað. Þetta varð i
meira lagi sögulegur leikur ef leik
skyldi kalla því hann fór aldrei fram.
Bæði liðin voru mætt til leiks í Garða-
bæ en rétt áður en leikurinn átti að
hefjast snaraði dómarinn, Ólafur Val-
geirsson, sér inn í búningsherbergi ÍK-
manna með miklum látum og heimtaði
að sjá leikskýrslu. Var honum bent á að
verið væri að skrifa hana. Hafði Ólafur
engar vífilengjur heldur gekk að þeim
sem var að skrifa skýrsluna og þreif af
honum bókina, henti henni í gólfið og
sparkaði út í horn með tilheyrandi
blótsyrðum. Gekk hann síðan úr klef-
anum. Á slaginu fjögur flautaði hann
liðin út á völl. ÍK-menn, sem voru hálf
utan við sig eftir þessa heimsókn munu
hafa dvalið í búningsklefanum 2—3
mín. fram yfir kl. fjögur en héldu síðan
út á völl. Reglur KSÍ kveða svo á um að
lið hafi 10 mín. framyfir auglýstan leik-
tíma til þess að koma til leiks. Ekki liðu
meira en í mesta lagi 4 mín. i þessu til-
viki.
ÍK-menn gengu síðan galvaskir út á
völl, en mættu þá Ólafi, þungum á
,brún, með boltann undir hendinni. Allt
Stjörnuliðið gekk á eftir honum og
reyndi að tala um fyrir honum en án ár-
angurs. Kappinn hafði nefnilega
flautað leikinn af á þeirri forsendu að
ÍK væri ekki mætt til leiks.
Upphófst nú hið mesta þref að sjálf-
sögðu en dómarinn lokaði sig inni í
—skemmtileg keppni í öllum riðlum 3. deildarkeppninnar í sumar
klefa sínum og talaði hvorki við kóng
né prest. Við tækifæri skauzt hann út
úr húsinu,_en skildi leikskýrsluna eftir.
Á henni stóð að hann hefði dæmt leik-
inn ÍK tapaðan þar sem liðið hafði ekki
mætti til leiks.
ÍK-menn vilja að sjálfsögðu ekki una
þessum málalokum og hafa kært dóm-
arann. Það er dálítið kostulegt að
Ólafur skuli leyfa sér slíka framkomu
þegar bæði liðin eru mætt til leiks því
hann sjálfur getur ekki státað af glæsi-
legri mætingu í þeim leikjum sem hann
hefur átt að dæma. Til dæmis mætti
hann alls ekki til leiks Gróttu og
Grindavíkur, sem fram átti að fara 2.
júní. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspumir
og mikla leit fannst hann ekki á áður
boðuðum tíma. Þykir okkur hér á DB
harla ólíklegt annað en Ólafur missi
dómararéttindi sín eftir framkomu sína
í Garðabæ. En hvað um það, hér
kemur staðan í riðlinum:
Ármann 6 4 2 0 12-4 10
Grindavík 6 3 2 1 10-10 8
Njarðvík 5 14 0 6-5 6
Grótta 5 12 2 10-8 4
Víðir 5 0 4 1 7-8 4
Stjarnan 4 112 7-7 3
ÍK 5 0 1 4 4-14 1
- SSv. / emm.
B-riðill
Óflinn - Láttir 0-0. Þessi leikur fór
fram á föstudagskvöld og lauk með
markalausu jafntefli. Þar með tapaði
Óðinn sínu fyrsta stigi í riðlinum, en
harla ólíklegt er annað en að Aftureld-
ing vinni riðilinn með yfirburðum.
Léttir sótti heldur meira ef eitthvað var
en tækifæri Óðins vom hættulegri, en
ekki hefði verið ósanngjarnt að hvort
liðskoraði tvívegis.
Katla — Þór, Þorl. 6-1 (3-1). Þetta var
fyrsti sigur Kötlu í riðlinum og Þórsar-
ar frá Þorlákshöfn, sem virðast heillum
horfnir á útivöllum, vom fórnarlamb-
ið. Leikurinn var ekki svo ójafn í byrj-
un og t.d. var staðan jöfn, 1-1, um
miðjan fyrri hálfleikinn. Þá var hins
vegar eins og allt loft væri úr Þórsumm
og Katla bætti við fimm mörkum án
svars fyrir leikslok. Mörk Kötlu skor-
uðu Þorkell Ingimarsson 3 og Birgir
Einarsson 3, en Stefán Garðarsson
skoraði eina mark aðkomumanna.
þau skoruðu þeir Bjarni Konráðsson og
Sigurður Kristjánsson. Þá átti Kristján
Ágústsson ágætt skot í þverslá. Fyrir
heimamenn skoruðu þeir Kjartan
Ólafsson 2 og Magnús Erlingsson 2.
Sem dæmi um hörkuna í leiknum má
nefna það, að Davíð Sveinsson í liði
Snæfejls fékk spark í höfuðið og varð
að fara á sjúkrahús á ísafirði til að láta
sauma skurðinn saman. í því tilviki var
dæmt á hann, þannig að ekki er fjarri
lagi að ætla, að dómgæzlan hafi verið
fremur slök.
Vfkingur - Skallagrfmur 4-2 (3-1).
Eftir þennan sigur standa Víkingarnir
langbezt að vígi í riðlinum og hafa enn
ekki tapað stigi, en Skallagrimur hins
vegar þremur. Leikurinn var mest
miðjuþóf og mjög jafn en nýting tæki-
færanna gerði útslagið eins og svo oft.
Jónas Kristófersson, Jóhann Kristjáns-
son, Guðmundur Guðmundsson og
Bárður Tryggvason skoruðu fyrir Óls-
ara en fyrir gestina svöruðu þ>eir
Gunnar Jónsson og Ævar Rafnsson.
Staðan í riðlinum:
Víkingup 3 3 0 0 11-3 6
Skallagrímur 4 2 11 14-9 5
Stefnir 4 2 1 1 11-12 5
Bolungarvík 4 1 0 3 4-112
Snæfell 3 0 0 3 3-8 0
D-riðill
Leiftur — Svarfdœlir 1-2. Þetta var
eini leikurinn í þessum riðU um helgina,
en leik Höfðstrendinga og KS var frest-
að vegna þess að leikmenn KS eru í
keppnisferð í Færeyjum. Vegna örðug-
leika í símasambandi fyrir norðan gekk
illa að fá upplýsingar um þennan leik,
en SvarfdæUr munu hafa skorað sigur-
markið úr vítaspyrnu á lokamínútu
leiksins.
Staðan í riðlinum:
Tindastóll 4 4 0 0 19-6 8
SvarfdæUr 4 2 0 2 7-11 4
KS 3 1117-43
Leiftur 4 112 8-4 3
Höfðstrendingar 3 0 0 3 1-17 0
-ÞÁ
E-riðill
Völsungur — Árroðinn 1-1 (1-0).
Leikurinn var nokkuð tvískiptur. Fyrri
hálfleikinn áttu heimamenn að mestu
leyti og þá skoruðu þeir sitt eina mark
og var þar Ingólfur Ingólfsson að verki
eftir mistök í vörn Árroðans. Rétt á
eftir fékk Árroðinn vítaspyrnu en Erni
Tryggvasyni var brugðið. Hákon Hen-
riksen tók spyrnuna en markvörður
Völsungs varði hana með tilþrifum.
Árroðinn sótti síðan látlaust fyrstu
30 mín. í síðari hálfleik og tókst þá að
jafna metin með marki Arnar Tryggva-
sonar — skalli eftir hornspyrnu. Eftir
markið drógu leikmenn Árroðans sig
aftur og ætluðu að halda fengnum
hlut, sem þeim og tókst. Lokakaflann
var sókn Völsungs þung, en Árroðinn
gaf ekki höggstað á sér.
Reynir — Dagsbrún 1-1 (0-1). Þetta var
leikur botnliðanna í riðlinum og lauk
honum með sanngjörnu jafntefli.
Valdimar Freysson skoraði fyrir Dags-
brún í fyrri hálfleiknum en í þeim síðari
tókst Reyni að jafna með marki Óðins
Valdimarssonar. Dagsbrúnarmenn
voru óheppnir að bæta ekki við mörk-
um í fyrri hálfleiknum en í heildina
voruúrslitin nokkuð sanngjörn.
Staðan í riðlinum:
Árroðinn 4 3 10 11-1 7
Völsungur 3 2 1 0 7-2 5
HSÞ 4 2 0 2 4-7 4
Dagsbrún 3 0 12 1-4 1
Reynir 4 0 1 3 3-12 1
- St.A.
F-riðill
Fjórir leikir voru háðir í Austfjarða-
riðlinum, þar af léku Einherji. og
Leiknir tvívegis. Eftir þær viðureignir
stendur Einherji mjög vel að vígi i riðl-
inum.
Einherji — Leiknir 3-1 (2-1). Fyrsta
mark leiksins kom á 10. mín. og skor-
aði þá Helgi Ásgeirsson með saklausu
skoti sem fór milli fóta markvarðarins.
Leiknir jafnaði metin 15 mín. síðar
með stórglæsilegu skallamarki Ólafs
Ólafssonar, hins 18 ára markaskorara
þeirra Fáskrúðsfirðinga. Ólafur lék
áður stöðu varnarspilara en var færður
fram í sóknina með þeim árangri að
hann hefur nú gert 10 mörk. Rétt á eftir
náði Einherji forystunni á ný með
marki Kjartans Kjartanssonar og
þannig var staðan í hálfleik. í seinni
hálfleiknum bætti Einherji við einu
marki og var þar Steindór Sveinsson að
verki um miðjan hálfleikinn. Sigur Ein-
herja var mjög sanngjarn í þessum leik.
Einherji — Leiknir 2-1 (0-0). Liðin léku
síðan síðari leik sinn á Vopnafirði á
sunnudag. Ástæðurnar fyrir því að
báðir leikirnir eru á Vopnafirði í sumar
hafa verið raktar áður í 3. deildarpistli
DB. í þetta skiptið börðust leikmenn
Leiknis eins og ljón og leikurinn var í
járnum allan tímann. Snemma í síðari
hálfleiknum tók Leiknir forystuna með
marki Kjartans Reynissonar og þannig
var staðan þar til 15 mín. voru til leiks-
loka, að Einherja var færð vítaspyrna á
silfurfati. Úr henni skoraði Ingólfur
Sveinsson af öryggi. Við vítið var eins
og leikmenn Leiknis brotnuðu og rétt á
eftir skoraði þjálfari þeirra Vopnfirð-
inga, Þormóður Einarsson, sigurmark-
ið en hann var nýkominn inn á sem
varamaður.
Hrafnkell — Vakir 10-0 (3-0). Þetta var
þriðji útileikur Vals og þriðja stórtap
liðsins. Það hafði áður tapað 1-9 og 1-
11 á útivelli. Leikurinn var alger ein-
stefna og er lið Vals undarlegt því fyrir
skemmstu töpuðu Valsmenn 2-3 fyrir
Hrafnkeli á heimavelli. Nú héldu
Freysgoðanum engin bönd og Svavar
Ævarsson skoraði 5 mörk, Sigurður
Elísson 3 og Sigurður Gunnarsson 2 og
stórsigur Hrafnkels var í höfn.
Huginn — Súlan 3-0 (1-0). Þessi leikur
var afspyrnuslakur. Dómgæzlan átti
þar drjúgan hlut að máli en dómari
leiksins blés vart meira en 6 sinnum í
flautuna allan leikinn og komust menn
upp með alls kyns brot. Þeir Rúnar
Magnússon, Sveinbjörn Jóhannsson og
Pétur Böðvarsson skoruðu mörkin
fyrirHugin.
Staðan í riðlinum:
Hrafnkell Freysg. 5 5 0 0 18-3 10
Einherji 5 4 10 11-2 9
Huginn 6 3 1 2 18-8 7
Leiknir 7 12 4 14-11 4
Sindri 4 12 1 3-3 4
Súlan 6 1 2 3 4-114
Valur 5 0 0 5 6-36 0
Markahæstu menn:
ÓlafurÓlafsson, Leikni, lOmörk.
Svavar Ævarsson, Hrafnkeli, 7,
Pétur Böðvarsson, Hugin, 6. - VS
Stefnir — Snæfell 4-2 (2-1). Þetta var
annar sigur Stefnis í röð í riðlinum og í
þetta skiptið voru heimamenn mun
betri aðilinn allan tímann. Gestirnir
töldu þá að heimamenn spiluðu heldur
betur gróft og voru alls ekki ánægðir
með dómgæzluna í leiknum. Hvað um
það, Stefnir leiddi i leikhléi 2-l og í síð-
ari hálfleik jókst munurinn um helm-
ing. Bæði mörk Snæfells komu eftir
mistök í sendingum til markvarðar, en
Hekla — Leiknir 3-3 (1-3). Leiknir
byrjaði leikinn af krafti og eftir hálf-
tíma var staðan orðin 3-0 þeim í hag, en
leikið var á grasvellinum á Hellu.
Hilmar Harðarson skoraði tvö mark-
anna fyrir Leikni en óljóst var með
þriðja markið. Heimamenn gáfust hins
vegar ekki upp og tókst að minnnka
muninn fyrir hlé. í siðari hálfleiknum
tóku hlutirnir að ganga betur fyrir sig
hjá Heklu og þá tókst þeim að jafna
metin og var annað mark Heklu sérlega
glæsilegt. Eftir að Hekla hafði jafnað
metin áttu heimamenn mun meira í
leiknum og minnstu munaði að hið
reynslulitla lið Leiknis missti leikinn
niður í tap, en tókst að halda jöfnu.
Fyrir Heklu skoraði Samúel Erlings-
son, þjálfari, tvívegis og Halldór Guð-
mundsson bætti þriðja markinu við.
Hekla hefur enn ekki unnið leik í riðlin-
um, en staðan í honum er nú þannig:
Afturelding
Leiknir
Óðinn
Katla
Hekla
Léttir
Þór, Þorl.
8- 4 7
10-12 3
9- 14 3
7-11 2
7-24 2
- SSv.
C-riðill
Mark Lárusar Guðmundssonar á 53.
mínútu — hans fyrsta i 1. deildinni í
sumar — kann að reynast Vikingunum
dýrmætara en i fyrstunni virðist. Lárus
fylgdi mjög vel eftir sendingu inn i víta-
teiginn og það skiiaði sér. Jóhannesi
Guðjónssyni urðu á óvanaleg mistök
og Lárus skauzt eins og elding á eftir
knettinum og skoraði af öryggi fram-
hjá Jóni Þorbjörnssyni. Þetta reyndist
eina mark leiksins og það tryggði
Víkingunum tvö ákaflega dýrmæt stig.
Sigurinn í gær kemur á mjög góðum
tíma fyrir Víkingana, sem eru óðast að
ná sér á strik i eftir slaka byrjun. í gær
lék liðið mjög skemmtilega knatt-
spyrnu á köflum, en heppnir voru
Víkingar að vera ekki einu eða jafnvel
tveimur mörkum undir i hálfleik.
Víkingarnir voru mun ákveðnari
strax í upphafi og nokkrum sinnum
skapaðist hætta við mark Akumesinga.
Liðin sóttu á víxl en á 5. mínútu
bjargaði Jóhannes naumlega skoti frá
Heimi Karlssyni á línu.
Á 15. mínútu kom svo ein fallegasta
sókn leiksins. Kristján Olgeirsson gaf
þá góða sendingu inn í vinstra hornið á
Árna Sveinsson. Hann lék laglega á
Ragnar Gíslason og gaf fyrir markið.
Þar kom Kristinn Björnsson eins og
eimreið en þrumuskalli hans fór rétt
yfir markið. Akurnesingar fóru smám
saman að ná tökum á leiknum og stór-
hætta skapaðist í hvert skipti sem Árni
Sveinsson fékk knöttinn. Á 26. mín,
gaf Árni vel fyrir markið en skot
Sigþórs var óvandað og fór langt
framhjá. Hinum megin komst Lárus í
gegn en skaut rétt framhjá. Árni átti
enn eina glæsifyrirgjöfina á 30. mínútu
en í þetta skiptið bjargaði Diðrik með
stórkostlegum tilþrifum og hann átti
eftir að reynast Skagamönnum óþægur
ljár i þúfu síðasta stundarfjórðunginn í
fyrri hálfleiknum. Strax á næstu
mínútu gaf Árni rétt eina ferðina fyrir
markið og Sveinbjörn komst í upplagt
færi, en skaut yfir og virtist allt
mistakast hjá Sveinbirni í þessum leik,
hvort heldur það voru skot eða send-
ingar.
Á 3 mín. kafla fengu Akurnesinar
tvö upplögð tækifæri til þess að skora.
Á 37. mínútu kom lagleg sending fram
völlinn til Sveinbjamar. Hann bætti
aðeins við og stýrði knettinum inn í
eyðu til Sigþórs Ómarssonar sem átti
greiða leið að markinu. Þar sá hins
vegar Diðrik við honum og bjargaði
með góðu úthlaupi en Sigþór missti
knöttinn of langt frásér.
Tveimur mín. síðar fékk Kristján
Olgeirsson jafnvel enn betra færi.
Sigþór lék á tvo varnarmenn og lagði
knöttinn fyrir fætur Kristjáns sem var í
dauðafæri. Diðrik kom vel á móti
honum og tókst að bjarga skotinu með
tilþrifum. Þar fóru tvö góð færi
forgörðum. Á næstu mín. átti síðan
Kristján sannkallaðan þrumufleyg rétt
yfir markið.
Upphaf síðari hálfleiksins var dauft
og reyndar var síðari hálfleikurinn
mjög slakur. Eftir að Lárus skoraði á
53. mínútu var aldrei neinn vafi um
hvor aðilinn myndi sigra í leiknum.
Víkingar vora miklu nær því að bæta
við sínu öðru marki en Akurnesingar
nokkurn tíma að jafna metin. T.d.
sluppu Skagamenn með skrekkinn
þegar Guðjón Þórðarson virtist greini-
lega brjóta á Sigurlási Þorleifssyni inni
í vitateig, en ágætur dómari, Hreiðar
I. deild, Keflavíkurvöllur, ÍBK —
Valur, 0:3 (0:2).
Keflavíkurliðið vareins og veikburða
rjúpa í Valsklónum þar syðra 1 gær-
kveldi. Þrívegis sendu Valsmenn knött-
inn í net heimamanna, án þess að þurfa
sjálfir að ná í hann inn fyrir marklín-
una. Sigrinum fylgdu einnig tvö stig,
svo að Valsmenn hafa þá hlotið 9 stig,
jafnmörg og ÍBK, sem hefði með sigri
getað trónað efst i deildinni. Valsmenn
eru greinilega að ná sér á strik með sitt
sterkasta lið á sama tíma og ÍBK er að
síga í lægð — hefur tapað tveimur
leikjum i röð. Tranter, enski þjálfar-
inn, má svo sannarlega taka upp stóra
brýnið og hvessa svolítið eggina á bit-
lausu liði, ef ekki á illa að fara.
Hvort að það var rangri leikaðferð,
um að kenna, hægu varnarspili gegn
suðvestan kaldanum framan af leik,
eða að varnarmiðja ÍBK var ekki
vandanum vaxin var ekki gott að
greina, en alla vega gengu Valsmenn á
lagið þegar bakverðir ÍBK — sérstak-
lega Óskar Færseth — urðu að grípa
inn í leikinn á miðjunni.
Við það fengu úiherjar Valsmanna
fullfrjálst flug sem þeir notfærðu sér
sannarlega vel. Lögðu þeir kjölinn að
öllum mörkunum eftir að ÍBK vömin
hafði heldur betur riðlazt. Ingi Björn
Albertsson var svo sannarlega á skot-
skónum, réttur maður á réttum stað,
þegar svo bar undir, hann skoraði
fyrsta og þriðja mark Valsmanna. Hið
fyrra þegar um stundarfjórðungur var
liðinn af leik en þá höfðu Valsmenn
sótt nokkuð fast að ÍBK markinu og
fengið margar homspyrnur vegna
nauðvarnar heimamanna en ekki tekizt
Jónsson, sá ekkert athugavert. A 68.
min. komst Sigurlás í gegnum Skaga-
vörnina en Jón Þorbjörnsson kom í veg
fyrir mark með mjög góðu úthlaupi.
Akurnesingar skiptu þeim Matthíasi
og Guðbirni inn á fyrir Sveinbjörn og
Kristin undir lokin en allt kom fyrir
ekki og sigur Víkings var aldrei í hættu.
Vikingarnir léku þennan leik lengst
af vel. Slæmur kafli fyrir lok fyrri hálf-
leiks hefði þó getað kostað þá bæði
stigin. Diðrik varði af snilld í markinu
og vörnin var mjög örugg lengst af.
Það er hins vegar miðjan sem er vanda-
mál Vikinga. Gunnar örn sást varla í
leiknum og Hinrik var eitthvaðmiður
sín. Lárus átti stórskemmtilega spretti,
að nýta þær. Keflvikingar virtust
heldur vera að rétta úr kútnum þegar
Ingi Björn fékk knöttínn fremur óvænt
út við hliðarlinu hægra megin og
geystist inn fyrir ÍBK vörnina fram
undir endamörk. Þaðan sendi hann
knöttinn fyrir markið en hvernig sem á
því stóð tókst Þorsteini Ólafssyni
markverði ÍBK ekki að klófesta knött-
inn, sem þó átti að vera auðvelt, snerti
hann aðeins með gómunum og þaðan
snerist hann inn fyrir marklínu þrátt
fyrir góða viðleitni Óskars bakvarðar
að koma til bjargar, 1:0.
Seinna mark Inga Björns, svo áfram
sé haldið með hans þátt í leiknum, var
skorað skömmu fyrir leikslok. Vals-
menn veifuðu sannarlega vængjum
breiðum þegar þeir spiluðu hliðariín-
anna á milli með löngum þversend-
ingum. Áður en ÍBK vörnin fengi áttað
sig stóð Ingi Bjöm frír á vítapunkti,
svo iangt var í næsta varnarmann að
hann gat leyft sér að stilla knettinum
upp, rétt eins og um vítaspyrnu væri að
ræða, og auðvitað skoraði hann örugg-
lega.
Annað mark Valsmanna átti sér
svipaðan aðdraganda, sending frá
hliðarlínu hægra megin, inn í vítateig
ÍBK, þar sem tveir Valsmenn voru
óvaldaðir. „Láttu ’ann fara,” kallaði
Hálfdán örlygsson til Atla Eðvalds-
sonar, sem hann og gerði. Eftirleikur-
inn var auðveldur. Hálfdán fékk gott
næði til að sdlla sigtið og skjóta hörku-
skoti sem Þorsteinn réð ekki við.
Yfirleitt vora Valsmenn meira í sókn
allan leikinn og upphlaup þeirra hættu-
legri en heimamanna. Þeir voru
ákveðnari og fljótari á knöttinn og áttu
en Sigurlás var rólegur. Beztu menn
Víkinga voru þeir Jóhanes Bárðarson
og Heimir Karlsson. Ólíkir leikmenn,
en góðir hvor á sinn hátt. Jóhannes
vann geysilega vel allan leikinn og
hefur ekki leikið betur í sumar og
margar sendingar Heimis voru gullfall-
egar.
Skagamenn eru eitthvað að gefa eftir
þessa dagana. Það er þó engin ástæða
til að örvænta. Enn sem komið er
getur hvaða Uð sem er unnið titilinn og
Skagamenn hafa lokið 7 útíleikjum af
9. Beztir í gær vora þeir Árni, Jón
Alfreðsson, sem barðist mjög vel allan
tímann og Jón í markinu.
-SSv.
oft skemmtilega útfærðar sóknartil-
raunir, þar sem Guðmundur Þor-
björnsson, Albert Guðmundsson, Ingi
Björn og ekki síst Hálfdán vora drif-
fjaðrirnar, ásamt Atla Eðvaldssyni,
sem þó hefur oft verið betri. Dýri
Guðmundsson stjórnaði vörninni af
miklu öryggi enda var erfitt fyrir
sóknarmenn iBK að brjóta sér leið þar
í gegn. f þau skipti sem það tókst
mættu þeir Sigurði Haraldssyni þar
fyrir, sem varði knálega það sem á
markið kom.
Keflavíkurliðið oUi mönnum von-
brigðum. Vörnin var eins og flóðgátt,
opin á alla vegu. Tengiliðirnir fundu sig
aldrei i leiknum, sérstaklega Guðjón
Guðjónsson, áður bakvörður. Fram-
línan dró dám af þeim, enda fékk hún
fáar góðar sendingar til að vinna úr.
Eini ljósi punkturinn var Ragnar
Margeirsson, hinn bráðefnUegi mið-
herji ÍBK, sem storkaði Valsvörninni
oft illilega með leikni sinni og hraða.
Hann var líka tekinn heldur óblíðum
tökum og var það kannski það eina sem
finna má að góðum dómara leiksins,
Sævari Sigurðssyni, að hann veitti
Valsmönnum ekki nægUega refsingu
fyrir meðferðina á Ragnari. Reyndar
sló heldur UUlega í brýnu á milli
Ragnars og Hálfdánar í fyrri hálfleik,
þegar Hálfdán spyrnti fótunum undan
Ragnari, sem svaraði fyrir sig með því
að „dangla” í Hálfdán, sem óðara féll
eins og skotinn tíl jarðar, eiginlega
áður en Ragnar snerti hann. Rauða
spjaldið hefði ef tíl vill átt þarna bezt
við á báða.
-emm.
VALSMENN VEIFUDU VÆNGJ-
UM BREIÐUM í KEFLAVÍK
—3. deild —3. deild—3. deild—3. deild—3. deild—3. deild—3. deild—3. deild—3. deild—
SVAVAR SK0RAÐIFIMM
í 104) SIGRIHRAFNKELS!