Dagblaðið - 10.07.1979, Qupperneq 23
f
ÖRYGGISMÁL EVRÓPU-útvaip kl. 19.35:
„Evrópa verður að tryggja sér
aðgang að hráefnum”
—segir Haraldur Blöndal
Haraldur Blöndal, lögfræðingur
flytur erindi i útvarpi í kvöld kl. 19.35
og fjallar hann um öryggismál Evrópu í
þætti sínum.
Haraldur sagði í samtali við DB að
hann hafi setíð ráðstefnu í Strassburg í
fyrra sem haldin var á vegum Demic
sem eru samtök allra sjálfstæðisflokka
i Evrópu.
Um þessa ráðstefnu ætlar Haraldur
að tala, en á henni var meðal annars
fjallað um öryggismál, bæði frá
hernaðar- og efnahagslegu sjónarmiði.
,,Var meðal annars fjallað um
naúðsyn Evrópu til að tryggja sér
aðgang að hráefnum, t.a.m. olíu,
málmi og öðru slíku,” sagði Haraldur.
,,Og eins um vaxandi ásókn Sovét-
manna til að bola Vesturlöndum frá
Afríku, t.d. Angóla, þar sem við
höfum fengið flest okkar hráefni.
\___________________________________
Á ráðstefnunni var ennfremur vikið
að vandamáli sem kæmi i kjölfar þess
að íran félli en ég er ekki viss um að ég
fari inn á þær brautir.
Þetta eru sem sagt svona
sameiginleg viðhorf þessara flokka i
Evrópu sem eru samtök ungra sjálf-
stæðismanna,” sagði Haraldur að
lokum. Erindi hans tekur um tuttugu
og fimm minútur.
-Ei.A.
Haraldur Blöndal lögfræðingur flytur er-
indi i útvarpi i kvöld.
t--------------------------------
SUMARVAKA—útvarp M. 21.20:
M voraði vel 1904
Gunnar M. Magnúss les kaf la úr bók sinni
Sigriður Ámadöttir, aðalritari frétta-
stofu útvarps.
V_________________________________
Sumarvakan er að vanda á dagskrá
útvarpsins í kvöld kl. 21.20. Á Djúpa-
vogi við Berufjörð nefnist fyrsti dag-
skrárliðurinn og er það séra Garðar
Svavarsson sem heldur áfram að minn-
ast fyrstu prestsskaparára sinna fyrir
hálfum fimmta áratug.
Að kveldi nefnist annar liður og er
það Ingólfur Jónsson frá Prestbakka
sem les frumort Ijóð sem ekki haf'a
verið birt áður.
Á leiðinni í frétta-
mannsstarfið
Hún Sigriður Árnadóttir byrjaði
sem sendill hjá útvarpinu fyrir þremur
árum. Nú er hún komin með starfs-
heitið aðalritari fréttastofunnar.
Hún vélritar fyrir fréttamenn, svar-
ar sima þeirra og hleypur með fréttir
þeirra upp á næslu hæð, auk þess sem
hún lagar kaffi og fleira.
Þó að hún sé hlaupandi út og suður
allan daginn fyrir fréttamenn er hún
samt mjög ánægð með starf sitt.
Kannski henni takist að verða frétta-
maður fyrir rest, hver veit.
-ELA.
Tæknimannsstarfið:
„Bæði skemmtilegt
og fjölbreytT
Tæknimenn útvarpsins hafa yfirleitl
ærið nóg að starfa. Er DB-menn voru
á ferðalagi um útvarpshúsið á dögun-
um rákust þeir á Magnús Hjálmarsson
tæknimann og spurðu hann lítillega uni
starf hans.
Magnús vildi litið annað segja en að
1_________________________________
starfið væri bæði skemmtilegi og fjöl-
breytt og gæfi kost á því að sjá alltaf ný
og nýandlit.
Hjá útvarpinu slarfa nu 16
læknimcnn og hefur nokkuð verið rætt
um þá i fjölmiðlum undanlarið. vegna
vfirvinnubanns, sem þeirsióðu i. EI.A.
_________________________________>
I júlimánuði fyrir 75 árum, Gunnar
M. Magnúss rithöfundur les nokkra
kafla úr bók sinni Það voraði vel 1904.
Að siðustu er síðan kórsöngur og er
það Karlakór Reykjavikur sem syngur
nokkur lög undir stjórn Páls P. Páls-
sonar. Lögin eru öll eftir Sigfús Einars-
son og heita þau: Yfir voru ættarlandi,
Sefur sól hjá ægi, Draumalandið, Þú
álfu vorrar yngsta land, Ég man þig, og
Þó að kali heitur hver. Sumarvakan
stendur í rúmlega klukkustund.
-ELA.
V__________________________________
Gunnar M. Magnúss rithöfundur les kafla úr bók sinni I Sumarvöku i kvöld.
Magnús Hjálmarsson var að lesa yfir útvarpsdagskrána þegar Bjarnleifur tók þessa
mynd af honum.
EINSÖNGUR—útvarp M. 21.00:
Elísabet Erlings-
dóttir syngur
í kvöld kl. 21.00 syngur Elísabet
Erlingsdóttir nokkur lög við undirleik
Guðrúnar Kristinsdóttur. Eftir Karl O.
Runólfsson syngur Elisabet Svefnljóð.
Stef, Síðasta dans, Den farende svcnd
og Allar vildu meyjarnar.
Eftir Pál isólfsson syngur hún
Vögguvisu, Konuvísu, Frá liðnum
dögum, og Sáuð þið hana systur mina.
Elisabet mun syngja i luttugu minútur i
kvöld.
-EI.A.
Elisabet Erlingsdóttir
cinsöngvari.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI 1979.
i