Dagblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 11. JULÍ 1979 — 155. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. 11PROSENT GENGIS- FELUNG EIN LEIDIN — Tómas stóó einn á móti óbreyttri prósentu bensínskatts—sjá baksíöu Farandverkamaðurí Vinnslustööinni: „Skapaði leiðindi" —fékk spark „Þetta eru dæmigerð viðbrögð, að hengja einn öðrum til viðvörunar. Manninum var sagt upp fyrir það að „skapa leiðindi” á vinnustaðnum,” sagði Jón Kjartansson, formaður verkalýðsfélagsins í Vestmannaeyjum við DB í morgun. Ólga er meðal farandverkafólks í Eyjum um þessar mundir, haldinn var fundur um síðustu helgi þar sem kröfur voru settar fram i réttinda- og kjaramálum. í gær æstist leikurinn, þegar verkstjóri Vinnslustöðvarinnar rak verkamann sem hefur rætt mál- efni verkafólks við vinnufélagana úr starfi. Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar hélt fund í gær þar sem m.a. voru valdir trúnaðarmenn. En löggjafinn verndar þá ekki, þar sem farand- (verkafólk er að sögn homreka i verkalýðshreyfingunni og nýtur ekki félagslegra réttinda fullgildra félaga stéttarfélags. Um næstu helgi ætlar farandverka- fólk að halda fund í Alþýðuhúsinu og ræða sín mál. „Fólkið er að uppgötva samtakamátt sinn og þvi eru hér á ferðinni meiri háttar tiðindi” sagði Jón Kjartansson. -ARH. LÆTHANN EKKIÞÓTT TILBOÐ KOMI Mjúklega og nær hljóðlaust rann þessi gamla straumlínulagaða „drossía” i eitt bílastæðið við Ráðhús- torgið á Akureyrí er DB-menn sátu þar á dögunum og virtu fyrír sér norðlenzkt mannlíf. Út steig virðulegur, gamall Akureyringur, likastur þýzkum kanzlara og renndi tikalli i stöðumæl- inn þó hann værí við bilinn og biði þar meðan konan skrapp í nærliggjandi búðir. Þeir svíkja ekki undan skatti þessir gömlu heiðursmenn. „Bíllinn er síðan 1948 eða rösklega þritugur að aldri,” sagði ökumaðurínn Gunnar Austmann er við tókum hann tali. „Ég fékk hann hins vegar fyrir 16 árum og þá var þakið niðri i sætum eftir vellu.” Bíllinn bar ýmis merki aldurs og Gunnar kvað boddifestingar teknar að ryðga. „Þó ég hafi fengið ýmis tilboð í hann þá læt ég hann ekki. Án hans gæti ég ekki hreyft mig. Og mótorvið- gerðir hefur engar þurft að gera á bílnum. „Ég er sjálfur miklu meiri ræfill heldur en bíllinn og hef ekkert unnið í 7 ár, bíð bara núna eftir farseðlinum,” sagði Gunnar sem um árabil starfaði sem pípulagningameistarí. Hann er nú 78 ára. Konan var komin, Dodginn fór silki- mjúkt í gang og hvarf af Ráðhústorg- inu með glæsibrag og tiguleik. -ASt/DB-mynd: Hörður. Stuðningsmenn hvalfriðunar unnu mikinn sigur í gær þegar tækninefnd Alþjóða hvalveiðiráðsins samþykkti að mæla með því að hvalveiðar í Indlandshafi yrðu bannaðar í tíu ár. AðaJnefnd hvalveiðiráðsins á eftir að taka afstöðu til þessa máls og þarf 2/3 atkvæða til að tillagan nái fram aðganga. í dag verða greidd atkvæði um bann við hvalveiðum og er talið að bannið verði fellt með naumum meirihluta. Vísindanefnd hvalveiðiráðsins er klofin í afstöðu sinni til hvalveiði- banns og fleiri atriða sem hún hefur til umfjöllunar. DB reyndi í morgun að ná sam- bandi við íslenzku fulltrúana á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins en fékk þær upplýsingar að þeir vildu ekki ræða við fjölmiðla. -GM Skjaldarbjamarvík á Ströndum: Svona étur enginn sel nema ísbjöm „Það étur enginn sel á þennan hátt nema isbjöm,” sagði Gunnar Guð- jónsson bóndi á Eyri við Ingólfsfjörð í samtali við fréttamann DB í gær um selshræ, sem Gunnar og fleiri fundu i Skjaldarbjarnarvík noröan Bjamar- fjarðar á Ströndum fyrir tíu dögum Gunnar fór ásamt fleirum á tuttugu tonna báti, Dagrúnu frá Djúpuvík, til að sækja rekavið, en Eyrarbændur eiga reka í Drangavik og Skjaldarbjamarvik. Þar fundu þeir selshræ, sem Gunnar telur ekki fara á milli mála að isbjörn hafi gætt sér á. „Hann byrjar framan á og étur sig aftur úr honum — spik, bein og allt saman,” sagði Gutinar. Hann sagðist lelja hræið tiltölulega nýtt. Í varphölma I Drangavik fannst annað seishræ, trúiega eldra. Gunnar Guðjónsson sagði fréttamanni blaðs- ins að nóg væri um sel og annaö æti í Skjaldarbjamarvik. Bangsi — væri hann þar á annaö borð — þyrfti því segir Gunnar Guðjónsson á Eyri, sem fann tvö selshræ á Ströndum ekki að fara víða til að hafast sæmi- lega við. Bændur á Ströndum hafa yfirleitt með sér skotvopn þegar farið er á reka i víkunum norður af Ingólfsfirði — og þessa dagana taka þeir byssur með sér undantekningariaust. Frá Ingólfsfirði i Skjaldarbjarnarvik eru um 25 sjómilur, eða þriggja tima sigl- ing með trillu. Síðast var drepinn ís- bjöm í Drangavik 1936. - ÓV / JS á Hólmavík

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.