Dagblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 24
[^líukreppan^j-------------
11PRÓSENT GENGIS-
FELLING EIN LEKHN
Tómas einn á móti lækkun skattprósentu á bensín
Um 11 prósent gengisfelting er ein
leiðin við olíukreppunni sem nú er æ
meira rædd í stjórnarherbúðunum.
Slík gengisfelling gæti „sléttað oliu-
dæmið” og stutt útflutningsatvinnu-
vegi, þar á meðal ullariðnaðinn. Út-
gerðarmenn eru andvígir henni, enda
lán þeirra gengistryggð.
Alþýðubandalagið stendur enn á
tillögum sinum um innflutningsgjald.
Andvirði þess rynni i sérstakan oliu--
sjóð, samkvæmt tillögum flokksins,
og yrði ekki blandað saman við ann-
að i rekstri rikisins.
Steingrimur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, segir í
Tímanum í dag að fyrir utan gengis-
fellingu komi helzt til greina 7% inn-
flutningstollur eða 4 stiga soluskatts-
hækkun.
Tómas Árnason fjármálaráðherra
stóð einn uppi á rikisstjórnarfundi i
gær, þegar rætt var hvort eitthvað
eigi að lækka það háa hlutfall sem
ríkissjóður tekur til sín af bensín-
verði. Tillögureru frá Alþýðubanda-
lagi og Alþýðuflokki um lækkun og
Steingrímur Hermannsson og Ólafur
Jóhannessor forsætisráðherra hafa
verið til viðtals um það. Tómas
stendurá móti og bendir á 5 milljarða
greiðsluhalla rikissjóðs og vill fá aðra
tekjustofná samþykkta áður en hann
fellst á lækkun prósentu bensínskatt-
anna.
- HH
HANN var fengsœll guttinn sá ama I
gœr. Hann var aö kanna „innviöi”þessa
hylkis l Héðinsportinu er hann fann þrjú
karton af sigarettum. Samkvœmt upplýs-
ingum Þórarins Öfjörð verkstjóra hjá
Héðni í morgun eru hylki þessi kölluð
syklónar og notuð i sildarverksmiðjur.
Hylkin eru smíðuð hjá Héðni og liggja
í Héðinsportinu. Sennilega hefúr einhver
þurft að geyma fenginn þarna um stund
en óvíst er um ástœðurþess.
Ekki sagðist Þórarinn vita til manna-
ferða þarna utan þess að krakkar vœru
þama oft að leik og fteru inn og út úr
þessum hylkjum.
- JH / DB-mynd Árni Páll
Skattskrár Vestfjarða
lagðarfram:
Norðurtangi
greiðir rúmar
150milljónir
Skattskrár Vestfjarðakjördæmis
hafa verið lagðar fram. Álögð gjöld
nema alls rúmum fjórum milljörðum
króna á tæplega fimm þúsund og fimm
hundruð einstaklinga. Á siðasta ári
námu álögð gjöld tæplega tveimur og
hálfum milljarði.
Hraðfrystihúsið Norðurtangi h f.,
Ísafirði, ber hæst gjöld fyrirtækja,
samtals um 150,7 milljónir króna, næst
kemur Íshúsfélag ísfirðinga með um 89
milljónir króna og þriðja í röðinni er
Hrönn hf., ísafirði, með um 56 millj-
ónir króna.
Hæst gjöld einstaklinga ber Jón Fr.
Einarsson byggingameistari, um 29,6
milljónir króna. Annar í röðinni er
Hrafnkell Stefánsson lyfsali með um
14,9 milljónir króna og þriðji er Óli J.
Sigmundsson framkvæmdastjóri með
um 10,8 milljónir króna.
Gjöld á einstaklinga að meðaltali eru
hæst á ísafirði 936.356 krónur, í Bol-
ungarvík eru þau 929,538 krónur og í
Súðavik eru þau 765.282 krónur.
-GM
SIGARETTUR
ÍSYKLÓN
Formaður samninganef ndar Fl A:
„Forkastanlegt að fulltrúi fíug-
málastjóra sé eigandi fíugskóla”
Verkfall FÍA manna hjá Flugtaki hf. vegna þess að neitað er að greiða
ílífeyrissjóð, orlof, stéttarfélagsgjöld ogfasta kauptíma
Félag íslenzkra atvinnuflugmanna
hefur átt í deilum við flugskólann
Flugtak hf, nú um mánaðaskeið þar
sem Flugtak hf. hefur neitað að
greiða í lífeyrissjóð, orlof, stéttar-
félagsgjöld og fasta kauptíma.
Árni Sigurðsson formaður
samninganefndar FÍA sagði að FÍA
hefði sent Flugiaki bréf í apríl, en því
hefði ekki verið anzað og því hefði
FÍA boðað verkfall á Flugtak hinn
10. maí. Þeir menn sem FÍA talaði
við hjá Flugtaki hf. voru Sævar Þ.
Sigúrgeirsson endurskoðandi og
Pétur Einarsson fulltrúi flugmála-
stióra, en þeir eiga Flugtak hf.
Árni sagði að nú sæi einn maður
um flugkennsluna hjá Flugtaki hf, en
hann sagði sig úr FÍA. „Hann er
eflaust ágætur flugkennari, en það
breytir ekki því að hann hefur ekki
réttindi til þess að vera yfirflugkenn-
ari,” sagði Árni. „Þeir hafa nú boðið,
þremur FÍA mönnum störf við flug-
kennslu en þeir hafa ekki full rétt-
indi. Pétur Einarsson hefur hins
vegar boðið þeim undanþágu Flug-
málastjórnar og notar á þann hátt
aðstöðu sína sem opinber embættis-
maður.
Þessir menn munu ekki starfa hjá
Flugtaki nema eftir samningi FÍA.
FÍA hefur nýlega gert fyrsta flug-
kennarasamninginn sem gerður hefur
verið. Hann var gerður við Flugskóla
Sauðárkróks og verður hann lagður
til grundvallar við aðra samninga-
gerð.”
„Við ætlum að sjá hvernig þeir hjá
Flugtaki taka þessum samningi,”
sagði Árni, „en því má bæta við að
það er forkastanlegt að fuUtrúi flug-
málastjóra sé eigandi flugskóla og
geti þannig haft áhrif á ákvarðanir
honum í vU.”
-JH.
frjálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLl 1979.
HMsveinaískák:
Jóhann
sækirsig
Jóhann Hjartarson vann Góderis frá
Belgiu í 3. umferð heimsmeistaramóts
sveina í Belfort í Frakklandi í gær. Var
skákin mjög vel tefld að því er Jón
Pálsson, aðstoðarmaður Jóhanns,
sagði í símtali við Dagblaðið frá Bdgiu í
morgun. Hefur Jóhann því hlotið 2
vinninga, en hann tapaði fyrir Banda-
ríkjamanninum Benjamin í 1. umferð.
Efstur eftir 3 umferðir eru Benjamin,
Hernandez frá Portúgal, Milos frá
BrasUíu og Rússinn Elwert en hann
sigraði Bretann Short í gær. Efstu
mennirnir mætast innbyrðis í dag og
reiknað er með að Benjamin og Elwert
tefU saman. Ekki var í morgun vitað
hver yrði andstæðingur Jóhanns.
__________________-GAJ
Kæra vinnuveitenda
vegna yfirvinnubanns
farmanna:
Vfsað
frádómi
— Vinnuveitendur áfrýja
Félagsdómur vísaði í gær frá máli því
sem Vinnuveitendasamband íslands og
Vinnumálasamband samvinnufélag-
anna höfðuðu á hendur Farmanna- og
fiskimannasambandinu vegna yfir-
vinnubanns félagsmanna í FFSÍ.
Vinnuveitendur hafa ákveðið að áfrýja
dómnum til Hæstaréttar.
Þrír dómarar af fimm í félagsdómi
kváðu upp þennan úrskurð. Megin-
ástæðan fyrir frávísuninni var sú að
yfirvinnubannið væri ekki á ábyrgð
stéttarfélagsins og ekki verkfallsað-
gerð. í niðurstöðum dómsins segir og
að bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar,
sem sett voru til lausnar farmannadeil-
unni, skipi málum á annan hátt ;n gert
sé í lögum um stéttarfélög og vin íudeil-
ur og verði ekki hjá því komizt að líta
svo á að félagsdómur eigi ekki úrskurð-
arvald um ágreiningsefni málsins.
- GM
Friðrik til
Rússlands
Friðrik Ólafsson, forseti FIDE,
heldur til Sovétríkjanna nk. laugardag
ásamt konu sinni I boði íþróttamála-
ráðs Sovétríkjanna til að vera viðstadd-
ur sovézku leikana sem haldnir eru
fjórða hvert ár.
Friðrik er sem kunnugt er nýkominn
heim frá Filippseyjum þar sem hann
tók meðal annars þátt í alþjóðlegu
skákmóti og hreppti þar annað sætið á
eftir Torre, stórmeistara frá Filippseyj-
um. Einnig kom Friðrik við í Hong
Kong, Singapore, Kuala Lumpur og
Bangkok og ræddi við forráðamenn
skáksambanda viðkomandi landa.
-GAJ