Dagblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1979. 7 Erlendar Orkuspamaður Carters Bandaríkjaforseta: fréttir REUTER NewYork: Sáms sonur skorinn með rakvélarblaði David Berkowitz, morðinginn sem olli sem mestum ótta í New York árið 1977 með því að drepa fjölda manns og skildi ávallt eftir sig nafnið sonur Sáms, var særður nokkrum sárum er félagi hans í Atica fangelsinu skar hann með rak- vélarblaði í gær. Takmarkanir á hita- og kælikerfum vill ekki leyfa meiri hækkanir á olíu þar sem það muni auka verðbólgu og óánægju Talið er að hin nýja orkuáætlun Jimmy Carters Bandaríkjaforseta verði tilbúin innan skamms. Eitt þeirra atriða sem talið er verða í áætluninni er sérstakar takmarkanir á orkunotkun til hita og loftkælibún- aðar i opinberum byggingum i Bandaríkjunum. Mun það spara á milli tvö hundruð og fjögur hundruð þúsund tunnur af oliu á dag að sögn eins starfsmanns orkumálaráðu- neytisins í Washington. Aftur á móti mun Carter forseti ekki telja fært að losa um verðlags- hömlur á olíu og bensíni eins og margir sérfræðingar hans hafa lagt til. Teiur forsetinn að slíkar aðgerðir mundu í fyrsta lagi auka verðbólguna í landinu og þannig skapa meiri vandamál en leysast mundu. Hann telur heldur ekki rétt að auka á reiði og vandræði fólks í Bandaríkjunum, sem þegar má búa við biðraðir við bensíndælur og síhækkandi orku- verð. Er talið að forsetinn hafi þá til dæmis komandi forsetakosningar í huga. Talsmenn þess að aflétta verðlags- hömlum af olíu og bensíni halda þvi fram að slíkt sé heppilegasta leiðin til orkusparnaðar. Sé þetta fljótvirkasta leiðin til að fá hinn almenna Banda- ríkjamann til að gera sér grein fyrir orkuvandanum og fá hann til að spara. Helzti talsmaður þessa sjónar- miðs er James Schlesinger, orku- málaráðherra Bandaríkjanna. Hefur hann legið undir verulegri gagnrýni vegna þessa harðlínusjónarmiðs síns á undanförnum vikum. Sósíal- ista faliðað mynda stjóm í gær var sósíalistaleiðtoginn Bettino Craxi tilnefndur til að reyna að mynda nýja stjórn á italiu og leysa þar með úr hinni sex mánaða löngu stjórnarkreppu í landinu. Leiðtogar stærsta stjórnmálaflokks landsins, Kristilega demókrataflokks- ins, og þess flokks sem ávallt hefur tekið þátt í stjórnarmyndun í landinu frá lokum síðari heimsstyrjaldar voru fljótir að vara Craxi við. Segja þeir að ekki komi til greina að Craxi geti myndað stjórn með kommúnistum því með þeim muni kristilegir demókratar vinna. Segjast þeir heldur ekki munu sætta sig við samstarf kommúnista og sósialista. Takist Croxi að mynda stjórn verður hún hin þrítugasta og áttunda frá styrj- aldarlokum. Flokkur hans hefur odda- aðstöðu á milli tveggja stærstu flokka Ítalíu, kommúnista og kristilegra demókrata. Heppnist leiðtoga Sósíal- istaflokksins stjórnarmyndunin verður hann fyrsti forsætisráðherra flokksins í ítalskri sögu. Sjálfur viðurkennir Croxi þó að mörg ljón séu í veginum og margan hjallann eigi eftir að komast yfir áður en hann verði kominn í leið- togasætið. Rfkisstjórn Malasiu hefur nú tekið það ráð Vietnam aftur vistum og olfu á báta þeirra og senda þá sfðan til hafs. að búa tlöttamenn sem koma sjóleiðis frá Nicaragua: Bianca Jagger leitar horfinna ættingja sinna Mjög vandaðir VEIÐIJAKKAR Bianca Jagger, fyrrum eiginkona Mick Jagger liðsmanns í Rolling Stones hljómsveitinni, er komin til Nicaragua og leitar þar nú foreldra sinna og systkina, sem eru horfin. Hefur hún meðal annars komið í nokkrar flóttamannabúðir í höfuð- borginni Managua. Þegar hún kom til hverfis þess í höfuðborginni, þar sem hún bjóáður með fjölskyldu sinni í Managua frétti hún að fólk hennar hefði flúið út í sveitir Nicaragua til að forða sér frá ógnum borgarastyrjaldarinnar, eins og tugþúsundir annarra borgarbúa. Tiltölulega kyrrt hefur verið í Nicaragua undanfarinn sólarhring og ekki hafa borizt miklar fregnir af bardögum. Staða Somoza forseta virðist þó vera talin gjörsamlega von- laus þó hann sjálfur og talsmenn hans neiti stöðugt orðrómi um að hann hyggist hverfa úr landi. Tilkynnt hefur verið opinberlega að herforingjar úr þjóðvarðliði Somoza hafi ekki leyfi til að hverfa úr landi nema með sérstöku skriflegu Bianca Jagger í einum þeirra flótta- mannabúða sem eru i höfuðborginni Managua í Nicaragua. Wt » leyfi forsetans sjálfs. Hefur þetta verið tilkynnt á öllum flugvöllum landsins. Skæruliðar sandinista bera sig aft- ur á móti vel og tilkynntu i gær að þeim hefði borizt fimmtán þúsund manna liðsauki, þegar tvær borgir hefðu fallið í þeirra hendur. Bandaríkin: Óvæntur f undur Muzorewa bisk- ups með Carter Jimmy Carter Bandaríkjaforseti og Muzorewa biskup forsætisráðherra Rodesíu/Zimbabwe halda með sér fund á setri hins fyrrnefnda í Camp David í Maryland í dag. Fundur þessi kemur nokkuð á óvænt því ekki var búizt við að Carter gæfi sér tíma frá orkumálaviðræðum hans og ráðgjafa hans til að ræða við leiðtoga hinnar nýju ríkisstjórnar hvítra og svartra í hinni gömlu brezku nýlendu. Banda- ríkjastjórn hefur heldur ekki viður- kennt ríkisstjórn Muzorewa hingað til, þó svo að meiri hluti utanríkis- málanefndar öldungadeildarinnar í Washington vilji fara þannig að og jafnframt aflétta viðskiptabanni á Ródesíu/Zimbabwe. Ekki er búizt við miklum árangri af fundi leiðtoganna sem ætlað er að standa stutt. Þykir það þó nokkur árangur hjá Muzorewa og stuðnings- mönnum hans að fá Carter til viðræðna. Biskupinn er á ferð í Bandaríkjun- um til að reyna að vinna ráðamenn þar á sitt band og sýna þeim fram á að kosningarnar sem haldnar voru í Ródesíu í maí síðastliðnum hafi verið nægilega réttlátar til að sýna þjóðar- viljann. Muzorewa forsætisráðherra frestaði för sinni frá Bandaríkjunum til London um hálfan sólarhring vegna fundarins með Carter forseta. Erindi hans til London er hið sama, að vinna ríkisstjórn sinni viðurkenn- ingu. Útilíf

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.