Dagblaðið - 11.07.1979, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUK 11. JÚLÍ 1979.
á ne ytendamarkaði
Lélegar kartöf lur á markaðinum:
v
Kóssinn rif naði af og
NÝ REGNKflPAN VAR ÓNÝT
má auftvitaft sepja sem svo
að maður eigi ekki að kaupa svona
ódýra iiiuli, þeir hljóti að vcra ónýtir.
En maður er alltaf að reyna að
spara,” sagði kona sem kom við á rit-
stjórn DB með regnkápu sem þó ný
væri var farin að leka. Ástæðan var
sú að rennilásinn á kápuna var festur
neðst með kóssa. Efnið í kápunni var
ekki sterkara en svo að kóssinn hrein-
lega rifnaði frá og eftir var gat.
„Ég hélt fyrst að þetta væri vegna
lélegrar meðferðar minnar. En svo sá
ég konu sem ég þekki í nákvæmlega
eins kápu sem farin var á nákvæm-
lega sama hátt og þá sá ég að eitthvað
hlaut að vera að framleiðslunni,”
sagðikonan.
Kápan var gul og blá og hægt að
snúa henni á hvort borðið sem var.
Hún kostaði tæp 4 þúsund. Sína
kápu hafði konan keypt í Hagkaupi
en kunningjakona hennar hafði aftur
á móti keypt sína kápu i Sparimark-
Raddir neytenda
aðnum í Kópavogi. Ekkert stóð á
kápunni um framleiðsluland né
heldur hvernig skyldi fara með hana.
„Ég spurði afgreiðslustúlkuna í
Hagkaupi hvort þvo mætti kápuna í
þvottavél. „Stendur það ekki á
henni?” spurði hún. Þegar ég kvað
nei við sagði hún: „Ef það stendur
ekki þarna veit ég það ekki”. Ja, til
hvers er afgreiðslufólk nú á dögum.
En því að kápan hafi verið þvegin
rangt getur ekki verjð um að kenna í
þessu tilliti þvi húri var það ný, að
ekki hafði einu sinni unnizt tími til að
óhreinka hana, hvað þá þvo,” sagði
hinn óánægði regnkápueigandi.
Það sýnist því vera full nauðsyn á
að koma upp góðum vetrargeymslum
fyrir kartöflumar, til þess að mikil og
góð uppskera, eins og í fyrrasumar,
komi að einhverju gagni. Það sýnist
undarleg ráðstöfun að leggja allt
kapp á að rækta sem mest af þessum
annars ágæta mat, til þess að eyði-
leggja hann síðan með lélegri
geymslu.
Á meöan kartöflumar eru nánast
óætar, verður fólk að grípa til ann-
arra matvæla í staðinn. Margir kjósa
að nota hrisgrjón í stað kartaflna, —
aðrir nota tómata og annað græn-
meti. -A.Bj.
„Eftir að vélvæðingin i kartöflu-
ræktinni varð svona mikil hefur
geymsluþol kartaflna versnað mjög
mikið og mjög hæpið að dreifa inn-
lendum kartöflum lengur en til mán-
aðamóta júnUjúlí,” sagði Edward
Malmquist, eftirlitsmaður garð-
ávaxta í samtali við Neytendasíðuna.
Það hefur vist ekki farið framhjá
neinum, að á sama tíma og kartöflu-
verð var hækkað gríðarlega, minnka
gæði þessarar vöru svo mjög að varla
er boðlegt neytendum. — Hillir þó
undir bjartari tíð, að sögn Edwards,
þvi í kringum 20. júlí eru nýjar er-
lendar kartöflur væntanlegar á mark-
aðinn. Bilið þangað til verður brúað
með eyfirzkum kartöflum, en þær
hafa mun betra geymsluþol en sunn-
lenzkar kartöflur að sögn Malm-
quists. Eru þær að koma þessa dag-
ana í búðir.
Hann sagði einnig að það hefði
aldrei gerzt áður að innlendar kart-
öflur hefðu verið svona lengi á mark-
aðinum. Sagði hann einnig að það
væri mjög áberandi hve kartöflurnar
hefðu látið sig núna síðustu daga.
Þær lita svo sem ekki illa út þessar kartöflur. A gólfinu má sjá stæður af eyfirzku kartöflunum (í netpokunum), þær í
strigapokunum eru frá Suðvesturlandi eða Suðurlandi. Kg. af kartöflum kostar 200 kr. í Grænmetinu, en ef keyptur er
25 kg. poki kostar hann 4.300 kr. eða 172 kr. kg. — Út úr búð kostar 5 kg. poki af kartöflum núna 1021 kr.
DB-myndir: Árni Páll.
Nýjar erlendar í kríngum
20. j
Hjá grænmetisverzlun landbúnaðarins við Síðumúla er hægt að velja sínar eigin kartöflur i poka. Oft er nú ekki mikið
úrval þar, — en kartöflurnar sem þar eru á boöstólnum hafa ekki fengið eins harkalega meöferð og þær sem búið er að
pakka og flytja í verzlanir. — í stórmörkuðum erlendis eru kartöflurnar bæði á boðstólum i neytendapakkningum, en
í höfuðviginu, viðskiptavinirnir geta sjálfir valið sínar eigin kartöflur i pokann.
- DS
Það mun leka vel með þessu gati i sumarrigníngunum. DB-mynd: Bjarnleifur.