Dagblaðið - 11.07.1979, Qupperneq 20
20,
(
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1979.
Veðrið
Spáin f dag er þannig: Vfðast hvar á
landinu verður suflvostan- og veatan-
gola, vestantil vorður skúraveflur en
láttskýjafl austanlands.
Kkikkun sex I morgun var veflrifl á
landinu þannig: ReykjavBt 6 stiga hiti
og skýjafl, Gufuskálar 8 stig og
skýjafl Guharviti 3 stig og alskýjaö,
Akureyri 8 stig og léttskýjað, Raufar-
höfn 6 stig og skýjafl, Dalatangi 9 stig
og láttskýjafl, Höfn 6 stig og létt-
skýjafl, Vestmannaeyjar 6 stig og
léttskýjafl.
í Kaupmannahöfn var hitinn 13 stig
og skúrir, Osló 15 stig og skýjafi,
Stokkhólmi 15 stig og rigning,
London 15 stig og alskýjafl, Parfs 14
stig og hálfskýjafl, Hamborg 14 stig^
og hálfskýjafl, Madríd 13 stig og skýj ;
að, Mallorka 21 stig og abkýjafl,
Lissabon 18 stig og skúrir og Bostonj
**1 og abkýjafl.
Jóhann Þorstcinsson málarameistari,
var fæddur 10. júní 1911 og lézt 21.'
júní 1979. Hann var kvæntur Rebekku
Guðmundsdóttur.
Ingibjörg Magnúsdóttir frá Mel verður
jarðsungin frá Reynistaðarkirkju
laugardaginn 14. júlí kl. 2.
Stefán Gestsson bifreiðarstjóri, Safa-
mýri 33, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju fimmtudaginn 12 júlí kl.
2.
Sighvatur Andrésson frá Hemlu, fyrr-
um bóndi á Ragnheiðarstöðum, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 13. júlí kl. 10.30.
Marinó Guðjónsson, Þykkvabæ 17,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 12. júlíkl. 10.30.
Skíðadeild
Sumaræfingar
deildarinnar
hefjast nú af fullum krafti og veröa á miðyikudögum:
kl. 20.00 á iþróttasvæðinu við Ásgarö í Garðabæ,
Þrekæfingar, trimm, sund, fótbolti (gufubað). Æfingar
fyrir alla fjölskylduna. Verið með frá byrjun. Stjórnin.
Ferðafélag íslands
Miövikudagur 11. júli.
Kl. 08.00 Þórsmerkurferð.
jKI. 20.00 Búrfellsgjá — Kaldársel. Gengiðeftir hraun-
tröðinni (gjánni) að Búrfelli. Verð kr. 1.500.- gr.
v/bilinn.
Föstudagur 13. júli kl. 20.00
Þórsmörk, Landmannalaugar, Hveravellir, (gist í
húsum) Tindfjallajökull. Farseðlar á skrifstofunni.
Sumarleyfisferöir
13. júli. Gönguferð frá Landmannalaugum til Þórs-
merkur. Fararstjóri: Kristinn Zophóníasson. Gist í
húsum (5 dagar).
13. júlí.Dvöl i tjöldum i Homvík. Gengið þaðan'
stuttar og langar dagsferðir. Fararstjóri: Gísli Hjartar-
son (9 dagar).
14. júlí. Kverkfjöll—Sprengisandur. Dvalið í Kverk
fjöllum og skoðað umhverfi þeirra m.a. Hveradalir og
íshellarnir. Ekið suður Sprengisand. Gist i húsum.
Fararstjóri: Sigurður Kristinsson. (9 dagar).
17. júlLSprengisandur — Vonarskarð — Kjölur. Góð
yfirlitsferð um miðhálendi Islands. Gist í húsum.
Fararstjóri: Hjalti Kristgeirsson. (6 dagar).
20. júlí.Gönguferð frá Landmannalaugum til Þórs-
merkur. Fararstjóri: Magnús Guðmundsson. (9 dagar)
gist í húsum.
21. júli.Gönguferð frá Hrafnsfirði um Furufjörð til
Hornvíkur (8 dagar). Fararstjóri Birgir G. Alberts
son. Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Útivistarferðir
Miövikudag 11/7 kl. 20
Kvöldganga á Mosfell. Mjög létt fjallganga. Verð kr.
1.500. Fariö frá BSl, bensinsölu.
Föstudagur 13/7 kl. 20
1. Þórsmörk, tjaldað í skjólgóðum Stóraenda i hjarta
Þórsmerkur. Fararstjóri ErlingurThoroddsen.
2. Sprengisandur. Vörðuskoðun á landsmiðju. Gengið^
á Fjórðungsöldu, 972 m (létt ganga) Farseðlar á skrif-
stofu Lækjargötu 6A, sími 14606. ‘‘
Blómarösir í sumarf rí
Alþýðuleikhúsið hefur sýnt nýtt islenzkt leikrit
Blómarósir eftir Ólaf Hauk Simonarson í júni og júli
við mjög góða aðsókn í Lindarbæ. Sýningum fer nú að
fækka vegna sumarleyfa. 1 ágústlok mun leikhópurinn
leggja upp í leikferð með Blómarósir og sýna víðsvegar
um landið. Þetta verður þriðja leikferð Alþýðuleik-
hússins á þessu leikari.
Barnaleikritið Vatnsberarnir voru á tveggja mánaða
leikferð í mars og apríl. Nú tendur yfir leikferð með
Við borgum ekki — Við borgum ekki sem sýnt var
við húsfylli í allan vetur í Lindarbæ.
Á sama tima og Blómarósir verða á leikferð um landið
hest vetrarstarf Alþýðuleikhússins með æfingum á t
nýju verki.
Leikári Þjóðleikhússins lokið
Um 120 þúsund leikhúsgestir f vetur. Afleins
einu sinni óflur fleiri gestir á Stóra sviflinu.
Leikári Þjóðleikhússins lauk sunnudaginn 24. júni
með sýningu á leikriti Guðmundar Steinssonar, r
Stundarfriði. Sýningar leikhússins í vetur urðu sam-
tals 346 og sýningargestir alls 119.738. Þetta er
sjötta árið í röð, að leikhúsgestir eru yfir hundrað
þúsund.
Á stóra sviðinu voru 237 sýningar og sýningargestir
þar 107.210 og hafa þeir aðeins einu’sinni áður
verið fleiri á einu leikári frá þvi að leikhúsið tók til
starfa fyrir tæpum þrem áratugum.
Sýningar á Litla sviðinu voru 67 og 42 sýningar
voru utan leikhússins, þar af 7 erlendis.
19 viöfangsefni voru á verkefnaskránni í vetur og
voru 10 þeirra islenzk. Eins og síðastliðin ár nutu is
lenzku verkin mestra vinsælda: Sonur skóarans og
dóttir bakarans, Stundarfriður og barnaleikritið
Krukkuborg. Leikrit Jökuls Jakobssonar, Sonur skó-
arans, var sýnt 55 sinnum og sáu tæplega 27 þús-
und manns þá sýningu. 32 sýningar urðu á Krukku-
borg og áhorfendur um 14 þúsund og leikrit Guð-
mundar Steinssonar, Stundarfriöur, var sýnt 31
sinni fyrir um 17 þúsund áhorfendur og verður það
tekið aftur til sýninga í haust.
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir:
Rotterdam.......................16/7 — Helgafell
Rotterdam.......................25/7 — Arnarfell
Rotterdam....................... 8/8 — Arnarfell
Antwerpen......................13/7 — Arnarfell.
Antwerpen.......................26/7 — Arnarfell
Antwerpen.......................9/8 — Arnarfell,
Goole...........................11/7 — Arnarfell
Goole...........................24/7 — Arnarfell
Goole........................... 7/8 — Arnarfell
Svendborg........................9/7 — Helgafell
Svendborg.....................23/7 — Helgafell
Svendborg ......................31/7 — Disarfell
Hamborg..............................3/7 — skip
Hamborg.........................26/7 — Dísarfelh
Gautaborg.....................16/7 — Jökulfell^:
Gautaborg............................2/8 — skip
Larvík / Osló...................11/7 — Jökulfell
Larvík / Osló........................6/8 — skip
Helsinki / Kotka..............31/7 — Hvassafell
Leningrad.......................7/7 — Hvassafell
Gloucester, Mass...............14/7 — Skaftafell
Cloucester, Mass.................8/8 — Jökulfell
Halifax, Canadá................17/7 — Skaftafell
Halifax, Canada................14/8 — Skaftafell
Félag einstæðra foreldra
Skrifstofan verður lokuð mánuðina júlí og ágúst
vegna sumarleyfa.
Fjölbreytt sumarútgáfa
Atlantica fyrir
Flugleiðafarþega
Sumarútgáfa ATLANTICA, tímarits sem gefið er út
fyrir farþega Flugleiða á alþjóðaleiðum, er nýlegai
komið í dreifingu. ATLANTICA er stærsta reglu-
bundna útgáfa á landinu, kemur að jafnaði út í
100— 120.000 eintökum.
Þetta nýja hefti er allt litprentað, 64 blaðsíður, og ‘
flytur fjölbreytt efni til fróðleiks og ánægju fyrir
farþega Flugleiða — og er prentað á ensku. Blaðið
hefur komið út reglulega í nokkur ár og er Haraldur
J. Hamar útgefandi þess og ritstjóri fyrir hönd Flug-
leiða og í reynd er þetta sérstök „flugútgáfa” tima-
ritsins Iceland Review, sem Haraldur gefur út og rit-
stýrir, eins og kunnugt er.
Af efni sumarútgáfu ATLANTICA mætti nefna
viðtal við Friðrik ólafsson, forseta FIDE, greinar
um ferðalög til Græniands, svo og Washing-
ton/Baltimore — hins nýja áfangastaðar Flugleiða í
Bandarikjunum. Kynning á Parisarborg, breiðþotu í
þjónustu Flugleiða, rækjuveiðiferð á ísafjarðar-
djúpi og „Hvernig á að spara peninga í Ameríku-
ferð”. Auk þess er að finna í blaðinu margs konar
fróðleik fyrir flugfarþega, það er veglega mynd-
skreytt og að mestu í litum — en sérstakar mynda-
seríur eru eftir Sigurð Þorgeirsson og Þórhall
Magnússon auk þess sem Mats Wibe Lund skrifar
um Ijósmyndun á íslandi.
Hörgshlíð 12
Samkoma í kvöld, miðvikudag kl. 8.
Kristniboðs-
sambandið
Almenn samkoma verður i Kristniboðshúsinu
Betanía, Laufásvegi 13 í kvöld kl. 20,30. Ragnar
Gunnarsson háskólanemi talar. Fórnarsamkoma. AU-
ir velkomnir.
Iþróttir J
Knattspyrna
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLl
UNGLINGALANDSLF.IKUR
Island-Færeyjar. kl. 20.00.
Bessi og Margrét i „Á sama tlma að ári’
Til leigu JCB traktorsgrafa.
Vanur maður. Sími 72656 og 66397.
Garðyrkja
v-________________>
Garðeigendur athugið!
Eigum enn úrvals garðplöntur, stjúp-
mæður, morgunfrúr, levkoj, ljóns-
munna, petúníui dahlíur o.fl. Ennfrem-
ur trjáplöntur, Notið tækifærið. Allt á
góðu verði. Siðasta söluvika. Skrúð-
garðastöðin AKUR, Suðurlandsbraut
48. -
Garðúðun — Garðúðun.
Góð tæki tryggja örugga úðun. Úði sf„
Þórður Þórðarson, sími 44229 milli kl. 9
og 17,_____________________________
Sláum lóðir ineð orfi eöa vél.
Uppl. í símum 22601 og 24770.
Fjölbýlis— einhýlishúsaeigendur
— fyrirtæki.
Getum bætt við nokkrum verkefnum.
Sláum grasið, snyrtum og hirðum heyið
ef óskað er. Uppl. í síma 77814 milli kl.j
18 og 19. Geymið auglýsinguna. Garð-
sláttuþjónustan.
Urvals gróðurmold
til sölu, heimkeyrð. Uppl. I síma 16684
allan daginn og öll kvöld.
Garðeigendur.
Tek að mér standsetningu lóða, einnig
viðhald og hirðingu, gangstéttalagningu',
vegghleðslu, klippingu limgerða o.fl.
E.K. Ingólfsson garðyrkjumaður, sími
82717 og 23569.
Húsdýraáburður.
Hagstætt verð. Úði, sími 15928.
Til sölu heimkeyrð
gróðurmold, einnig grús. Uppl. í síma
24906 allan daginn og öll kvöld.
Hreingerníngar
Hreingerningar og teppahreinsun.
Nýjar teppa- og húsgagnahreinsivélar.
Margra ára örugg þjónusta. Tilboð í
stærri verk. Sími 51372. Hólmbræður.
Vclhrcinsum teppi
í heimahúsum ogstofnunum. Kraftmikil'
ryksuga. Uppl. í símum 84395, 28786 og
77587.
Teppa- og húsgagnahreinsun
með vélum sem tryggja örugga og
vandaða hreinsun. Gott verð. Ath.
kvöld- og helgarþjónusta. Símar 39631,
84999 og 22584.
Þrif-teppahreinsun-hreingerningar.
Tökum að okkur hreingerningar á íbúð-
um, stigagöngum, stofnunum og fl.
Einnig teppahreinsun með nýrri
djúphreinsivél, sem tekur upp
óhreinindin. Vanir og vandvirkir menn.
Uppl. í síma 33049 og 85086. Haukur og
Guðmundur.
Ávallt fyrstir.
Hreinsum teppi og húsgögn með há-
þrýstitæki og sogkrafti. Þessi nýja aðferð
nær jafnvel ryði, tjöru, blóði o.s.frv. Nú
eins og alltaf áður tryggjum vtö fljóta og
vandaða vinnu. Ath! 50 kr. afsláttur á
termetra á tómu húsnæði. Erna og Þor,-
steinn, sími 20888.
Hreingerningatytöðin
hefur vant og vandvirkt fólk til
hreingerninga. Einnig önnumst við
teppa- og húsgagnahreinsun. Pantið í
síma 39229. Ólafur Hólm.
Félag farstöðvaeigenda
FR deild 4 Reyitjavík FR 50ÓÓ — slmi 34200. Skrif-I
stofa félagsins aö Siðumúla 22 er opin alla daga frá kl..
17.00—19.00, að auki frá kl. 20.00-22.00 á fimmtu-
dagskvöldum.
Þakkir
Þann 6. júlí siðastliðinn varð Bjami H. Jónsson,.
Hátúni J0A, 40 ára. Hann sendir öllum þeim, sem
sýndu honum vinarhug á afmælisdaginn, slnar beztu
kveðjur og þakkir fyrir allt.
Bökabílaþjónusta Borgar-
bókasafns Reykjavfkur
10 óra 11. júfi 1979
Nú eru liðin 10 ár síðan farið var að nota bókabíla í
Borgarbókasafni til að ná til þeirra, sem langt eiga að
sækja til nassta safns. 11. júli 1969 rann fyrri bíllinn af
stað i sfna fyrstu útlánsferð. Bifreiðin var kunnug
götum borgarinnar, þar sem hér var um að ræða
notaðan strætisvagn, Volvo árgerð 1955. Nýja bóka-
bilnum var vel tekið, ekki sízt af börnunum og svo er
enn. Þess má geta, að sami vagninn þjónar Reykvík-
ingum ennþá, nú orðinn nokkuðaldurhniginn.
1 ársbyrjun 1972 bættist annar bíll við, Mercedes Benz
árgerð 1971.
Ökumaður
gefisigfram
Lögreglan í Reykjavík biður
ökumann á gulum Volvo 144 bíl að
gefa sig fram. Hann ók á stúlku á
mótum Vitastígs og Njálsgötu í gær.
Hann ræddi við hana en fór síðan.
Einnig er kona sem varð vitni að at-
burðinum, á brúnum bíl, sennilega
Capri, beðin að gefa sig fram við slysa-
rannsóknadeild lögreglunnar.
Gengið
GENGISSKRÁNING
Nr. 127 — 10. júlí 1979
Ferðamanna-
gjaldeyrir
Eining Kl. 12.00 Kaup Saia Kaup Sala
1 BandaríkjadoHar 348,70 347,50 381,37 382,25
1 SterlingBpund 767,40 769,20* 844,14 846,12*
1 KanadadoHar 299,60 300,30* 329,56 330,33*
100 Danskar krónur 6552,95 6588,05* 7208,25 7224,86*
100 Norskar krónur 6816,10 6831,80* 7497,71 7574,98*
100 Sœnskar krónur 8142,30 8161,10* 8950,53 8977,21*
100 Finnsk mörk 8951,70 8972,40* 9846,87 9869,64*
100 Franskir frankar 8101,40 8120,10 8911,54 8932,11
100 Belg. frankar 1176,05 1178,75 1293,66 1298,63
100 Svissn. frankar 20839,70 20887,80* 22923,67 22976,58*
100 GyNini 17101,55 17141,05* 18811,71 18855,16*
100 V-Þýzk mörk 18855,70 18899,20* 20741,27 20789,12*
100 Lfrur 41,92 42,02 48,11 46,22
100 Austurr. Sch. 2567,20 2573,10* 2823,92 2830,41*
100 Escudos 709,00 710,60* 779,90 781,66*
100 Pesetar 524,35 525,55* 576,79 578,11*
100 Yen 159,16 159,53* 175,08 175,48*
1 Sérstök dráttarréttindi 449,13 450,17
•Breyting frá sfðustu skráningu !
Simsvarí vegna gengisskréninga 22190;
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Önnumst hreingerningar
á íbúðum, stigagöngum og stofnunum.
Gerum einnig föst tilboð. Vandvirkt fólk
með margra ára reynslu. Sími 71484 og
84017, Gunnar.
1
Ökukejinsla
8
Ökukennsla — æfingatimar.
Kennslubifreið: Allegro árg. ’78.
Kennslutímar frá kl. 8 f.h. til kl. 10 e.h.
Nemandi greiðir eingöngu tekna tíma.
Ökuskóli — prófgögn. Gísli Arnkelsson,
simi 13131.__________________________
Kenni á Datsun 180 B árg. ’78.
Mjög lipur og þægilegur bíll. Nokkrir
nemendur geta byrjaðstrax. Kenni allan
daginn, alla daga og veiti skólafólki sér-
stök greiðslukjör. Sigurður Gíslason,
ökukennari.simi 75224 (á kvöldin).
Ökukennsla, æfingartímar,
hæfnisvottorð.
Engir lágmarkstímar, nemendur greiða
aðeins tekna tíma.Jóhann G. Guðjóns-
son, símar 21098, 17384, Athugið! Sér-
stakur magnafsláttur, pantið 5 eða fleiri
saman.
Ökukennsla-Æfingartimar.
Kenni á Mazda 626 og 323 árg. ’79.
Engir skyldutimar. Nemendur greiði
aðeins tekna tíma. Ökuskóli ef óskað er.
Athugið. Góð greiðslukjör, eða
staðgreiðsluafsláttur. Gunnar Jónsson,
simi 40694.__________________________
Kenni á japanska bílinn Galant árg. 79.
ökuskóli og prófgögn ef þess er óskað,
nemandi greiðir aðeins tekna tíma. Sími
77704. Jóhanna Guðmundsdóttir.
Ökukennsla-æfingatímar-bifhjólapróf.
Kenni á Simcu 1508 GT. Nemendur
greiða aðeins tekna tíma. Nemendur
geta byrjað strax. Ökuskóli og öll próf-
gögn ef óskað er. Magnús Helgason,
sími 66660.
Takið eftir — takið eftir.
Ef þú ert að hugsa um að taka ökupróf
eða endurnýja gamalt þá“get ég aftur
bætt við nokkrum nemendum sem vilja
byrja strax. Kenni á mjög þægilegan og
góðan bil, Mazda 929, R-306. Góður
ökuskóli og öll prófgögn. Einnig getur
þú fengið að greiða kennsluna með
afborgunum ef þú vilt. Nánari uppl. í
síma 24158.Kristján Sigurðsson öku-
kennari.