Dagblaðið - 24.07.1979, Page 2
Fá sunnlenzkir
sjálfstæðismenn
Thimnasendingu?
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1979.
Björn Bjarnason, skrifstofustjóri f forsætisráðuneytinu.
1
Sunnlenzkur sjálfstæðismaöur skrif-
ar:
Nú er Björn Bjarnason, einn
nánasti samstarfsmaður Geirs Hall-
grímssonar, að setjast í þann auða
ritstjórastól Morgunblaðsins, sem
ekki hefur verið setinn síðan Eyjólfur
Konráð Jónsson stóð upp úr honum
og settist á þing.
Þykir stóllinn ákjósanlegt stökk-
bretti í ljósi fyrri reynslu af honum.
En menn velta fyrir sér með aðstoð
hvaða kjördæmis Björn hyggst
stökkva úr honum inn á Alþingi.
Eftir því sem næst verður komizt
lítur hann Suðurlandskjördæmi hýru
auga í því sambandi. Skiptar
skoðanir eru meðal okkar Sunnlend-
inga um ágæti Björns, líkt og um
•ágæti annarra framagjarnra stjórn-
málamanna.
Hinsvegar sýnist okkur ljóst að
það kunni að reynast Birni og Sjálf-
stæðisflokknum á Suðurlandi dýr
skeilur ef hann á að skipa þar
öndvegi. Heimamenn eru nefniiega
ekkert sérstaklega ginnkeyptir fyrir
..himnasendingum” úr Reykjavík af
þessu tagi. Slíkt þýðir einfaldlega að
gengið verður framhjá einhverjum
ágætismanni úr héraði. Það eru
einmitt heimamenn í héraði sem eru
hornsteinar flokksins þar og lítum
við svo á að aðrir eigi ekki að bera
þær „skrautfjaðrir”.
Við hjólreiðamenn náum sennilega engum árangri fyrr en við förum að dæmi annarra aðila i þjóöfélaginu og mynd-
um þrýstihóp, segir bréfritari.
DB-mynd Hörður.
Fyrir hverja er borgarskipulagið?
Hjólreiðamenn myndi þrýstihóp
Hjól skrifar:
Oft kemur mér þessi spurning í
hug: Fyrir hverja er borgarskipulagið
i Reykjavík? Er þar tekið mið af
hagsmunum allra borgarbúa eða sitja
sérþarfir ákveðinna hópa alveg í
fyrirrúmi?
Ég er hjólreiðamaður og reyni að
ferðast um borgina á hjólhesti. Það
er ákaflega erfift því svo virðist sem
hjólreiðamenn séu réttlausir í um-
ferðinni. Á götum úti taka bílstjórar
lítið sem ekkert tillit til okkar. Á
gangstéttum er okkur bannað að
hjóla samkvæmt umferðarlögum. Og
auðvitað eru engir reiðhjólastígar tii
hér á landi. Þeir finnast aðeins í
menningarlöndum. Ekki vantar samt
gasprið fyrir kosningar. Hver man
ekki eftir öllum reiðhjólastígunum
þegar „græna byltingin” var upp á
sitt bezta?
Við hjólreiðamenn náum sennilega
engum árangri fyrr en við förum að
dæmi annarra aðila í þjóðfélaginu og
myndum þrýstihóp. Þá fyrst verður
tekið tillit tii okkar.
Nýstofnað Félag áhugamanna um
hjólreiðar virðist steindautt. Varla
verður það okkar vettvangur. En
áhugi fyrir hagsmunasamtökum hjól-
reiðamanna hlýtur að vera nægur. Ég
skora á menn að láta í sér heyra.
Sameinaðir stöndum vér, sundraðir
föllum vér . . .
Erpeningabingó
leyfilegt?
8272-3307 hringdi:
Hún sagðist hafa farið á bingó í
Sigtúni á þriðjudagskvöldið og hafi
hún orðið undrandi yfir því að aug-
lýst var að vinningar væru vöruúttekt
en svo hafi komið á daginn að greitt
var út i beinhörðum peningum.
Einnig fannst henni skrýtið að enginn
annar en stjórnandinn fór yfir spjöld-
in. Hún vildi því spyrja hvort leyfi-
legt væri að hafa þvílíkt peningaspil
hér á landi?
Rjómalaust
mjólkurbú
Ferðamaður hringdi:
Svo bregðast krosstré sem aðrir
raftar, datt mér i hug þegar ég kom
inn i mjólkurbúð Mjólkurbús Flóa-
manna sl. sunnudag og hugðist
kaupa þar rjóma. í sjálfu virki þeirra
manna, sem liggja þjóðinni oftlega á
hálsi fyrir að neyta ekki nægrar dýra-
fitu í formi mjólkurafurða var svarið
við rjómabeiðninni einfaldlega:
„Nei, því miður, rjóminn er löngu
búinn”. Hverjum er svoum aðkenna
ef mjólkurafurðirnar fást ekki einu
sinni í sjálfum mjólkurbúunum?
10%
BENSINSPARIMAÐUR
samsvarar 31 krónu pr. lítra.
Allir sem fást við stillingar bílvéla vita, að bensíneyðslan
eykst um 10—25% milli kveikjustillinga.
Eftir isetningu LUMENITION kveikjunnar losna bíleig-
endur algjörlega við þá eyðsluaukningu, sem slitnar platin-
ur valda, því i þeim búnaði er ekkert, sem slitnar eða
breytist.
Með LUMENITION vinnur vélin alltaf eins og kveikjan
væri nýsMllt.
LUMENITION fylgir 3ja ára ábyrgð.
Verð miðafl v:ð
gengi 20.7. '79:
KR. 46.000.-
HABERGh£
SÍMI: 84788.
Þáttur Ólafs Ragnars var f rábær:
Viðræðuþættir
verðifastur
liður í útvarpi
Hlustandi hringdi:
Þáttur Ólafs Ragnars Grimssonar í
útvarpinu á sunnudagskvöldið var al-
veg frábær. Umræðuefnið var tíma-
bært og þátttakendur aliir toppmenn.
Þetta var þáttur af þvi tagi sem allt of
sjaidan heyrist í útvarpinu.
Hvernig stendur annars á því að
allir þessir umræðuþættir sem voru
svo vinsælir í útvarpinu hér áður fyrr
eru dottnir upp fyrir? Hefur útvarpið
ekki áhuga á því að standa fyrir um-
ræðum um menningar- og þjóð-,
félagsmál?
Mér finnst að sunnudagsþáttur
Ólafs Ragnars ætti að verða til þess
að þessi mál verði stokkuð upp. í
fyrsta lagi ætti að fá Ólaf til að
stjórna fleiri slíkum þáttum því þar er
'réttur maður á réttum stað. í öðru
lagi ætti að leita logandi Ijósi að álíka
hæfileikamönnum og gera viðræðu-
þætti að föstum lið í dagskrá útvarps-
ins.
Þáttur Ólafs Ragnars var frábær. W
DB-mynd.
Nu má kenna Alþýðuflokkinn sjálfan við Kröflu.
Er Alþýðuflokkur-
inn Kröfluflokkur?
Pétur hringdi:
Alþýðuflokkur virðist nú ætla að
verða til mikillar óþurftar með því að
stöðva framkvæmdir við Kröflu eftir
að i þá virkjun hefur verið eytt 16
. milljörðum króna. Engin rök hafa
komið fram sem réttlæta þessa stefnu
kratanna og ef eftir þeim er spurt
verður fátt um svör.
Fyrir kosningar talaði Alþýðu-
flokkurinn mikið um Kröfluflokkana
og kenndi þeim um alit sem aflaga
hafði farið. Nú má með nokkrum
rétti kenna Alþýðuflokkinn sjálfan
við Kröflu og kenna honum um að
milljarðir króna af skattpeningum al-
mennings fara í súginn.
Treystir flokkurinn sér til að axla
þá ábyrgð? Dómi kjósenda skal hann
hlita. Og ég þori að fullyrða að sá
dómur verður ekki mildur ef hinni
heimskulegu Kröflustefnu flokksins
verður ekki breytt snarlega.