Dagblaðið - 24.07.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 24.07.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ1979. 12 I Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþrótl Urslitfrá Spartakiade- leikunum íMoskvu Við sögðum í gær frá því að Spartakiade-leikarnir hefðu hafizt i Moskvu um helgina og nú er keppnin þar komin á fulla ferð. Keppnin í frjálsum fþróttum vekur að vonum mesta athygli, en heimafólk er þar i miklum meirihluta. Í 800 metra hlaupi kvenna sigraði sovézka stúlkan Yekaterina Poryvkina á 1:58,2 mín., sem er ágætur tími, önnur varð Nadezha Mushta á 1:57,5 og þriðja Olga Mineyeva á 1:57,8. Rússar eru svo sannarlega ekki á flæðiskeri staddir með langhlauparakvinnur. í hástökki sigraði Yelena Goloborodko með 1,91 m. Önnur varð Nataiya Litvienko með 1,89 m og þriðja Tatyana Denisova, einnig með 1,89 m. Í 100 metra hlaupi kvenna sigraði Ludmila Kondratyeva á 11,19 sek. sem er mjög góður tími. Carem Hockins frá USA varð önnur á 11,32 sek. og þriðja varð Nedezha Anisimova á 11,39 sek. Vasily Arkiphenko vann 400 metra grindahiaupið hjá körlum á 49,11 sek. en annar varð Dimitri Stukalov á 50,23 sek. Þriðji Valery Mashkovsky á 50,82 sek. Í 800 metra hlaupi sigraði Anatoly Reshetnyak á 1:47,2 mín., annar varð Vladimir Podolyako á 1:47,4 og þriðji Detlef Wagenknecht frá V-Þýzka- landi á 1:47,5. Mjög lítið er af þekktu frjálsíþróttafólki úr Cvrópu og Bandaríkjunum á þessum leikum þótt tilvalið hefði virzt vera fyrir það að kynnast aðstæð- um þarna fyrir ólympíuleikana á næsta ári. Staðan í Svíþjóð Þrír leikir voru lciknir i Allsvenskan á mánudags- kvöld og urðu úrslit sem hér segir: Halmia — Landskrona 1-0 Hammarby — Sundsvail 6—1 Nörrköping—Elfsborg 1-1 0 24—12 21 3 28—15 18 2 22—10 18 4 27-18 18 4 3 13—11 18 3 4 19—14 17 Eftir þessa leiki er staðan þannig: Halmstad 14 7 Nörrköping 14 7 Gautaborg 14 6 Hammarby 14 8 Matmö 14 7 Elfsborg 14 7 Öster, lið Teits Þórðarsonar, cr í 7. sæti með 15 stig að loknum 14 leikjum. Næsti leikur Öster er við Hammarby 1. ágúst en þá hefst Allsvenskan af full- um krafti á ný. BamagoK á Hval- eyrarholtsvellinum Fimmtudaginn 26. júlí nk. milli kl. 16 og 18 stendur Golfklúbburinn Kcilir fyrir kennslu i golfi á golfvellinum á Hvaleyrarholti. Kynning þessi er ætl- uð börnum i fylgd með fullorðnum. Aðalleiðbeinandi verður Þorvaldur Ásgeirsson og mun hann kenna undirstöðuatriði í golfi. Öll böm á félagssvæðinu eru velkomin. Boðið verður upp á hressingu. Þessi kynning á golfi sem barna- og fjölskyldu- íþrótt er framlag Golfklúbbsins Keilis á barnaári. Barnaársnefnd Hafnarfjarðar. íslandsmeistara- mótið í ratleik á Hallormsstað í ágúst íslandsmótið i ratleik (orientering), hið fyrsta sinnar tegundar, veröur haldið aö Hallormsstað (Atlavík) sunnudaginn 5. ágúst nk. Keppt veröur i eftirtöldum flokkum: Karlar (17 ára og eldri), vegalengd ca 4 km. Piltar (14-15-16 ára), vegalengd ca 3 km. Drengir (13 ára og yngri), vegalengd ca 1,8 km. Konur (17 ára og eldri), vegalengd ca 3 km. Stúlkur (14-15-16 ára), vegalengd ca 1.8 km. Telpur (13 ára og yngri), vegalengd ca 1.8 km. Mótið verður miðað við það að flestir þátttakendur verða byrjcndur, en stefnt er að fjöldaþátttöku. Kvöldiö fyrir mótið verður skipulögð æfing í rat- leik i Hallormsstaðaskógi, og hefst hún kl. 8. Þá geta væntanlegir keppendur og annað áhugafólk fengið að kynnast íþróttinni af eigin raun. Leiðbein- andi verður Jón Loftsson. Mótið sjálft verður siðan sett kl. 2 e.h. á sunnu- dag. Þeir sem áhuga hafa á því að skrá sig til leiks ættu sem fyrst að hafa samband við Sigurjón Bjarnason, framkvæmdastjóra UÍA, i sima 97-1379 eða 1353, en UÍA mun annast framkvæmd mótsins. Yæntanlegum keppcndum er bent á að hafa áttavita meöferðis ef þeir eiga þess kost. Árlega dvelur fjöldi fólks i Atlavik um verzlunar- mannahelgina, og má því búast við fjölmörgum áhorfendum. Slysavarnafélagið Gró á Egilsstöðum mun annast veitingasölu i Atlavík mcðan mótið stendur yfir, og ef til vill verður'flcira á dagskrá í Atlavík þessa hclgi. Annað mark Framara staðreynd. Pétur Ormslev, sem var úti við hornfána, sendi lúmskan bolta fyrir markið. Sigurður var allt of utarlega — ætlaði að hirða fyrirgjöf- ina — gat ekki rönd við reist og mátti sjá á eftir tuðrunni í netið. DB-mynd Bj.Bj. Valsmenn nýttu sér sof- andahátt Framara til fulls sigruðu 3-2 ef tir að hafa skorað tvisvar á lokaminútum leiksins Tvö mörk Valsmanna á lokamínút- unum í leik þeirra gegn Fram í gær- kvöldi færðu þeim sætan sigur. Fram- ararnir höfðu náð forystunni á 65. mínútu með marki Péturs Ormslev og höfðu sótt stift eftir það en farið illa með góð færi — einkum Pétur Orms- lev. Það átti eftir að koma þeim í koll svo um munaði. Valsmenn gáfust aldrei upp og þeir uppskáru ríkulega í lokin. Á 85. mínútu fékk Magnús Bergs knöttinn rétt utan vitateigs Framara og var ekkert að hika við hlutina heldur sendi knöttinn með þrumuskoti neðst i markhorniö og jafnaði metin, 2-2. Þegar nokkrar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Atli Eðvaldsson sigurmark Valsmanna. Jón Einarsson brunaði upp vinstri kantinn og lét skot ríða af. Varnar- maður náði að komast fyrir með fótinn og knötturinn hrökk af honum í Jón og þaðan inn fyrir vöm Framara, sem var steinsofandi. Atli Eðvaldsson var þar einn og óvaldaður og hann sýndi mikið öryggi er hann renndi knettinum í net- ið, 3-2. Skömmu síðar var leiktíminn úti. Framarar geta fyrst og fremst kennt sjálfum sér um hvernig fór fyrir þeim i gærkvöldi. Þeir höfðu öll tök á að gera út um leikinn löngu fyrir leikslok en létu auðveld færi ganga sér úr greipum. Leikurinn byrjaði annars afar rólega og satt að segja var fyrri hluti fyrri hálfleiksins með því allra slakasta sem boðið hefur verið upp á í sumar. Ein- tómar kýlingar út í loftið eins árangurs- ríkt og það er nú. Það var helzt að snilldarsprettir Guðmundar Þorbjörns- sonar yljuðu áhorfendum um hjarta- rætur. Valsmenn voru mun meira i sókn og það kom því eins og þruma úr heið- skíru lofti er Framarar náðu forystunni á 41. minútu. Pétur Ormslev tók eina af sínum góðu hornspyrnum og sendi á kollinn á Ásgeiri Eliassyni. Hann sendi knöttinn áfram til Guðmundar Steins- sonar, sem var illa gætt á markteig og hann skoraði örugglega. Hinum megin fengu Valsmenn ágætis marktækifæri áður en Guð- mundur Steinsson sýndi fádæma eigin- girni við Valsmarkið. Hann komst upp hægri vænginn og hafði tvo samherja vinstra megin við sig og aðeins einn Valsmaður var til varnar. I stað þess að gefa boltann til vinstri reyndi Guð- mundur að skora sjálfur, en sú tiiraun fór illilega út um þúfur. Þar áttu Fram- arar að gera út um leikinn. Síðari hálfleikurinn varð síðan jafn- fjörugur og sá fyrri var slakur. Mikill hraði var í leiknum allt frá þvi dómar- inn, Guðmundur Haraldsson, flautaði til Ieiks. Ekki voru liðnar nema 6 mín. af síðari hálfleiknum þegar Vaiur jafn- aði metin. Guðmundur gaf þá mjög laglega inn á Atia, sem skoraði með föstu skoti i fjærhornið úr erftðri að- stöðu. Framarar gáfust ekki upp við mótlætið og fengu kjörin færi hvað ofan í annað til að skora. T.d. bjargaði Atli skalla frá Guðmundi Torfasyni á línu og Guðmundur Steinsson fór illa með gott tækifæri er hann komst einn í gegn og siðan tóku þeir loks forystu. Pétur fékk stungusendingu upp í hægra hornið. Hann ætlaði að gefa fyrir markið en fyrirgjöfin varð að markskoti á miðri leið. Knötturinn skrúfaði sig rétt innan við nærstöngina og í netið án þess að Sigurður gæti bjargað, en ekki munaði þar miklu. Valsmenn áttu tvö næstu færi, sem hvorugt var mjög hættulegt en síðan var komið að Frömurum á nýjan leik. Á 80. min. komst Pétur Ormslev í gegn en hikaði of lengi og Dýri náði að stýra hættunni frá. Minútu síðar skaut Guð- mundur Steinsson yfir af metra færi eftir hornspyrnu Péturs. Á 84. mín. fékk Pétur fallega stungu innfyrir vörn Vals og komst á auðan sjó en lét Sigurð verja frá sér. Síðan kom jöfnunarmark Vals- manna eins og áður er greint frá. Fram- arar fengu síðan tvö færi og Valsmenn eitt mjög gott áður en Atli skoraði sigurmarkið. Var allmikill rangstöðu- fnykur af því marki að mati undirrit- aðs, en þess ber að geta að blaðamenn hafa ekki allt of góða aðstöðu á Laugardalsvellinum — efst uppundir þaki. Atli var grunsamlega einn á ferli en hvorki línuvörður né dómari gerðu athugasemd við eitt eða annað og Vals- sigur var því í höfn. Ekki verður annað sagt en Framarar hafi átt a.m.k. annað stigið miðað við gang leiksins. En það eru mörkin sem telja og Valsmenn skoruðu fleiri. Framarar einfaldlega sofnuðu á verðin- um og þeir guldu þess dýru verði. Af Valsmönnum báru þeir Guð- mundur og Atli af eins og gull af eiri og yfirferð þeirra og sendingar voru frá- bærar. Þá var Sævar eins og klettur í vörninni — leikmaður sem lítið fer fyrir en er einn mikilvægasti hlekkur liðsins. Aðrir voru nokkuð jafnir en Valsmenn léku án Inga Björns. Framarar léku þennan leik lengst af vel en sofandaháttur undir lokin varð þeim að falli. Vörnin var að vanda traust en athyglisvert var að Dýri vann öll skallaeinvígi við Martein í leiknum. Guðmundur og Pétur voru mjög góðir frammi en nýttu færi sín illa. Ásgeir var góður á miðjunni en Rafn óvenju- slakur. Hafþór Sveinjónsson stóð sig vel í bakverðinum en bezti maður var sennilega Trausti Haraldsson, sem vann mjög vel. Þá var Guðmundur og öruggur í markinu. - SSv. Marteinn Geirsson vinnur hér skallaeinvfgi við Magnús Bergs. DB-mynd Bj.Bj. FH lagði Víkingana —á útimótinu í Haf narf irði í gærkvöld Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar stefna nú í úrslit íslandsmótsins í hand- knattleik utanhúss. Bæði liðin sigruðu í gærkvöldi og FH-ingar ruddu erfiðri hindrun úr vegi er þeir sigruðu bikar- meistara Víkings sannfærandi, 24—18 eftir að hafa leitt 14—11 í leikhléi. Leikur FH og Víkings var aðal- viðureign kvöldsins og það kom nokkuð á óvart að FH skyldi hafa tögl og hagldir allan tímann. FH-ingar fengu óskabyrjun og komust í 6—1 og gáfu aldrei tommu eftir það þrátt fyrir að Víkingunum tækist að minnka muninn í leikhléi. Það kom vel í ljós í þessum leik hversu mikið er að koma út úr ungu mönnunum í FH, þeim Kristjáni, Hans og Valgarði. Greinilegt er að FH er ekki á flæöiskeri satt með unga og efnilega leikmenn. Þéir Þor- bergur Aðalsteinsson og Magnús Guðmundsson léku með Víkingum að nýju og einkum var Þorbergur sterkur. Markhæstir hjá FH voru Guðmundur „dadú” Magnússon með 7 mörk, Geir og Guðmundur Árni með 5 hvor. Hjá Víkingi skoraði Árni Indriðason mest eða 8 og Páll Björg- vinsson 4. Þá léku einnig Haukar og ÍR í gær- kvöldi og var það ærið sveiflukennd viðureign. Haukarnir hafa vafalítið talið sér sigurinn vísan eftir hinn góða sigur gegn Valsmönnum. ÍR-ingarnir komu hins vegar stórlega á óvart í upphafi leiksins og komust í 6—1 eftir skamma stund en Haukarnir náðu fljótiega að komast yfir þessa byrjunarörðugleika og jöfnuðu metin og sigu síðan framúr fyrir hlé og leiddu þá 13—10. í síðari hálfleiknum smá- jókst munurinn og lokatölur urðu 28— 22 fyrir Hauka. Fyrrum FH-ingurinn Júlíus Pálsson var markahæstur Haukanna með 9 mörk og Hörður Harðarsson og Ingi- mar Haraldsson skoruðu 4 mörk hvor. Fyrir ÍR skoraði Guðmundur Þórðar- son mest — 9 mörk en Ársæll Haf- steinsson skoraði 4. Þá var einn leikur i kvennaflokki. Vaiur sigraði Víking 19—II í leik þar sem mikið var um óþarfa pústra og harkan var fuilmikil á köflum. Sýndu stúlkurnar þarna að þær gefa körlunum ekkert eftir hvað hörkuna varðar ef þær eru i þannig skapi. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚL! 1979. 13 íþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir ÞJALFAR1NN VARÐI VtTA- SPYRNU PAKKAÐUR í SVAMP! —þegar Leiknir vann Súluna fyrir austan—Árroðinn að missa af lestinni í E-riðlinum Það voru 17 leikir á dagskrá frá þvi að síðasti 3. deildarpistill var birtur, sl. þriðjudag, og eftir þessa leiki eru lín- urnar farnar að skýrast ærið mikið víðast hvar og nokkuð víst er um sigur- vegara í flestum riðlanna. Þó er alls ekki loku fyrir það skotið að sums staðar eigi enn undur og stórmerki eftir að gerast, en óvæntustu úrslitin um helgina urðu tvímælalaust á Austfjörð- um, þó svo að úrslit í C- og E-riölunum hafi einnig komið á óvart. En hér koma þá leikirnir. A-riðill Ármann — Njarðvfk 2-0 (1-0). Með þessum sigri sínum í gærkvöldi má eiginiega segja að Ármenningar hafi endanlega tryggt sér sigur í riðlinum þótt vissulega séu enn tölfræðilegir möguleikar fyrir önnur lið að sigra í riðlinum. Þráinn Ásmundsson var hetja þeirra í gærkvöldi því hann skoraði bæði mörkin. Fyrra markið kom strax á 5. mínútu eftir slæm mis- tök í vörn Njarðvíkinga, en hið siðara er langt var liðið á leikinn eftir innkast Bryngeirs Torfasonar. Ármenningar höfðu allan tímann undirtökin en Njarðvíkingar, sem voru taplausir fyrir leikinn einir liða ásamt Ármenningunum, börðust eins og ijón og gáfust ekki upp. Leikurinn var nokkuð grófur og fengu a.m.k. þrir gult spjald og margir tiltal. Minnstu munaði að Ármann bætti þriðja mark- inu við er Smári Jósafatsson skaut þrumuskoti að marki Njarðvíkinga, en markvörðurinn varði vel. Annan línu- vörðinn vantaði i leiknum og voru Njarðvíkingar mjög óhressir með það og voru jafnvel að hugleiða kæru. Grindavfk — Grótta 2-2 (1-0). Grind- víkingar töpuðu nokkuð óvænt stigi á heimavelli gegn Gróttunni af Nesinu þrátt fyrir að eiga mun meira í leiknum. Heimamenn sóttu gegn golunni í fyrri hálfleiknum og skoruðu þá eina mark hans. Það var á 11. mínútu að Júlíus Pétur Ingólfsson náði forystunni fyrir þá. Síðari hálfleikurinn var ekki gamall þegar Grótta jafnaði metin. Leikið var upp hægri kantinn og gefið fyrir mark- ið. Markvörðurinn hugðist góma knöttinn en tókst ekki betur til en svo að hann fór til Jóns Óskars, sem skoraði örugglega, 1-1. Eftir markið hresstust Gróttumenn nokkuð en síðan náðu Grindvíkingar tökum á leiknum á ný og sóttu meira. En það var Grótta sem skoraði næst á 83. mínútu og tók forystuna, 2-1, öll- um á óvart. Grindvíkingar keyrðu nú allt á út- opnu en varnarmönnum og markverði Gróttu tókst iðulega að bjarga á undar- legan hátt. Það var ekki fyrr en á síð- ustu mínútunni að heimamönnum tókst að jafna metin er Guðmundur Ármannsson náði að reka tána í knött- inn eftir mikla þvögu á markteig. ÍK — Vfðir 1-4 (1-0). Þetta var sjötti tapleikur ÍK í röð í riðlinum. Eftir að hafa gert jafntefli í sinum fyrsta leik hefur liðið ekki hlotið stig og er áber- andi lakast í riðlinum. Sigur Víðis var ennfremur þeirra fyrsti sigur í 3. deild- inni í ár en fram til þessa hafa Víðispilt- arnir mikið hrifizt af jafnteflum. Það voru þó ÍK-ingar sem náðu forystunni nokkuð gegn gangi leiksins í fyrri hálf- leik og var þar Smári Jónsson á ferð- inni. Þannig var staðan þar til 15 mín. voru búnar af síðari hálfleiknum, að Daníel Einarsson náði að jafna fyrir Víði. Þar með var ísinn brotin og áður en leiktímanum lauk bættu þeir við mörkum, Guðmundur Jens Knútsson, Tómas Þorsteinsson og svo Daníel aftur. Markvörður ÍK varði mjög vel í þessum leik og bjargaði liði sínu frá enn frekaratapi. Eftir þessa leiki er staðan þannig í riðlinum: Ármann 8 6 2 0 15—4 14 Grindavík 8 4 3 1 13—12 11 Njarðvík 7 2 4 1 10—8 8 Víðir 7 14 2 11—10 6 Grótta 6 13 2 12—10 5 Stjarnan 5 113 8—9 3 ÍK 7 0 16 6—22 1 B-riðill Afturelding — Katla 8-0 (2-0). Þessi jleikur var ekki svo ójafn í fyrri hálf- ieiknum þrátt fyrir að Afturelding hefði allan tímann undirtökin í honum. En í síðari hálfleik var eins og strák- arnir frá Víkinni bókstaflega spryngju og mörkin hlóðust upp hjá þeim og urðu 8 áður en yfir lauk. Stefán Hreiðarsson skoraði 3, Sigurður Helgason 2, og þeir Ríkharð- ur Jónsson, Þorvaldur Hreinsson og þjálfarinn, Halldór Björnsson, bættu við mörkum. Þór — Leiknir 0-5 (0-2). Þór beið ósig- ur, að vanda liggur manni við að s’egja — nú fyrir Leikni. Þórsarar léku oft á tíðum ágætlega í fyrri hálfleiknum en þegar dró nálægt marki andstæðingsins var eins og allt færi úr böndunum hjá þeim og menn réðu ekki neitt við neitt. Gestirnir gengu því á lagið og fyrir þá skoruðu HilmarHarðarson2, Jóhannes Sigursveinssón og Jón B. Guðmunds- son en ekki tókst að hafa uppi á þeim er gerði fimmta markið. Léttir — Hekia 4-0. Okkur tókst aðeins að ná í úrslit þessa leiks en markaskor- ara var ekki hægt að ná í en strákarnir af eldfjallasvæðinu, Heklumenn, fengu þarna óvæntan skell. Staðan í riðlinum að þessum leikjum loknum: Afturelding 7 7 0 0 34—6 14 Leiknir 7 4 12 23—12 9 Óðinn 6 4 11 15—10 9 Léttir 7 2 2 3 14—12 6 Hekla 7 13 3 14—19 5 Katla 7 115 11—23 3 Þór, Þorl. 7 10 6 10—39 2 C-riðill SSv Stefnir — Vfkingur 0-3. Ólafsvíkur- Víkingar lögðu land undir fót og ferð- uðust vestur á firði og léku þar tvo leiki. Fyrst Iéku þeir gegn Stefni á föstudagskvöldið og sigruðu 3-0 með mörkum Jónasar Kristóferssonar sem skoraði tvívegis og Arnljóts Arnars- sonar. Síðan var haldið til Bolungar- víkur og leikið við heimamenn. Bolungarvfk — Vlkingur 2-1 (1-1). Þessi sigur Bolvíkinga kemur vægast sagt nokkuð á óvart eftir afar slakt gengi þeirra í sumar, en nú var eins og lið þeirra smylli loks saman. Smári Ragnarsson náði forystunni fyrir heimamenn og Jónasi Kristóferssyni tókst að jafna metin fyrir Víking fyrir leikhlé. Leikurinn var í algeru jafnvægi og grimmilega barizt um hvern bolta. Bolvíkingar fengu síðan dæmda víta- spyrnu en hún fór forgörðum og kemur það ekki lengur á óvart á Bolungarvík því þetta var fimmta vítaspyrnan sem fer forgörðum hjá Bolvíkingum í sumar. Það stefndi því allt í jafntefli þegar Óla Helga Guðmundssyni tókst að skora sigurmark heimamanna á síðustu mínútu leiksins. Víkingar sóttu nokkuð stift lokakaflann en heimamenn vörðust vel og tókst síðan að stela báðum stigunum í lokin. Staðan í riðlunum að leikjunum loknum: Víkingur 6 5 0 1 19—6 10 Skallagrímur 4 2 11 14—9 5 Stefnir 6 2 1 3 12—19 5 Bolungarvík 6 2 0 4 6—13 4 Snæfell 4 1 0 3 4—8 2 D-riðill Lerftur — Höfðstrendingar 1-2. Þessi leikur fór fram á þriðjudaginn fyrir viku og kom sigur Höfðstrendinga geysilega mikið á óvart svo ekki sé meira sagt og virðist nú sem allt loft sé úr strákunum á Ólafsfirði. Bæði mörk Leifturs gerði Þröstur Geirsson. Tindastóll — Leiftur flautað af. Þessi leikur átti að fara fram á Sauðárkróki og voru Ólafsfirðingarnir mættir til leiks en dómarinn sem átti að dæma var það hins vegar ekki og komst hvergi sökum vélarbilunar.Varð það úr i samráði við KSÍ að skipa heirna- dómara á leikinn til þess að komast hjá frestun í leiknum. Þessu vildu gestirnir ekki una og óku brott við svo búið. Var þá ekki annað fyrir dómarann að gera en að flauta leikinn af og þar fóru tvö stig til Tindastóls fyrir lítið og ef þessi ákvörðun stendur óhögguð má segja að vonir KS um sigur í riðlinum séu að engu orðnar. Höfðstrendingar-Svarfdœiir 0—7. Að sögn eiga Höfðstendingar í óhemju basli við að ná saman mannskap um helgar og kemur það heim og saman við úrslitin hjá þeim. Almennt virðast leikmenn hafa áhuga á öliu öðru en knattspyrnu um helgar og eru ein- hverjir leikmanna í hljómsveit og mega því ekkert'vera að að leika fótbolta. Svarfdælir höfðu enda lítið fyrir sigrinum og hann var stór í Iokin. Björn Friðþjófsson skoraði 3 mörk, Stefán Georgsson, Ásgeir Blöndal, Björgvin Gunnlaugsson og Halldór Reimarsson bættu við mörkum og stór- sigur Svarfdæla var í höfn. Staðan í riðlinum eftir þessa leiki: Tindastóll 5 5 0 0 19—6 10 Svarfdælir 5 3 0 2 14—11 6 KS 3111 7—4 3 Leiftur 6 114 9—6 3 Höfðstrendingar 5 1 0 4 3—25 2 -Þ.Á/SSv. E-riðill Völsungur-Dagsbrún! 9—1(3—0). Þessi leikur fór fram í síðustu viku en átti upphaflega að vera heimaleikur Dagsbrúnar. Þá varð hins vegar að fresta leiknum vegna línuvarðavanda- máls og var því Ieikurinn leikinn á Húsavík. Það er víst óhætt að segja aö þetta var annar stórsigur þeirra á ör- stuttum tíma. Skýringin á stórtapi Dagsbrúnar er hins vegar sú að mjög marga vantaði í lið þeirra og því erfitt að eiga við Hús- víkingana. Völsungur leiddi 3—0 í hálfleik en snemma í síðari hálfleiknum minnkaði Björgvin Steindósson muninn fyrir Dagsbrún úr vítaspyrnu. Þar með var hins vegar sagan öll og mörkin hlóðust upp. Mörk Völsungs skoruðu þeir Magnús Hreiðarsson 3, Pétur Pétursson og Einar Friðþjófsson, Björn Olgeirsson, Ingólfur Ingólfsson og Sigmundur Hreiðarsson eitt hver. HSÞ—Reynir 3—2(2—21. Þessi úrslit voru nú ekki alveg í samræmi við gang leiksins. Reynismenn sóttu mun meira allan tímann en gekk ekki nógu vel að nýta sín tækifæri. T.d. var sókn Reynis svo þung síðasta stundarfjórðunginn að leikmenn HSÞ vörðust grimmilega innan eigin vítateigs og sáu enga leið þaðan út. Þeim tókst þó að halda fenginni forystu og hirtu bæði stigin. Jónas Þór Hallgrímsson skoraði 2 mörk fyrir HSÞ og Sigurður Bjamason það þriðja en fyrir Reyni skoruðu Svavar Guðmundsson (víti) og Óðinn Valdimarsson. Árroðinn-Dagsbrún 0—0 (0—0). Með þessum leik má segja að Árroðinn hafi fyrirgert öllum sigurvonum sínum í riðlinum. Eftir að hafa gert jafntefli við Völsung á Húsavík hafa fylgt í kjölfarið tveir hörmulegir leikir og Ár- roðinn getur nú aðeins treyst á að önnur lið hirði stig af Völsungi. Þetta var fremur lítill fótbolti, sem liðin sýndu í gærkvöldi en öðru hvoru brá fyrir ágætu spili hjá báðum liðum. Dagsbrúnarmenn áttu mun opnari færi en voru endemis klaufar að skora ekki úr þeim. Þegar ljóst varð að Árroðanum myndi ekki takast að sigra fór mótlætið í taugar leikmanna og Stefáni Arnalds- syni var þá vikið af leikvelli fyrir að segja eitthvað við dómara en heldur mun það hafa verið saklaust. Staðann í riðlinum er nú þessi: Völsungur 5 4 10 23—4 9 Árroðinn -6 3 2 1 12—3 8 HSÞ 6 3 0 3 8—16 6 Reynir 6 114 7—16 3 Dagsbrún 5 0 2 3 2—13 2 F-riðill Einherji-Sindri 0—1(0—1). Þetta var mjög jafn leikur allt frá upphafi en Hornfirðingum tókst að sigra með eina markinu sem skorað var. Það var Grét- ar Vilbergsson sem skoraði þetta dýr- mæta mark fyrir þá. Einherji átti skot í þverslá og jafntefli hefði verið sanngjarnast. Einherji hefur nú tapað þremur stigum og hefur Sindri hirt þau öll án þess þó að hagnast verulega á því. Hornfirðingar hafa tapað stigum á öðrum vígstöðvum og því kemur þetta þeim ekki eins mikið til góða og það gæti hafagert. Súlan-Leiknir 0—2(0—0) Þetta var jafn leikur og það er óhætt að segja að þetta hafi verið leikur hinna glötuðu tækifæra og gekk á ýmsu. í fyrri hálf leiknum átti t.d. Gunnlaugur Krist- finnsson skot innan á stöng af mjög löngu færi en á 50. mínútu tók Leiknir forystuna með vægast sagt óvenjulegu marki. Helgi Ingvason skaut þá þvert yfir mark Súlunnar. Markvörðurinn misreiknaði knöttinn, sem datt niður á marklínuna við fjærstöngina. Þaðan skrúfaðist boltinn síðan upp í þaknetið — furðulegt mark en jafngilt og önnur. Um miðjan síðari hálfleikinn var síðan dæmd vítaspyrna á Leikni Venjulega hefur því verið þannig varið aö öll lið hafa skorað úr vítum gegn Leikni en Leikni aldrei tekizt að skora úr vítunum, en nú fór á annan veg Markvörður Leiknis í þessum leik, Þor- leifur þjálfari, lék með þrjú brákuð rif- bein og honum var einfaldlea pakkað inn í svamp til að verja hann hnjaski. Fór að sjálfsögðu svo að „svamp- maðurinn,, varði vítið frá Einari Björnssyni þrátt fyrir að vera kominn af stað í öfugt horn. Um 10 mín. fyrir leikslok innsiglaði Svanur Kárason síðan sigur Leiknis með ágætu marki. Valur-Huginn 1—1(0—0). Enn gerast ævintýri á Austfjörðum. Huginn var mun betri aðilinn í þessum leik, en ekki gekk að skora og fór það nokkuð í taugar leikmanna. Öllum á óvart tókst heimamönnum að ná forystunni í síðari hálfleiknum en Pétur Böðvars- son jafnaði metin fyrir gestina áður en yfir lauk. Lið Vals leikur ágætlega á sínum heimavelli en á útivöllum hefur liðinu vegnað afleitlega, vægast sagt og fengið hvern stórskellinn á fætur öðrum. Staðan í riðlinum er nú þessi: Einhverji 8 6 1 1 16—4 13 Huginn 9 4 3 2 22—11 II Hrafnkell 6 5 0 1 19—6 10 Leiknir 9 3 2 4 19—12 8 Sindri 7 2 3 2 6—6 7 Súlan 8 1 2 3 4—16 4 Valur 7 0 1 6 8—39 1 -VS. Frá blaðamannafundinum 1 gærkvöldi. Gunnar Sigurðsson, varaformaður knattspyrnuráðs Akraness er lengst til hægri, þá koma tveir fulltrúar Eyjamanna og loks kemur fulltrúi KA. DB-mynd Bj.Bj. Pétur í sviðsljósinu —þegar Akranes mætir Feyenoord á Laugardalsvelli í kvöld Pétur Pétursson verður svo sannar- lega i sviðsljósinu í kvöld kl. 20 þegar Akurnesingar mæta honum og hol- lenzku félögum hans úr Feyenoord á Laugardalsvellinum. Verður vafalítið fjöldi manns mættur til að horfa á silfurliðið úr hollenzku deildakeppn- inni leika hér með Pétur í farar- broddi. Akurnesingar boðuðu til blaða- mannafundar í gærkvöld þar sem dagskrá heimsóknar Feyenoord var kynnt í smáatriðum, en lesendum er bentá DB í gær ef þeir vilja fá frekari upplýsingar um heimsóknina. Á blaðamannafundinum voru fulltrúar frá Eyjamönnum og KA á Akureyri en Feyenoord mun leika við ÍBV með Ásgeir Sigurvinsson innanborðs og KA með Árna Stefánsson í markinu síðar í vikunni. Þessir fuUtrúar ÍBV og KA kynntu rækUega dagskrá þá sem verður er Feyenoord heimsækir Vestmannaeyj- ar og Akureyri og greinilegt er á öllu að ekkert verður til sparað til að gera Hollendingunum heimsóknina ógleymanlega. Það er leikurinn í kvöld sem athyglin beinist að, a.m.k. hér í höfuðborginni. Fyrirhugað var að Karl Þórðarson léki með Akurnesingum í kvöld en félag hans, La Louviere, sendi skeyti á laugardagskvöld og dlkynnti að hann kæmi ekki i leikinn. Mun þetta véra gróft brot á samningi Karls auk þess sem búið var að ræða um þenn- an leik við forráðamenn La Louviere með löngum fyrirvara. Er það synd að fá ekki að sjá Karl leika með sín- um gömlu félögum. Hvað um það, leikurinn verður vafalitið jafnspenn- andi fyrir það og rétt er að benda fólki á að koma snemma til að forð- ast biðraðir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.