Dagblaðið - 24.07.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1979.
Lýðræðiskrafa:
Landið eitt kjördæmi
Hefur þú ort
vísu?
Þórður Kristjánsson, bifreiðastjóri
Hreyfli: Nei, það hef ég ekki gert en hef
þó gaman af vísum.
Karl Gunnarsson, bifreiðastjóri
Hreyfli: Nei, almáttugur hjálpi mér —
það hef ég aldrei gert.
Steinunn Kolbeinsdóttir, kennaranemi:
Aldrei og þó — einhverntíma reyndi ég
en árangurinn var ekki i samræmi við
erfiðið.
Sigurður Karlsson, bifreiðastjóri
Hreyfli: Nei, alveg laus við það.
Helga Jónsdóttir, fóstra: Já, einu sinni.
Þá var ég tiu ára. Þá varð flóð í Elliða-
ánum. Andinn kom yfir mig — mér
fannst þetta dllt svo stórkostlegt. Þá
orti ég vísu en hún ergleymd núna.
Þorsteinn Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri: Nei, aldrei og aldrei svo mikið
sem reynt það.
Spurning
dagsins
Ætli einhver þeirra sé hlynntur
hugmyndinni um eitt kjördæmi fyrir
landið allt?
DB-mynd
Gamall krati skrifar:
Nú er kjördæmamálið enn á ný
komið á dagskrá. Allir stjórnmála-
foringjar virðast vera sammála um að
i næstu kosningum verði kosið um
breytingar á kjördæmaskipaninni.
Ástæðan er auðvitað sú að menn geta
ekki lengur horft fram hjá þeim grófa
mismun sem er á atkvæðaþunga
fólks á Suðvesturlandi og sveitakjör-
dæmum eins og Vestfjörðum.
Ekki veit ég hver verður niður-
staðan. Margar tillögur hafa komið
fram sem miða að misjafnlega rót-
tækum umbótum. Kannski verður
samið um einhvern meðalveg; svo
sveitafólkið sleppi sér ekki alveg.
Það hefur vakið athygli mína að i
allri umræðunni upp á siðkastið og
reyndar i umræðunni í fyrra og
hitteðfyrra, er ekki minnst á þá
gömlu og góðu stefnu Alþýðuflokks-
iris að koma kjördæmaskipaninni á
réttan kjöl í eitt skipti fyrir öll. Það
verður aðeins gert með því að leggja
niður núverandi kjördæmi og koma
á einu kjördæmi fyrir landið allt.
Slík kjördæmaskipan er auðvitað
allra lýðræðislegust og tryggir þá
sjálfsögðu kröfu að einn maður hafi
eitt at'kvæði.
Ég veit að hægt er að nefna ýmsa
annmarka á þessari skipan, svo sem
um tengsl kjósenda og þingmanna,
erfiðleika við röðun á lista, erfiðleika
við framkvæmd prófkjörs o.fl. En ég
staðhæfi að allt eru það smámunir
miðað við þá réttlætiskröfu að full-
komið lýðræði og alger jöfnuður ríki
í landinu.
Mikið vildi ég að þeir menn sem
þjóðin ber mest og best traust til
huguðu að þessu máli. Það væri
Alþýðuflokknum til sóma ef hann
tæki á nýjan leik upp sína gömlu og
góðu kjördæmastefnu.
Efmynd er
bönnuð...
Þá eiga
böm
ekki að
fara inn
—þóttforeldrar
séu með
Bjarki Eliasson, yfirlögregluþjónn,
sendi DB „reglugerð um vernd barna
og ungmenna” vegna lesendabréfs
hér á síðunni i síðustu viku sem bar
yfirskriftina „Fékk ekki að fara með
son sinn inn á bíómyndina.” Bendir
Bjarki á 52. gr. þessarar reglugerðar
sem sýnir að dyravörðurinn í Tóna-
bíói stóð vel í stöðu sinni.
í greininni segir m.a.: „Ekki aflar
það barni innan ákveðins aldurs
heimildar til aðgangs að kvikmynda-
húsi þar sem sýnd er mynd sem
bönnuð er börnum á þessum aldri,
að það sé í fylgd með foreldrum eða
öðrum fullorðnum sem heimild hafa
til að sjá viðkomandi kvikmynd.
Nú hefur kvikmynd. . . . verið
bönnuð börnum innan tiltekins
aldurs. . . . og bera þá dyraverðir og
eftirlitsmenn samkomustaðar ásamt
hlutaðeigandi forstöðumanni ábyrgð
á framkvæmd bannsins. Ennfremur
bera foreldrar eða aðrir forráðamenn
ábyrgð á að börn sjái ekki slíkar
myndir.”
Við þökkum Bjarka Elíassyni kær-
lega fyrir þessa ábendingu og hljótum
að hrósa dyraverðinum í Tónabíói
fyrir að gegna störfum sinum af sam-
vizkusemi.
■ AUrOMATIC j |
flimzrm mrm
Gripið simann
gerið oóð
kaup
Smáauglýsingar
BIABSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld